Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 16

Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663. MOÐVIUINN Laugardagur 26. aprí! 1986 93. tölublað 51. órgangur 1. maí Konur í ræðupúlti Dagskrá Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, BSRB og Iðnnemasam- bandsins með hefðbundnu sniði. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir aðalrœðumaðurinn Hátíðahöld Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, BSRB og Iðnnemasambandsins verða með hefðbundnu sniði í ár. Hefjast þau með kröfugöngu frá Hlemmi kl. 14.00 og verður gengið niður á Lækjartorg. Þar sem fundur verður haldinn. Hallgrímur Magnússon starfs- maður fulltrúaráðsins, sagði við Þjóðviljann í gær að engin skemmtiatriði yrðu að þessu sinni, en Lúðrasveit verkalýðsins mun leika á milli ræðuhalda. Aðalræðumaður dagsins verð- ur Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar. Ásta Ragn- heiður Pétursdóttir, mun tala af hálfu BSRB og Linda Ósk Sig- urðardóttir frá Iðnnemasam- bandinu. Fundarstjóri verður Ragna Bergmann, formaður Framsóknar. Á mánudag verður skrifað undir 1. maí ávarp verkalýðsfé- laganna. - Sáf. Formaður utanríkismálanefndar ogforsetiþingsins neita að taka mótmæli gegn kjarnorkutilraunum Bandaríkjamanna fyrir. Fulltrúar Framsóknar og Kvennalista sammála tillögu Hjörleifs um mótmœli. Hjörleifur Guttormsson: Taldi brýntað alþingi tœkiformlega afstöðu til málsins fyrirþingslit Eyjólfur Konráð Jónsson for- um á nákvæmlega sama tíma og hér stendur í vegi fyrir þvíað mál- að sjálfsögðu fylgja þessu máli á um afgreiðslu þess“, sagði maður utanríkismálanefndar formaður utanríkismálanefndar ið sé tekið til afgreiðslu. Ég mun eftir innan nefndarinnar og knýja Hjörleifur Guttormsson. _ lg. Alþingis hafnaði á síðasta degi þingsins beiðni Hjörleifs Gutt- ormssonar um að nefndin kæmi saman og tæki forndega afstöðu til tillögu hans sem legið hefur fyrir nefndinni um nokkurn tíma. I tillögunni er lagt til að Alþingi fordæmi harðlega að hafnar séu á ný tilraunir með kjarnorkuvopn og því jafnframt lýst yfir að þing- ið telji brýnt að hið fyrsta verði gerður samningur um allsherjar- bann við slíkum tilraunum undir traustu eftirliti. „Neitun formanns utanríkis- málanefndar kom mér á óvart og jafnframt neitun forseta Alþingis að fá málið tekið fyrir á þing- fundi. Ég taldi áríðandi að Al- þingi afgreiddi þetta brýna mál áður en því yrði slitið“, sagði Hjörleifur Guttormsson í samtali við Þjóðviljann. Varaformaður utanríkismálanefndar Haraldur Olafsson, Framsóknarflokki og Guðrún Agnarsdóttir fulltrúi Kvennalistans í nefndinni höfðu bæði lýst stuðningi sínum við til- lögu Hjörleifs og tekið undir ósk hans um að boðað yrði til fundar í nefndinni. „Ég taldi sérstaklega brýnt að Alþingi afgreiddi formlega þetta mál eftir að Bandaríkjamenn höfðu sprengt þriðju tilrauna- sprengju sína í röð frá áramótum nú í vikunni. Það er athyglisvert að danska þjóðþingið samþykkir mótmæli við þessum sprenging- 1. maí Gegn samningunum og láglaunastefnunni Samtök kvenna á vinnumarkaði efna til kröfugöngu og útifundar 1. maí Al. maí cfna Samtök kvenna á vinnumarkaði