Þjóðviljinn - 26.04.1986, Side 9
HEIMURINN
Olíuvinnslan er nú aö hefjast á ný hjá Norömönnum.
Noregur
Olíudeilan í geröardóm
Norska ríkisstjórnin greip ígœr inn í vinnudeilur ogsetti málið í gerðardóm
Osló — Norska ríkisstjórnin
greip í gær inn í deilur vinnu-
veitenda og verkafólks á olíu-
borpöllunum norsku og setti
málið í gerðardóm.
Eftir fund atvinnumálaráö-
herra Noregs, Arne Retterdal
með deiluaðilum, sagði hann við
fréttamenn að öryggi olíuborp-
alla Norðmanna væri í hættu
þannig að ekki væri lengur hægt
að una við deilurnar. Deilurnar
stöðvuðu olíuframleiðslu Norð-
manna (900.000 tunnur á dag)
hinn 6. apríl síðastliðinn þegar
670 manns í framreiðslustörfum
fóru í verkfall til að krefjast hærri
launa. Eigendur olíufélaga svör-
uðu þessu með því að setja verk-
bann á rúmlega 3.000 verkamenn
á olíuborpölíum Norðmanna í
Norðursjó.
Retterdal kynnti ákvörðun
ríkisstjórnarinnar eftir að nætur-
langar viðræður síðustu nótt virt-
ust ekki ætla að skila neinum ár-
angri. Inngrip ríkisstjórnarinnar
þýðir að verkamenn eiga að hefja
störf strax, kjör verða ákveðin í
gerðardómi. Fulltrúar verka-
lýðsfélaga gáfu hins vegar í skyn í
fyrradag að félögin kynnu að
virða gerðardómsákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að vettugi, en virt-
ust þó í gær ætla að sætta sig við
hana. Tvö af fjórum verkalýðsfé-
lögum sem um ræðir hafa tilkynnt
að þau muni snúa aftur til vinnu.
Hin tvö virðast líkleg til hins
sama.
Verkfallið varð í fyrstu til að
hækka hráolíuverð sem var þá
rétt yfir 11 dollurum á tunnu. Nú
telja olíusérfræðingar hins vegar
að verðið muni lækka á ný á
heimsmarkaði. Þannig lækkaði
oiíuverð í New York þegar Ijóst
var að líkur væru á að framleiðsla
hæfist brátt í Noregi á ný. Norska
ríkið hefur misst af 18 milljónum
dollara á dag, þann tíma sem
framleiðsla hefur stöðvast.
ERLENDAR
?RÉTTIR
hjörleVfsson'/REUT E R
vr
Frakkland
Breskur kaupsýslumaður skotinn til bana
Maður hringdi ífréttastofu og lýsti morðinu á hendursér ínafni
arabískra samtaka, ekki var unnt að greina nafn samtakanna
SP
Sovétríkin
styrkja
A uka framlag sitt þar
sem Bandaríkin hafa
dregið að greiðaframlag
sitt. De Cuellar segir SP
vanta 100 milljónir
dollara til að stofnunin
standi slétt eftir þetta ár
Lyons — Breskur verslunar-
maður sem fer með umboð
fyrir bandaríska verkfærafyrir-
tækið Black & Decker var
skotinn á götu I Lyons í gær.
Ókunnugur maður hringdi síð-
an í alþjóðlega fréttastofu í
borginni og lýsti morðinu á
hendur sér í nafni arabískra
samtaka. Ekki var mögulegt að
greina nafn samtakanna.
Maðurinn sagði: „Við munum
eyða öllum hagsmunum banda-
rískra og breskra heimsvalda-
sinna í heiminum hvar sem þau
eru.“ Hinn skotni, Kenneth Mar-
ston, 47 ára, var skotinn tveimur
byssukúlum í brjóstið fyrir fram-
an heimili sitt þegar hann var að
fara til vinnu í gærmorgun. Vitni
sá mann hlaupa á brott frá morðs-
taðnum.
Spánn
Fimm
menn
farast
í spreng-
ingu
TaliðaðETA,
sk æn 11 iðasamtök
Baska, hafistaðið að
tilrœðinu
Madrid — Kraftmikil sprengja
sprakk utan við sjúkrahús í
miðborg Madrid í gær með
þeim afleiðingum að fimm lög-
reglumenn létust. Þetta er ein
harðasta árás skæruliða á
Spáni í tvö ár. Talið er að
Samtök Baska, ETA, hafi stað-
ið að sprengingunni.
Sprengjan var fjarstýrð. Hún
sprakk í þann mund sem flokkur
lögreglumanna ók frá ftalska
sendiráöinu þar sem hann hafði
staðið vörð. Lögreglan sagði að
margt benti til að ETA (Sjálf-
stæði og frelsi Baskalands) hefði
framkvæmt verknaðinn. Þrír lög-
reglumenn létust í sprengingunni
sjálfri og tveir til viðbótar á
sjúkrahúsi. Þar að auki særðust
fjórir aðrir lögreglumenn og fjór-
ir vegfarendur. Einn þeirra var
yfirmaður jarðarfararstofnunar í
Madrid. Vitni sögðu að maður
sem hrópaði vígorð ETA
hreyfingarinnar á sprengjustaðn-
um hefði verið handtekinn.
