Þjóðviljinn - 22.06.1986, Side 13
Roland Gift, hinn atgervismikli söngvari Mannætanna.
boð hjá borgarstjóra í Höfða -
áttu reyndar að vera mættir. Hér
á undan er getið um huggulegheit
viðmælenda, en þó eiga Mad-
nesssöngvararnir toppsætið hvað
það snertir. Bara eins og bræður
manns eða allra bestu vinir:
- Er Madness ennþá ,fkin-
heads“hljómsveit?
- Nei, eiginlega ekki. Þetta var
tíska sem við vorum hrifnir af
sem unglingar. Svo fóru þeir
(skinheads) út í fasisma og of-
beldi sem við höfum aldrei haft
áhuga á.
- Þið fenguð óorð á ykkur þess
vegna, ekki satt?
- Jú, í Bretlandi í nokkurn
tíma.
- Spilið þið mestmegnir gömlu
smellina á hljómleikum?
- Já, fólk vill helst heyra þá, en
við reynum að hafa annað efni í
og með. En þótt maður sé leiður
á að heyra alltaf sömu lögin, þá er
öðruvísi að spila þau fyrir áhorf-
endur sem skemmta sér vel.
Maður nýtur þess.
- Er viðhorf ykkar öðruvísi nú
en fyrst þegar þið byrjuðuð?
- Já auðvitað. Við höfum
áhuga núna á ýmsu öðru en að
vera í hljómsveit. Við höfum t.d.
mikinn áhuga á umhverfisvernd
og höfum spilað á hljómleikum
fyrir Green Peace og líka fyrir
samtök sem berjast fyrir afvopn-
un. Okkur er heldur ekki sama
um verðið á klósettpappír.
- Ykkar músik á rœtur í ska og
annarri œttaðri frá Jaimaica. A
hinn breski popparfur engin tök í
ykkur, t.d. Bítlar og Stones?
- Það er spurning hvort er
breskara, því að ska- og reggae-
músik hefur þróast með svörtum í
Bretlandi alveg síðan á sjötta ára-
tugnum. Þetta er músik sem við
höfum alist upp við engu síður en
þá hvítu. Þetta er tónlist sem fólk
frá löndum og eyjum við Kara-
bíska hafið hefur sjálft þróað
með sér. Hún er öðruvísi en tón-
list svartra í Bandaríkjunum.
- Fylgist þið með músikinni í
dag?
- Já, hafðu eyrun opin fyrir
hljómsveit sem heitir Fishbone.
Hún starfar í London. Annars er
það besta við að vera í hljómsveit
það að fá tækifæri til að ferðast til
landa eins og íslands og hitta
fólk, ekki eins og túristi, heldur
eins og manneskja ... og þar með
er tíminn úti, umboðsmaðurinn
farinn að tvístíga... Davíð að
bíða. Madnesssöngvararnir eru
dálítið forvitnir um þennan unga
borgarstjóra, vita að formaður
Listahátíðar er gamall skólafélagi
hans og að hann er hægra
megin... öfugt við þá. En ég full-
vissa þá unt að enda þótt að
hvorki þeir né ég séum sammála
honum í pólitík þá sé örugglega
ekki leiðinlegt að fara í partý til
hans... enda hlýtur sú að hafa
orðið raunin, því Davíð kom
sjálfur og kynnti Madness inn á
sviðið þarna um þjóðhátíðar-
kvöldið... \
Lloyd Cole.
Útboð
Stjórn Landshafnar Þorlákshöfn, f.h. Lands-
hafnar Þorlákshöfn óskar eftir tilboöum í dæl-
ingu á tuttugu og fimm þúsund rúmmetrum af
sandi úr innsiglingu hafnarinnar í Þorláks-
höfn, á tímabilinu ágúst-september n.k.
Útboösgögn eru afhent í skrifstofu Hafna-
málastofnunar ríkisins Seljavegi 32 Reykja-
vík.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Hafnamála-
stofnunar fyrir klukkan 1500 föstudaginn 11.
júlí 1986.
Tilboðin veröa opnuð klukkan 1500 föstu-
daginn 11. júlí 1986 í húsakynnum Hafna-
málastofnunar Seljavegi 32 Reykjavík.
SPOPTFATNAÐUR
FIS regn- og sportfatnaöurinn frá 66°N „Sextíu og
sex Norður" er lipur og meöfærilegur. Hann er loft-
ræstur, vindþéttur og efnið er 100% vatnsþétt.
Ýmsir litir. Vegur aöeins 200g—300g.
FIS á alla fjölskylduna.
Ánanaustum Sími 28855
<
co
X.
cc
o
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða forstöðumanns viö dagheimili/leikskóla
Hraunborg, Hraunbergi 10.
Stöðu umsjónarfóstru meö dagmæðrum 75%
starf.
Umsóknarfrestur um báöar stöðurnar er til 7. júlí.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur í síma 27277.
Stöðu matráðskonu viö dagheimiliö Laugaborg
v/Leirulæk.
Upplýsingar veitir forstööumaöur heimilisins í
síma 31325.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Sunnudagur 22. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13