Þjóðviljinn - 26.04.1986, Side 3
FRETTIR
Hitaveitan
Fiskeldi
Vinnubrögðin em ótæk
Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri: TillagaAbl. um athugun á hagkvœmniþess að
kaupa umframorku til húshitunar ótímabœr og óþörf.
Sigurður G. Tómasson: Verið að drepa málið. Vinnubrögð hitaveitustjóra ótœk
Eg lít þannig á að með því að
fela hitavcitustjóra að vinna
greinargerð um málið, sé verið að
drepa tillögu Alþýðubandalags-
ins um athugun á hagkvæmni
þess að kaupa umframorku frá
Landsvirkjun til húsahitunar í
Reykjavík. Vinnubrögð hita-
veitustjóra í þessu máli hafa verið
ótæk, sagði Sigurður G. Tómas-
son fulltrúi Abl. í stjórn veitu-
stofnana borgarinnar í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Sem kunnugt er fluttu borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins til-
lögu um slíka athugun í borgar-
stjórn fyrir fáeinum vikum, en
henni var vísað til umsagnar
stjórnar veitustofnana. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokks afgreiddu málið þannig á
fundi í gær, að fela Jóhannesi Zo-
éga hitaveitustjóra að semja
„heilstæða greinargerð um alla
kosti sem til greina koma til að
mæta afl- og orkuþörf hita-
veitunnar næstu fimm árin og til
lengri tíma."
Aður hafði hitaveitustjóri hins
vegar lagt fyrir stjórnina greinar-
gerð um þetta mál, þar sem hann
heldur því fram að augljóst sé að
Nesjavallavirkjun sé ekki aðeins
besti kosturinn, heldur sé hún
eina sýnilega lausnin á vanda HR
sé litið lengra fram í tímann. Því
Launauppbót
VR og
VSÍ deila
Baldvin Hafsteinsson lögfræð-
ingur hjá Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur staðfesti í samtali
við Þjóðviljann í gær að ákveðinn
ágreiningur er uppi milli félagsins
og VSI um túlkun ákvæðis í síð-
ustu kjarasamningum sem fjallar
um launauppbót. Baldvin sagðist
hins vegar ekkert geta sagt um
hver ágreiningurinn væri.
„Ég vil ekkert láta eftir mér
hafa um þetta eins og sakir
standa. Þetta er spurning um
túlkun á fáeinum atriðum í þessu
ákvæði, en ég á von á að málið
leysist strax eftir helgina," sagði
Baldvin í gær.
Baldvin sagði ennfremur að
þetta mál varðaði einkum það
fólk sem hefur óreglulegan
vinnudag. Fyrsti hluti launaupp-
bótarinnar var greiddur í þessum
mánuði. Þegar upphæðin sem
fellur í hlut hvers og eins er
reiknuð út er tekið mið af heild-
artekjum, það er dagvinnu, eftir-
vinnu og næturvinnu,'auk vinn-
uframlagsins. -gg
sé tillaga Abl. „ótímabær og
óþörf".
Sigurður G. Tómasson lagði
fram harðorða bókun á fundinum
í gær og gagnrýndi vinnubrögð
Jóhannesar harkalega. „Greinar-
gerð Jóhannesar sýnir einmitt að
þessi athugun þarf að fara fram,
og hún sýnir ekki síður að það á
ekki að fela honum að vinna
greinargerð um málið. Spá hans
um aukningu orkuþarfar HR
næstu árin er t.d. afar vafasöm.
Hins vegar er engu líkara en hita-
veitustjóri sé þegar búinn að á~
kveða að það eigi að virkja á
Nesjavöllum eins fljótt og mögu-
legt er, hvort sem það er hag-
kvæmt eða ekki," sagði Sigurður
í gær.
-gg
Lax og
erfðatækni
Norskur sérfræðingur, Harald
Skjervold, mun sunnudaginn 27.
apríl flytja fyrirlestur um erfða-
tækni í sambandi við kynbætur
búfjár og eldisfiskjar. Sivert
Grönvedt frá sölusamtökum
norskra fiskeldismanna mun
sömuleiðis halda erindi um þróun
fiskeldis í Noregi. Fundurinn
hefst klukkan 16 og er öllum op-
inn. Hann verður á Hótel Sögu,
sal A á annari hæð í nýju álmu
hótelsins.
Þ>eir eru tilbúnir í slaginn: Framkvæmdanefnd Afríkuhlaupsins 1986. F.v. Ingóifur Hannesson, Sighvatur Dýri Guðmundsson, Knútur Oskarsson, Guðmundur
Einarsson og Grímur Sæmundsen (mynd Sig).
