Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 8
MENNING Söngveisla Til heiðurs Kristni Kristinn Hallsson óperusöngvari veröur sextugur miðvikudaginn 4. júní. i tilefni þess, honum til heiöurs munu allir fremstu söngvarar lands- ins halda honum söngveislu í Þjóð- leikhúsinu það kvöld. Kvöldskemmtunin liefst á því að einn af bestu vinum Kristins Helgi Sæmundsson rithöfundur ávarpar af- mælisbarnið en síðan koma fram í þessari röð eftirtaldir listamenn: Þuríður Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson, Magnús Jónsson, Elín Sig- urvinsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Halldór Vilhclmsson, Einar Markússon, Júlíus Vífill Ing- varsson og Kristinn Hallsson, Sieg- linde Kahmann og Sigurður Björns- son, Kristinn Sigmundsson, Kristján Jóhannsson, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Már Magnússon, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Garðar Cortes, Kristinn Hallsson, Karlakór- inn Fóstbræður og Kristinn Hallsson. Undirleik annast: Agnes Löve, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Cat- herine Williams, Jónas Ingimundar- son, Jórunn Viðar, Lára Rafnsdóttir og Sigfús Halldórsson. Söngveislan hefst stundvíslega kl. 20 í Þjóðleikhúsinu. Aðgöngumiðar verða til sölu í Þjóðleikhúsinu á venjulegum afgreiðslutíma og kosta 500 krónur. Tónlist Onnur plata frá Kristjáni Ekkert sparab til hljómplötu Kristjáns með íslenskum lögum. Kemur út á hljómplötu, snœldu og leisidiski. Framundan: „Petta típíska stórtenórdebútt í Lincoln Center“ Kristján Jóhannsson stórsöngvari syngur í ágúst inná nýja hljómplötu og veröa á henni íslensksönglög eingöngu. Frá nýju plötunni var sagt á blaðamannaf undi í gær og kom þar fram aö ekkert veröur til sparað, og valinn maður haföur í hverju rúmi. Hljómplatan veröur tekin upp í hljóðveri CBS-fyrirtækisins í London, eins af þekktustu tón- listarfyrirtækjum í heimi, og und- irleik annast Sinfóníuhljómsveit Lundúna undir tónsprota norska stjórnandans Karsten Andersen. Hann var um árabil aðalstjórn- andi Sinfóníuhljómsveitar fs- lands og þekkir vel til íslenskrar tónlistar. Þekktur breskur upp- tökumaður, Mike Ross, gerir sér ferð frá New York til að taka upp plötuna, sem verður fyrsta ís- lenska platan sem jafnframt kem- ur út á snældu og leisidiski. Þorsteinn Hannesson söngvari er listrænn ráðunautur við val á lögunum og aðra umsjón með plötunni. Hann sagði á blaða- mannafundinum í gær að lagaval væri ekki fullfrágengið en nefndi meðal annars tónskáldin Sigfús Einarsson, Sigvalda Kaldalóns, Þórarin Guðmundsson og Emil Thoroddsen, - „það er skylda hvers söngvara að syngja ein- hvern tíma allt standard- repertúarið," - en á fundinum tók Kristján söngelskum löndum vara fyrir að búast við hefð- bundnum flutningi laganna á plötunni: „hér hefur það verið alltof mikið þannig að einhver einn syngur lag, - og þá er það orðið þannig að allir aðrir apa það eftir,“ - „mörg af þessum ís- lensku iögum er mjög van- sungin“. Efni plötunnar verður sótt úr ýmsum tónáttum, en útsetningar Listahátíð Flamenco Á sunnudag og mánudag dansar og leikur í Broadway flamenco- flokkurfrá Spáni urfdir stjórn Ja- vier Agra. Um listgreininaflam- encoerfjallaðás. 10-11 ísunnu- dagsblaði, en í hópnum sem hingað kemur eru aö sögn frægir listamenn: Dansmærin Rosa Durán ólst upp í Madrid og var ekki nema fimm ára þegar fjallað var um dans hennar í dagblöðum í Ma- drid. Hún hefur hlotið ýmiskonar viðurkenningu fyrir dans sinn; verðlaun frá Leikhúsi þjóðanna í París, fengið þjóðarverðlaun Kennaraskólans í flamenco- fræðum o.fl. Hún kennir nú flam- enco við akademíuna í Madrid. - Gítarleikarinn Perico Del Luna hefur komið fram á leiksviðum Evrópu og Ameríku og hlotið mikið lof. Leikur hans er talinn mjög upprunalegur og í nánum tengslum við spænska hefð í gít- arleik. Með í hópnum er einnig ungur gítarleikari sem hlaut 1. verðlaun fyrir gítarleik frá Kenn- araskólanum í flamenco-fræðum í Jerez de Frontera 1984. Hann er talinn einn efnilegasti konsert- gítarleikari Spánar. Doris Lessing Sunnudaginn l.júníverðurdag- skrá um breska rihöfundinn Doris Lessing í lönó og hefst hún klukk- an 16.00. Doris Lessing er heimskunnurrithöfundurog hafa bækur hennar verið þýddar á