Þjóðviljinn - 12.02.1986, Page 13

Þjóðviljinn - 12.02.1986, Page 13
HEIMURINN Filippseyjar Aquino boðið ráðgjafastarf Reagan vill Marcos ogAquino ístjórn en Aquino segir að nú komi íIjós hverjir séu vinir Filippseyinga Manila - Þó engar öruggar tölur séu enn komnar um úrslit forsetakosninganna á Fil- ipsseyjum eru línur nú teknar að skýrast varðandi það, hvernig þróun mála verður á næstunni. ríkisstjórn. Þegar þessar fréttir bárust til Filippseyja var Marcos forseti snöggur til og boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann bauð Aquino að gerast einn af meðlimum í ráðgjafanefnd ríkisins. Hann útskýrði ekki nák- boðað til blaðamannafundar þar sem hún neitaði að svara spurn- ingum fréttamanna en las þess í stað upp yfirlýsingu. í henni hvatti hún „vini erlendis" til að viðurkenna og fagna opinberlega sigri hennar í forsetakosningun- um. Hún vildi ekkert segja um yfirlýsingar bandarískra yfirvalda en talið er að orð hennar um að „á þessum óvissutímum munum við komast að því hverjir eru vinir okkar", lýstu hennar viðhorfum nú, hvað Bandaríkin varðar. Það hefur sætt nokkurri undr- un í Bandaríkjunum að Reagan skuli koma með yfirlýsingar um að heppilegast væri að Aquino og Marcos mynduðu stjórn í samein- ingu, þegar bandarískir eftirlits- menn nteð kosningunum hafa látið í ljós það álit sitt, að stór- felld kosningasvik hafi verið framin af stuðningsmönnum Marcosar. í ritstjórnargrein dag- blaðsins New York Times segir að Bandaríkjamenn eigi hiklaust að styðja Corazon Aquino og hennar flokk. Hvetur blaðið Bandaríkjastjórn til þess að lýsa yfir fullum stuðningi við Aquino. Þingið á Filippseyjum á nú að skera úr um það hver sé sigurveg- ariijn en á meðan berast stöðugt tölur úr talningu Comelec og Namfrel, kosninganefndar ríkis- ins og hinnar óháðu sjálfboða- liðshreyfingar um frjálsar kosn- ingar. Comelec segir að þegar búið sé að telja 53% atkvæða sé Marcos með 5.899.873 atkvæði en Aquino með 5.384.368 at- kvæði. Namfrel segir hins vegar að þegar búið sé að telja 63% atkvæða sé Marcos með 6.281.510 atkvæði en.Aquino sé hins vegar með 6.933.389 at- kvæði. Reagan Bandaríkjaforseti hef- ur lýst því yfir að hann vilji helst sjá styrka stjórn á Filippseyjum og hefur í því sambandi nefnt þann möguleika að hinar and- stæðu fylkingar Aquinos og Marcosar myndi sameiginlega væmlega þessa hugmynd sína en orðaði það svo að þetta ráð yrði „æðsta ráðgjafavald ríkisins" og í þessu ráði yrðu öll stjórnmála- samtök, fyrrverandi ráðherrar og forsetaframbjóðendur. Áður en Marcos bar fram þess- ar hugmyndir sínar hafði Aquino ERLENDAR FRÉTTIR INGÓLFUR /n r ii 1 C D HJORLEIFSSON R fc U I fc K Lech Walesa Akærur felldar niður Réttarhöldin yfir Lech Walesa urðu stutt Gdansk - Allar ákærur á hend- ur Lech Walesa, foringja verkalýðssamtakanna Sam- stöðu í Póllandi voru felldar niður í gær. Waiesa mætti fyrir rétti í gær, sakaður um óh- róður þegar hann dró í efa þær tölur sem gefnar voru um úrslit þingkosninga þar í landi á síð- asta ári. Þetta gerðist þegar Walesa sagði dómaranum að hann hefði ekki ætlað sér að niðra þá opinberu starfsmenn sem höfðu umsjón með kosn- ingunum. Því hafði reyndar verið spáð í fyrradag að Walesa yrði aldrei kærður og jafnvel að málið yrði látið niður falla. Þetta eru fyrstu réttarhöldin sem Walesa hefur mætt í síðan Samstaða var þving- uð undir herlög ári 1981. Þegar Walesa kom út úr réttar- salnum í gær sagði hann við fréttamenn að skynsemin hefði unnið. „Þetta er fyrsta skrefið í átt að málamiðlun síðan í des- Lech Walesa. Sagði skynsemina hafa sigrað þegar hann kom út úr réttarsalnum. ember 1981“, var haft eftir hon- um. í þessum stuttu réttarhöld- um voru engar sannanir lagðar fram fyrir sekt hans af þeim 15 kosningastjórum sem Walesa átti að hafa vanvirt. Þess í stað sagði saksóknarinn í málinu að kosn- ingastjórarnir myndu draga ákærurnar til baka ef Walesa myndi gefa yfirlýsingu sem þeir gætu verið ánægðir með. Walesa reis þá samstundis upp og sagði: „Það var aldrei ætlun mín að bera róg á nokkurn mann. Það var aldrei ætlun mín að niðurlægja nokkurn mann“. Þessi yfirlýsing nægði og eftir stutt réttarhlé var tilkynnt að Walesa væri laus undan ákærum. Síðustu dagana fyrir réttar- höldin mátti sjá þess greinileg merki að stjórnin liti á réttarhöld- in sem pólitíska klípu og þau vildu komast hjá því að Walesa yrði dæmdur, sérstaklega þar sem hann er nú orðinn handhafi friðarverðlauna Nóbels. Einn helsti