Þjóðviljinn - 11.06.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fiskirœkt
Álarækt úr sögunni?
Frumvarp landbúnaðarráðherra dagaði uppi hjáþingflokki
Sjálfstœðisflokksins. Óvístað það verðifluttánœsta þingi
Svo virðist sem hugmyndir
manna um að koma hér upp
álarækt hafl verið drepnar í fæð-
ingu. Landbúnaðarráðherra
hafði gefið áhugahópi ádrátt um
Humarveiðin
Góður afli
Eyjabátar langt
komnir með sinn
kvóta. Hornafjarðar-
bátar afla vel og allt
að 80% afaflanum í
l.flokk
Humarvertíðin sem hófst í maí
hefur hvarvetna gengið vel. Sem
dæmi má nefna að Vestmanna-
eyjabátar eru flestir langt komnir
með sinn kvóta og hefur humar-
inn sem þeir hafa veitt verið stór
og góður.
Hornfirðingar hafa einnig
aflað ágætlega að sögn Sverris
Aðalsteinssonar hjá frystihúsinu
á Höfn. Sverrir sagði að bátarnir
hefðu verið með þetta frá 1300
kg. og uppí 1800 kg. í róðri sem
þætti ágætt.
Humarinn sem veiðist er góður
og var meðaltalið við í mati þann
6. júní 57% í 1. flokk og 39% í 2.
flokk en humar er flokkaður eftir
stærð. Sverrir sagði að matið
hefði hjá einstaka bátum farið
uppí 80% í 1. flokk.
Kvóti Hornafjarðarbáta nem-
ur 200 tonnum sem skiptist milli
16 báta, sem veiðarnar stunda.
Kvótanum er skipt milli bátanna
eftir sömu lögmálum og þorsk-
kvótanum hjá fiskiskipunum. Sá
bátur sem hefur hæstan kvóta af
humri hefur 20 tonn.
-S.dór
Skagaströnd
Vantar
vinnuafl
og húsnæði
Það er óhætt að segja að Skaga-
strönd sé mikið uppgangspláss,
en okkur vantar vinnuafl og hús-
næði. Við þurfum ekki að kvarta
yfir atvinnuástandinu, sagði Sig-
fús Jónsson fráfarandi sveitar-
stjóri á Skagaströnd í samtali við
Þjóðviljann í gær.
„Það er mikið um að fólk hafi
áhuga á að flytjast hingað, en get-
ur það ekki vegna þess að það er
nær ekkert húsnæði að fá hérna.
Ef það bjóðast góðar íbúðir til
sölu fara þær á svipuðu verði og í
Reykjavík,“ sagði Sigfús.
Miklar framkvæmdir eru í
gangi á Skagaströnd um þessar
mundir. Það er verið að dýpka
höfnina, ný sundlaug verður
tekin í notkun innan skamms og
framkvæmdir við viðbyggingu
leikskóla eru að hefjast.
En það er ekki nóg með að
Skagstrendinga vanti húsnæði og
vinnuafl, þeir eru einnig að verða
sveitarstjóralausir, því Alþýðu-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur á
Akureyri hafa ákveðið að ráða
Sigfús sem bæjarstjóra þar.
—gg
innflutning á glerál en til þess
þurfti lagabreytingu. Frumvarp
ráðherrans þar um var hinsvegar
svæft hjá þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins, vegna þess að ákveðnir
þingmenn lögðust alfarið gegn
því.
„Hjá okkur stendur þetta mál
eiginlega engan veginn. Það er
ekkert sem við getum gert eins og
mál standa í dag. Ef frumvarpið
Itilefni af 80 ára afmæli verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar
hefur verið ákveðið að veita styrk
úr styrktarsjóð félagsins að upp-
hæð 2.5 miljónum til uppbygg-
ingar hjúkrunar- og vistheimilis-
ins Skjóls sem áætlað er að rísi í
Laugarásnum.
Að sögn Halldórs Björnssonar
varaformanns Dagsbrúnar er það
hefð að veita styrki úr sjóðnum á
tímamótum í sögu félagsins.
Styrkirnir hafa oftast runnið til
Verið er að koma fyrir frysti-
búnaði í togaranum Júlíusi
Havsteen frá Húsavík og er áætl-
að að kostnaður við breytinguna
muni verða um 15 miljónir
króna.
Kristján Ásgeirsson útgerðar-
stjóri Höfða á Húsavík sagði í
samtali við blaðið í gær að Júlíus
kæmist að öllum líkindum til
veiða á ný eftir tíu daga. Hann
hefur stundaA rækjuveiðar nú
verður endurflutt og kemst í gegn
á næsta þingi má vera að við för-
um af stað aftur, en við erum al-
veg við það að hætta við allar
hugmyndir um álarækt," sagði
Árni Gunnarsson ritstjóri en
hann var einn í hópi manna sem
sóttu um leyfi til álaræktar.
