Þjóðviljinn - 05.06.1986, Qupperneq 14
AFMÆU
DJÚÐVIUINN
UMBOÐSMENN
Kaupst. Nafn umboðsmanns Heimili
Garöabær Rósa Helgadóttir Laufási 4 53758
Hafnarfjörö. Rósa Helgadóttir Laufási 4 53758
Keflavík Guöríöur Waage Austurbraut 1 92-2883
Keflavík Ingibjörg Eyjólfsdóttir Suðurgötu 37 92-4390
Njarövík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-3826
Sandgeröi Þorbjörg Friöriksdóttir Hólagötu 4 92-7764
Varmá Stefán Ólafsson Leirutanga 9 666293
Akranes Finnur Malmquist Dalbraut 55 93-1261
Borgarnes Siguröur B. Guöbrandsson Borgarbraut 43 93-7190
Stykkishólm. Einar Steinþórsson Silfurgötu 38 93-8205
Grundarfj. Guölaug Pétursdóttir Fagurhólstúni 3 93-8703
Ólafsvík Jóhannes Ragnarsson Hábrekku 18 93-6438
Hellissandur Drífa Skúladóttir Laufási 7 93-6747
Búðardalur Sólsveig Ingólfsdóttir Gunnarsbraut 7 93-4142
Isafjöröur Esther Hallgrímsdóttir Seljalandsvegi 69 94-3510
Bolungan/ík Ráðhildur Stefánsdóttir Holtabrún 5 94-7449
Flateyri Sigríöur Sigursteinsd. Drafnargötu 17 94-7643
Suöureyri Þóra Þóröardóttir Aðalgötu 51 94-6167
Patreksfj. Nanna Sörladóttir Aöalstræti 37 94-1234
Bíldudalur Hrafnhildur Þór Dalbraut 24 94-2164
Hvammstangi Baldur Jensson Kirkjuvegi 8 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Borgarbraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Steinunn V. Jónsd. Öldustíg 7 95-5664
Siglufj. Siguröur Hlööversson Suðurgötu 91 96-71406
Akureyri Haraldur Bogason Noröurgötu 36 96-24079
Dalvík Þóra Geirsdóttir Hjararslóð 4E 96-61411
Ólafsfjöröur Magnús Þ. Hallgrímss. Bylgjubyggð 7
Húsavík Aðalsteinn Baldursson Baughóli 31B 96-41937
Reykjahlíö Þuriður Snæbjörnsdóttir Húsavik 96-5894
Raufarhöfn Angantýr Einarsson Ásgarði 5 96-51125
Þórshöfn Arnþór Karlsson Laugarnesvegi 29 96-61125
Vopnafjörður Sigurður Sigurösson Fagrahjalla 14 97-3194
Egilsstaöir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350
Seyöisfjörö. Sigríöur Júlíusdóttir Botnahlíð 28 97-2365
Reyðarfjörð. Ingileif H. Jónasdóttir Túngötu 3
Eskifjörður Þórunn H. Jónasdóttir Helgafell 3 97-6327
Neskaupst. Ingibjörg Finnsdóttir Hólsgötu 8 97-7239
Fáskrúösfj. Jóhanna L. Eiríksdóttir Hlíðargötu 8 97-5239
Stöðvarfj. Guðmunda Ingibergsd. Túngötu 3 97-5894
Höfn Hornaf. Ingibjörg Ragnarsdóttir Smáratúni 97-8255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Erna Valdimarsdóttir Heiöarbrún 32 99-4194
Þorlákshöfn Heiödís Haröardóttir Oddabraut 3 99-3889
Eyrarbakki Ragnheiður Markúsdóttir Hvammi 99-3402
Stokkseyri Torfhildur Stefánsdóttir Eyjasel 2 99-3293
Vík í Mýrdal Sæmundur Björnsson Ránarbraut 9 99-7122
Vestmannaey.Ásdís Gísladóttir Bústaðabraut 7 98-2419
Frá menntamálaráðuneytinu:
MmÍ Lausar stöður
Við Menntaskólann í Hamrahlíð eru lausar kennarastöður í eðlis-
fræði, efnafræði, stærðfræði og tölvufræði. Til greina kemur ráðn-
ing í heila stöðu eða hlutastarf, einnig stundakennsla.
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vantar kennara í dönsku,
stærðfræði og eðlisfræði, félagsfræði og sögu.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
Áskorun til greiðenda
fasteignagjalda
íMosfellshreppi
Fasteignagjöld í Mosfellshreppi 1986 eru nú öll
gjaldfallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert skil
innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar
mega búast við að óskað verði nauðungarupp-
boðs á eignum þeirra sbr. lög nr. 49/1951 um
sölu lögveða án undangengis lögtaks.
