Þjóðviljinn - 12.02.1986, Qupperneq 5
DJOÐVIUINN
Umsjón:
Sigurður Á.
Friðþjófsson
Hildur Kjartans-
dóttir varafor-
mannsefni stjórnar
og trúnaðar-
mannaráðs Iðju:
Höfum verið
óánœgð með
starfsleysifor-
mannsins. Mikill
áhugifyrir því að
drífa uppfélags-
starfið og við
treystum Guð-
mundi Þ. Jónssyni
fyrir formannssæt-
inu.
Hildur Kjartansdóttir saumakona og frambjóðandi til varaformanns Iðju: Erum fullviss um að það takist að efla félagið til dáða undir forystu Guðmundar Þ.
Jónssonar.
Stjórnarkjör í Iðju á föstudag og laugardag
Iðjufólk vill breytingar
- Ég hef fullan vilja og löngun
til að starfa að þessum málum og
hef reyndar gert það að nokkru
sl. þrjú ár. Eftir þá reynslu er ég
ekki í nokkrum vafa um að það
þarf að setja meiri kraft í starf
félagsins og ég er tilbúin að leggja
mitt af mörkum í þeim efnum,“
segir Hildur Kjartansdóttir
saumakona sem er í framboði til
varaformanns Iðju á lista stjórn-
ar og trúnaðarmannaráðs félags-
ins. Kosning um stjórn og trúnað-
armannaráð fer fram á föstudag
og laugardag. Bjarni Jakobsson
formaður Iðju hefur boðið fram
sérstakan lista gegn lista stjórnar
og trúnaðarmannaráðs.
Tillaga uppstillingarnefndar
um að stilla Bjarna ekki aftur upp
til endurkjörs vegna mikillar óá-
nægju meðal félagsmanna með
störf hans var samþykkt sam-
hljóða í stjórn og trúnaðarmann-
aráði.
Hildur var spurð í hverju þessi
óánægja fælist aðallega.
Viljum stokka
upp stjórnina
- Við höfum verið óánægð með
starfsleysi formannsins sem aftur
hefur haft mjög lamandi áhrif á
starf stjórnarinnar því það hefur
vantað allaforystu ífélaginu. Það
er ekki hægt að taka á neinum
málum nema formaður félagsins
fylgi þeim eftir en slíkt hefur al-
gerlega skort. Þann tíma sem ég
hef starfað í tengslum við stjórn
félagsins hef ég ekki orðið vör við
neitt sjálfstætt framtak for-
mannsins til að halda starfsemi
félagsins virkri og hefur hvorki
sýnt vilja né getu til að stýra þessu
félagi. Þetta er einfaldlega ástæð-
an fyrir því að við viljurn stokka
upp stjórnina. Það er mikil óá-
nægja meðal félagsmanna með
hvernig á málurn hefur verið
haldið og það hefur verið mjög
þrýst á okkur stjórnarfólk að
skipta um formann.
- Þú telur að það sé hægt að ná
fram virkari starfí í félaginu með
því að skipta um formann?
- Já það teljum við sem stönd-
um að þessu framboði, og það er
rétt að það komi fram að það er
mjög breiður hópur sem stendur
að framboði stjórnar og trúnað-
armannaráðs.
Við sem höfum starfað með
formanni og varaformanni fé-
lagsins undanfarin ár og jafnvel
árabil vitum að Guðmundur Þ.
Jónsson er duglegur og hefur
hæfileika og vilja til að vinna að
okkar málum. Þess vegna
óskuðum við sérstaklega eftir því
að hann gæfi kost á sér í for-
mannsembættið og við erum
fullviss um að það takist að efla
félagið til dáða undir hans for-
ystu.
Bjarni ekki borið
við neinum veikindum
Stuðningsmenn Bjarna og
hann sjálfur hafa lýst því yfir í
blaðaviðtölum að hann hafi ekki
getað sinnt sínu starf' vcgna
veikinda, og það sé verið að
veitast að honum með þessu
framboði stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs. Hvað segir þú um
það?
- Við höfum ekki heyrt á það
minnst né orðið vör við að hann
bæri við veikindum vegna fjar-
vista eða óvirkni í starfi. Það er
alveg nýtt fyrir okkur sem höfum
komið nálægt stjórn félagsins,
utan hvað hann tók sér tveggja
mánaða veikindafrí sl. sumar og
Guðmundur Þ. Jónsson varafor-
maður bað hann þá sjálfur um að
fá umboð til að taka við stjórn-
inni á meðan. Það er ástæða til að
það komi fram, því Bjarni óskaði
ekki eftir því að fyrra bragði að
Guðmundur tæki þá við af sér.
Því hefur verið haldið fram í
Morgunblaðinu af stuðnings-
manni Bjarna að ykkar framboð
sé mótframboð gegn Bjarna Jak-
obssyni.
