Þjóðviljinn - 31.05.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI
un lífsviöhorf
Kosið
Sú kosningabarátta sem nú er lokið hefur
einkennst af því, að aðalandstæðingur vinstri
manna í Reykjavík- Sjálfstæðisflokkurinn, hef-
ur neitað að mæta til andsvara fyrir stefnu sína
og stjórnarháttu. Og fyrirætlanir. Þögnin hefur
einkennt baráttuna af þeirra hálfu. Morgunblað-
ið hefur eitt verið látið um að heyja baráttuna á
síðustu dögum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þá á
þann veg að reyna að gera borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavík að einhverju „ópólitísku"
máli, sem sé einsog meinlaus Ijóðlína í borgar-
bragnum.
En þannig er það ekki. Veldi Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórninni og Reykjavík er
samanfléttað. Annar armurinn sá um að kippa
burt verðtryggingu launa meðan hinn hækkaði
þjónustugjöld í Reykjavík. Síðustu fjögur ár
verða í íslandssögunni kafli ósigra launafólks,
niðurlægingar sem tekur tíma að vinna sig upp-
úr. Hugmyndaheimur frjálshyggjunnar er kaldur
og mannfjandsamlagur. Alltof margir hafa lent í
því frosti. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lét
ekki sitt eftir liggja þegar harðast var gengið að
fólki á árunum 1983 og 1984, - og tók af fullum
þunga þátt í árásunum á launafólkið. - Það á
bæði við um skattpyndina og ofstækið - og þarf
ekki að minna á annað an BSRB-verkfallið
haustið 1984 í því sambandi.
Frjálshyggjan hefur mætt andstöðu á þessu
kjörtímabili. I ferlegustu mynd sinni varð hún
gegnsæ. Það eru ekki mörg tækifæri sem fólki
gefst til að gefa hugmyndaheimi ríka fólksins
einkunn. Það gerum við með kjarabaráttu okk-
ar, það getum við gert í listum og menningu -
það gerum við í kosningum. í dag gefst þér
tækifæri til að gefa Sjálfstæðisflokknum ein-
kunn.
Eitt kosningaloforða Sjálfstæðisflokksins fyrir
síðustu kosningar var lækkun fasteignagjalda.
Þetta efndi Sjálfstæðisflokkurinn með þeim
hætti að lækka fasteignagjöldin um 20 miljónir,
- en um leið hækkaði flokkurinn þjónustu borg-
arinnar um 40 miljónir. Eini rétti mælikvarðinn á
skatta og álögur er vinnutíminn. í dag ertu mun
lengur að vinna fyrir útsvarinu þínu og skött-
unum en þú varst í upphafi þessa kjörtímabils.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur hagað stjórn
borgarinnar með fádæma frekum, ruddalegum
og ólýðræðislegum hætti. Við afgreiðslu Skúia-
götuskipulagsins hundsaði flokkurinn allar til-
lögur og athugasemdir einstaklinga, íbúasam-
taka og fagsamtaka. í Þjóðviljanum í gær greinir
frá enn einu dæminu um þá ógnun við lýðræðið
í borginni sem felast í þvílíkum stjórnarháttum.
Sjálfstæðisflokkurinn hyggst útiloka að fulltrúar
foreldra og fóstra geti greitt atkvæði í stjórn
dagvistar með stjórnkerfisbreytingum. Flokkur-
inn hefur enn fremur lagt til á síðasta fundi
félagsmálaráðs, að fulltrúarnir misstu einnig
málfrelsi og tillögurétt.
í kosningunum er kosið um málefni. Það er
kosið á milli lista, sem endurspegla lífssýn
þeirra sem að þeim standa. ( dag gefst ekki
einungis tækifæri á að gefa Sjálfstæðisflokkn-
um um allt landið einkunn fyrir frammistöðuna.
Það gefst einnig tækifæri til nýrrar sóknar.
Okkur gefst tækifæri til að sækja fram á vett-
vangi menningar og sjálfstæðis. Okkur gefst
tækifæri á að auðga atvinnulíf okkar og mögu-
leika.
Okkur gefst tækifæri á að vinna sigra, ráðast
gegn vinnuþrælkun, láglaunum og fátækt í
. Reykjavík. Okkur gefst tækifæri til að láta
atvinnulífið blómgast, auðvelda öldruðum og
fötluðum samborgurum okkar lífið. Okkur gefst
tækifæri til að skjóta líflegum sprotum lýðræðis-
ins inní bæjarstjórnir.
Um allt land er tekist á í byggðarlögunum;
veljum við lífssýn hins ríka og volduga ellegar
lífssýn jafnræðis, mannúðar og lýðræðis?
Vinstri menn vilja höggva skarð í lágtaxta-
þjóðfélagið, - og í Reykjavík leggur G-listinn til
að lágmarkslaun verði 30 þúsund krónur. Þeir
sem vilja brjóta niður lágtaxtaþjóðfélagið, þeir
sem vilja efla möguleika allra til að njóta menn-
ingar og lista, þeir sem vilja valddreifingu í borg-
inni, þeir sem vilja efla mannúð á kostnað sér-
hyggju, - þeir fylkja sér um höfuðandstæðing
Sjálfstæðisflokksins. Þeir fylkja sér um lífssýn
samhjálparinnar. Þeir fylkja sér um G-listann.
Það er listi nýrrar sóknar gegn frjálshyggjunni
og valdaspillingunni.
f ...................................................................................................................................................................
Ljósmynd Sigurður Mar.
LJOSOPIÐ
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Víöir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður'Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgroiðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgroiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. maí 1986