Þjóðviljinn - 08.03.1986, Blaðsíða 1
HEIMURINN
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Bretland
8
mars
1986
laugar-
dagur
56. tölublað 51. árgangur
DJOÐVIUINN
Aldraðir
Neyðarástand
Aðeins 3 af 1100 manna biðlista í söluíbúðir. 300 í sárri neyð
Söluíbúðir stytta ekki biðlista
aldraðra hjá borginni. Komið
hefur fram að af þeim 1100 sem
nú eru á biðlista eru 500 sem ekki
eiga eigin íbúð, 300 eru í sárri
neyð og þyrftu að fá úrlausn þeg-
ar í stað. Hægagangur meirihlut-
ans í íbúðabyggingum hefur vald-
ið uppsafnaðri ncyð aldraðs
fólks, sagði Guðrún Ágústsdóttir
borgarfulltrúi m.a. á borgar-
stjórnarfundi á fimmtudags-
kvöldið.
Það kom fram í svari Páls
Gíslasonar Sjálfstæðisflokki við
Hœkkanir
Kartöflur
hækka
um 5,25%
Landbúnaðarráðuneytið
heimilaði þessa hœkkun
1. mars sl.
Verð á kartöflum hækkaði um
5,25% 1. mars sl. Að sögn Gests
Einarssonar forstjóra Ágætis var
það landbúnaðarráðherra sem
heimilaði þessa verðhækkun og
voru kartöflur látnar fylgja þeim
hluta landbúnaðarvara sem
hækkuðu í verði 1. mars sl.
-S.dór
ASÍ
Eftirlits-
nefhd
skipuð
Verðlagseftirlit Alþýðu-
sambandsins er að fara í
gang. Birt verða nöfn
þeirra verslana sem eru
með hagstœðasta vöru-
verðið
Alþýðusambandið hefur
skipað nefnd til að annast eftirlit
með vöruverði í landinu í kjölfar
kjarasamninganna. I nefndina
voru skipuð Guðríður Elíasdótt-
ir, Karl Steinar, Jón Agnar Egg-
ertsson, Hólmgeir Jónsson og
Lára Júlíusdóttir lögfræðingur
ASÍ.
Hlutverk nefndarinnar verður
að fylgjast með verðlagi í landinu
og að það loforð sem gefið var um
verðlækkun sem forsenda kjara-
samninga verði haldið. Til stend-
ur að ráða fólk til starfa við verð-
lagseftirlit. Þá er og fyrirhugað að
senda út reglulegar upplýsingar
til birtingar í fjölmiðlum um hvar
vöruverð í verslunum er lægst.
-S.dór
fyrirspurn Guðrúnar að aðeins 3
einstaklingar af þeim 1100 sem
eru á biðlista hjá Félagsmála-
stofnun hafa séð sér fært að
kaupa íbúð í VR blokkinni svo-
kölluðu í Kringlunni og hjá Sam-
tökum aldraðra í Bólstaðahlíð,
45 hafa flutt þar inn, en aðeins 3
hafa verið á biðlista, þar sem
neyðin er sárust.
Vitað er að aðeins fjársterkir
aðilar sem eiga stórar eignir geta
keypt þær söluíbúðir sem í boði
eru, hjá VR og Samtökum aldr-
aðra, en sem kunnugt er hefur
íhaldsmeirihlutinn í borgarstjórn
lagt söluíbúðirnar upp sem
möguleika til þess að leysa úr
húsnæðisvanda gamla fólksins,
og hefur lagt stórfé í byggingu
þjónustukjarna í sambandi við
þessar byggingar.
Hins vegar hefur borgin á síð-
astliðnum fjórum árum ekki
byggt neina íbúð sem leigð hefur
verið út til aldraðra, en losað sig
við Hafnarbúðir og svelt B-álmu
Borgarspítalans. Ibúðirnar við
Seljahlíð þar sem eru 80 rými
verða ekki tilbúnar fyrr en í vor,
um það bil sem kosningar munu
fara fram. 20-30 íbúðir á horni
Garðastrætis og Vesturgötu eru
enn á teikniborðinu, en það kom
fram hjá Páli á borgarstjórnar-
fundinum, að ekki hefur verið
ákveðið hvort þær verða seldar
eða leigðar.