Mosfellshreppur 5. júní 1986.
Innheimta Mosfellshrepps.
Frá Grundaskóla Akranesi
Kennarar
Okkur vantar enn nokkra kennara til starfa í
haust:
2 sérkennara, líffræði- og raungreinakennara
auk almennra kennara.
Nýr, vel búinn skóli. Sveigjanlegir kennsluhættir.
Umsóknarfrestur er til 17. júní. Komið og ræðið
við okkur eða hringið til undirritaðra:
Guðbjartur Hannesson skólastjóri, vinnusími
93-2811; heimasími 93-2723.
Ólína Jónsdóttir yfirkennari, vinnusími 93-
2811; heimasími 93-1408.
✓
Attrœður í dag
Sumir halda að fátt sé hollara
uppvaxandi kynslóðum en ganga
á skóla. Þeir sem eytt hafa drýgst-
um hluta ævinnar innan veggja
slíkra stofnana hafa nú sínar efa-
semdir um það.
Aðrir eru þe'irrar skoðunar, að
lestur góðra bóka sé helst líklegur
til þroskavænlegra áhrifa á æsku-
lýðinn. Og sjálfsagt er eitthvað til
í því.
En það sem skiptir mestu máli
fyrir unglinga í þessu sambandi er
að kynnast og umgangast fólk
sem hefur áhuga fyrir að hafa
uppbyggileg áhrif á þá sem yngri
eru. Ég verð forsjóninni ævinlega
þakklátur fyrir þau kynni sem
tókust með mér og Jóni Kristni
þegar ég var unglingur. Fá menn
hefur mér þótt meira varið í að
umgangast og vinna með. Og
eftir því sem árin hafa liðið, hefur
mér orðið betur og betur ljóst,
hversu hollur félagsskapur Jóns
var.
Það væri þó ekki sannleikanum
samkvæmt ef ég héldi því fram,
að aðdáun mín á Jóni hafi alla tíð
verið jafn gagnrýnislaus. Ég
minnist þess t. d. að þegar við vor-
um að bronsa bjóð á Eyrarplan-
inu í gamla daga, að ég hafði orð á
því heima hjá mér, að það væri
undarlegur andskoti með hann
Jón: hann gæti alltaf verið að
setja út á bjóðin hjá mér og sæi á
þeim ótal helgidaga, þrátt fyrir að
hann væri síkvartandi undan
hversu sjónin væri orðin döpur.
Auðvitað var hann ekkert sík-
vartandi, það samræmdist ekki
hugsunarhættinum. Eigi að síður
lét unglingurinn það fara í
taugarnar á sér, hversu
óþreytandi öldungurinn var við
að benda honum á hvað betur
mátti fara. Síðar lærðist mér, að
fleira þarf í dans en fína skó. Það
er ekki nóg að hafa glyrnurnar í
lagi ef maður hefur hvorki vit né
vilja til að beina athyglinni að því
sem við á hverju sinni. Og Jón
hafði svo sannarlega áhuga fyrir
að beina athygli þeirra unglinga
sem með honum unnu að því sem
máli skiptir. Þannig innprentaði
hann þeim, að vandvirkni,
heiðarleiki og trúmennska
gagnvart þeim verkefnum sem
manni var treyst fyrir, væru
dyggðir sem vert væri að temja
sér frekar fyrr en seinna. Allt sem
var þess virði að vera gert, var
þess virði að vera gert vel. Ef mig
misminnir ekki, þótti Jóni ég á
köflum heldur ógæfulegur nem-
andi í þessum fræðum. En
eitthvert smáræði held ég þó að
hafi setið eftir.
Mér er það líka minnistætt, að
samvistir og samtöl við Jón urðu
til þess að styrkja mig í þeirri
minni pólitísku bamatrú, að rétt-
lætisins og skynseminar væri helst
að leita einhversstaðar vinstra
megin við miðju.
Það sem ég þó kannski met
mest, af því sem Jón hefur miðlað
mér, eru bókmenntimar sem
hann hefur kennt mér. Bók-
menntir er ef til vill ekki heppi-
legt orð í þessu sambandi, því
kveðskapur þessi er gjarnan
þeirrar tegundar sem til skamms
tíma a.m.k. hefur ekki verið til-
tækur á prentuðum bókum og
ekki orð meira um það. Sjálfur er
Jón einkar hagmæltur og lætur
oft fjúka í kviðlingum um það
sem spaugilegt gerist í kringum
hann. Mér er í fersku minni
hvernig við strákarnir remb-
dumst eins og rjúpan við staurinn
við að böggla saman einhverri
vísuómynd til að punda á Jón.
