Þjóðviljinn - 08.03.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.03.1986, Blaðsíða 2
 Albert Guðmundsson segir engar viðrœður við Alusuisse standa yfir. Steingrímur og Matthías segjast vera í álviðrœðum í Sviss. Er ástœðan dagpeningagreiðslur? Þeir Steingrímur Hermannsson og Matthías Á. Mathiesen brugðu sér til Sviss að horfa á tvo landsleiki íslenska liðsins þar. Sá áhugi sem þeir sýna íþróttinni er lofsverður. Aftur á móti segjast þeir fara þessa ferð til að eiga við- ræðu við Alusuisse-menn og efna- hagsmálaráðherra Sviss. Eg kannast ekki við neinar við- ræður við Alusuisse og mér er ekki kunnugt um að þeir Matthí- as og Steingrímur séu í neinum viðræðum við Alusuisse, segir Albert Guðmundsson í blaðavið- tali í gær. Því vaknar sú spurning hvort hér er verið að fara á bak við iðnaðarráðherra. Með því að segjast fara í opinberum erind- agjörðum fá ráðherrarnir fullar dagpeningagreiðslur og fargjöld Reykjavíkurborg íbúð tekin úr umferð Húsnœðisfulltrúi tekur eina íbúð úr umferð. Lofar bœttum aðstœðum Guðný Aradóttir: Lof- orð engin trygging Fundurinn fór ágætlega fram og loforðin voru prýðileg, en svo er auðvitað að vita hvort þau komi til framkvæmda, sagði Guðný Aradóttir um húsfund í fyrrakvöld sem Félagsmálastofn- un hélt með íbúunum að Vatns- stíg framleigðu húsnæði borgar- innar, sem reynist óíbúðarhæft. Eins og Þjóðviljinn greindi frá fyrir skömmu var leigan í þessu húsnæði hækkuð um 67% en í framhaldi af þeirri frétt og hörð- um mótmælum íbúanna var mál- ið tekið upp á Félagsmálaráðs- fundi og þar samþykkt að fella hækkunina niður í 40%. „Húsnæðisfulltrúinn kom sjálfur á fundinn og skoðaði það í húsinu sem við höfðum yfir að kvarta. Niðurstaðan var sú að konan sem býr í íbúðinni sem er í hvað verstu ástandi fær nýja íbúð en það er mikill ávinningur fyrir hana. Annað hafa þeir lofað að lagfæra með vorinu. Ég mun neita að greiða 40% hækkun á leigunni fyrr en eitthvað hefur verið gert og ég veit að ég verð ekki ein um það,“ sagðí Guðný. -K.Ol. Egg-leikhúsið „Ella niðurlægð“ Leikritið „Ella“ frumsýnt íHlaðvarpanum á sunnudag Steinsteypa Lækkar ekki á næstunni Víglundur Þorsteinsson hjá BM Vallá: Lofa ekki lœkkun ensteypa mun ekki hœkka meira á árinu Nýlega hækkaði verð á steinsteypu hjá steypustöðv- unum um 14%. Þjóðviljinn innti Víglund Þorsteinsson hjá BM Vallá eftir því hvort hann ætlaði að verða við tilmælum iðrnrek- enda og lækka verðið i takt við samningaloforð. „Það er alveg ljóst að verðið lækkar ekki í vetur. Á veturna eru steypustöðvarnar reknar með tapi. Við erum aftur á móti að endurskoða þetta allt hjá okkur og ég veit ekki hvað verður þegar háannatíminn, vor og sumar, kemur. Ég þori ekki að lofa lækk- un, en ég get lofað því að steypa mun ekki hækka það sem eftir er ársins. Annars ræður verð á sem- enti miklu hér um, þar sem sem- entsverð ræður 35%-40% steypuverðsins. Ég veit ekki hvað rílcísstjórnin gerir varðandi sem- entsverðið," sagði Víglundur. Það virðist því ætla að verða þungt fyrir fæti víða að fá fram verðlækkanir, eins og ríkisstjórn- in lofaði við samningsgerðina á dögunum. -S.dór greidd frá rfkinu. Menn spyrja hvort það sé ástæðan fyrir því að ferðin er sögð opinber, án þess að iðnaðarráðherra sé látinn vita. Magnús Torfi blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar sagði að ástæða þess að þeir fóru til Sviss sé sú, að efnahagsmálaráðherra Sviss hafi beðið þá að koma til viðræðna. Um tilefnið sagðist Magnús ekkert vita. Alla síðustu viku hafa nær allir ráðherrarnir verið á ferðalögum erlendis. Um tíma mun Jón Helgason hafa gegnt nær öllum ráðherraembættunum í fjarveru vinnufélaga sinna. Eins og menn vita hafa ferðaskrifstofur stofnað allskonar klúbba sem kallaðir eru FRÍ-klúbbar og FRÍ þetta eða hitt. Því vaknar sú spurning hvort ekki beri að