Þjóðviljinn - 04.04.1986, Page 2
Landbúnaður
Markaðs-
nefndin
endur-
skipulögð
Markaðsnefnd landbúnaðar-
ins hefur nú verið endur-
skipulögð. I henni hafa átt sæti
fulltrúar frá Búnaðarfélagi ís-
lands, Stéttarsambandi bænda,
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
Búvörudeild SÍS og landbúnaðar-
ráðuneytinu. Bætt hefur verið í
nefndina fulltrúum frá Sam-
tökum sláturleyfishafa, Mjólkur-
dagsnefnd og viðskiptaráðuneyt-
inu.
Hlutverk nefndarinnar er að
greiða fyrir sölu búvara innan-
lands og utan.
Nefndin hefur nú ráðið starfs-
mann, Auðunn Bjarna Ólafsson,
og mun hann vinna að markaðs-
athugunum heima og erlendis, á
vegum nefndarinnar.
-mhg
Svínakjöt
Vaxandi
framleiðsia
Framleiðsla á svínakjöti fór
vaxandi á sl. ári. Inn voru lögð
rúmlega 1.598 tonn, 164 tonnum
eða 11,4% meira en árið áður.
Salan nam tæpum 1.558 tonn-
um, jókst um 42 tonn eóa 2,72%.
Birgðir uxu og nokkuð. Voru í
árslok 54 tonn á móti 18 tonnum
árið áður. -mhg
Hrossakjöt
Framleiðslan
jókst
um 14%
Innlagt hrossakjöt á sl. ári nam
790 tonnum. Er það rúmlega 98
tonna eða 14,2% aukning frá síð-
asta ári. Salan varð 792 tonn,
minnkaði um 105 tonn eða
11,7%.
Út voru flutt 7,5 tonn en 26
tonn árið áður. Birgðir um ára-
mót voru 487 tonn en það er rúm-
um 33 tonnum eða 6,4% meira en
ári fyrr. -mhg
Kjötfjall
Nóglilaf
nautakjöti
Vaxandi birgðir af nautgrip-
akjöti, þrátt fyrir meiri sölu.
Miklum fjölda kúa slátrað, -
ekkert til af kýrkjöti í Reykja-
vík
Birgðir af nautgripakjöti hafa
nú talsvert aukist. Um síðastliðin
áramót voru þær 1281 tonn, 120
tonnum eða 10,3% meiri en árið
áður. Og síðan um áramót hefur
nautgripum verið siátrað í stór-
um stíl.
Innlagt nautgripakjöt á árinu
1985 var rúmlega 2.720 tonn, 229.
tonnum eða 9,2% meira en 1984.
En salan jókst einnig. Hún varð
tæp 2.579 tonn eða 325 tonnum
meiri en áríð áður og er það um
14,4% aukning.
Kúm hefur verið slátrað í stór-
um stíl að undanförnu vegna
kvóta ríkisstjórnarinnar en í
fréttum hefur komið fram að
þrátt fyrir slátrunina sé kýrkjöt
ekki til í verslunum í Reykjavík.
Hins vegar er nóg til af dýrindis
nautakjöti.
FRETTIR
Verslunarskólinn
Neitar greiðslum
Deilur milli Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna og
Verslunarskólans um greiðslur frá 1982 og 1983.
Verslunarskólinn hefur neitað
að borga hluta af lífeyris-
greiðslum fyrir kennara sem
starfa við skólann til Lífeyrissjóðs
ríkisstarfsmanna. Mun hér vera
um töluverða upphæð að ræða,
sem hefur safnast upp, en
greiðslur þessar sem eru í van-
skilum eru einkum frá árunum
1982-1983.
Að sögn Þorvarðar Elíassonar,
skólastjóra Verslunarskólans, þá
telja Verslunarskólamenn sig
ekki skulda lífeyrissjóðnum
neitt. Viðurkenndi hann að vísu
að uppi væri deila við sjóðinn
vegna greiðslu dráttarvaxta frá
1982 og 1983. Ástæðan fyrir því
er sú að skólinn dró jafn mikið
greiðslur við lífeyrissjóðinn og
ríkissjóður dró greiðslur til skól-
ans. „Við höfum greitt fyrir það
sem okkur ber,“ sagði Porvarð-
ur.
Lífeyrissjóður ríkisstarfs-
manna telur að það komi sjóðn-
um ekkert við þó ríkissjóður hafi
ekki staðið í skilum af greiðslum
á rekstrarliðum skólans einsog
kennaralaunum og öðru, sem rík-
inu ber að borga. Lífeyrissjóður-
inn er sjálfstæð stofnun, sem er
eign sjóðgreiðenda, sem eru op-
inberir starfsmenn, ríki og
sveitarfélög. Lífeyrissjóðurinn
telur sig því í fullum rétti að krefj-
ast þessara greiðslna.
Þjóðviljanum tókst ekki að fá
upp hversu háa upphæð hér er
um að ræða en í gangi eru samn-
ingaviðræður milli deiluaðila og
eru þær að sögn á mjög við-
kvæmu stigi núna.