- Það er alrangt. Við erum á
lista stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs. Sá listi var samþykktur sam-
hljóða eftir tillögu uppstillingar-
nefndar félagsins. Það er auðvit-
að Bjarni sem er með mótfram-
boð en ekki við.
Ef þessi óánægja hefur ríkt
með störf Bjarna undanfarin ár,
var þá aldrei óskað eftir því að
hann léti af embætti?
- Jú það var fært í tal og honum
skýrt frá vilja félagsmanna í þeim
efnum fyrir rúmu ári síðan. Við
ákváðum þá að gefa honum tæki-
færi til að starfa áfram út þetta
kjörtímabil og gera sínar ráðstaf-
anir eða sýna meira framtak og
virkni í starfi fyrir félagið. Hann
hefur ekki notað tímann til þess
og sl. haust voru þessi mál rædd
við hann aftur. Þá lýsti hann því
yfir að hann vildi halda áfram en
honum var alla tíð ljós vilji rneiri-
hluta stjórnar og trúnaðarmann-
aráðs og það var á engan hátt ver-
ið að koma aftan að honum, síður
en svo.
Það vekur athygli að í grein
eftir einn af stuðningsmönnum
Bjarna lýsir sá því yfir í Morgun-
blaðinu í gær, þriðjudag, að þrátt
fyrir framboð Bjarna nú þá ætli
hann að fara að taka sér frí frá
þessu „félagsmálastússi“, eins og
það er orðað. Hvert er þitt álit á
þessari yfirlýsingu?
- Þetta er mjög undarlegt og ég
hreinlega skil ekki þessa yfirlýs-
ingu. Honurn var gefið tækifæri
fyrir ári síðan til að endurskoða
sín mál og ég get ekki séð neinn
tilgang í því að kjósa hann til for-
ystu aftur eingöngu til þess að
hann geti hætt. Ég get ekki séð
hvernig það geti orðið til að efla
félagið.
21 kona í stjórn
og trúnaðarmannaráði
Á lista stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs eru konur helmingur
stjórnarmanna og konur skipa 16
sæti trúnaðarmannaráðs af 20.
Hver er ástæðan fyrir því hve
konur láta nú til sína taka í fé-
laginu?
- Konur eru sem betur fer að
verða, og þegar orðnar miklu
virkari í félagsmálum en áður
var. Konur í Iðju eru láglauna-
konur og þær hafa ntikinn áhuga
og vilja til að starfa að félagsmál-
um til að knýja fram kjarabætur
sér til handa. Það hefur verið
áberandi fyrir þessar kosningar
hvað konur hafa látið til sín taka
og verið áhugasamar um að efla
og styrkja félagið.
Það er rétt að minna á að 60%
félagsmanna í Iðju eru konur og
konur gera sér betur grein fyrir
því en áður en það dugir ekki að
sitja hjá og vera aðgerðarlaus.
Við verðum að láta til okkar taka
til að hafa áhrif á okkar eigin
hagsmunamál og okkur finnst
ekki annað en sjálfsagt og tími til
kominn að kona skipi annað af
formannsembættunum. Stærsti
hlutinn af þeim sem eru í fram-
boði á lista stjórnar og trúnað-
armannaráðs eru trúnaðarmenn
á sínum vinnustað og vitum að
þetta fólk hefur fullt traust sinna
starfsfélaga.
Stórefla þarf
tengsl forystu við
félagsmenn
Hvert er að þínu mati brýnasta
verkefnið við að endurreisa starf
félagsins?
- Meginverkefnin að sjálf-
sögðu eru kjaramálin og samn-
ingar. Það hlýtur alltaf að vera
númer eitt. Það sent er þó ekki
síður mikilvægt að mínum dómi
er að stórefla tengsl á milli for-
ystumanna félagsins og félags-
manna almennt. Ég legg mjög
mikla áherslu á þetta atriði. Það
þarf að koma á skipulögðum
vinnustaðafundum, starfsgreina-
fundurn og allt fræðslustarf og
starfsmenntun þarf að taka föst-
um tökum. Hér eru engar áróð-
ursklisjur á ferðinni heldur er
þetta svo sannarlega mitt hjart-
ans mál.
Ertu bjartsýn fyrir þessar
kosningar?
- Já ég er frekar bjartsýn. Ég
veit hins vegar að þetta verður
hörð barátta og það er enginn
sigur unninn fyrr en búið er að
telja upp úr kjörkössunum. Ég
finn það hins vegar á þeim fjöl-
mörgu vinnustöðum þar sem við
Guðmundur höfum komið á síð-
ustu daga að Iðjufólk vill
breytingar, sagði Hildur Kjart-
ansdóttir.
-Ig-
Miðvikudagur 12. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5