Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 1
35. tölublað 51. örgangur
MENNING
FRETTIR
HEIMURINN
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Miljónir í gælufyrirtæki
19fyrirtœki hafa skuldað Rafmagnsveitu Reykjavíkur tœpar 40 miljónir íhálft ár eða lengur.
Hafskip skuldar 9.2 miljónir. Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi:
Fyrirtœkin njóta meiri velvildar en almenningur. Heildarskuld á annað hundrað miljónir?
Það er greinilegt af þessum
upplýsingum að það er ekki
nógu hart gengið fram við að inn-
heimta skuldir hjá þessum fyrir-
tækjum, sem njóta augsýnilega
meiri velvildar en almenningur
hjá Rafmagnsveitunni. Það er að
vísu varasamt að loka hjá fyrir-
tækjum t.d. í fískvinnslu, en það
væri a.m.k. eðlilegt að borgaryf-
irvöldum yrði oftar gerð grein
fyrir þessari stöðu, sagði Sigur-
jón Pétursson borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í samtali við
Þjóðviljann í gær.
í svari við fyrirspurn Sigurjóns
í borgarráði um skuldir einstakra
aðila við Rafmagnsveitu Reykja-
víkur kemur fram að 19 fyrirtæki í
Reykjavík skulda Rafmagns-
veitunni alls tæpar 40 miljónir
króna. Spurt var um skuldir sem
nema 500 þúsundum eða meira
og hafa staðið í hálft ár eða
lengur. Fyrirtæki sem lýst var
gjaldþrota ekki alls fyrir löngu
skuldar um fjórðung upphæðar-
innar eða 9.2 miljónir, og ganga
menn vart að því gruflandi að þar
er um að ræða Hafskip hf. 9 fyrir-
tæki skulda yfir eina miljón, þar
af eru þrjú gjaldþrota. Búið er að
semja við tvö sem skulda yfir
miljón, þ.á.m. ísbjörninn sáluga,
en Grandi hf. yfirtekur skuldir
hans. Lokunarhótun vofir yfir
fyrirtæki sem skuldar um 4 milj-
ónir.
10 fyrirtækjanna 19 skulda
hálfa til eina miljón í raforku og
þar af eru tvö gjaldþrota. Auk
þess skulduðu fjögur fiskvinnslu-
fyrirtæki 1,2-6 miljónir í desemb-
er sl., en þeim tókst að fá skuld-
inni breytt í skuldabréf.
Sigurjón sagði í gær að ekki
væri venja hjá Rafmagnsveitunni
að gefa upp nöfn skuldara og því
vildi hann ekki rekja nöfn þeirra
fyrirtækja sem hann fékk uppgef-
in hjá Rafmagnsveitunni. „Það
Þjófnaður
Breiðist
dansæði
útá Spáni?
Madrid — Úr dýragarði í Madrid
á Spáni hefur verið stolið sex
kyrkislöngum, tveimur krókó-
dílum og einni könguló af
gerðinni tarantúla.
Stjórn dýragarðsins hefur líf-
fræðistúdenta grunaða um verkn-
aðinn því það þurfi vana menn til
að handfjatla þessar skaðræðis-
skepnur.
Sérstök ástæða er til að vara við
köngulónni því samkvæmt ensk-
íslenskri orðabók hefur bit tar-
antúlunnar löngum verið talið
valda dansæði. Ekki víst að það
sé vinsælt á diskótekum sólar-
stranda.
—ÞH/reuter
kæmi mér ekki á óvart miðað við
þessar upplýsingar að heildar-
skuldin við Rafmagnsveitu
Reykjavíkur væri á annað hundr-
að miljónir. Þess ber að gæta að
þarna er um stærstu og erfiðustu
skuldarana að ræða, en á listann
vantar hins vegar fyrirtæki sem
skulda hærri upphæðir sem staðið
hafa skemur og einnig fyrirtæki
sem skulda minna en lengur“,
sagði Sigurjón í gær. - gg.
Kennarar koma úr þinginu reiðir og hneykslaðir vegna fjarveru fjármálaráðherra. Mynd: E.ÓI.