—Sáf
Helga Hjörvar skólastjóri Leiklistarskólans fyrir framan framtíðarhúsnæði skólans. 8 af 80 umsækjendum fá inni í náminu
í vetur. Mynd SigMar
Leiklistarskóli íslands
Fjölmargar umsóknir borist
U.þ. b. 80 umsóknir hafa borist. Aðeins 8fá inngöngu. Helga
Hjörvar: Ekki mikil endurnýjun á stéttinni
1 fyrradag rann út skilafrestur
umsókna til Leiklistarskóla Is-
lands en að sögn Helgu Hjörvar
skólastjóra skólans hafa nú þegar
um 80 umsóknir borist. Aðeins 8
nemendur fá inngöngu í skólann
en dómnefndin sem velur þessa
einstaklinga hefur verið skipuð.
Að sögn Helgu Hjörvar virðist
hlutfall karla og kvenna meðal
umsækjenda vera mjög svipað en
á undanförnum árum hafa karlar
í skólanum verið í meirihluta
vegna þess að hlutverk fyrir karl-
menn hafa verið fleiri í leikhús-
unum. „Leikurum hefur í raun
fækkað mikið síðustu árin. Fyrir
20 árum útskrifuðust mun fleiri
leikarar ár hvert en nú. Núna út-
skrifast að meðaltali 6 leikarar á
ári, en það getur ekki talist mikil
endurnýjun. Fjöldatakmörkunin
hefur þó það í fjör með sér að
flest allir sem útskrifast úr skól-
anum fá vinnu við leiklist að námi
loknu,“ sagði Helga.
Dómnefndina sem velur nem-
endur þetta árið skipa þau
Kristbjörg Kjeld, Sigríður Haga-
lín, Kristín Jóhannesdóttir, Kári
Halldór Pórsson og Helga Hjörv-
ar.
-K.ÓI.
Væri ekki ráð að gefa þessum
markaðsnefndarmönnum eitt-
hvað að borða?
Sjóbirtingur
Veitt í
10 stiga
gaddi
Sjóbirtingsveiðin byrjar
treglega vegna mikils
kulda. Glœðistmeð
hlýnandi veðri
Sjóbirtingsveiðitímabilið hófst
um mánaðamótin en þá var byrj-
að að renna í Eystri og Ytri
Rangá. Ekki blés byrlega fyrir
veiðimönnum fyrsta daginn því
10 stiga gaddur var við árnar.
Þrátt fyrir kuldann og þó frysi á
stöngunum létu menn sig hafa
það og einn gamall garpur sem
aldrei lætur sig vanta á 1. degi tók
5 væna sjóbirtinga og sjóbleikjur
á tveimur tímum, samkvæmt
upplýsingum Aðalbjarnar Kjart-
anssonar á Hvolsvelli.
Veiði er einnig hafin í Þorleifs-
læk í Ölfusi og samkvæmt þeim
upplýsingum, sem fengust hjá
Landssambandi veiðifélaga hefur
veiðin þar gengið þokkalega.
-lg./-ÖS
Árekstur
Ævintýri
í ökuferð
Richmond — Lily Fowler sem er
áttræð og hefur ekið bíl í 60 ár
lenti í sínum fyrsta árekstri í
gær, og hann varð henni dýr.
Bléssuð konan steig á bensín-
gjöfina í stað bremsunnar þegar
hún var að renna inn á bílaþvotta-
stöð í Kalíforníu,- Þau mistök
urðu til þess að hún keyrði á fjóra
bíla, í gegnum grindverk og ruddi
um koll einni bensíndælu. Það
kviknaði í öllum bflunum en eng-
inn særðist. Skemmdir voru hins
vegar metnar á 12 milljónir ís-
lenskra króna.
Bankastarfsmenn
Helmingsfjölgun á 5 ámm
íslenskum bankamönnumfjölgar mun hraðar en kollegunum á Norðurlöndum.
Fjölgaði um 11.1% milli áranna 1984 og 1985
íslenskum bankastarfsmönn-
um fjölgaði um 52% á árunum
1980 til 1985 og um 11.1% milli
áranna 1984 og 1985. Félagar í
Sambandi íslenskra bankamanna
eru nú 3300 talsins, samkvæmt
upplýsingum frá norræna banka-
mannasambandinu.
Fjölgun bankastarfsmanna hér
á landi á þessum árum er mun
meiri en á hinum Norðurlöndun-
um. Dönskum bankamönum
fjölgaði þannig um 11% 1980-
1985 . Finnskum kollegum þeirra
fjölgaði á sama árabili um 15%,
norskum um 28.3% og sænskum
um 14.1%. Aukning milli áranna
1984 og 1985 var sem áður segir
11.1% á íslandi, en 3.5% í Sví-
þjóð, 1.5% í Noregi og 1.7% í
Finnlandi.
„Ég ætla ekki að leggja mat á
hvað er eðlilegt og hvað er óeðli-
legt í þessu sambandi, en það er
ljóst að þarna að baki liggja
margar samvirkandi ástæður,“
sagði Helgi Hólm hjá Sambandi
íslenskra bankamanna þegar
blaðamaður Þjóðviljans bar þess-
ar tölur undir hann í gær. „Ég
bendi á að á síðustu árum hefur
verksvið íslensku bankanna víkk-
að talsvert og það hefur kallað á
aukið starfsfólk, en menn álíta að
þessi þróun muni hægja á sér á
næstu árum,“ sagði Helgi í gær.
Þess má geta að starfsmenn
Byggðastofnunar og Þjóðhags-
stofnunar eru félagar f SÍB.
—gg