Þjóðviljinn - 11.06.1986, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.06.1986, Síða 6
Kópavogur - Digranesprestakall Aðalsafnaðarfundurveröurhaldinn í Safnað- arheimilinu við Bjarnhólastíg fimmtudaginn 12. þ.m. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefndin. Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra á Skgaströnd er laust til umsóknar. Umsóknir berist skrifstofu Höfðahrepps fyrir 25. júní n.k. Nánari upplýsingar veita sveitar- stjóri í síma 95-4707 og 95-4648 og oddviti í síma 95-4719 og 95-4651. Kennarar Kennara vantar að Kirkjubæjarskóla á Síðu Kirkjubæjarklaustri. Meðal kennslugreina: íslenska og danska eða kennsla yngri barna. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 99-7640 og formaður skólanefndar í síma 99-7618. BSF Kópavogs Aðalfundur Aðalfundur Byggingarsamvinnufélags Kópavogs verður haldinn föstudaginn 13. júní 1986 kl. 20.30 í Þinghól Hamraborg 11 í Kópavogi. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Stjórnarkjör. 3. Önnur mál. Stjórnin. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Atbygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir maí mánuð er 15. júní. Ber þá að skila skattinum til inn- heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts- skýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Viðgerða- og ráðgjafarþjónusta leysiröll vandamál húseigenda. Sér- hæföir á sviði þéttinga og fl. Almenn verktaka. Greiðslukjör. Fljót og góð þjónusta. Sími 50439 eftir kl. 7 á kvöldin. /•JSrl . ká' Utboð Óskað er eftir tilboðum í tölvubúnað, samtals 50-100 vélar fyrir Fjárlaga- og Hagsýslunefnd til nota í Ríkis- stofnunum. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri og kosta 1000.- kr. Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 16. júlí n.k. kl. 11.00 f.h. að viðstöddum bjóðendum. INNKAUPASTQFNUN RIKISINS Borgartuni 7 FRETTIR Hvanneyri Mörg mál á stéttar- sambandsþinginu r Iyflrgripsmikilli ræðu sem for- maður stjórnar Stéttarsam- bands bænda, Ingi Tryggvason, flutti á aðalfundi stéttarsam- bandsins, sem settur var á Hvanneyri í fyrradag, gat hann þess m.a. að tvö meginverkefni lægju fyrir fundinum. Annar- svegar skipting fullvirðisréttar til framleiðslu búvara og hinsvegar atvinnumál dreifbýlisins. Samdráttur í sölu kindakjöts á innlendum markaði taldi Ingi Tryggvason vera eitt helsta vandamál landbúnaðarins. Peir sem önnuðust innanlandssölu kvörtuðu undan því að kjötið væri of dýrt, miðað við aðrar mat- vörur og of feitt fyrir smekk manna nú. Að öðru leyti væru menn sammála um einstök gæði íslenska dilkakjötsins. í lok ræðu sinnar lýsti Ingi Tryggvason yfir að hann myndi ekki gefa kost á sér til for- mennsku í stjórn stéttarsam- bandsins að yfirstandandi kjör- tímabili loknu. Að lokinni ræðu formanns fluttu á fundinum ávörp og árn- aðaróskir Jón Helgason landbún- aðarráðherra, Ásgeir Bjarnason formaður stjórnar Búnaðarfélags íslands og Lísa Thomsen á Búr- felli fyrir hönd Kvenfélagasamb- ands íslands. Eftir hádegi hófust hressilegar umræður, sem síðar verður vikið að. Skipað var í nefndir og mál- um vísað til þeirra. Fulltrúar á fundinum eru nú fleiri en nokkru sinni fyrr eða 64 og þó að aðstaða til fundarhaldsins sé að flestu leyti ágæt hér á Hvanneyri og að- búnaður allur með ágætum, þá er’ sá annmarki á að vegna skorts á gistirými mæta nú aðeins fáar konur á fundinni gagnstætt því sem verið hefur undanfarin ár og þykir blaðamanni Þjóðviljans að því sjónarsviptir. mhg/S.dór Einn af Laugarvatnshópum Alþýðubandalagsins fyrir framan Héraðsskólann á Laugarvatni, sem er miðstöð sumardval- arinnar. Sumarbúðir Alþýðubandalagsins Erlu með á Laugarvatn í sumar? Á Laugarvatni er allt við hend- ina, íþróttasvæði, bátaleiga, hestaleiga, silungsveiði og fleira en miðstöð sumarbúðanna er í Héraðsskólanum. Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið til orlofs- dvalar á Laugarvatni í júlí. Mikil þátttaka hefur verið í þessari sumardvöl á Laugarvatni, enda er þar gott að dvelja í glöðum hópi og margt við að vera. Rúm er fyrir um 80 manns. Að þessu sinni hefur Alþýðu- bandalagið til umráða vikuna mánudaginn 21. júlí til sunnu- dags 27. júlí. Sumardvölin á Laugarvatni hefur reynst góð afslöppun fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna, í áhyggjulausu og öruggu umhverfi, þar sem fólk hvílir sig á öllum húsverkum, en leggur alla áherslu á að skemmta sér saman í sumarfríi og samveru. Dragið ekki að festa ykkur pláss á Laugarvatni í sumar. Komið eða hringið á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfis- götu 105, Rvík. Síminn er 17500. Panta þarf fyrir 1. júlí og greiða staðfestingargj ald. Alþýðubandalagið Búlgaríufélagið Einstakt tækifæri Búlgaríufélagið á Islandi efnir í sumar til ferðar til Búlgaríu, sem kalla má draumaferð, þar sem boðið er upp á skoðunarferð í eina viku um landið en síðan gefst fólki kostur á 2ja eða 3ja vikna dvöl á sólarströnd Búlgar- íu. Lagt verður af stað 2. ágúst með flugi Flugleiða til Kaupmannahafnar og þaðan til Sofia með flugi Balkan Airlines, búlgarska flugfélaginu. Gist verður á fyrsta flokks hót- elum allan tímann. í vikuferðinni er fullt fæði innifalið íverðinu, en á hótelinu á Gullnu ströndinni er áætlað að matarmiðar, sem fylgja, séu fyrir hálfu fæði. Góð heilsuræktarstöð er rekin í hótelinu og geta farþegar not- fært sér þjónustuna þar að vild gegn vægu verði. Frá Gullnu ströndinni er boðið upp á margar skoðunar- og skemmtiferðir, m.a. til Istanbul. Fararstjóri í ferðinni verður Margrét Sigþórsdóttir, sem verið hefur fararstjóri í Búlgaríu í mörg sumur. Nánari upplýsingar um ferðina veita: sími Margrét Sigþórsdóttir 41873 Sveinn Aðalsteinsson 41660 Skapti Ólafsson 41739 Hjördís Þorsteinsdóttir 53510 Hannes Helgason Söluskrifstofa Flugleiða 72573 Lækjarg./Kristín Guðmundsd. 690483 6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Mlðvikudagur 11. júní 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.