í bókun borgarfulltrúa Abl.
um þetta mál segir, að í ljósi
þessa megi vera ljóst, að meirih-
lutinn hefur brugðist gjörsamlega
þeirri skyldu sinni að beina at-
hyglinni sérstaklega að úrlausn á
vanda þeirra sem verst eru settir.
-gg
Rottan
sem dó
London - ítalskur vörubílstjóri
sem tók rottuna sína með sér til
Englands í bílferð var fyrir stuttu
sektaður um 1000 pund af ensk-
um dómstólum.
Lögreglaní Englandi stöðvaði
Roberto Bersini, 31 árs, þegar
þeir sáu rottu hlaupandi um bíl-
inn. Rottan var hins vegar gælu-
dýr Robertos og heitir Velano.
Roberto var auðvitað afskaplega
sár þegar Velano var aflífuð en
vera hennar í Englandi braut í
bága við lög gegn hundaæði. „Ég
á hana,“ sagði hann við dóma-
rann, „ég fékk hana á rannsókna-
stofu og hélt að hundaæðislögin
ættu aðeins við hunda og ketti.“
1
Anna, Berglind, iris, Erla og Magnea á dagheimilinu Austurborg eru meðal þeirra lægst launuðu hjá borginni. I dag er hins vegar alþjóðlegur baráttudagur
þeirra og annarra kvenna og verður gengið fylktu liði frá Hljómskálanum kl. 13.30 niður að Hlaðvarpa, þar sem mikill baráttufundur hefst kl. 14.00. Áfram
stelpur! Mynd Sig.
Reykjavíkurborg
Karlar einoka toppana
Engin kona í sex efstu launaflokkunum. Konur mest áberandi í lœgstu launaflokkum
Ekki er að flnna eina einustu
konu meðal þeirra sem skipa
sér ■ sex efstu launaflokkana hjá
Reykjavíkurborg. I tíu efstu
launaflokkunum eru 104 karlar,
en aðeins 9 konur. Þá er ótaiinn
Davíð Oddsson borgarstjóri, en
hans laun koma ekki til umræðu
við gerð kjarasamninga, enda
þiggur hann ráðherralaun, og
mikill reginmunur á honum og
næsta manni fyrir ncðan hann í
launum.
Þetta kemur fram í talningu
sem Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar hefur gert að beiðni
borgarstjórnar. í nóvember síð-
astliðnum lögðu borgarfulltrúar
Abl. fram tillögu þess efnis, með
það í huga, að niðurstöðurnar
yrðu síðan lagðar til grundvallar
við gerð næstu sérkjarasamninga
Starfsmannafélagsins, sem nú
standa fyrir dyrum.
Þær stöður hjá borginni sem
gefa hæstar tekjur eru m.a. skrif-
stofustjóri borgarstjórnar, borg-
arverkfræðingur, borgarlæknir,
rafmagnsstjóri, félagsmálastjóri,
forstjóri SVR, forstöðumaður
skólaskrifstofu og fjármálastjóri
rafmagnsveitunnar, svo dæmi séu
tekin úr sex efstu flokkunum.
Föst laun þessara embættis-
manna eru allt að rúmlega 60 þús-
und krónur á mánuði.
í lægstu flokkunum eru konur
hins vegar mest áberandi. í
lægsta launaflokki þar sem laun
eru frá 18.500 krónum er 161
kona, en 72 karlar. Næsta lægsti
launaflokkur hefur 71 konu og 30
karla innanborðs. Fjölmennustu
starfsheiti hjá borginni eru fóstr-
ur, sjúkraliðar og vagnstjórar
SVR. Vagnstjórar eru 154, þar af
7 konur og taka þeir laun frá
20.181 krónu. Aðeins tveir karlar
eru meðal 172 sjúkraliða, sem fá
laun frá 21.410. Fóstrur eru sam-
kvæmt þessari talningu eingöngu
konur, alls 134, með laun frá
24.097 krónum.
-gg