breyta „ráðherra“ yfir í FRÍ-herra hér á landi. -S.dór Borguðum við undir óheilla- krákurnar í stúkunni í Sviss? Þórarinsdóttir í hlutverki Ellu. „Þetta eru mjög krefjandi hlut- verk,“ sagði Viðar „bæði hvað varðar texta og viðbrögð, en við erum stanslaust á sviðinu í tvær klukkustundir." Leikstjóri verksins er frinn Michael Scott en hann starfar sem leikhússtjóri og leikstjóri á írlandi. „Michael hefur reynst mjög vel. Hann hefur miðlað til okkar reynslu og þekkingu sem er dýrmæt,“ sagði Viðar sem „uppgötvaði“ Michael eftir að hafa séð eina af sýningum hans á írlandi. Aðstoðarleikstjóri verksins er Margrét Guttormsdóttir, leik- mynd gerði Guðjón Ketilsson og búninga Guðrún Erla Geirsdótt- ir. Sýningarnar verða í kjallara Hlaðvarpans að Vesturgötu 3. -K.Ól. Ella er meðal niðurlægðustu kvenpersóna leikbókmennt- anna sagði Viðar Eggertsson um aðalpersónuna í leikritinu „Ella“ sem Eggleikhúsið frumsýnir á sunnudagskvöldið. „Ella“ er eftir þýska kvik- myndagerðarmanninn og leikrit- ahöfundinn Herbert Achterbush en Þorgeir Þorgeirsson þýddi verkið. I leikritinu segir frá full- orðinni konu sem hefur hafnað í hænsnakró systur sinnar í kjall- ara. Sonur hennar lífs eða liðinn, raunverulegur eða óraunveru- legur, fer í gervi hennar og rekur líf hennar. „Saga hans er misk- unnarlaus, hann nær að orða það sem Ella hefur ekki einu sinni þorað að hugsa um,“ sagði Viðar um frásögn sonarins. Leikararnir í verkinu eru að- eins tveir, Viðar Eggertsson sem leikur soninn og Kristín Anna Viðar Eggertsson í hlutverki sonarins/Ellu. Ljósm. Atli. FRETTIR Ráðherraferðir Fóru á bak við Albert TORGIÐi Norðurlandaráð Tillaga Guðnínar samþykkt Samkomulag umþjóðskrár á Norðurlöndum endurskoðað ogþœr samræmdar Norðurlandaráðsþing sam- þykkti í gær á lokadegi þing- sins tillögu Guðrúnar Helgadótt- ur og 7 annara þingmanna frá ís- landi og Noregi um að samningur um þjóðskráningu á Norður- löndum verði endurskoðaður og þjóðskrárnar verði samræmdar. „Það er vissulega gaman að fá þetta brýna mál afgreitt svona fljótt. Ég flutti þessa tillögu í okt- óber og hún fékk alls staðar góð- ar viðtökur bæði í nefndum og svo hér á þinginu. Megninatriðið er að tryggja jafnan rétt allra Norðurlandabúa gagnvart þjóð- skrám síns heimalands burtséð frá því hvar þeir hafa aðsetur hverju sinni á Norðurlöndum, t.d. að námsmenn sem fara frá íslandi, til náms á öðrum Norður- löndum verði ekki þurrkaðir burt af kjörskrám hér heima,“ sagði Guðrún í samtali við Þjóðviljann í gær. Á þinginu lagði Guðrún ásamt fleiri þingmönnum fram tillögu um að Norðurlandaráð veiti sér- stakan styrk til jarðskjálftamæl- inga og rannsókna á íslandi vegna væntanlegs Suðurlands- skjálfta. „Þetta er hið þarfasta mál og íslenska vísindamenn hef- ur skort fé til frekari rannsókna og ég er vongóð um að þetta er- indi fái góðar undirtektir hjá Norðurlandaráði," sagði Guð- rún. -Ig Löndunarskýrslur Enn í rannsókn Það er maður frá okkur fyrir norðan núna að kanna málið, sagSi Jón B. Jónasson skrifstofu- stjóri sjávarútvegsráðuneytisins um rannsókn ráðuneytisins á föls- unum á löndunarskýrslum. Eins og Þjóðviljinn hefur greint frá liggja nokkrir undir grun um að hafa falsað löndunar- skýrslur sem sendar eru opinber- um aðilum þannig að þorskafli er skráður minni en hann í raun er. „Ef þessi grunur á við rök að styj- ast þá verður málið að sjálfsögðu 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN kært til yfirvalda,“ sagði Jón B. Jónasson. Dalbraut Hrönn sótti um Þau mistök urðu í frétt blaðsins í gær af umsóknum um stöðu for- stöðumanns dvalarheimilis aldr- aðra við Dalbraut, að nafn eins umsækjandans féll niður. Sá er Hrönn Jónsdóttir hjúkrunar- kennari. Hrönn og aðrir lensend- ur blaðsins eru beðnir velvirðing- ____ ~gg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.