Þjóðviljinn - 11.06.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.06.1986, Blaðsíða 5
FRETTIR Bjarni Einarsson minjavöröur á Akureyri og Eyjafjaröarskattholiö, tæpra 300 ára gamal. Á innfelldu myndinni sést hluti tréristunnar sem er efst á skattholinu. Þar sjást heldri menn í líkfylgd. Akureyri Hvað er í kistunni? Minjasafninu á Akureyri berst merkileg gjöf Minjasafninu á Akureyri hefur borist merkilegur gripur. Það er skatthol sem talið er vera íslenskt að uppruna, smiðað og málað í kringum árið 1700. Að sögn Bjarna Einarssonar minjavarðar er mjög líklegt að skatthol þetta hafi verið staðsett í Eyjafirði frá því það var smíðað. Gefandinn er Kristbjörg Sigurð- ardóttir frá Torfufelli í Eyjafirði, sem nú dvelst á vistheimilinu Hlíð á Akureyri. Hafði skatthol- ið verið í eigu forfólks hennar, en nú taldi Kristbjörg að tími væri til kominn að setja það á safn. Ahugamenn um þessa hluti, bæði norðan og sunnan heiða hafa vit- að af gripnum í langan tíma, en eigandi ekki viljað láta lausan. Rósaflúr sem málað hefur ver- ið á framhliðar hefur varðveist óvenju vel. Ofan við framhurð er trérista; fjórskipt lágmynd sem sýnir jarðarför. Þessa mynd taldi Bjarni vera einstaka í sinni röð. Fyrsta myndin sýnir prest með Biblíu í hönd, en á eftir honum ganga tveir karlmenn, líkast til aðstoðarmenn hans. Þá kemur kistan, burðarmenn og ekkjan grátandi með þrjú börn sér við hlið. Á þriðju myndinni má sjá höfðingja ásamt karlmönnum sem greinilega eru virðingar- menn í sinni sveit, og loks koma konurnar með krókfald á höfði í skósíðum hempum, svörtum. Karlmenn eru klæddir mittissíð- um jökkum í lokbuxum, síðhærð- ir og skegglausir eins og þá var lenska. Klæðnaður er allur sam- kvæmt Evróputísku í kringum 1700, en þá lögðu Spánverjar lín- una í þeim efnum. Ekki er ósennilegt að þessi lág- rnynd sýni jarðarför einhvers heldri manns í kringum árið 1700, eða skömmu áður en skattholið var smíðað. En hver var smiður- inn og hver var eigandi þessa „Eyjafjarðarskatthols", og hver er í kistunni? Bjarni minjavörður telur þetta einhvern merkasta grip safnsins - ef ekki þann merkasta. Ástæð- una fyrir því hve tré og málverk hefur enst vel telur Bjarni vera þá, að skattholið hefur alla tíð verið meðal manna. Um síðustu aldamót stóð til að setja það upp á háaloft, sagði hann, en sem betur fer var horfið frá því. Hefði það verið gert, væri skattholið ekki hér í dag. Þess má að lokum geta að Minjasafnið á Akureyri er opið alla daga frá kl. 13.30 til 17.00 GA Tónskólinn Vetrarstarfi lokið Vetrarstarn Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar lauk með skólaslitum í sal Hagaskólans föstudaginn 23. maí s.I. í skólan- um í vetur stunduðu nám 585 ne- mendur. 102 stigpróf voru þreytt í aðal- greinum auk prófa í kjarna- fögum. Tveir nemendur útskrif- uðust frá skólanum, þau Jórunn Þórey Magnúsdóttir og Daníel Þorsteinsson sem bæði stunduðu nám í píanóleik. Kennaradeild var stofnuð við skólann s.l. haust og luku tveir nemendur fyrri hluta kennaraprófs, þau Hall- dóra Aradóttir á píanó og Sæ- mundur Rúnar Þórisson á gítar. Kennarar héldu 119 tónfundi yfir veturinn og tónleikar voru 19, þar af tvennir utan Reykjavíkur. Við skólaslitin var skólanum færð gjöf. Nótur og kennslugögn Söngfélags Verkalýðssamtak- anna síðar Alþýðukórsins. Það var Gestur Pálsson sem afhenti gjöfina fyrir hönd nokkurra gam- alla söngfélaga. Skólastjóri þakk- aði gjöfina fyrir hönd skólans og Sigursveinn D. Kristinsson flutti stutt ávarp af þessu tilefni. Skóla- stjóri Tónskólans er Sigursveinn Magnússon og yfirkennari er Guðrún Guðmundsdóttir. Akureyri Upplýsingar til ferðamanna Nýlega var haldinn aðalfundur Félags íslenskra rithöfunda, en í því eru menn sem ekki telja sig eiga samleið með Rithöfunda- sambandinu og vilja hafa annað stéttarfélag út af fyrir sig. Valda því mestu deilur um stjórn Launasjóðs rithöfunda. í frétt um aðalfundinn segir m.a.: í skýrslu stjórnar var gerð grein fyrir þeim málum sem nú eru efst á baugi. Samningar eru hafnir við bókaútgefendur og viðræður hafa farið fram við Ríkisútvarpið. Flugleiðir Samstarf við bílaleigur Bílaleiga Flugleiða hefur gert samkomulag við bflaleigur víðs vegar um landið um samvinnu hvað varðar útleigu