Þjóðviljinn - 11.06.1986, Blaðsíða 2
_________________FRÉTTIR_______________
Sjálfstœðisflokkurinn
Ákall til Davíðs
Hugmyndin um Davíð kitlar. Morgunblaðið „óþægilega hreinskilið“
Mikill titringur er nú í Sjálf-
stæðisflokknum eftir að
Morgunblaðið opinberaði þá
skoðun ýmissa áhrifamanna að
nauðsynlegt sé orðið að stokka
upp í þingliði flokksins í Reykja-
vík og kalla Davíð Oddsson til for-
ystu. Þá hefur þrálát umfjöllun
blaðsins um ósigur flokksins í
kjördæmi Þorsteins Pálssonar
vakið óánægju meðal stuðnings-
manna hans.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans telja þeir sem kenndir
hafa verið við svonefnt flokkseig-
endafélag að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi ekki efni á öðru en að
nýta sér forystuhæfileika Davíðs í
komandi kosningum og þeirri
Tónlist
Úthlutað
hjá Ármanni
Mist Þorkelsdóttir
fékk hinn árlega styrk
í gær var úthlutað úr tónlistar-
sjóði Ármanns Reynissonar.
Viðurkenningu úr sjóðnum hlaut
að þessu sinni Mist Þorkelsdóttir
tónskáld að upphæð 150 þúsund
krónur.
Ætlun Mistar er að semja óp-
eru fyrir börn og hyggst hún nota
verðlaunaféð til þess að vinna að
þeirri hugmynd. f frétt frá sjóðs-
stjórn segir að með þessari viður-
kenningu vilji úthlutunarnefndin
leggja áherslu á gildi frumsköp-
unar í tónmenningu okkar Is-
lendinga.
Hjallasel
Fimm seldar
Sala á parhúsum
borgarinnar
heldur að glœðast -
Reykjavíkurborg hefur tekist
að selja fimm íbúðir af átján í
parhúsunum við Hjallasel, sem
eru ætlaðar öldruðum.
Nokkrir mánuðir eru liðnir síð-
an íbúðirnar voru fyrst auglýstar
til sölu, en lengi framan af tókst
ekki að selja eina einustu þeirra.
íbúðirnar eru tæplega 70 fermetr-
ar að stærð, en söluverð þeirra er
á fjórðu miljón króna.
ríkisstjórn sem flokkurinn kann
að verða aðila að á næsta kjörtím-
abili. Innanbúðarmaður sem
gjörþekkir til mála kvaðst þó
halda að tíminn til stefnu væri full
naumur.
Þeir aðilar sem Þjóðviljinn
ræddi við í gær virtust síður en svo
andsnúnir hugmyndinni um Da-
Langþráð tónlistarhús liggur nú
fyrir á teikniborðinu. Dóm-
nefnd sú sem skipuð var til þess
að velja úr 75 tillögum sem bárust
í viðamikilli samkeppni um tón-
listarhús, hefur lokið störfum og
kynnt niðurstöður sínar.
íslenskur arkitekt bar sigur úr
býtum. Dómnefnd var sammála
um að tillaga Guðmundar Jóns-
sonar væri best til byggingar fall-
in, hún samhæfði best kröfur um
hagnýt atriði eins og hljómburð
og starfsaðstöðu og hins vegar
listræna hönnun. Eða með orð-
um dómnefndar: „Skýr heildar-
mynd og traustvekjandi út-
færsla“.
víð Oddsson, a.m.k. hvað varðar
forystu á þinglista flokksins í
Reykjavík. Hins vegar voru við-
mælendur Þjóðviljans svolítið
undrandi á Morgunblaðinu að
setja þetta opinberlega inn í um-
ræðuna.
Greinilegt var á þeim aðilum
sem rætt var við að ofanígjafir
Það er tekið skýrt fram að tón-
Iistarhúsið er hugsað sem bæði
alhliða og alþjóðlegt, þ.e. að það
sé fyrir allar tegundir tónlistar og
að það standist ýtrustu kröfur
flytjenda sem áheyrenda. Klass-
ísk músik, djass og popp, - öll á
þessi músik að eignast sitt heimili
í hinu nýja tónlistarhúsi að óper-
um ógleymdum.
Óperusöngvarar hafa ein-
hverjir sem kunnugt er gagnrýnt
fyrirhugað hús. Að sögn Ár-
manns Arnar Ármannssonar for-
manns dómnefndar, er sú
gagnrýni sumpart á misskilningi
byggð, t.d. að ekki verði hljóm-
sveitargryfja í húsinu, vegna þess
Morgunblaðsins í garð Þorsteins
Pálssonar mælast illa fyrir jafnvel
hjá þeim sem telja formanninn
áróðurslega mjög veikan fyrir
flokkinn. Ónafngreindur þing-
maður orðaði það svo að menn
væru hreinilega gáttaðir á Morg-
unblaðinu.
