Þjóðviljinn - 11.06.1986, Blaðsíða 15
Akureyri
Seikomark?
Glœsileg hjólhestaspyrna Nóa ísjö
marka leik
spyrnu, beint uppí þaknet Eyjam-
arksins.
ÍBV tók forystuna eftir aðeins 72
sek. þegar Ómar Jóhannsson var einn
á markteig eftir fyrirgjöf Bergs Ág-
ústssonar og skoraði af öryggi, 0-1.
Árni Stefánsson skallaði í stöng
Eyjamarksins á 30. mín. en síðan
kom Hlynur Birgisson inná sem vara-
maður og skoraði með sinni annarri
snertingu, 1-1, eftir góðan undirbún-
ing Halldórs. Jónas Róbertsson kom
síðan Þór yfir úr vítaspyrnu eftir að
Karl Sveinsson hafði brotið á Sigur-
óla Kristjánssyni. Fyrri hálfleikur var
nánast einstefna að marki fBV.
Seinni hálfleikur hófst með marki
Nóa en Ingi Sigurðsson svaraði fljót-
lega fyrir IBV, lék á Árna og skoraði
með lausu skoti. Þór komst í 4-2 þeg-
ar Halldór sendi á Jónas sem tók bolt-
ann niður og skoraði með föstu og
öruggu skoti. Síðan var Jóhann Ge-
orgsson felldur í vítateig Þórs og
skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni, 4-3.
Eyjamenn pressuðu nokkuð í tokin
en fengu ekki færi á að jafna.
—K&H/Akureyri
Eftir markaleysið í 1. deild undan-
farið var leikur Þórs og ÍBV í gær-
kvöldi þægileg tilbreyting. Þórsarar
skoruðu 4 mörk, höfðu áður gert 3 í 4
leikjum, og ÍBV skoraði 3, hafði áður
gert eitt í 4 leikjum.
Og eitt þessara marka, það sem
Nói Björnsson skoraði fyrir Þór í
byrjun seinni hálfleiks, hlýtur að
koma til greina þegar dómarar velja
Seiko-markið. Kristján Kristjánsson
tók hornspyrnu, Halldór Áskelsson
nikkaði boltanum inní markteiginn
þar sem Nói kastaði sér á bakið og
skoraði með glæsilegri hjólhesta-
Mjólkurbikarinn
Naumt hjá
Víkingum
Víkingar lentu í vandræðum með
Stjörnuna í 2. umferð Mjólkurbikars-
ins í knattspyrnu í gærkvöldi. Birkir
Sveinsson kom Garðbæingum yfir,
Jón Bjarni Guðmundsson jafnaði og
Atli Einarsson skoraði sigurmark
Víkinga á lokamínútunni, 2-1.
ÍK vann Hauka 3-0 í Hafnarfirði
með mörkum Þóris Gíslasonar, Jó-
hanns Pálmasonar og Gunnars Þ.
Guðmundssonar.
Fylkir vann HV 9-0 í Árbænum.
Óskar Theodórsson 4, Orri Hlöðv-
ersson 2, Gunnar Orrason 2 og Haf-
steinn Eggertsson gerðu mörkin.
Víkverji vann Skotfélag Reykja-
víkur 2-0 með mörkum Tómasar
Sölvasonar og Viðars Hilmarssonar.
f 4. deild vann Hrafnkell Hugin 1-0
á Seyðisfirði og Höfðstrendingur og
Svarfdælir skildu jafnir á Hofsósi, 1-
1. — VS
ö
Wj
PCÖOO
Leikirnir á HM í gær, úrslit,
stöður, markaskorarar og
liðsuppstillingar:
A-riðill:
Argentina-Bulgaría 2-0 (1-0)
Olimpico, Mexikóborg, 10. júní
Dómari: Ulloa (Costa Rica)
Áhorfendur 63,000
1-0 Valdano (3.), 2-0 Burruchaga (77.)
Argei tlna: Pumpido, Cuciuffo, Brown,
Ruggeri, Garre, Giusti, Batista (Enrique
46.), Burruchaga, Borghi (Olarticoechea
46.), Maradona, Valdano.
Bulgaria: Mikhailov, Sirakov (Zdravkov
70.), A.Markov, Dimitrov, Yeliaskov, Sa-
dkov, Mladenov Velitchkov 52.), Yordan-
ov, P.Markov, Petrov, Getov.
ftalía-S.Kórea 3-2 (1-0)
Þór-ÍBV 4-3 (2-1) * * * .
Þórsvöllur (gras), 10. júní
Dómari: Sveinn Sveinsson *
Áhorfendur 774
0-1 Ómar Jóhannsson (2.), 1-1 Hlynur
Birgisson (36.), 2-1 Jónas Róbertsson
(41. víti), 3:1 Nói Björnsson (47.), 3-2
Ingi Sigurösson (51.), 4-2 Jónas Ró-
bertsson (67.), 4-3 Jóhann Georgsson
(76. víti)
Stjörnur Þórs:
Baldvin Guömundsson * «
Halldór Áskelsson * »
Jónas Róbertsson *
Hlynur Birgisson *
Nói Björnsson *
Siguróli Kristjánsson *
Stjörnur ÍBV:
Bergur Ágústsson *
Hörour Pálsson *
Arnljótur Davíösson í dauðafæri við mark Breiðabliks en skýtur framhjá. Mynd: Ari.