fjöldatungumála. Dagskráiní Iðnó er í umsjón Birgis Sigurös- sonar rithöfundar. Magdalena Schram flytur erindi um skáld- konuna og verk hennar og leikar- arnir Arnar Jónsson, BríetHéö- insdóttirog Kristbjörg Kjeld lesa úrverkum hennar. Sjálf spjallar Doris Lessing um „gullöld skáld- sögunnar" og svararfyrirspurnum Doris Lessing ólst upp í Rhó- desíu og gerast sumar sögur hennar þar. En bækur hennar spanna nær allt sem í mannlegu lífi hrærist og dýpsti tónninn í skáldskap hennar er afdráttar- laus mannúð. Hún er mjög af- kastamikill höfundur og kemur lesendum sínum sífellt á óvart. í tilefni komu hennar hingað til lands kemur skáldsaga hennar Grasið syngur út hjá Forlaginu en áður hefur skáldsagan Minningar einnar sem eftir lifði komið út á íslensku. Hver fær verðlaunin? Meö smásagnasamkeppni Listahátíöar má segja aö allir núverandi og verðandi rithöfundar þjóðarinnar hafi verið kallaðir til leiks; frá þeim bárust 370 smásögur í keppnina. En hvaða þrjár sögur dæmdu dómnefndarmenn bestar? Og hvaða sögur verða gefnar út í smásagnasafni því sem Almenna bókafélagið gefur út og dóm- nefndin hefur valið til útgáfu? Svör við þessum spurningum fást á opnunardegi Listahátíðar á Kjarvalsstöðum. Búrsjúladse kemur ekki Framkvæmdastjóm Listahátíöar var tilkynnt í gær að gerski bass- asöngvarinn Paata Búrsjúladse hafi ekki fengiö ferðaleyfi hjá so- véskum yfirvöldum, og veröi því ekkert af fyrirhuguöum tónleikum með Sinfóníuhljómsveitinni 6. júní. Umboðsmaður söngvarans í Frakklandi sendi skeytið, og eru engar frekari skýringar gefnar á málinu. Eitt málverka Tryggva: Sigríður Eyjafjarðarsól, frá 1929. Kristján Jóhannsson með konu sinni, Sigurjónu Sverrisdóttur leikara: „Það reka sumir upp stór augu þegar ég syng þessi lög". laganna eru allar eftir Jón Þórar- insson tónskáld, „og það er á eng- an hallað þó að sagt sé að til þess eru varla aðrir færari,“ sagði Þor- steinn Hannesson. Það stendur þannig breiðfylk- ing tónlistarmanna að baki Krist- jáni og er þó einn ótalinn, Björg- vin Halldórsson, sem annast tæknilega umsjón við gerð plöt- unnar og er milligöngumaður við erlenda flytjendur og upptöku- menn; - hann var í svipuðu hlut- verki við gerð fyrri plötu Krist- jáns fyrir þremur árum. Kristján kom í höfuðborgina frá Akureyri þarsem hann hélt tónleika fyrir almenning og sér- staklega fyrir aldraða; - hann var í gær inntur eftir söng hér syðra: „Núna? Á Listahátíð? Ég veit ekki hvort maður ætti að gera þeim þann óleik!“. Hann er ann- ars hvorteðer of önnum kafinn, en lofaði hálfpartinn að syngja í haust, þegar platan kemur út. Haldi einhver ennþá að Krist- ján sé ekki heimsfrægur er rétt að líta á dagskrá hans framundan: næst syngur hann í Tosca í Ohio, síðan platan í London, þarnæst „er komið að þessu típíska stór- tendórdebútti í Lincoln Center“ í New York-óperunni, La Bo- heme, - og aftur í október í Faust, þá til Milwaukee að syngja í Tosca, síðan hingað heim og aft- ur Tosca, eftir áramót til Chicago í Grímudansleik þarsem þeir skiptast á um tenórhlutverk Kristján og félagi Luciano Pavar- otti. Og er bókaður langt frammí tímann. Listasafn ASÍ Verk Tryggva Magnússonar Viðskiptamennirnir Jón Karls- son og Jónas Ólafsson hafa með öðrum stofnað fyrirtækið Strand- högg til útgáfunnar, en platan er væntanleg á markað í nóvember, - jólaplatan í ár. í dag hefst yf irlitssýning á verkum T ryggva Magnússonar í Listasafni ASI viö Grensásveg. T ryggvi er góökunnur, að minnsta kosti eldri kynslóðinni og munu flestir sem komnir eru af unglingsskeiði minnastteikninga þeirra sem hann gerði fyrir skopblaðiö Spegilinn á árunum 1926-1949. Færri minnast hans þó ef til vill fyrir annað það sem finna má í ævistarfi hans, en þar má helst nefna málverk máluð eftir minnum úr þjóðsögunum og ævintýrum, landslagsmálverk, portrett, teikningar í bækur og síðast en ekki síst fornmannaspil- in svokölluðu. Á sýningunni verða frum- myndir af á annað hundrað völd- um teikningum úr Speglinum, um 20 málverk, frummyndir af fornmannaspílum auk sýnishorns af öðrum verkum Tryggva. í sýningarskrá skrifar Björn Th. Björnsson um Tryggva og myndlist hans. Sýningin stendur til 22. júní og er opin 16-20 virka daga, 14-22 um helgar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.