-g.sv.
að hér væri verið að vinna að al-
hliða tónlistarhúsi en ekki húsi
sem væri sérhannað fyrir óperu-
sýningar. Að sjálfsögðu væri
hægt að setja upp óperusýningar í
húsinu, en þó ekki margar í einu
eins og hægt er í sérhönnuðum
óperuhúsum.
Bjartsýnustu menn áætla að
húsinu verði lokið árið 1990, en
áætlaður kostnaður er um 400
miljónir. Nú er verið að koma á
fót svokölluðum hönnunarhópi,
sem vinna mun með arkitektin-
um Guðmundi Jónssyni að loka-
tillögum um hönnun og gerð
hússins.
-pv
Verðlaunatillaga Guðmundar Jónssonar að hinu nýja tónlistarhúsi.
Menning
Vagga tónlistar
á teikniboröinu
Tillaga Guðmundar Jónssonar best fallin til byggingar
Námsgagnastofnun
Gagnrýni svaraðmeð sýningu
Námsgagnastofnun sýnir námsgögn sem stofnunin hefur látið gera
fyrirgrunnskólanema. Sýningin svar við gagnrýni á stofnunina.
Sýning á námsgögnum, sem
Námsgagnastofnun gefur út
fyrir grunnskólanemendur og á
kennslutækjum sem Skólavöru-
búðin hefur á boðstólum, opnar í
dag að Laugavegi 166. Ástæðan
fyrir þessari sýningu er óvægin
gagnrýni á námsefni, sem stofn-
unin býður upp á, í Morgunblað-
inu nýverið.
A blaðamannafundi, sem
Námsgagnastofnun efndi til í
gær, kom fram að þessi gagnrýni
hefði verið algjörlega órökstudd
og því hefði verið ákveðið að
setja upp þessa sýningu svo fólk
gæti sjálft gengið úr skugga um
hvort gagnrýnin eigi við rök að
styðjast.
Stofnunin býr við mjög þröng-
an fjárhag, t.d. gerði fjárhagsá-
ætlun stofnunarinnar ráð fyrir að
hún þyrfti 130 milljónir á yfir-
standandi ári, en fékk á fjár-
lögum 85,5 milljónir. Þvf verða
ýmis verkefni að sitja á hakanum.
Þrátt fyrir þennan þrönga fjár-
hag þykir það námsefni og þau
námsgögn sem stofnunin hefur
látið gera, vera til fyrirmyndar og
jafnt erlendir sem innlendir sér-
fræðingar sem hafa skoðað náms-
gögnin eru á einu máli um, að það
sæti furðu að svo fámenn þjóð
sem íslendingar eru, geti boðið
upp á námsgögn af þessum gæð-
um.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13 - 18 og lýkur henni 16. júní.
—Sáf
Já, hugmyndin um Davíð
kitlar!
Aflabrögð
Þorskaflinn
kominn yfir
180 þús.
tonn
Mikil aukning á
botnfiskafla, humar
og hörpudiski
Þorskafli bátaflotans í maí var
réttum tveimur þúsund tonnum
minni en á sama tíma í fyrra en
það sem af er árinu er heildar-
þorskaflinn hjá bátaflotanum
orðinn ríflega 13 þús. tonnum
meiri en í fyrra.
Hjá togurunum var þorsk-
aflinn í maí hins vegar ríflega
2.200 tonnum meiri en í maí í
fyrra og heildarþorskafli togar-
aflotans orðinn hvorki meira né
minna en nær 16 þús. tonnum
meiri það sem af er árinu en 5
fyrstu mánuði ársins í fyrra.
Heildarþorskaflinn er orðinn rí-
flega 182 þús. tonn en var rúm-
lega 153 þús. tonn á sama tíma í
fyrra. Á sama tíma hefur annar
botnfiskafli aukist um nær 9 þús.
tonn.
Þá hefur rækjuaflinn aukist um
2.300 tonn og er kominn í tæp 10
þús. tonn og einnig hefur hörpu-
diskaflinn aukist um tæp þúsund
tonn.
-Ig-
Bolungarvík
íhaldið ræðir
við krata
Kristinn H.
Gunnarsson:
Aldrei nein heilindi
hjá krötum í viðrœðun-
um
við okkur
Sjálfstæðisflokkurinn í Bol-
ungarvík ákvað í gær að ganga til
viðræðna við Alþýðuflokksmenn
um myndun nýs meirihluta á
staðnum. Áður hafði slitnað upp
úr viðræðum Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og óháðra. í fram-
haldi af því óskaði Alþýðubanda-
lagið eftir viðræðum við Sjálf-
stæðisflokkinn.
- Það virðist allt stefna hér í
meirihluta íhalds og krata. Við
gerðum okkur vonir um að hægt
yrði af mynda meirihluta með
krötum og óháðum en kratar
sýndu því aldrei neinn áhuga,
sagði Kristinn H. Gunnarsson
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins. Hann benti á að yrði að sam-
starfi íhalds og krata þá hefði sá
meirihluti á bak við sig atkvæði
319 Bolvíkinga en hinir flokkam-
ir atkvæði 324 Bolvíkinga.
-»g-