Þjóðviljinn - 08.03.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 08.03.1986, Blaðsíða 15
VHDHORF Aðförin að Lanasjóðnum Guðmundur Auðunsson skrifar „Hugmyndin um að „frysta“ ráðstöfunarfé sjóðsins og dreifa síðan pottinum jafnt til umsœkjenda, óháð tekjum þeirra, er hreintfáránlegþví engan veginn er hœgt að áœtla fjárþörfina nákvœmlega“. Árið 1982 voru núgildandi lög um Lánasjóð íslenskra náms- manna samþykkt. Um þau náðist víðtæk pólitísk samstaða. Náms- mannasamtökin og stjórnmálaflokkarnir voru sam- mála um grundvallaratriði þau sem lögin voru byggð á. Náms- mönnum voru tryggð lán fyrir lágmarks framfærslu, þegar eðli- legt tillit hafði verið tekið til tekna og félagslegra aðstæðna. Þegar árið 1984 fór að bera á andstöðu nýfrjálshyggjumanna við LÍN. Var sú andstaða í fullu samræmi við hugsjónir þeirra. „Hið ósýnilega lögmál markaðar- ins“ skyldi velja og hafna ein- staklinum sem kost ættu á námi, Þeir „Hæfustu" (lesist þeir rík- ustu) ættu að fara í langskólanám en aðrir ekki. Stefnt skyldi að því að leggja niður lánasjóðinn skref fyrir skref. Afturhaldshug- myndirnar Lítum á nokkrar tillögur sem komið hafa fram í drögum að frumvarpi um LÍN. • 3.5% ársvextir ofan á verð- tryggingu lánanna. • Innheimtu og lántökugjald. • Upphæð lána miðist við ráð- stöfunaarfé sjóðsins og fjölda umsækjenda. • Ekkert tillit verði tekið til tekna við úthlutun og endur- greiðslu lána. Lánin verði greidd upp að fullu á 30 árum. Hvað þýðir þetta í raun og veru? Lítum á vextina. Ef ein- staklingur tekur um 1 milljón í lán og greiðir það upp með jöfnun afborgunum í 30 ár, er ár- leg greiðsla tæplega 60 þúsund krónur, á föstu verðlagi. Þegar upp er staðið hefur einstaklingur- inn greitt tæplega 1750 þúsund til baka, eða 750 þúsund í raunvexti (Sjá töflu I). Það segir sigsjálft að slík byrði yrði mörgum óyfir- stíganleg. Þegar námsmenn hafa lokið námi sínu eiga þeir eftir að koma sér þaki yfir höfuðið. Dæmið gengur hreinlega ekki upp. Hugmyndin um að „frysta“ ráðstöfunarfé sjóðsins og dreifa síðan pottinum jafnt til umsækj- enda, óháð tekjum þeirra, er hreint fáránleg. Nú á tímum fjár- lagagata er engan veginn hægt að áætla nákvæmlega fjárþörfina. Ef frádrætti frá lánum vegna um- framtekna er hætt verður mögu- leiki fyrir tekjuháa einstaklinga að taka námslán til annarra þarfa en framfærslu. Kæmi það niður á þeim sem virkilega þyrftu á lán- unum að halda til lífsviðurværis. í dag er kerfið byggt þannig upp að einu möguleikar manna til mis- notkunar á námslánunum er að þeir hafi önnur ráð en lánin sér til framfærslu. Það er vilji meiri- hluta Stúdentaráðs Háskóla fs- lands að námsmenn haldi eftir stærri hluta tekna sinna án þess að það komi niður á lánum þeirra. En meirihlutinn hafnar því að hætt verði að taka tillit til tekna. Ofangreindar hugmyndir eru ekki enn komnar fram á þingi. Leyndin yfir frumvarpinu hefur námsmenn og launafólk taki höndum saman og berjist af hörku gegn láglaunastefnunni og niðurskuðrarhugmyndum aftur- haldsins í landinu. Byggjum upp fyrir framtíðina Við sem erum fædd á árunum 1960-1965 erum lang stærstu ár- gangarnir í sögu fslands. Á síð- ustu árum hafa opnast mögu- Framfærslukostnaður einstaklings á íslandi í júní 1985 1 • Fæði...................................... 9.647 46.15% 2. Húsnæði.................................... 3.215 15.38% 3. Fatnaður.................................... 1.286 6.15% 4. Hreinlæti og heilsugæsla.................... 1.127 5.39% 5. Bækur og ritföng............................ 1.127 5.39% 6. Ferðir innanbæjar........................... 1.607 7.69% 7. Húsgögn, búsáhöld............................. 966 4.62% 8. Ýmislegt annað.............................. 