Arangurinn varð alltaf verri en
enginn.
En það er ekki bara vegna per-
sónulegra kynna af Jóni, að mér
finnst ástæða til að hylla hann nú
á 80. afmælisdeginum. Lífsstarf
hans og framlag til þjóðarbúsins
hefur verið með þeim hætti, að
vel væri þess virði fyrir einhvem
ritglaðan mann að færa í letur.
Framan af ævi stundaði Jón sjó
um árabil og fór þá ekki varhluta
af þeim hættum sem sjómönnum
einatt eru búnar umfram aðra
menn. í marsmánuði árið 1934
slasaðist hann illa á fæti um borð í
vélbátnum Birki. Fótarmeinið
hefur alla tíð síðan plagað Jón en
aldrei aftrað honum frá að ganga
til erfiðisverka til jafns við hvern
annan. Eftir að sjómennskuferl-
inum lauk var Jón lengi bóndi á
Hólmum í Reyðarfirði en síðan
1967 hafa þau hjónin búið á Eski-
firði, en það er einmitt þar sem
þau hófu búskap fyrir 57 árum.
Eftir að til Eskifjarðar kom
stundaði Jón fiskvinnu og það var
ekki fyrr en 1983 að hann lét af
störfum hjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar.
Það má ljóst vera, að starfs-
vettvangur Jóns hefur ævinlega
verið þar sem grundvöllur var
lagður að lífi og hagsæld þjóðarð-
innar. Það eru ekki karlar eins og
Jón sem eiga sök á þrálátri meg-
urð þjóðarbúsins. Engu að síður
er ekki siður á íslandi að meta
mikils störf erfiðismanna til sjáv-
ar og sveita. Ekki enn. En ég vil
ekki láta undir höfuð leggjast að
þakka fyrir mig; fyrir holl ráð o&
heilnæmar vísur, um leið og vio
Helga óskum afmælisbarninu
hjartanlega til hamingju með
daginn.
Hilmar Hilmarsson
Ingólfur Þorkelsson skólameistari með nýbökuðum stúdentum.
Menntaskólinn í Kópavogi
Ferðaþjónusta á dagskránni
57 stúdentar brautskráðir í vor
Menntaskólanum í Kópavogi
var slitið við hátíðlega athöfn í
Kópavogskirkju föstudaginn 23.
maí. 57 stúdentar brautskráðust
32 stúlkur og 25 piltar. Skóla-
meistari, Ingólfur A. Þorkelsson,
flutti skólaslitaræðuna, afhenti
stúdentum skírteini og verðlaun
fyrir ágætan árangur í einstökum
greinum. Skólakórinn söng undir
stjórn Kjartans Sigurjónssonar.
Einn úr hópi nýstúdenta, Sesselja
Jónsdóttir, flutti ávarp og árnaði
skólanum allra heilla. Ingvar
Hreinn Gíslason og Sif Einars-
dóttir, bæði úr máladeild, hlutu
flest verðlaun á stúdentsprófi.
Fyrstu stúdentarnir af við-
skiptabraut útskrifuðust.
Fyrstu 10 ára stúdentarnir fjöl-
menntu í Kópavogskirkju við
þetta tækifæri og einn þeirra,
Hafsteinn Karlsson, kennari,
flutti ávarp og færði skólanum
málverk að gjöf frá 10 ára stú-
dentum.
Skólameistari skýrði frá því, að
ferðaþjónustubraut yrði sett á
stofn við skólann á hausti kom-
anda. Þá sagði hann frá því, að 18
ára nemandi í skólanum, Davíð
Aðalsteinsson, hefði unnið eðlis-
fræðikeppni framhaldsskólanna
s.l. vetur þótt yngstur væri kepp-
enda. í meginhluta ræðu sinnar
ræddi skólameistari um óper-
sónuleg uppeldisöfl (einkum
sjónvarp og myndbönd) og áhrif
þeirra á skólastarfið og mótun
upprennandi kynslóðar.
Ér skólameistari hafði ávarpað
stúdenta lauk athöfninni með því
að allir sungu „ísland ögrum
skorið“ eftir Eggert Ólafsson og
Sigvalda Kaldalóns.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júní 1986