Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR Kvennakarfa KR-stúlkur meistarar KR-stúIkurnar urðu ís- landsmeistarar í körfuknattleik kvenna á sunnudagskvöldið er þser sigruðu ÍR í tvíframlengdum leik í Hagaskóla, 52-51. Einsog tölurnar gefa til kynna var leikur- inn jafn og aesispennandi. Það má segja að þetta hafi verið hreinn úrslitaleikur um íslandsmeistar- atitilinn því ÍR var eina liðið sem gat hugsanlega veitt KR einhverja keppni. Stigahæst hjá KR var Linda Jónsdóttir með 26 stig en hjá ÍR Þóra Gunnarsdóttir með 12 stig. Einn annar leikur var í kvenna- deildinni um helgina. IS vann Hauka 43-34 í sveiflukenndum leik. Staðan í deildinni er nú svona: KR................10 9 1 472-352 18 IBK...............10 6 4 453-407 12 (S................10 6 4 371-325 12 IR................ 9 5 4 344-342 10 Haukar............11 5 6 450-424 10 UMFN..............10 4 6 340-347 8 lA................10 0 10 115-348 0 —HÁ Ísland-Noregur Óttar líklega með Sigurður jafnvel líka. Meirihluti norska liðsins úr íslendingaliðunum. Helgi ífararstjórn Nú eru allar líkur á að Þorgils Ottar Mathiesen, línumaðurinn snjalli, geti leikið með íslenska landsliðinu gegn Norðmönnum hér á landi um næstu helgi. Krossband í hné Óttars er slitið en með því að nota sérstaka spelku hefur hann getað byrjað að æfa á ný og reynst vonum framar. Sigurður Gunnarsson meiddist í æfingaleiknum í Keflavík á sunnudagskvöldið en í gær voru taldar nokkrar líkur á að hann gæti leikið um helgina. Leiknir verða tveir leikir gegn Norðmönnum. Sá fyrri fer fram í Laugardalshöllinni á föstudags- kvöldið kl. 20 en sá síðari í Selja- skóla ki. 18 á laugardaginn. Það vekur nokkra athygli að 8 leikmenn af 14 sem koma hingað með norska landsliðinu leika með „íslendingaliðunum" Sta- vanger og Fredensborg/Ski. Fimm frá Stavanger og þrír frá Fredensborg. Þjálfurum liðanna, Helga Ragnarssyni og Gunnari Einarssyni, var sérstaklega boðið hingað af norska handknatt- Ieikssambandinu. Gunnar gat ekki þekkst boðið en Helgi verð- ur í fararstjórn norska liðsins. Þetta er mikil viðurkenning fyrir störf þeirra í Noregi. —VS 3. deild England Þriðja þrenna Linekers Gary Lineker, enski landsliðs- miðherjinn, skoraði sína þriðju þrennu í ensku knattspyrnunni í vetur þegar Everton malaði Manchester City 4-0 á Goodison Park í gærkvöldi. Everton hafði mikla yfirburði í leiknum og náði þriggja stiga for- ystu í 1. deild með sigrinum. Gra- eme Sharp skoraði fjórða mark meistaranna sem nú eru taldir líklegasta liðið til sigurs í 1. deildinni. IBK og IA unnu nágrannaslagina Keflvíkingar náðu Týrurum að stigum á toppi 3. deildarinnar í handknattleik i gærkvöldi með því að sigra nágrannana, UMFN, örugglega, 30-20, í Njarðvík. Annar nágrannaslagur fór fram í Borgarnesi. Skagamenn, ÍA, komu í heimsókn og sigruðu Skallagrím auðveldlega, 27-14. Loks mættust Ögri og Fylkir í Seljaskólanum í Reykjavík og þann leik vann Fylkir 31-17. Staðan í 3. deild: Týr...........18 15 0 3 470-344 30 IBK...........18 15 0 3 490-344 30 lA............18 12 3 3 459-368 27 ReynirS.......17 11 3 3 415-360 25 ÞórA..........17 11 2 4 398-336 24 Fylkir........18 10 1 7 402-361 21 Selfoss....... 17 8 3 6 373-359 19 Völsungur.....17 6 1 10 411-417 13 Hveragerði....18 6 1 11 425-495 13 UMFN..........19 5 3 11 458-469 13 lH............17 5 0 12 393-463 10 Skallagrímur.... 18 3 1 14 356-465 7 Ögri..........20 0 0 20 288-567 0 í kvöld kl. 20 mætast Selfoss og Reynir á Selfossi. —VS Handbolti Steinar Birgisson — sterkasti landsliðsmaðurinn. Handbolti Steinar sterkastur! ■■■■■■ ■ \ Fjolmorg boo Grœnlandsför í maí, þrjú í athugun —VS/Reuter Staöan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. í blað- inu í gær vantaði einn leik inni. UMFN......18 15 3 1558-1420 30 Haukar....18 14 4 1534-1418 28 Valur.....18 8 10 1422-1432 16 IBK.......18 8 10 1381-1446 16 KR........18 6 12 1413-1508 12 IR....... 18 3 15 1445-1529 6 Stigahæstir: Valur Ingimundarson, UMFN..........455 Pálmar Sigurðsson, Haukum..........422 Birgir Mikaelsson, KR..............352 RagnarTorfason, (R.................320 Jón Kr. Gislason, IBK..............299 Steinar Birgisson er í bestu þjálfuninni af öllum landsliðs- mönnunum í handknattleik, sam- kvæmt alhliða þrekmælingu sem Gunnar Þór Jónsson læknir landsliðsins stóð fyrir. Steinar er þrekskrokkur mikill, enda í vík- ingasveit lögreglunnar, og