Þjóðviljinn - 08.03.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Einstœðir forelárar
Flytja í nýtt húsnæði
Stella Jóhannsdóttir: Mikil þörf. Fimm fjölskyldur fluttar inn
að er óhætt að segja að þetta
framtak sé bráðnauðsynlegt.
Það er mikil þörf fyrir þetta og nú
þegar eru 13 manneskjur fluttar
hingað inn, þar af eru 8 börn,
sagði Stelia Jóhannsdóttir starfs-
maður Félags einstæðra foreldra
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Félagið hefur tekið í notkun
húsnæði að Öldugötu 11 þar sem
einstæðir foreldrar geta leigt
húsnæði til bráðabirgða gegn
vægu leigugjaldi, og geta alls 10
fjölskyldur búið þar í senn. Nú
þegar hafa fimm fjölskyldur flutt
inn.
Félag einstæðra foreldra rekur
samskonar sambýli í Skerjafirði
og hefur gert í 5 ár, og er það nú
farið að standa undir sér. Nýja
húsnæðið er að sögn Stellu allt í
skuld, en félagið reynir eftir
öllum leiðum að afla fjár til
kaupanna. Það stendur fyrir sölu
á jólakortum, sængurgjafakort-
um, heldur flóamarkað reglulega
og svo framvegis.
Algengt er að sögn Stellu að
þarna búi fólk sem er að bíða eftir
afhendingu verkamannabústaða,
og ekki síður fólk sem bíður eftir
því að fá leigt hjá Reykjavíkur-
borg. „Það hefur skapast afskap-
lega gott samstarf milli okkar og
félagsmálastofnunar borgarinn-
ar,“ sagði Stella í gær. -gg
Breiðablik
Almennur
fundur
á mánudaginn
Knattspyrnudeild Breiðabliks í
Kópavogi mun gangast fyrir al-
mennum fundi í Félagsheimili
Kópavogs á mánudaginn 10.
mars og hefst hann kl. 20.00. Þar
mun ætlunin að ræða málefni
knattspyrnunnar vítt og breitt,
m.a. aðbúnað til knattspyrnuiðk-
unar og unglingastarfið. I frétt frá
deildinni segir að allir séu velk-
omnir á þennan fund, sérstaklega
forráðamenn barna og unglinga.
Vinstri menn hafa meðbyr í Háskólanum. Mynd Sig.
Háskólinn
Við emm
bjartsýn!
Kosið í stúdentaráð og háskólaráð á þriðju-
daginn. Ólafur D. Andrason: Ahersla á lána-
málin.
Vinstri menn þarf í forystu
Mér sýnist að meðbyrinn sé
tvímælalaust með okkur
vinstri mönnum í kosningabarátt-
unni og við erum bjartsýn á að
úrslitin verði okkur í hag, sagði
Ólafur Darri Andrason í gær, ef-
sti maður á lista Félags vinstri
manna fyrir kosningarnar í Stúd-
entaráði, sem fara fram í Háskól-
anum á þriðjudaginn.
Kosið verður um helming full-
trúanna í háskólaráði og stúdent-
aráði. Ólafur sagði í gær að höfu-
ðáhersla væri lögð á baráttuna í
lánamálum. „Félag vinstri manna
hefur verið forystuafl í baráttunni
gegn árásunum á lánasjóðinn, og
ég bendi á að við höfum nú þegar
hálfkæft hugmyndir mennta-
málaráðherra og hans nóta um
breytingar á lögum um LÍN, sem
m.a. fela það í sér að innheimtir
verði vextir og lántökugjald. En
betur má ef duga skal.
Meðal baráttumála varðandi
lánasjóðinn má nefna að verður
að afnema frystingu námslána í
krónutölu eins og þau voru í nóv-
ember sl. Við setjum það m.a. á
oddinn, að fyrsta árs nemar fái
skuldabréfalán eins og aðrir
námsmenn, og ekki síður að
framfærslugrunnurinn verði end-
urskoðaður. Hann er mjög gall-
aður, t.d. hvað varðar húsaleigu.
Þegar framfærsluþörfin er reikn-
uð út er aðeins gert ráð fyrir rúm-
um 3 þúsund krónum í húsaleigu
sem er auðvitað út í hött,“ sagði
Ólafur í gær.
