Þjóðviljinn - 27.06.1986, Side 15
Mexíkó
Fernandez
í bann
Luiz Fernandez, sá snjalli og
skapmikli miðjumaður, leikur
ekki með í úrslitaleik Frakka við
Belga um bronsverðlaun
heimsmeistarakeppninnar á
morgun. Hann fékk gult spjald
gegn V.Þjóðverjum, sitt annað í
keppninni, og fer því sjálfkrafa í
eins leiks bann.
—VS/Reuter
|3. deild|
Fylkir á
toppinn
Fylkir tók forystuna í SV-riðli
3. deildarinnar í knattspyrnu í
gærkvöldi með því að sigra ÍR 1-0
á Árbæjarvelli. Óskar Theodórs-
son skoraði sigurmarkið í fyrri
hálfleik.
Fylkir er með 10 stig eftir 5
leiki, ÍR einnig 10 eftir 5 leiki en
ÍK er í þriðja sæti með 9 stig eftir
4 leiki og mætir Ármanni á gervi-
grasinu í kvöld. ÍR tapaði þarna
sínum fyrsta leik í deildinni.
—VS
Svavarshlaupið
Hannes
sigraði
Hannes Haraldsson úr
Breiðabliki vann nokkuð óvænt-
an sigur í fyrsta minningarhlaup-
inu um Svavar Markússon sem
var aðalgrein miðsumarsmóts
KR á Valbjarnarvelli í fyrra-
kvöld. Hann hljóp 1500 metrana
á 3:57,50 mín.
Guðmundur Sigurðsson,
Breiðabliki, varð annar á 3:58,40
mín. og Steinn Jóhannsson, KR,
þriðji á 4:07,60 mín. Keppendur
voru átta og var sérstaklega boð-
in þátttaka. —VS
Frjálsar
Meistaramót
Meistaramót íslands, aðal-
hluti, fer fram á Laugardalsvell-
inum í Reykjavík dagana 5.-7.
júlí. Mótið hefst kl. 14 laugardag
og sunnudag og kl. 19 mánudag-
inn 19. júlí.
Pátttökutilkynningar þurfa að
berast skrifstofu Frjálsíþrótta-
sambands íslands eða Jóhanni
Björgvinssyni, Unufelli 33,
Reykjavík, á þar til gerðum
skráningarspjöldum, í síðasta
lagi sunnudaginn 29. júní. Þátt-
tökugjald skal fylgja en það er
200 krónur á grein og 400 krónur
fyrir boðhlaup.
Ísland-Færeyjar
Akranes
íkvöld
ísland og Færeyjar leika síðari
landsleik sinn í kvennaknatt-
spyrnu á Akranesi í kvöld og hefst
hann kl. 19. ísland vann þann fyr-
ri 6-0, í Kópavogi í fyrrakvöld, en
það var fyrsti landsleikur fær-
eysku stúlknanna.
IÞROTTIR
Sigurðarmálið
Sigurður sýknaður!
Harma niðurstöðuna, segir Gunnar dómari. Fyrra keppnisbann hans hinsvegar
staðfest—Sigurður ólöglegur gegn Víði og stigamissir blasir við ÍBK.
Dómstóll KSI felldi í gær úr
gildi þann úrskurð héraðsdóm-
stóls UMSK að Sigurður Björg-
vinsson knattspyrnumaður úr
ÍBK skyldi vera í keppnisbanni til
áramóta. í dómsorðum segir að
dómstóllinn telji að Sigurður sé
búinn að taka út nægilega refs-
ingu fyrir brot sitt þar sem
Kefl víkingar hafi ekki notað hann
í tveimur síðustu leikjum sínum í
1. deild. Hins vegar voru dæmdar
vítur á Sigurð, sem mun þýða
áminning.
En dómstóll KSÍ staðfesti hins-
vegar fyrri úrskurð héraðsdóm-
stólsins um vikubann Sigurðar
fyrir að mæta ekki þegar málið
var tekið fyrir. Á meðan Sigurður
var í því banni lék hann með ÍBK
gegn Víði í 1. deild. Þann leik
unnu Keflvíkingar en nú virðist
ljóst að þeir missa stigin yfir til
Víðismanna. Dómstóll KSÍ hefur
tekið afstöðu sem hann hlýtur að
standa við ef héraðsdómstóll
íþróttabandalags Suðurnesja
kemst að annarri niðurstöðu.
Margir eru óhressir með að
bann Sigurðar skuli vera fellt úr
gildi. Málið er tilkomið vegna
þess að Sigurður sparkaði í
Gunnar Jóhannsson dómara í æf-
ingaleik ÍBK og Breiðabliks þann
1. mars.
„Ég harma þessa niðurstöðu.
Mexíkó
Brassar bestir!
Með bestu útkomufyrir undanúrslit. Belgar áttundu og
' V. Þjóðverjar níundu
Eftir þau óvæntu úrslit sem út-
sláttarkeppnin á heimsmeistara-
mótinu í Mexíkó hefur haft í för
með sér hefur mönnum víða um
heim orðið tíðrætt um réttlæti
þessa fyrirkomulags. Mörg af
bestu liðum heims eru fallin úr
keppni og nægir þar að nefna
Brasilíu, Frakkland og Sovétríkin
á meðan önnur hafa náð langt á
jafnteflum og vítaspyrnukeppni.
Það er fróðlegt að líta á árang-
ur liðanna í Mexíkó í öðru ljósi,
og meta hann eftir hreinum úrs-
litum í leikjum. Þá kemur fram
nokkuð önnur röð og sennilega
raunsærri miðað við styrkleika en
sú sem ræður úrslitum í Mexíkó.