enginn félaga hans í landsliðinu stóðst honum snúning. Markverðirnir Kristján Sigmundsson og Ellert Vigfússon komu einnig vel út úr mælingunni en í ljós kom að landsliðsmennirnir þyrftu að bæta sig á þessu sviði ef vel á að vera. —VS Sund Boð um þátttöku í alþjóðlegum mótum streyma nú inná skrif- stofu Handknattleikssambands Islands. Einu hefur þegar verið tekið — móti sem fram fer á Grænlandi í maí. Þar leika lands- lið Bretlands, Grænlands og Fær- eyja ásamt ungiingalandsliði Is- lands. A-landsliðinu hefur verið boð- ið til Hong Kong í apríl. Þar munu auk landsliðs heimamanna lið Japans og Kína taka þátt. Lið- inu hefur einnig verið boðið til Moskvu í júlí til þátttöku í „Góð- viljaleikunum“. Kvennalandslið- inu hefur verið boðið til Kanada í mars en þar verða þátttakendur landslið Kanada, Frakklands og Ítalíu. Stjórn HSÍ á eftir að taka ákvörðun um hvort þessi þrjú boð verði þegin. —VS 2.deild HSK í vandræðum HSK lenti í óvæntum erfið leikum með Esju í B-riðli 2. deildar karla í körfuknattleik um helgina. Leikið var í Reykjavík og HSK vann 73-71 og er á ný í efsta sæti riðilsins. UÍA fór létt með Árvakur á Egilsstöðum og sigraði 94-49. Um fyrri helgi vann Snæfell Esju í Reykjavík 79-46. Staðan í B-riðli: HSK.................7 6 1 520-386 12 Snæfell.............8 6 2 565-465 12 UlA.................7 5 2 500-430 10 Léttir..............8 5 3 535-510 10 Esja................8 1 7 437-555 2 Árvakur.............8 0 8 427-638 0 Tvö efstu lið riðilsins fara í úr- slitakeppnina um 1. deildarsætið. —HÁ/VS Körfubolti Fjögur met í Bonn Á alþjóðlegu móti í Bonn um síð- ustu helgi voru sett fjögur met í 25 m laug. Vegna smæðar laugarinnar eru þau ekki skráð sem heimsmet. Tvö þeirra setti austur-þýska stúlkan Silke Hörner. Hún synti 100 m bringusund- iðá 1 mín, 7,05 sek. og 200 m bringu- sund á 2:25,71. Sovétmaðurinn Igor Polanski synti 200 m baksund á 1:56,73 og síðast en ekki síst setti vestur-þýska sveitin mct í 4x200 m skriðsundi, 7:05,17 mín. Sveitina skipa þeir Rainer Henkel, A 'exander Schowtka, Dirk Korthals og Michael Gross. —HÁ/Reuter Frjálsar Sex heimsmet Sex heimsmet í frjálsum íþrótt- um innanhúss voru sett um síð- ustu helgi, þar af tvö í stangar- stökki. Sergei Bubka stökk 5,92 m í Moskvu á laugardaginn en þetta nýja met stóð ekki lengi því strax daginn eftir stökk Banda- ríkjamaðurinn Billy Olson 5,93 m á móti í New Jersey. í landskeppni milli Bretlands og Ungverjalands í Cosford bætti Zola Budd frá Bretlandi metið í 3000 m hlaupi kvenna. Hún hljóp á 8:39,79 mín. Fleiri metvoru sett í hlaupum. Thomas Schönlebe, A.Þýskalandi, hljóp 400 m karla á 45,41 sek. í Austur-Berlín og á sama móti hljóp landi hans Corn- elia Oschkenat 50 m grindahlaup kvenna á 6,71 sek. Þá hljóp Mar- icica Puica, Rúmeníu, 1500 metraá 4:14,17 mín. ámótiíött- awa. —HÁ/Reuter Hörð fallbarátta Fallbaráttan í 1. deild karla í körfuknattleik harðnaði til muna um helgina. Reynir úr Sandgerði vann Breiðablik 59-48 í Kópavogi á föstudagskvöldið og þar með er Kópavogsliðið komið í nokkra fallhættu. Þór tapaði 62-53 í Grindavík á laugardaginn í leik sterkra varna en malaði síðan ÍS í Reykjavík á sunnudaginn, 93-63. Fjögur af sex liðum deildarinnar eru því í fallbaráttu en staðan er þessi. Fram..........16 16 0 1355-977 32 Grindavík.....18 11 7 1269-1278 22 Breiðablik....17 7 10 1111-1231 14 ÞÓrA..........16 6 10 1089-1088 12 ReynirS....... 16 5 11 951-1109 10 Is............15 4 11 954-1046 8 Næsti leikur er Grindavík— Breiðablik á fimmtudagskvöldið. —HÁ/VS Miðvikudagur 12. febrúar 1986 Kuwait Vísað úr FIFA! Körfubolti UMFN-Valur Kuwait var í gær vísað úr Alþjóða Knattspyrnusambandinu, FIFA. Undanfarna mánuði hafa málefni knattspyrnusambands Kuwait verið í miklum ólcstri, stjórnunarlega og fjárhagslega. Kuwaitbúum var gefinn 15 daga frestur til að gera hreint fyrir sínurn dyrum og kjósa nýja stjórn. FIFA setti Kuwait í lands- leikjabann fyrir mánuði síðan. Þá hafa dómarar verið í verkfalli í landinu og þurft hefur að ráða erlenda kollega þeirra til að halda knattspyrnunni gangandi. —VS/Reuter Undanúrslitin í bikarkeppni karla í körfuknattleik hefjast í kvöld. UMFN og Valur leika fyrri leik sinn, hann fer fram i Njarð- vík og hefst kl. 20. Haukar og ÍBK leika annað kvöld í Hafnarfirði en seinni leikir liðanna fara fram í næstu viku. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.