Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 31.05.1986, Blaðsíða 12
Hvemig fara kosningamar? Jákvæð mál á oddinn Ég þori engu aö spá um úrslitin en vona auðvitað að við fáum tvo fulltrúa inn, sagði Jóhannes Guðmundsson kosningastjóri Alþýðu- flokksins. Hvernig finnst þér kosningabaráttan hafa farið fram? í þessari baráttu höfum við lagt áherslu á jákvæð mál en ekki neikvæð. Kaupleigumálin hafa verið sett á oddinn en það er lífsspurs- mál fyrir fjölmarga að þau mál nái fram að ganga. Okkur sýnist að fólk sé smám saman að átta sig á því um hvað kaupleigumálin fj alla. Annars hefur þessi barátta verið mjög skemmtileg og lífleg. -K.Ól. Ásrún Hauksdóttir og Jóhannes Guðmundsson. Sigrún Sturludóttir. Ekkert vonleysi í loftinu Við erum sannfærð um að við fáum einn fulltrúa inn, sagði Sigrún Sturludóttir kosningastjóri Framsóknarflokksins. Svo giska ég á að Sjálfstæðisflokkurinn fái 9 fulltrúa kjörna, Alþýðuflokkurinn og Kvennalistinn einn hvor og Alþýðubandalagið þrjá. Hvernig finnst þér kosningabaráttan hafa farið fram? Mér finnst hún nú ekki ólík því sem verið hefur að undanskildu því að íhaldið hefur haldið sig í felum að þessu sinni. Að öðru leyti þá eru baráttumál hinna flokkanna mjög svipuð, það eru bara áherslurnar sem eru breytilegar. Hefur starfið verið skemmtilegt? Frábærlega skemmtilegt. Hér hefur ríkt góður andi og mikil barátt- ugleði. Það er sem betur fer ekkert vonleysi í loftinu, við fáum okkar fulltrúa inn. -K.Ól. Bjartsýn á úrslitin Við treystum á dómgreind borgarbúa og vonum að við höldum velli, sagði Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson kosningastjóri Sjálfstæðis- flokksins. Við gerum okkur auðvitað ljóst að allt getur gerst. Við fáum a.m.k. 8 fulltrúa kjörna en öðru vil ég ekki spá því ég er enginn spámaður. Hvernig finnst þér kosningabaráttan hafa verið? Baráttan núna hefur einkennst af meiri málefnalegri fátækt en oftast áður. Það hefur sjaldan verið jafn mikið af lygum í gangi og persónu- legum árásum og svívirðingum á Davíð borgarstjóra. En hefur þér ekki þótt þetta starf skemmtilegt? Jú kosningabarátta er alltaf skemmtileg. Maður umgengst mikið af fólki og við erum öll frekar bjartsýn á úrslitin. -K.ÓI. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. Metúsalem Þórisson ásamt félögum úr Flokki mannsins. Við emm venjulegt folk Ég spái Sjálfstæðisflokknum 8 fulltrúum, Alþýðuflokknum 2, Al- þýðubandalaginu 3, Kvennalistanum 1 og okkur 1 fulltrúa, sagði Met- úsalem Þórisson kosningastjóri Flokks mannsins. Finnst þér kosningabaráttan hafa verið málefnaleg? Ekki venju fremur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lítið látið sjá sig í þessari baráttu og fjórflokkarnir hafa blekkt kjósendur með því að látast vera ólíkir hver öðrum. Alþýðubandalagið talar um íhald og íhaldið um komma en í raun eru þetta sama deildin í sama flokknum sem kalla mætti Meinlausa Miðjuflokkinn. Hefur baráttan annars verið skemmtileg? Mjög skemmtileg. í Flokki mannsins er fullt af fólki sem er að taka þátt í stjórnmálum í fyrsta skipti, og ef ekki hefði verið fyrir Flokk mannsins þá hefði það aldrei komið í slaginn. Þetta er venjulegt fólk sem á ekki upp á pallborðið hjá hinum flokkunum. -K.Ól. Ekki karp um persónur Ég vil engu spá sérstaklega um úrslitin, en ég vona að þau komi öllum á óvart og okkur skemmtilega á óvarto verði öðrum þörf lexía, sagði Kristín Árnadóttir kosningastjóri Kvennalistans. Hvernig finnst þér kosningabaráttan hafa verið? Hún hefur ekki verið málefnaleg þegar á heildina er litið. Við í Kvennalistanum höfum ekki tekið þátt í þesu karpi um persónur en lagt áherslu á málefnalega umræðu. Annars hefur þessi barátta verið almennt séð mjög dauf og lítið áberandi út á við en mjög lífleg og skemmtileg hér hjá okkur. -K.ÓI. Kristín Árnadóttir, Ólöf Þórarinsdóttir, Kristín Blöndal og Magdalena Schram. Kosningastjórarnir í Reykjavík teknir tali 12 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. maí 1986 I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.