Kópavogur
Fjörugt og Framsigur
Stílhreint mark Guðmundar Torfasonar réð úrslitum
Rokið og rigningin léku stórt hlu-
tverk í Kópavoginum í gærkvöldi þeg-
ar Framarar sigruðu Breiðablik með
stílhreinu marki Guðmundar Torfa-
sonar í lok fyrri hálfleiks. Grimmi-
legar hryðjur regns riðu öðru hvoru
yfír leikmenn og áhorfendur og gerðu
mönnum sannarlega ekki létt að leika
knattspyrnu.
Samt sem áður var leikurinn fjöru-
gur og góðu spili brá fyrir hjá báðum
A rgentína-Búlgaría
Tvö skallamöifc
og efsta sæti
Tvö glæsimörk frá Jorge Valdano
og Jorge Burruchaga tryggðu Argent-
ínumönnum sigur í A-riðli
heimsmeistarakeppninnar í gær. Þeir
mæta nú liði númer 3 í C, D, eða E
riðli í 16-liða úrslitunum á mánudag-
inn og mestar líkur eru á að það verði
Uruguay eða Skotland.
Mestu pressunni var létt af Argent-
ínumönnum eftir aðeins 3 mínútur
þegar Valdano skoraði með hörku-
skalla eftir góða fyrirgjöf frá Claudio
Borghi. Þetta dró tennurnar úr Búlg-
örum og fátt markvert gerðist næsta
klukkutímann, nema hvað Diego
Maradona lék listir sínar af og til. Og
það var hann sem lagði upp seinna
markið, hann braust upp vinstri
vænginn og sendi knöttinn á Burruc-
haga sem kom á fleygiferð og skallaði
af krafti í mark Búlgara, gersamlega
óverjandi fyrir Mikhailov markvörð.
Búlgarir eiga samt þokkalega
möguleika á að komast áfram. Það
gera þeir ef Uruguay og Skotland
gera jafntefli, ogeinsef Alsír og N.ír-
land tapa fyrir Spáni og Brasilíu.
Mótherjar Búlgara gætu þá vel orðið
hinir sterku Sovétmenn.
—VS/Reuter
liðum. Blikarnir byrjuðu betur og
áttu vel útfærðar skyndisóknir sem
gáfu þó ekki mark. Þó munaði litlu á
12. mín. þegar Þórður Marelsson
bjargaði á marklínu Fram. Tíu mín.
seinna björguðu Blikarnir á línu,
skalla frá Guðmundi Steinssyni.
Síðari hluta fyrri hálfleiks náðu
Framarar tökum á leiknum og Örn
Blikamarkmaður þurfti oft að taka á
honum stóra sínum til að aftra marki.
Honum tókst það ekki á 40. mín. Pét-
ur Ormslev lék upp kantinn og gaf
glæsisendingu utanfótar þar sem
Guðmundur Torfason var fyrir og af-
greiddi knöttinn snyrtilega í netið.
Fjórum mín. síðar komst Arnljótur
Davíðsson einn innfyrir vörn Blik-
anna í sannkallað dauðafæri en brást
bogalistin og sendi knöttinn framhjá.
Síðari hálfleikur byrjaði ekki glæsi-
lega, regnið og rokið ágerðist og á
tímabili var nánast vitavonlaust að
leika knattspyrnu af viti. En Blikarnir
lögðu allt kapp í sóknarleikinn, en
sem fyrr tókst þeim ekki að koma
knettinum í netið, og sköpuðu sér fá
færi. Framarar voru nálægt því að
skora á 75. mín. þegar Pétur Ormslev
átti gott skot sem Örn varði en missti,
og knötturinn hrökk í stöngina. Það
má segja að iánið hafi leikið við
Framarar 3 mín. seinna þegar Jón
Þórir komst einn innfyrir Framvörn-
ina en skaut rétt yfir markið. Það sem
lifði leiks reyndu Blikar að sækja en
Framarar beittu skyndisóknum og
tvívegis varði Örn vel frá Gauta Lax-
dal.
—pv
Breiðablik-Fram 0-1 (0-1) * * *
Kópavogsvöllur, 10. júní
Dómari Þóroddur Hjaltalín * *
0-1 Guðmundur Torfason (40.)
Stjörnur Breiðabliks:
Örn Bjarnason *
Gunnar Gylfason *
Magnús Magnússon »
Jón Þórir Jónsson *
Stjörnur Fram:
Guðmundur Torfason » *
Pétur Ormslev *
Guðmundur Steinsson *
Viðar Þorkelsson *
Friðrik Friðriksson *
Mexíkó
Italía-S. Kórea
Úrslit ráðast í
B og F í kvöld
Stórleikur
framundan!
