Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Dagheimili Helmingi lengri biðtími Meðalbiðtími einstœðra foreldra eftir rýmifyrir börn sín hefur lengst um helming frá árinu 1979 til 1985. Kristín Á. Ólafsdóttir: Enn eitt dœmið sem sannarþörfina á dagheimilum fram yfir leikskóla. Sjálfstœðismeirihlutinn tekur ekki tillit tilþess M eldra eftir rými fyrir börn sín á dagheimilum borgarinnar hafði árið 1985 lengst um helming frá árinu 1979. Þá var meðalbið- tími 3,87 mánuðir en árið 1985 var biðtíminn orðinn 7,82 mán- uðir. Á árunum 1979 til 1981 tókst að minnka meðalbiðtímann í 3,20 mánuði en frá árinu 1982 hefur biðtíminn lengst úr 3,53 mánuð- um í 7,82 mánuði. Hér er aðeins um meðalbiðtíma að ræða en dæmi eru til um það að fólk þurfi að bíður skemur eða lengur og þá allt upp í 1 ár. „Þessi þróun á sér stað á sama tíma og kjaraskerðingin hefur lagst með fullum þunga á launa- fólk,“ sagði Kristín Á. Ólafsdótt- ir varaformaður Alþýðubanda- lagsins. „Eina björgin sem fólk hefur haft er aukin vinna þannig að dagvistun fyrir börnin verður ennþá meiri spurning um lífs- björg en áður. Þetta er enn eitt dæmið sem sannar áherslu á leik- skóla þrátt fyrir það að þörfin sé rir dagheimilin,“ sagði Kristín Ólafsjlóttir. -K.ÓI. % Lægstu laun hækki mest! Hvenær heyrði ég þessa setn- ingu áður? Gamli Digranesbærinn fundinn? Orri Vésteinsson, Einar Jónsson og Mjöll Snæsdóttir rannsaka nú það sem ef fil vill er bæjarstæði Digranesbæjarins. Ljósm. Sig. Digranes Elsta bæjarstæðið fundið? Framkvœmdum við íbúðarhverfiseinkar vegna fornleifarannsókna í Kópavogi. Guðmundur Ólafsson, fornleifafrœðingur: Hérgœti verið komið upprunalega bœjarstœðið á Digranesi Starfsmenn Þjóðminjasafnsins eru nú að rannsaka hól einn í nágrenni gamla Digranessbæjar- ins í Kópavogi. Eru uppi getgátur um að í hól þessum sé að finna minjar elsta bæjarstæðisins á Digranesi. Guðmundur Ólafsson, forn- leifafræðingur, hefur yfirumsjón með rannsókninni, sem er kostuð af Kópavogskaupstað. Sagði hann að Adolf Pedersen hefði fundið þennan hól fyrir nokkrum árum, skömmu áður en hann lést og taldi Adolf að þarna hefði upprunalegi Digranesbærinn ver- ið staðsettur. Er hóll þessi tölu- vert ofar en gamli Digranesbær- inn stóð. Með uppgreftrinum nú á að ganga úr skugga um hvort tilgáta Adolfs er rétt, eða hvort hér er um útihús að ræða, en þeg- ar hefur komið í ljós að hóll þessi er leifar af mannvirkjum, því þegar uppgröfturinn hófst í fyrra- dag komu fornleifafræðingarnir strax niður á veggjahleðslu. Á hólnum hafði verið komið fyrir skilti um að hann væri frið- lýstar minjar en þrátt fyrir það hafði ekki verið tekið tillit til þess er svæðið var skipulagt og átti að leggja veg beint í gegnum hólinn. Eru framkvæmdir þegar hafnar á nýju íbúðarhverfi þarna en þeim seinkar eitthvað vegna þessarar rannsóknar. Finnist þarna minjar bæjar- húsa gætu þær verið frá miðöld- um en elsta ritaða heimildin um Digranesbæinn er frá 14. öld. —Sáf Verkamannafélagið Hlíf Lægstu laun hækki mest Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði hélt aðalfund sinn á fimmtudaginn og segir þar m.a.: „Kjarasamningar verkalýðs- hreyfingarinnarfrá 26. febrúar sl. eru hvergi nærri því markmiði að hver einstakur launþegi geti sómasamlega fleytt sér áfram af dagvinnutekjum sínum. Kaup þeirra lægst launuðu er svo vesældarlegt, að sólarhring- urinn allur dugar ekki til þess að ná tekjum sem til þarf til þess að geta lifað mannsæmandi lífi. Það eru hörð kjör sem þessu fólki er gert að lifa við, þegar jafnvel laun tveggja duga hvergi nærri til framfærslu meðalfjöl- skyldu. Því er það, að Verkamannafé- lagið Hlíf mun leita allra ráða til þess að fá laun félagsmanna sinna hækkuð, og þá mest þeirra sem lægstu launin hafa.“ Síðan segir: „Fráfarandi meirihluti í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar, bar ekki einu sinni gæfu til að svara já- kvætt beiðni verkalýðsfélaganna um viðræður, hvað þá að vilja semja um eðlileg mannsæmandi lágmarkslaun fyrir þá starfsmenn sem hjá bænum vinna. Því skorar Verkamannafélagið Hlíf á væntanlega bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, að hafa það sem sitt fyrsta verk að loknum kosning- um, 31. maí nk., að semja við verkalýðsfélögin í bænum um verulegar jcjarabætur. Með því leggja þeir sitt af mörkum til að útrýma fátækt úr landinu.“ -gg FUJ og ÆFAB Heimdallur rann á rassinn jóðviljanum hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Æskulýðsfylkingu Alþýðubanda- lagsins og Félagi ungra jafnaðar- manna, undirrituð af Gísla Þór Guðmundssyni f.h. ÆFAB og Jóni B. Lorange f.h. FUJ: „ÆFR og FUJ lýsa yfir undrun sinni á ófaglegum vinnubrögðum Heimdallar vegna áskorunar um kappræðufundi, sem send var í lok aprílmánaðar. Eftir mikla undirbúningsvinnu félaganna tveggja, þá virðist sem Heimdall- ur hafi ekki getað farið eða þorað í kappræður. Fagrar yfirlýsingar um nauðsyn kappræðna milli ungliðahreyfinganna virðast því aðeins hafa verið innantóm orð. Seinagangur og þvælingur um fundartíma, fundarstað, fram- bjóðendur o.s.frv., urðu til þess að ekki varð mögulegt að halda fund fyrir 31. maí nk. ÆFR og FUJ geta ekki skilið seinagang Heimdallar á annan veg en að þeir hafi aldrei ætlað sér í kappræður, og sannast þar máltækið, að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, því eins og menn muna, þá neitaði Sjálfstæð- isflokkurinn að mæta á DV- fundinn." Fyrir hönd ÆFR og FUJ, Gísli Þór Guðmundsson Jón B. Lorange ÞAKMALNING SEM ENDIST málning'f

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.