Þjóðviljinn - 12.02.1986, Qupperneq 6
Framtíbin
MANNLÍF
Fjölmenni á kaffihúsi
Æskulýðsfylkingarinnar á Rein á
Akranesi. SvavarogJón Baldvin
spá íframtíðina
Enginn getur komið fram
breytingum nema eiga sér draum,
sagði Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins og vitnaði
þar í stjórnleysingjann Bakúnín í
upphafí máls síns á pólitísku kaff-
ihúsi Æskulýðsfylkingurinnar á
Akranesi í Rein á sunnudaginn
var, þar sem hann og Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýð-
uflokksins voru saman komnir til
að spá í stjórnmálaþróunina á ís-
landi næstu áratugina.
Eitt var það sem kaffigestir
gátu verið fyllilega sammála um,
semsé að breytinga er þörf. En
hvernig, og á hvaða forsendum?
Jón Baldvin spurði sem svo:
Verður lýðveldið til árið 2000?
Eða verða erlendir lánardrottnar
þá búnir að taka það upp í skuld?
„Ef draumurinn um varanlegt
velferðarríki hins vinnandi
manns á að rætast, verður ís-
lenska stjórnkerfið að gjör-
breytast. Ef við höldum áfram á
sömu braut og nú er vonlaust að
við höldum í við aðrar þjóðir í
lífskjörum“. Og um hvað eiga
breytingarnar að snúast? „Það
verða engar breytingar á gjör-
spilltu þjóðfélagi okkar nema al-
Magný Þórarinsdóttir og Kristín Edda Gísladóttir hvor með sitt áhugasvið, sú litla er hrifnari af Árna Ijósmyndara en
fyrirlestri um pólitík.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Tölvur
og grunnskóli.
Menntamálaráðuneytið mun í samráði við Endur-
menntun KHÍ og Námsgagnastofnun efnatil ráð-
stefnu um Tölvur og grunnskóla í Borgartúni 6
dagana 13.-15. febrúar nk.
Ráðstefnan skiptist í fjóra flokka sem hér segir:
Fimmtudagur 13. febrúar.
Kl. 13.30-17.30: 1. Ávarp menntamálaráð-
herra.
2. Yfirlit yfir það sem gert hef-
ur verið.
3. Niðurstöður nefndar sem
fjallaði um útboð vegna tölvu-
væðingar grunnskóla.
4. Væntanleg úttekt á stöðu
tölvumála í skólum.
Föstudagur 14. febrúar.
Kl. 9.00-12.00: Erlent samstarf.
Pallborðsumræður.
Kl. 13.15-17.00: Erindi um ýmsa þætti tölvu-
væðingar, tæknilegs, laga-
legs, þjóðfélagslegs og
kennslufræðilegs eðlis.
Laugardagur 15. febrúar.
Kl. 9.00-12.00: Hvert ber að stefna og hvað
skal leggja áherslu á í næstu
framtíð.
Pallborðsumræður.
Ráðstefnan er opin áhugafólki.
Menntamálaráðuneytið.
menningur á Islandi sameinist
um nýtt apparat, öflugan sósíal-
demókratískan verkalýðsflokk,
sem mun hafa frumkvæði um
breytingar. Ef við eigum að eiga
raunsæjar vonir um bjartari
framtíð verður þetta að gerast,“
sagði Jón.
„Grundvallarforsenda fyrir því
að okkur takist að halda hér uppi
sjálfstæðu þjóðfélagi er sú að
dregið verði úr misskiptingu
lífsgæðanna. Almenningiir í
þessu Iandi verður að hætta að
styðja afturhaldsöflin til valda,
þess í stað verðum við að fylkja
okkur um hreyfingu sem á í fullu
tré við íhaldið. Hér hefur verið
ríkjandi efnahagsleg aðskilnað-
arstefna og því verðum við að
breyta," sagði Svavar m.a. Báðir
voru formennirnir sammála um
að A-flokkarnir þyrftu að eiga
mun meira samstarf, bæði á
stjórnmálasviðinu og innan
verkalýðshreyfingarinnar. En á-
greiningsmálin eru líka ófá. Að
lokum sameinuðust þeir þó um
að fara með Akraborginni aftur
til Reykjavíkur.
Þetta var fyrsta tilraun Æsku-
lýðsfylkingarinnar til að halda
uppi kaffihúsi í Rein og það er
elcki hægt að segja annað en að
vel hafi tekist til. Akurnesingar,
og reyndar Vestlendingar og
Reykvíkingar að auki, fjöl-
menntu í Rein til að skeggræða
um pólitík og formennirnir voru
krafðir um viðhorf til hinna ýmsu
þátta þjóðlífsins. Það er engin
ástæða til annars en að ætla að
kaffihús í Rein verði fastur liður í
bæjarlífinu í framtíðinni.
-«g
Lýðveldið tekið upp í skuld? Mynd
Á.Á.
Það er engin ástæða til að örvænta um framtíð íslendinga, þótt nú ríki hér
efnahagslegt apartheid. Mynd Á.Á.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. febrúar 1986