1.929 9.23% .......................20.904 verið ótrúleg. Þingmenn stjórn- arflokkanna hafa ekki enn fengið að sjá frumvarpið hvað þá aðrir. Þó er næsta víst að ofangreindar hugmyndir eru inni í frumvarp- inu. Því er nauðsynlegt að koma í veg fyrir að þessi ósköp verði samþykkt. Áróður frjálshyggju- mannanna Á síðustu mánuðum hefur ver- ið haldið uppi gengdarlausum á- rásum á LÍN. Reynt hefur verið að egna launafólki upp á móti námsmönnum. Hefur vægast sagt verið farið mjög frjálslega með staðreyndir í þessu áróðursstríði. Reiknuð framfærsla einstaklings í leiguhúsnæði er kr. 20.900 (sjá töflu II). Eins og sést eru ýmsir þættir hennar mjög vanreiknaðir. Sem dæmi má taka að einstak- lingi eru reiknuð rúmlega 3000 krónur í leigu á mánuði. Þessi framfærsla er lágmarksfram- færsla. Lægstu takstar launafólks nægja hvergi nærri til framfærslu. Það þekkir láglaunafólk af eigin raun. Það leysir §kki vanda þessa fólks að ráðast á lánasjóðinn. Gott námslánakerfi er einmitt hagur þeirra. Viljum við að lang- skólanám verði forréttindi efna- fólks? Hvaða möguleika hafa t.d. börn láglaunafólksins til að mennta sig ef námslánakerfið er lagt í rúst? Það er nauðsynlegt að leikar fólks til langskólanáms. LÍN á stóran hlut í þeirri þróun. Nú á tímum sífellt flóknara þjóðfélags er okkur nauðsynlegt að mennta hæfa einstaklinga þjóðfélaginu til heilla. Slík upp- bygging verður aldrei metin til fjár. Núverandi námslánakerfi er nýlegt. Það kostar mikla peninga að koma því á. En við megum ekki gleyma því að þetta eru lán sem skila sér að mestu til baka. Uppúr aldamótunum má gera ráð fyrir því að lánasjóðurinn verði farinn að standa undir kostnaði sínum. Námsmenn eru að sjálfsögðu tilbúnir að ræða ýmsar breytingar á lögum og regl- um LÍN. En við erum ekki tilbúin að ræða breytingar á þessum nót- um. Öll vinnubrögð mennta- málaráðherra eru forkastanleg. Hvorki námsmannasamtökin né stjórnmálaflokkarnir hafa haft áhrif á gang mála. Stúdentaráði er neitað um lögboðinn fulltrúa sinn í stjórn LÍN, en Sverrir held- ur þess í stað inn í stjórninni gæð- ingi sínum, ungum frjálshyggju- manni. Það er skýlaus krafa okk- ar að lýðræðisleg vinnubrögð séu viðhöfð. Aðförin að LÍN er aðför að menntastefnunni í landinu. Aðför að grundvallarhugmynd- inni um jafnrétti til náms. Því hljóta námsmenn að mótmæla, þeir verða að mótmæla. Við get- um ekki horft uppá margra ára uppbyggingu lagða í rúst. Guðmundur Auðunsson er háskólancmi. Laugardagur 8. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Kópavogur - sumarstörf Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir starfsfólki til eftirtalinna sumarstarfa: 1. íþróttavellir: Aöstoöarfólk. 2. íþróttir og útilíf: íþróttakennari og leiöbeinendur. 3. Leikvellir: Aöstoöarfólk 4. Skólagaröar: Leiðbeinendur og aöstoöarfólk. 5. Starfsvellir: Leiðbeinendur. 6. Vinnuskóli: Flokksstjórar. 7. Siglingaklúbbur: Aðstoðarfólk. I sumum tilfellum gæti verið um að ræöa starfsfólk með skerta starfsorku. Sótt skal um hjá Vinnumiðlun Kópavogs Digranesvegi 12 og eru nánari upplýsingar gefnar þar í síma 46863. Aldurslágmark umsækjenda er 16 ár. Umsóknarfrest- ur er til 1. apríl n.k. Innritun í Vinnuskóla Kópavogs fer fram í maímánuði. Nánar auglýst síöar. Félagsmálastjóri Matreiðslumenn : - Matreiðslumenn Almennur félagsfundur verður haldinn mið- vikudaginn 12. mars n.k. kl. 15, að Óðinsgötu 7. Fundarefni: Kjaramálin. Önnur mál. Stjórnin. UTBOÐ Tilboð óskast í að útvega, smíða og setja upp loftræstikerfi í 1. áfanga Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Útboðsgögn fást afhent á Verkfræðistofunni Fjölhönnun h.f. Grensásvegi 8 Reykjavík og á byggingarstað við Tryggvagötu 25 Sel- fossi, frá og með 10. mars 1986 gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð hjá Fjölhönnun h.f. kl. 11.00 þriðjudaginn 25. mars 1986. ísiandsdeiid Amnesty International vekur athygli á málþingi um mannréttindafræöslu, sem haldið verður í Kennslumið- stöðinni, Laugavegi 166, dag- ana 11.-12. mars n.k. kl. 16:00 báða dagana. Erindi, hóp- vinna, umræður. Sjá nánar í fréttatilkynningum. SIGLINGAMÁLASTOFNUN RÍKISINS HRINGBRAUT 121, 107 REYKJAVÍK, SÍMI 25844 Útgerðarmenn, skipstjórar! Að gefnu tilefni viljum við vekja athygli ykkar á því að samkvæmt ákvæðum reglna nr. 325/1985 skal allur björgunar- og öryggis- búnaður viðurkenndur af Siglingamálastofn- un ríkisins. Stofnunin beinir þeim tilmælum til þeirra sem þurfa að kaupa nauðsynlegan búnað, að vera fullvissir um að viðkomandi búnaður sé viðurkenndur til nota í íslenskum skipum. Vitað er að til sölu hefur verið búnaður sem ekki er viðurkenndur. 6. mars 1986.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.