Menn á Sauðárkróki hafa verið
uppi með hugmyndir að fiskirækt
margra aðila en að þessu sinni,
sagði Halldór, var ákveðið að vel
skoðuðu máli að hann færi allur
til uppbyggingarSkjóls. „Það rík-
ir algjört neyðarástand í
vistmálum aldraðra og þess
vegna finnst okkur brýnt að
styrkja framkvæmdir þar að lút-
andi. Við viljum líka með þessu
hvetja önnur félög sem eiga
styrktarsjóði til þess að leggja
eitthvað af mörkum til málefnis-
::is,“ sagði Halldór.
Vistheimilið, sem áætlað er að
síðast liðin tvö ár og verður rækj-
an nú fryst um borð, annars vegar
til frekari vinnslu í landi, og hins
vegar beint á markað, aðallega í
Japan.
Þetta fyrirkomulag gerir út-
gerðina mun hagkvæmari að sögn
Kristjáns og kemur vinnslunni í
landi einnig til góða. Um 30
manns vinna við rækjuvinnslu á
Húsavík.
fyrir vatanfiska sunnan úr álfu,
en til þess þarf samskonar leyfi og
álaræktarmenn þurftu og því úti-
lokað að fást um það að
óbreyttum lögum.
Það eina nýja í fiskiræktarmál-
unum er risarækjueldi en til þess
þarf ekki leyfi þar sem um sjávar-
dýr er að ræða.
verði fokhelt á þessu ári, mun
rúma um 90 manns og 30 manns í
dagvistarrýmum. Aðrir aðilar
sem standa að uppbyggingu
heimilisins er Alþýðusamband
íslands, BSRB, Þjóðkirkjan,
Sjómannadagsráð, Reykjavíícur-
borg og Stéttarsamband bænda.
- K.Ól.
Guðni Franzzon og Ulrika Da-
vidsson
Listahátíð í dag
Nútími í
Norræna
Einir tónleikar eru á dagskrá
Listahátíðar í dag. í kvöld klukk-
an 20.30 leika Guðni Franzson
klarinettleikari og Ulrika Davids-
son píanóleikari í Norræna hús-
inu 7 verk eftir tónskáld af yngstu
kynslóð íslenskra tónsmiða.
Þessi ungu tónskáld eru Hákon
Leifsson, Kjartan Ólafsson,
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson,
Haukur Tómasson, Lárus Hall-
dór Grímsson, Hilmar Þórðarson
og Guðni Franzson.
Guðni hefur einleikarapróf
héðan og auk þess próf úr tón-
fræðideild Tónlistarskólans í
Reykjavík, en undanfarin tvö ár
hefur hann stundað nám í Am-
sterdam. Það hefur einnig Ulrika
Davidsson gert, en hún hefur
numið píanóleik víða um heim og
lokið prófum með frábærum vitn-
isburði.
Sjá nánar viðtal við þau á
bls. 7
Tónleikar
Karlakór
frá Noregi
Fyrstu tónleikarnir í
Dómkirkjunni annað
kvöld
Karlakórinn „Asker Manns-
kor“ frá Noregi er nú í tónleikferð
á Islandi og mun halda þrenna
tónleika.
Á fimmtudagskvöld 12. júní kl.
20.30 syngur kórinn í Dómkri-
junni í Reykjavík og mánudags-
kvöld 16. júní kl. 20.30 í Hafnarf-
jarðarkirkju, en laugardaginn
14. júní kl. 16.00 verða verald-
legir tónleikar í Norræana hús-
inu. Stjórnandi kórsins er Folke
Bengtsson.
—gg
Miðvikudagur 11. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Trimmdagar
Sund er eitt besta
heilsubótartrimmið
Þjóðviljinn minnir á Trimm-
dagana á Jónsmessu, 20. til 22.
júní. Föstudagurinn 20. júní er
dagur leikfiminnar, 21. júní er
dagur sundsins og 22. júní er dag-
ur gönguferða og skokks.
Laugardaginn 21. júní verða
sundstaðir opnir um allt land.
Sundfélög og íþróttafélög hvert á
sínum stað skipuleggja sundið.
Engin lágmarks vegalengd, engin
þátttökugjöld. Sólstöðugangan
frá Þingvöllum fer fram sama
dag.
Sund er eitt besta heilsubótar-
trimmið og sundstaðimir eru fyrir
mig og þig. Þjálfunin örvar blóð-
rásina, styrkir vöðvana og eykur
þér bjartsýni. Taktu þér tak strax
í dag og taktu síðan þátt í sundinu
21. júní.
-S.dór
Halldór Björnsson: Við viljum með styrkveitingunni hvetja önnur félög til þess að leggja eitthvað af mörkum til
málefnisins. Ljósm: Ari
Dagsbrún
2.5 miljón til Skjóls
Halldór Björnsson: Það ríkir algjört neyðarástand í vistunarmálum
aldraðra
Húsavík
Frystibúnaður í Júlíus
Kostnaðurinn um 15 miljónir króna. Rœkjan
fryst um borð