Sem fyrr segir er Ólafur efsti
maður á listanum, en auk hans
skipa sex efstu sætin til stúdentar-
áðs: Bryndís Pálmarsdóttir, Vil-
borg Davíðsdóttir, Ólafur Olafs-
son, Guðrún Ómarsdóttir og
Birna Gunnlaugsdóttir, sem situr
í baráttusætinu. í framboði til
háskólaráðs eru þau Skúli Skúla-
son, Birna Bragadóttir, Hörður
Ríkharðsson og Margrét Lofts-
dóttir. -gg
Búnaðarþing
Kynning á lambakjöti
Milliþinganefnd bendir á 12 atriði, sem örvað gœtu söluna
Fyrir Búnaðarþingi í hitteð-
fyrra lá erindi frá Búnaðar-
sambandi Suðurlands um bætta
verslunarhætti við sölu á lamb-
akjöti. Búnaðarþing samþykkti
að kjósa milliþinganefnd í málið.
í nefndina voru kosnir: Egill
Bjarnason, Hjalti Gestsson og
Sveinn Hallgrímsson. Sveinn
hvarf úr nefndinni er hann var
skipaður skólastjóri á Hvanneyri
en við tók dr. Sigurgeir Þorgeirs-
son.
Nefndin hefur nú skilað
Dagsbrún
Minntust Olofs Palme
í frétt Þjóðviljans af fundi
Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar féll niður, að í upphafi fundar-
ins minntist Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður félagsins,
Olofs Palme fyrrum forsætisráð-
herra Svíþjóðar. Lýsti Guð-
mundur hugsjón og lífshlaupi
þessa merka þjóðarleiðtoga og
bað menn síðan að rísa úr sætum
til að votta minningu hans virð-
ingu.
Þjóðviljinn biðst velvirðingar á
að þetta skuli hafa fallið niður úr
fréttinni.
-S.dór
skýrslu til Búnaðarþings, þar sem
störf hennar eru rakin í alllöngu
og ítarlegu máli. Er þar bent á
ýmis atriði, sem líklegt er talið að
stuðlað geti „að viðhaldi eða
aukningu á neyslu kindakjöts“ og
stjórn Búnaðarfélagsins falið að
koma ábendingum nefndarinnar
á framfæri við þá, „sem í hverju
tilviki hafa besta aðstöðu til að
tryggja framgang málsins“.
Leggur nefndin sérstaklega
áherslu á eftirfarandi liði:
1. Nýtt kjötmat komi til fram-
kvæmda haustið 1986.
2. Verðlagningu einstakra
gæðaflokka verði þannig hagað,
að hún knýi framleiðendur til að
aðlagast breyttum markaðskröf-
um.
3. Leitað verði samninga við
nokkur sláturhús um að lengja
sláturtíð í 3 mánuði.
4. Verðlagskannanir farí fram
reglulega og til þeirra vandað
þannig að borið sé saman verð á
sambærilegum vörum.
5. Tryggja stöðugt gæðaeftirlit
á vinnsluvörum.
6. Athuga möguleika á sér-
stökum lambakjötsmarkaði, t.d.
með samningum við aðila í veit-
ingarekstri.
7. Verðlauna skyndibitastaði
fyrir árangur í sölu á lambakjöti.
8. Koma á lambakjötsviku á
veitingastöðum.
10. Koma á lambakjötskynn-
ingu í verslunum.
11. Gefa út handhæga „dreifi-
pésa“ með uppskriftum og
leiðbeiningum um meðferð og
matreiðslu.
12. Auglýsingaherðferð í fjöl-
miðlum, einkum sjónvarpi.
-mhg
Laugardagur 8. mars 1986 .ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
BSRB
Fundir næstu daga
Daga.na 13. og 14. mars munu
verða greidd atkvæði um ný-
undirritaðan kjarasamning
BSRB og ríkisins. Samningurinn
verður kynntur víða um land og
eftir helgina sem hér segir:
Ólafsfirði 8. mars kl. 13.30 í
Gagnfræðaskólanum, Akureyri
8. mars kl. 13.30 í Verkmennta-
skólanum, Húsavík 8. mars kl.
17.00 í Félagsheimilinu,
Vestmannaeyjum 8. mars kl.
14.00 í Félagsheimilinu, Höfn 9.
mars kl. 17.00 í Heppuskóla,
Egilsstöðum 9. mars kl. 13.30 í
Egilsstaðaskóla, Neskaupstað 9.
mars kl. 13.00 í Verkmennta-
skóla Austurlands, Keflavík 10.
mars kl. 15.00 að Hafnargötu 28,
Borgarnesi 11. mars kl. 17.00 í
Grunnskólanum, Akranesi 11.
mars kl. 20.30 í Fjölbrautaskól-
anum, Siglufirði 11. mars kl.
17.00 á Hótel Höfn, Selfossi 11.
mars kl. 17.00 í Tryggvaskála og
Sauðárkróki 12. mars kl. 17.00 í
Safnahúsinu.
Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla fer fram á skrifstofu
BSRB frá og með mánudegi 10.
mars til og með föstudegi 14.
mars. -v.