Kennarar
Ríkisstjórnin
Lofar 9%
verðbólgu
GuðmundurJ. formaður
VMSÍ: Spor í rétta átt en
ákveðnar tryggingar
vantar
Ríkisstjórnin birti í gær svar
við fyrirspurnum aðila vinnu-
markaðarins um horfur í efna-
hagsmálum og hvað ríkisstjórnin
er tilbúin til að gera til að liðka
fyrir kjarasamningum. 1 svari
ríkisstjórnarinnar segir að unnt
sé að draga svo úr verðbólgu að
verðhækkanir frá janúar í ár til 1.
janúar næsta ár verði aðeins 9%!
Forsendur þess eru sagðar vera
að viðskiptakjör eða aðrar ytri
aðstæður versni ekki frá því sem
nú horfir.
„Þessar tillögur ríkisstjórnar-
innar eru spor í rétta átt, en þó
skammt gengið. Auk þess vil ég
benda á að enn á alveg eftir að
semja um kauphækkanir og
hvernig tryggja á þann kaupmátt,
sem með þeim fæst“, sagði Guð-
mundur J. Guðnrundsson for-
maður Verkamannasambandsins
aðspurður álits á tillögunum í
gær.
I svari ríkisstjórnarinnar kem-
ur fram að hún muni stuðla að
lækkun á taxta Landsvirkjunar,
Rafmagnsveitna Reykjavíkur og
ríkissins um 10%, lækkun á taxta
Hitaveitu Reykjavíkur um 7%.
(Ekki öðrum hitaveitum).
Tekjuskattur einstaklinga
lækki um 150 milj. kr. árið 1986
og útsvör sveitarfélaga lækki
samtals um 300 milj. kr. Fyrir-
framgreiðsla skatta lækki um
8%. Lækkun nafnvaxta úr 32%
af skuldabréfum í 20% 1. mars,
18% 1. júní og í 12-141% 1. sept-
ember. Þá er boðuð lækkun á olíu
1. mars ekki nánar tiltekið og að
bensín lækki um 10% á næstu
tveimur mánuðum. Þá lofar ríkis-
stjórnin að stuðla að því að hækk-
un búvöruverðs verði stillt í hóf á
næstunni. - S.dór.
Þorsteinn lét ekki sjá sig
Fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um hagsmunamál kennara íengu svarað
Það voru okkur geysileg von-
brigði að fjármáíaráðherra
skuli ekki hafa niætt í þingið þeg-
ar fjalla átti um launakjör kenn-
ara. Það cr með endemum að
ráðamenn þjóðarinnar skuli ekki
hafa áhyggjur af því að skólahald
er í upplausn, sagði Sigrún
Ágústsdóttir formaður Kennara-
félags Reykjavíkur í samtali við
Þjóðviljann í gær, þegar Ijóst var
að Þorstcinn I'álsson myndi ekki
mæta til að svara fyrirspurn
Hjörleifs Guttormssonar um mál-
efni kennara.
Fyrirspurn Hjörleifs um ýmis
hagsmunamál kennara hafa legið
fyrir í þinginu í 2-3 vikur, en ekki
hefur fengist svar við henni vegna
fjarveru ráðherra. Fyrirspurnin
var á dagskrá þingsins í gær og
ekki annað vitað en Þorsteinn
ætlaði að mæta og því fjölmenntu
kennarar á þingpalla. Þorsteinn
lét hins vegar ekki sjá sig.
Þetta olli mikilli reiði kennara,
sem búist höfðu við því að kjör
þeirra yrðu rædd eins og krafist
hafði verið. Svar við spurningum
Hjörleifs verður hins vegar að
bíða þar til fjármálaráðherra hef-
ur fundið sér tíma til að fjalla um
þessi mál.
Kennsla féll niður í grunn-
skólum Reykjavíkur og á Vest-
fjörðum í gær, utan á ísafirði, en
þar hafa kennarar sagt upp störf-
um vegna óánægju með laun sín.
_8g' Sjá bls. 3