á bílum og annarri þjónustu við viðskipta- vini fyrirtækjanna. Ennfremur munu bílaleigurnar samræma reglur og leiguskilmála, sem og miðla upplýsingum og vinna að markaðsmálum á erlendum vett- vangi. Þeir sem taka bíl á leigu hjá Bílaleigu Flugleiða í Reykjavík geta skilið bílinn eftir hjá hvaða bílaleigu sem er aðili að samkomulaginu án aukagjalds og öfugt. Bílaleiga Flugleiða hefur þegar undirritað samkomulag við eftir- taldar bílaleigur: Bílaleigan Örn, Akureyri, Bílaleiga Sauðár- króks, Bílaleiga Húsavíkur, Bfla- leiga Þráins Jónssonar, Egils- stöðum, Bílaleiga Hornafjarðar, Höfn, Bílaleiga Siglufjarðar, Bflaleigan Hvolsvelli og Bfla- leigan Nes, Borgarnesi. Við- ræður standa yfir við bílaleigur á fsafirði og Vestmannaeyjum. í sumar hefur Bílaleiga Flug- leiða yfir að ráða samtals 145 bíl- um af ýmsum gerðum, flestum nýjum eða nýlegum. Allmiklar umræður urðu um Launasjóð rithöfunda, en eins og kunnugt er eru tekjur sjóðsins hluti af söluskatti af bókum sem ríkissjóður innheimtir. Fram kom að þessi tekjustofn ríkis- sjóðs nam um 140 miljónum króna, en framlag til Launasjóðs er aðeins um sjö miljónir króna. Á fundinum kom fram almenn óánægja félagsmanna með stjórnun Launasjóðs rithöfunda. Einnig komu fram tillögur til úr- bóta. Samþykktar voru laga- breytingar sem kveða skýrar en Verðlagsstofnun hefur gert samanburð á verði fjöl- margra vörutegunda í 11 stór- mörkuðum á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. í síðasta tölublaði Verðkönn- unarstofnunarinnar er birt úr- vinnsla á könnuninni og birt verð á 114 mismunandi tegundum af nýlendu-, hreinlætis-, pappírs- og snyrtivörum. f öllum tilvikum var um að ræða sömu merki að sykri undanskildum. Helstu niðurstöður eru þær að verslanirnar Fjarðarkaup og áður á um stöðu Félags íslenskra rithöfunda sem stéttarfélags, sem gætir hagsmuna félagsmanna gagnvart útgefendum og fjöl- miðlum og annist kjarasamninga vegna hugverka félagsmanna. Sveinn Sæmundsson var endurkjörinn formaður Félags ís- lenskra rithöfunda næsta ár. Aðr- ir í stjórn eru: Ármann Kr. Ein- arsson, Baldur Óskarsson, Gunnar Dal, Indriði Indriðason, Indriði G. Þorsteinsson, Ingimar Erlendur Sigurðsson. Vörumarkaðurinn voru oftast með lægst verð vöru eða samtals í 26 tilvikum en Kostakaup lenti í öðru sæti með lægsta verð í 22 tilvikum. Fjarðarkaup var aldrei með hæsta verð. Hólagarður reyndist hins vegar oftast með hæsta verðið eða í 52 tilvikum. Ef lagt er saman verð á vörun- um 114 í hverri verslun kemur í ljós að heildarmunurinn er mest- ur 10%. Að mati Verðlagsstofn- unar er heildarmunurinn á verði í þeim verslunum sem það var lægst svo lítill að hann er varla marktækur. Ferðamálafélag Akureyrar mun í sumar reka upplýsingamið- stöð fyrir ferðamenn, fimmta sumarið í röð. Undanfarin tvö sumur var upplýsingamiðstöðin til húsa í Turninum við göngu- götuna, en hann hefur nú verið tekinn til annarra nota. í sumar verður upplýsingamið- stöðin til húsa í Ánni, húsi Lions- klúbbsins Hængs, sem stendur við Skipagötu gegnt Pósthúsinu. Upplýsingamiðstöðin verður opin frá miðjum júní til ágúst- loka. í fyrravor var gaf Ferðamálafé- lagið út glæsilegan, mynd- skreyttan Akureyrarbækling með korti yfir Akureyri. Þessi bæklingur kemur út í byrjun júní, nú með nýju og skýrara korti. Ferðamálafélagið hvetur alla sem bjóða fram einhverskonar þjónustu, að senda upplýsingar til félagsins, eða hafa samband við starfsmenn upplýsingamið- stöðvarinnar í síma 96-25128 eftir miðjan júní. Ráðherrafundur EFTA Aukin samskipti við EB Aráðherrafundi EFTA- Fríverslunarsamtaka Evrópu sem haldinn var fyrir helgi áttu ráðherrarnir viðræður við Willy Clercq meðlim stjórnarnefndar Evrópubandalagsins EB sem er ábyrgur fyrir utanríkistengslum og viðskiptastefnu þess um aukin samskipti EFTA og Evrópu- bandalagsins. A fundinum var ákveðið að hefja viðræður sem allra fyrst milli sambandanna tveggja en markmiðið með þeim er að vinna að því að samræma og einfalda Iög og reglur sem gilda um við- skipti þeirra þjóða senr eiga aðild að samtökunum. -K.ÓI. Verðkönnun Ódýrast í Fjarðarkaupum og Vörumarkaði Verslunin Hólagarður reyndist oftast með hœsta verðið Viðvikudagur 11. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.