Afríkuhlaup
Ekki til Afríku, heldur fyrir Afríku
Bob Geldof kominn aftur afstað. Reykjavík meðal 60 borga sem tekur þátt íhlaupinu
ú verða allir að hlaupa.
jji« Þegar hljómleikarnir voru
horfðu aliir á, nú taka allir þátt“
sögðu nokkrir áhugamenn um
íþróttir sem skipa framkvæmda-
nefnd um Aríkuhlaup sem hlaupa
á sunnudaginn 25. maí til hjálpar
bágstöddum í Afríku. Það er
sjálfur Bob Geldof sem á hug-
myndina; ásamt honum stendur
Band Aid sjóðurinn og Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna (UN-
ICEF) að skipulagi hlaupsins.
Hclsta fjáröflunarleið hlaupsins
hér verða sala á bolum og barm-
merkjum en barmmerkin heimila
þátttöku í hlaupinu. Því fjár-
magni sem safnast, verður síðan
varið til reksturs þess heimilis
fyrir munaðarlaus börn sem reist
var fyrir ágóðann af plötunni
„Hjálpum þeim“.
Framkvæmdanefnd Afríku-
hlaupsins hefur einkum það hlut-
verk að skipuleggja hlaupið í
Reykjavík en mun aðstoða
iþróttafélög eða einstaklinga sem
áhuga hafa á að koma á Afríku-
hlaupi í sinni heimabyggð.
Nefndin hefur þegar sent öllum
formönnum íþróttabandalaga og
héraðssambanda innan ÍSÍ kynn-
ingarbréf þar sem þau eru hvött
til að skipuleggja slíkt hlaup.
í Reykjavík er áætlað að byrja
með uppákomu kl. 1. Þá munu
nokkrar hljómsveitir spila til kl. 3
en þá hefst hlaupið og er það á
sama tíma og alls staðar annars
staðar í heiminum þar sem
Afríkuhlaupið fer fram. Þannig
byrja Ástralir að hlaupa um
miðja nótt til að vera á sama tíma
og við hin. Hér í Reykjavík verð-
ur boðið upp á þrenns konar
vegalengdir. I fyrsta lagi 10 km.
hlaup eins og gert er ráð fyrir er-
lendis, í öðru lagi lítinn hring í
kringum tjörnina fyrir krakka og
óvana og svo 3-4 km. millivega-
lengd.
Nú þegar hafa milli 60 og 70
borgir skráð sig í hlaupið en
reiknað er með minnst 80 borg-
um áður en öll kurl koma til
grafar. Og svo er bara að taka
fram hlaupaskóna og hundrað-
kallinn fyrir barmmerkinu og
hlaupa af stað.
-Ing.
Málmiðnaðarmenn
Mið- og sambandsstjóm
Á nýafstöðnu þingi Málm- og
skipasmiðasambands íslands
voru þessir menn kjörnir í mið-
stjórn:
Guðjón Jónsson formaður,
Guðmundur Hilmarsson varafor-
maður, Hákon Hákonarson rit-
ari, Kjartan Guðmundsson gjald-
keri, Einar Gunnarsson vararit-
ari og meðstjórnendur þeir
Björgvin H. Árnason, Guð-
mundur SM Jónasson, Kristfinn-
ur Jónsson og Örn Friðriksson.
í sambandsstjórn sitja auk
miðstjórnarmanna: Haraldur
Guðmundsson, Helgi Arnlaugs-
son, Snorri S. Konráðsson, Her-
mann B. Jóhannesson, Höskuld-
ur Kárason, Björn Líndal, Jó-
hannes S. Halldórsson, Haukur
Þorsteinsson, Samson Jóhanns-
son, Sturla Halldórsson, Bjarki
Þórlindsson og Sigmundur Bene-
diktsson.
//ú bci/ló fa/l
Nú skemmtum við okkur saman
Það verður dúndrandi ball í Miðgarði, Hverfisgötu 105 að
kvöldi 30. apríl. Húsið opnað kl. 21.30.
Við syngjum og syngjum og skemmtum okkur. Eldfjörugt tríó
leikur fyrir dansi.
Ljúfar veitingar á lágu verði (sem okkar ástsæla ríkisstjórn
hefur þó ný-hækkað). Aðgangseyrir kr. 250.
Dönsum inn 1. maí.
ABR-ÆFR
Sunnudagur 27. apríl 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3