ráðgjafi Jaruzelskís sagði þannig í síðustu viku að, hvorki flokkurinn né stjórnin hefði nokkurn áhuga á því að stofna til pólitískra réttarhalda yfir Wa- lesa. Duvalier Enginn vill „Baby Doc“ Genf- Frönsk og bandarísk yfirvöld leita nú allt hvað þau geta að einhverju landi þar sem Charles „Baby Doc“ Duvalier má setjast að með ættingjum sínum. Dyrum er hins vegar alls staðar lokað á þennan landflótta fyrrver- andi „lífstíðar forseta". Duvalier hefur dvalist ásamt 22 manna fylgdar- liði í franska alpaþorpinu Talloires undanfarna daga. Nú ntun hins vegar hlaupinn flótti í liðið því í gærmorgun sást til nokkurra meðlima í fjölskyldu hans þar sem þau fóru um borð í flugvél í Genf og flugu áleiðis til Parísar. Fólkið komst á flugvöllinn í Genf án þess að fara inná svissneskt landsvæði þar sem stuttur vegur tengir Cointrin flugvöllinn í Genf við franska grund. Offsetljósmyndarar Óskum eftir aö ráöa offsetljósmyndara. Vaktavinna. Blaðaprent hf. Síðumúla 14. Njósnaraskiptin Sjaranskí laus úr haldi Kona hans kom til Vestur-Þýskalands til að taka á móti honum. Skiptin gengu samkvœmt áœtlun Vestur-Berlín - í gærmorgun kl. 10.00 var Anatolí Sjaranskí, sovéska andófsmanninum, af- hentur fulltrúum bandaríska utanríkisráðuneytisins í njósnaraskiptum þeim sem fram fóru í gærmorgun. Frá Berlín var flogið með hann til Frankfurt þar sem kona hans, Avítal Sjaranskí tók á móti honum en hún kom í gær frá ísrael til að taka á móti honum. Þau hjónin hafa ekki sést síðan daginn eftir brúðkaup þeirra í Moskvu. Þann dag flaug Avítal tii ísraels þar sem hún hafði fengið leyfi til að setjast að þar í landi. Avítal fór til ísraels í þeirri trú að maður hennar fengi fljótlega svipað leyfi. Ekki varð úr því og árið 1977 var hann handtekinn og dæmdur árið eftir í 13 ára fangelsi fyrir njósnir. Sjaranskí var einn helsti leiðtogi sovéskra andófs- manna á 8. áratugnum. Þó að mesta athyglin hafi beinst að Sjaranskí voru átta manns til viðbótar í þessum njósnaraskiptum. Sjaranskí var leiddur yfir brúna á undan átt- menningunum og er haft eftir nærstöddum fréttamönnum að svo hafi virst sem Sjaranskí væri við góða líkamlega heilsu. Haft var eftir bandarísku full- trúunum við skiptin, að allt hafi gengið samkvæmt áætlun. Suður-Afríka Enn rætt urn lausn Mandela Suður-Afríkustjórn neitarþví að láta eigi Mandela lausan ítengslum Jóhannesarborg - í gærdag kom upp sterkur orðrómur um að blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela sem nú er í fangelsi í Höfðaborg, yrði látinn laus nú á næstu dögum, það yrði jafnvel í dag. Þessi orðrómur kom upp í tengslum við njósnaraskiptin sem við njósnaraskiptin fóru fram í gær. Suður-Afrísk yfirvöld neituðu þessum orðrómi og sögðu að lausn Anatólís Sjar- anskís úr haldi væri ekki nóg til þess að Mandela yrði látinn laus. Það var ísraelska útvarpið sem kom þessum orðrómi af stað og tengdi Mandela við lausn Sjaran- skís. Mandela hefur verið í fang- elsi síðan 1962 og kona hans. Winnie Mandela, sagði fyrir síð- ustu helgi að það væri ekki spurn- ing um það hvort, heldur hvenær Mandela yrði látinn laus. Forsætisráðherra Suður- Afríku P.W.Botha sagði í gær að auk Sjaranskís hefði einnig þurft að leyfa Sakharof að fara úr landi til þess að grundvöllur yrði fyrir því að Mandela yrði látinn laus. Miðvikudagur 12. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINfl — SÍÐA 13 i m getrauna- VINNINGAR! 24. leikvika - 8. febrúar 1986 VINNINGSRÖÐ: X21-X12-2XX-X12 1. Vinningur: 11 RÉTTIR kr. 178.265 18818 41851(2/11,6/10) 107408(6/10) 44523(4/10) 125891(6/10) 2. Vinningur: 10 RÉTTIR, kr. 4.982 5647 6865 6907 8139 8398 8943 9436 9689 11260 12744 14317 24188 27531 27540 28735 40162 2/10 41833* 62577+ 51078 62816 51172 62910+ 52547 63037+ 55376 64212* 56531 65010* 60589 + 69858* 60947 70250 4/10 77669 78629+ 78691+ 79648+ 96407 98302 99861 99886 109310+ 109582 125889 125892 126040*+ 126997 127686* 128541 128727 135087X 130232*+ 504509 131091 132360 132796 133208 133272 134350 Ur 21. v. 24519 Ur 23. v. 59683 Kærufrestur er til mánudagsins 3. mars 1986 kl. 12.00 á hádegi. jslenskar (ictraunir, Íþróttamiöstödinni \ Sigtún, Rcykjavik Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni Reykjavik. Vinnmgsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+1 verða að framvísa eða senda stofninn og fullar upplvsina ar om nafn og heimilisfang til (slenskra Getrauna fyrir lok kærufrests. I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.