Sprengingin var geysilega öf-
lug, lögreglan áætlar að notast
hafi verið við 50 til 60 kíló af
sprengiefni. Rúður sprungu í
gluggum fæðingadeildar sjúkra-
hússins og tvær skurðstofur eyði -
k'jgðust. Ekkert barnanna mun
hafa særst. Lögreglan segist hafa
verið á varðbergi gagnvart ETA
frá því tilkynnt var um kosningar
sem halda á síðari hluta júnímán-
aðar. Helstu leiðum frá Madrid
var lokað í gær stuttu eftir árás-
ina.
Bandarískur vegfarandi og 18
lögreglumenn særðust í septemb-
er síðastliðnum þegar sprengja
sprakk sem ETA samtökin höfðu
komið fyrir. Síðasta aðgerð ETA
samtakanna í Madrid var þegar
þau drápu undir-aðmírálinn Cri-
stobal Colon De Carvajal.
S-Afríka
Lögreglumaður myrtur
Svartur lögreglumaður var myrtur á heimili sínu ígœr. Hvítir
öfgasinnar hrópa niður ráðherra áfundi
Moskvu — Novosti fréttastofan
í Moskvu sagði frá því í gær að
Sovétríkin ætluðu að veita
Sameinuðu Þjóðunum 10
milljóna styrk vegna fjárhag-
svandræða stofnunarinnar.
Sagt var að SÞ væru nú fjár-
vana vegna þess aö Bandarík-
in sem lengi hafa veitt einna
mest fjármagn til SÞ, hafa
frestað afhendingu fjárfram-
lags síðasta árs og neitað að
borga að fullu fyrir 1986.
„Bandarísk stjórnvöld eru í
raun að beita efnahagslegum
þvingunum til að beita stofnun-
ina pólitískum þrýstingi", sagði í
tilkynningu Novosti. Þar sagði að
stjórnvöld í Moskvu hefðu
ákveðið að borga 10 milljónir
dollara í sérstakan sjóð hjá SÞ
vegna beiðna frá Javier Perez De
Cuellar, aðalritara SÞ. Novosti
vitnaði í orð hans um að stofnun-
in þyrfti að minnsta kosti 100
milljónir dollara svo hún gætti
greitt skuldir sínar til loka þessa
árs. Novosti sagði einnig að So-
vétríkin ætluðu auk þessa að
auka við hefðbundin framlög sín
hefðbundinna fjárlaga stofnunar-
innar fyrir 1986.
Hvítir öfgasinnar gerast æ fyrirferð-
armeiri í S-Afríku.
Soweto — Svartir menn stungu
í gær lögreglumann til bana í
miklum átökum lögreglu og
svartra ungmenna í gær. Um
svipað leyti gerðu hvítir öfga-
sinnar uppþot á fundi með ráð-
herra í ríkisstjórn S-Afríku.
Ráðist var á lögregluforingjann
í gær á heimili hans og bíll hans
eyðilagður með öxum, eftir því
sem lögreglan sagði. Hann mun
vera 33. svarti lögreglutnaðurinn
sem hefur látið lífið í átökum sem
staðið hafa nú í 26 mánuöi. A
þessum tíma hafa að minnsta
kosti 1470 manns látið lífið.
Vitni sögðu frá því að lögregl-
an hefði skotið táragassprengjum
að miklum fjölda unglinga sem
var á leið að dómshúsum í Sow-
eto, úthverfi blökkumanna í Jó-
hannesarborg. Ætlunin mun hafa
verið að heimta að 15 unglingar
sem sakaðir hafa verið um að
drepa lögreglumann, yrðu látnir
lausir. Máli þeirra hafði verið
frestað fram í maímánuð. Átökin
hófust klukkustundu eftir að ráð-
herra í stjórn S-Afríku hafði ver-
ið hrópaður niður á fundi af öfga-
sinnuðum, hvítum meðlimum
íhaldssamtaka þegar hann ætlaði
að ræða breytingar á kynþáttaað-
skilnaðarstefnunni.
Louis Nel, aðstoðarupplýs-
ingamálaráðherra, sagði við
fréttamenn eftir þennan fund
sem endaði með áflogum:„Það
sem gerðist hér er einfaldlega
blettur á nafn Afrikanans." Nel
sagði við fundarmenn:„Þið beitið
sömu aðferðum og kommúnist-
ar.“ Margir fundarmanna voru
meðlimir í samtökum hollensk-
ættaðara S-Afríkubúa, sem nefn-
ast, „Weerstandsbeweging“
(Andspyrnuhreyfingin). Þessi
hreyfing hefur undanfarið
stöðugt verið að færa sig upp á
skaftið í mótmælum sínum gegn
umbótahugmyndum stjórnarinn-
ar varðandi kynþáttaaðskilnað-
arstefnuna. Á fundinum veifuðu
Andspyrnuhreyfingarmenn
Swastikufánunr sínum. í blaðinu
Die Burger, sem hlynnt er stjórn-
inni, var aðalfyrirsögnin eftir
þennan fund, „Ofbeldi hvítra
gegn þingmanni NP“. NP er
stærsti stjórnarflokkurinn og Nel
tilheyrir þeim flokki.
Laugardagur 26. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9