Frakkland mœtir Italíu
Puebla, 10. júnf
Dómari: Socha (Bandaríkjunum)
Áhorfendur 16,000
1-0 Altobelli (18.), 1-1 SH.Choi (62.) 2-1
Altobelli (72.), 3-1 Altobelli (82.), 3-2 Huh
(89.)
Ítalía: Galli, Cabrini, Collovati, Scirea,
Vierchowod, Bagni (Baresi 67.), De Nap-
oli, Di Gennaro, Conti, Altobelli, Galderisi
(Vialli 88.).
S.Kórea: Oh, KH.Park, KR.Cho, Jung,
YJ.Cho, SH.Choi, CS.Park, Cha, JS.Kim
(Chung 46.), Huh, Byun (JB.Kim (70.).
Lokastaðan í A-riðli:
Argentína...............3 2 1 0 6-2 5
ftalía..................3 1 2 0 5-4 4
Búlgaria................3 0 2 1 2-4 2
S.Kórea.................3 0 1 2 4-7 1
Leikir í dag
B-riðill: Mexikó-írak
B-riðill: Belgía-Paragyay
F-riðill: Pólland-England
F-riðill: Marokkó-Portúgal
Markahæstir:
Sandro Altobelli, Italiu.............5
Preben Elkjær, Danmörku..............4
Jorge Valdano, Argentlnu.............3
Heimsmeistarar gegn Evrópu-
meisturum — ekki er það amalegur
leikur sem bíður okkar næsta þriðju-
dagskvöld. Italir unnu Suður-Kóreu
3-2 í gær en verða samt að sætta sig
við annað sætið í A-riðli
heimsmeistarakeppninnar í Mexíkó
og að leika við Frakka í 16-liða úrslit-
unum.
Alessandro Altobelli er nýja stór-
stjarnan í ítalskri knattspyrnu — tek-
inn við af Paolo Rossi. Hann skoraði
öll þrjú mörk ítala í gær, hefur því
gert 5 mörk í keppninn — eða öll
mörkin sem heimsmeistararnir hafa
skorað!
Og Altobelli hefði gert 4, hann
skaut í stöng úr vítaspyrnu 10 mín.
fyrir hlé. Soon-Ho Choi jafnaði
óvænt fyrir Kóreubúana með glæsi-
marki af 25 m færi en Altobelli svar-
aði fljótlega tvisvar, 3-1. Jung-Moo
Huh skoraði síðan annað mark
Suður-Kóreu rétt fyrir leikslok og sá
til þess að Asíubúarnir geta snúið til
síns heima með sæmd — þeir skoruðu
í öllum leikjunum, gegn Argentínu,
Búlgaríu og Ítalíu og fengu eitt stig.
—VS/Reuter
I kvöld ráðast úrslit í tveimur
riðlum heimsmeistarakeppninn-
ar í Mexíkó, í B og F-riðli. í B-
riðlinum leikur Mexíkó við írak
og Belgía við Paraguay og í F-
riðlinum leikur Pólland við Eng-
land og Marokkó við Portúgal.
I B-riðli er staðan þessi:
Mexikó..................2 1 10 3-2 3
Paraguay................2 1 10 2-13
Belgía..................2 10 13-32
Irak....................2 0 0 2 1-3 0
Mexíkönum dugir jafntefli við
írak til að tryggja sig í 16-liða úr-
slitin og Paraguay sömuleiðis
jafntefli við Belgíu. Hinsvegar
ættu 3 stig að duga Mexíkó og
Paraguay hvernig sem allt fer til
að komast áfram og sömuleiðis
ætti Belgíu að nægja jafntefli til
að fá uppbótarsæti. írak á meira
að segja möguleika með sigri á
Mexíkó en með 3 fastamenn í
leikbanni eru sigurlíkur liðsins
gegn gestgjöfunum litlar.
I F-riðli, markalausa riðlinum,
beinast augu flestra að Englend-
ingum. Þeir þurfa helst að sigra
Pólverja en þó gæti jafntefli dug-
að til að ná 3. sæti og uppbótar-
sæti í 16-liða úrslitum, ef Mar-
okkó tapar fyrir Portúgal. Staðan
í riðlinum er þessi:
Pólland................2 110 1-03
Portúgal...............2 10 11-12
Marokkó................2 0 2 0 0-0 2
England................2 0 110-11
Ef England sigrar Pólland og
Marokkó gerir jafntefli við Por-
túgal verða öll liðin jöfn með 3
stig og þá ræður markatala úrs-
litum. Spennan er gífurleg þarna
því allar þjóðirnar geta unnið
riðilinn og allar hafnað í neðsta
sæti. Miklar líkur eru á að lið
númer 3 úr þessum riðli komist
áfram.
Miðvikudagur 11. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15
—VS