Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 2

Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 2
Sleipnir Verkfall fyrsta maí Langferðabílstjórar boða verkfalll. og2. maí. Daníel Óskarsson: Krefjumstsamrœmingar við steypubílstjóra. Sitjum á botninum nú. VSImeðputtana ísamningaviðrœðum Okkar krafa er sem fyrr að launin verði í samræmi við laun steypubílstjóra. Eins og mál- in standa í dag sitjum við á botn- inum í launamálum og það getum við ekki sætt okkur við, sagði Daníel Óskarsson formaður Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis í samtali við Þjóðviljann í gær, en félagið hefur boðað tvcggja sólar- hringa verkfall 1. og 2. maí næstkomandi. Daníel sagði í gær að síðasti sáttafundur hafi verið fyrir rúmri viku síðan, en aðilar hafi þá ekki ræðst við. Ekki hefur verið boð- aður annar fundur. „Ég hef ekki fullgilda skýringu 60 A af- mæli Sextugur verður þann 28. apríl næstkomandi Sigurður Sigurðs- son forstjóri Loftorku í Reykja- vík. í tilefni afmælisins tekur hann á móti gestum á heimili sínu, Vonarholti í Kjalanes- hreppi laugardaginn 26. apríl milli kl. 15 og 19. á því hvers vegna sérleyfishafar hafa ekki orðið við þessum kröf- um okkar, en ég er þess fullviss að stór hluti af skýringunni er sá að VSÍ er með puttana í þessu, enda þótt sérleyfishafar séu ekki í VSÍ. Það er greinilegt að nokkurs sundurlyndis gætir innan Félags sérleyfishafa. Þar eru all margir sem vilja semja við okkur, en aðrir setja stólinn fyrir dyrnar", sagði Daníel í gær. Það vekur kannski undrun margra að boðað skuli verkfall á alþjóðlegum baráttudegi verka- lýðsins, sem er frídagur flestra launþega hvort eð er, en fram til þessa hefur þessi dagur verið langferðabilstjórum sem hver annar vinnudagur. -gg Hressir krakkar á Grænuborg: Við vitum miklu meira um Reykjavlk núna (mynd Sig). „Hluti aukningar orkuþarfar Hitaveitu Reykjavíkurborg- ar...“ Sigurður, ha? Dagvistir Opin vika í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar verður opin vika hjá dagvistarheimilum borg- arinnar 28. apríl til 2. maí. Þá er borgarbúum boðið að koma og kynna sér starfsemi dagvistar- heimilanna. Börnin hafa upp á síðkastið unnið að verkefninu Borgin okkar, - þau hafa farið um borgina og skoðað hana og unnið síðan úr þessum ferðum á ýmsan hátt. Afrakstur þessarar kynningar verður til sýnis á dag- vistarheimilunum. Dagvistarheimilin verða opin á venjulegum starfstíma þessa kynningarviku nema í hádeginu milii 11 og 13 vegna hvíldartíma barnanna og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að koma í heim- sókn. Að lokum má geta þess-að skrifstofur Dagvistunar barna eru fluttar af Njálsgötu og Forn- haga í Hafnarhúsið við Tryggva- götu. -Ing. Kynningardagur STÝRIMANNASKÓLANS í REYKJAVÍK Siglingar eru na uösyn 2TÍ Kynningardagur Stýrimannaskólans verður haldinn íaug- \ > ardaginn 20. apriink. frá kiukJkan 13.30—17.00. Nemendur skólans munu sýna notkun tækja og veifa upplýsingar um námiö. Staðsetningar- og fiskileitartæki verða í gangi: i KELVIN-HUGHES 1600 ratsjá. j ARPA-tölvuratsjá frá NORCONTROL. SIMRAD- og KODEN-lórantæki stýrt af samlíki (simulator). j DECCA-ratsjá í ratsjársamlíki. i APPLE-2e-tölvur. V SKANTI-talstöð — SAILOR-örbylgjustöð. KODEN-skjáriti (plotter) með leitara. JRC-veðurkortamóttakari. Kvenfélagid HRONN sér um kaffíveitingar og eru allir sjómenn sérstaklega hvattir til að fá sér hressingu og spjall. Slysa- varnafélag íslands sýnir meðferð björguriartækja og þyrla Landhelgisgæslunnar kemur á svæðið. Stýrímannaskólinn í Reykjavík. GESTALT - NÁMSKEIÐ með Terry Cooper Gestalt námskeið er einstök reynsla Lærum hvernig við getum með breyttri hugsun og líkamsbeitingu stóraukið hæfni okkar til að lifa lífinu og njóta þess. Hversu óttalegt er það sem ég óttast mest? Hver segir að ég eigi að vera eða eigi að gera? Hvernig er að vera ég? Hvernig líður mér í raun og veru á bak við „Það er allt í lagi með mig-grímuna“? Hvernig er samband mitt við mína nánustu? — • — Við fáum tækifæri til að vinna persónulega með Terry og kanna tilfinningar okkar í fortíð og nútíð. Terry Cooper er þekktur breskur sállæknir, sem hefur 15 ára reynslu í aðferðum „mannúðarsálfræðinnar". Hann hefur komið reglulega til íslands undanfarin 4 ár. — • — Námskeiðið er haldið á vegum Mannúðarsálfræðimiðstöðvar- innar. Upplýsingar og skráning í síma 18795 um helgina og eftir ki. 18 virka daga. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Laugardagur 26. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.