til sérstakra aðgerða, kröfugöngu og útifund- ar. Aðgerðunum verður einkum bcint gegn síðustu kjarasamning- um og láglaunastefnu ríkisstjórn- ar og atvinnurckenda, sem for- ysta heildarsamtaka verkafólks hefur gefist upp fyrir, segir í fréttatilkynningu frá Samtökum kvenna á vinnumarkaði um 1. maí. Samtökin hafa leitað eftir sam- stöðu allra sem taka undir megin- kröfur þeirra í bréfi þar sem segir m.a.: „Samtök kvenna á vinnumark- aði liafa ákveðið að efna til sér- stakra aðgerða í Reykjavík á 1. maí nk. undir kjöroröunum: ■ Gegn síðustu kjarasantningum - Enga t'leiri fátækrasamninga. ■ Sættum okkur ekki við lág- launastefnu ríkisstjórnar, at- vinnurekenda og verkalýðs- forystu. ■ Baráttufúsa verkalýðshreyf- ingu og nýtt forystuafl. Samtök kvenna á vinnumark- aði skora á alla verkalýðssinna að fylkja liði á 1. ntaí undir merkjum baráttu. Samtök kvenna á vinnumark- aði óska eftir stuðningi við að- gerðir sínar 1. rnaí, helst með beinni þátttöku eða stuðningsyf- irlýsingu og hvatningu til félaga að taka þátt í aðgerðunt samtak- anna þarsem þess er kostur. Látum aðgerðir á 1. maí verða fyrta skrefið til þess að vekja upp baráttu innan verkalýðshreyfing- arinnar.“ Bryndís Víglundsdóttir: „Það er ágangur á einkalíf fólks aö senda því svona bréfsnepla". (Mynd: Sig). Fasteignaviðskipti Ágangur eða þjónusta? Fasteignasala býður húseigendum að selja hús sín. Vissar götur teknarfyrir Mér finnst vcrið að ráðast inn á friðhclgi heimilisins, sagði Bryndís Víglundsdóttir skóla- stjóri Þroskaþjálfaskólans um bréf sem hún og aðrir íbúar við Markarflöt í Garðabæ fengu inn um póstlúguna til sín fyrir skömmu. Bréf þetta er frá fast- eignasölu í Reykjavík og þar er húseigendum við götuna boðið að hafa samband við fasteignasöluna ef þcir eru í söluhugleiðingum þar sem umrædd fasteignasala hali fjársterkan kaupanda að húsi við þessa götu. „Heimili manns á að fá að vera í friði fyrir svona draslpósti", sagði Bryndís enn frentur. „Það kemur mér einni við hvort ég ætla að selja húseign mína eða ekki og þá er það rnitt að hafa samband við þann fasteignasala sem ég vil og eins hvenær ég geri slíkt. Svona ágangur er óþolandi og það voru flestir íbúar götunnar mjög óhressir með þetta bréf. Mér er kunnugt um einn, sem sendi það til baka með athuga- semdum til fasteignasölunnar.“ Bryndís sagðist hafa hringt í fasteignasöluna til að kvarta undan svona ágangi og hafi hún fengið þau svör að hún væri gam- aldags og kynni ekki að notfæra sér nútíma þjónustu og þægindi. Hún sagði að svona þjónustu- hættir tíðkuðust erlendis svo sem í Bandaríkjunum og Svíþjóð og sér fyndist ekki að við þyrftum að taka þá upp hér, en því miður virtist henni þetta vera mjög að aukast hérlendis. „Þetta er bara saklaust bréf sem fólk hendir ef það er ekki í söluhugleiðingum, við teljum þetta ekki röskun á friðhelgi heimilisins. Það var ekki ætlunin að raska ró fólks á einn eða annan hátt og ef svo hefur farið biðj- umst við velvirðingar á því“, sagði Magnús Hilmarsson hjá Fasteignasölunni Skeifunni. Ing, Kjarnorkusprengingar Stjómarliðar stöðva mótmæli

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.