Hér kemur árangur þeirra 16
þjóða sem komust áfram úr for-
keppninni. Leikir, sigrar, jafn-
tefli, töp, markatala og árangur í
prósentum þar sem liðin eru með
4-5 leiki. Undanúrslitum er
sleppt til að fá mynd á stöðuna
eins og hún var áður en þau hóf-
ust og leikir sem útkljáðir voru
með vítaspyrnukeppni eru
reiknaðir sem jafntefli:
1. Brasilía.......5 4 1 0 10-1 90%
2. Argentína......5 4 1 0 9-3 90%
3. Frakkland......5 3 2 0 8-2 80%
4. Mexíkó.........5 3 2 0 6-2 80%
5. Danmörk........4 3 0 1 10-6 75%
6. Spánn..........5 3 1 1 11-4 70%
7. Sovétríkin.....4 2 1 1 12-5 63%
8. Belgía.........5 2 2 1 10-9 60%
9. V.Þýskaland....5 2 2 1 4-4 60%
10. England.......5 2 1 2 7-3 50%
11. Marokkó.......4 1 2 1 3-2 50%
12. Italía.........4 1 2 1 5-6 50%
13. Paraguay.......4 1 2 1 4-6 50%
14. Pólland........4 1 1 2 1-7 38%
15. Búlgaría.......4 0 2 2 2-6 25%
16. Uruguay........4 0 2 2 2-8 25%
Eins og sést á þessu þurftu
Vestur-Þjóðverjar ekki glæsi-
legan árangur til að komast í und-
anúrslit — vera taldir í hópi fjög-
urra bestu liða í heimi. Jafntefli
1-1 við Uruguay, sigur 2-1 á Skot-
landi, tap 0-2 gegn Danmörku,
sigur 1-0 gegn Marokkó og jafn-
tefli 0-0 við Mexíkó. Ef sigurinn á
Frökkum er talinn með er árang-
urinn samt aðeins 67% og liðið í
7. sæti. Á meðan vinnur t.d.
Brasilía örugga sigra en fellur síð-
an út á vítaspyrnukeppni í 8-liða
úrslitum. Það er vel hægt að taka
undir þær raddir sem gagnrýna
fyrirkomulag keppninnar og
verða sífellt háværari — í Mexíkó
verður ekki krýnt besta knatt-
spyrnulið heims heldur það
heppnasta. —VS
Maradona
Ofsóttur af Bríegel?
Þökkum guði að Maradona er argentínskur, segir Bilardo.
Værum í úrslitum efhann væri belgískur, segir Thys
„Ég er hræddur um að Diego
Maradona verði hreinlega ofsótt-
ur í úrslitaleik heimsmeistara-
keppninnar á sunnudaginn.
Vestur-Þjóðverjar munu ekki
leika jafn drengilega og Englend-
ingar og Belgar og ég er viss um
að Hans-Peter Briegel verður
látinn reyna að stöðva hann með
öllum brögðum,“ sagði Cesar
Luis Menotti, fyrrum landsliðs-
þjálfari Argentínu, í gær.
, JJómarar eiga að vernda leik-
menn sem eru snjallir með bolt-
ann. í leiknum við England fékk
sá fyrsti sem braut á Maradona
gult spjald og þannig verður að
bregðast við — annars eru dagar
knattspyrnunnar taldir,“ bætti
Menotti við. „Maradona er sá
eini sem getur orðið verðugur
arftaki mesta knattspyrnusnill-
ings sem uppi hefur verið, Pele.“
Maradona fær að vonum gífur-
legt hrós fyrir leik sinn gegn Belg-
um í fyrrakvöld. „Við megum
Leikbönnin
Dómstóll KSÍ lítur á að það sé allt
að því leyfilegt að ganga í skrokk
á dómurum í æfingaleikjum.
Þetta getur orðið til þess að enn
fleiri dómarar hætti að dæma æf-
ingaleiki. Það er hægt að áfrýja
þessum úrskurði til dómstóls ISÍ
en ég held að það yrði til lítils þar
sem KSI-dómstóIIinn hefur unnið
vel að þessu máli frá sinni hálfu,“
sagði Gunnar í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Rétt eina ferðina hefur fundist
brotalöm í lögum og reglugerð-
um íþróttahreyfingarinnar. Það
er sjálfsagt mál að þeir sem taka
að sér dómgæslu í æfingaleikjum
njóti einhvers réttar ef þeir verða
fyrir grófri áreitni eins og í þessu
tilviki en lagalega séð eru þeir
réttlausir. Helst fyrir þá að kæra
til lögreglu, eins og Kristján Ingi
Helgason, formaður knatt-
spyrnudeildar ÍBK sagði í spjalli
við undirritaðan í gær. Það virðist
vera eina lausnin eins og staðan
er í dag en hér þarf að leita ann-
arra og farsælli leiða. —VS
1. deiíd
Aganefnd náðist
ekki saman í gær
Aganefnd KSÍ náði ekki að
koma saman í gær til að taka fyrir
áfrýjun FH vegna leikbannsdóma
Viðars Halldórssonar fyrirliða og
Harðar Hilmarssonar aðstoðar-
þjálfara FH. Hún mun koma
saman í dag, væntanlega fyrir há-
degi, og ákveða hvort hún taki
áfrýjunina fyrir eða vísi henni
frá.
Banninu á að framfylgja í leik
FH við Breiðablik í 1. deildinni í
kvöld svo það er eins gott að ag-
anefndin hafi hraðar hendur við
afgreiðslu málsins. Eins og sagt
var frá í Þjóðviljanum í gær segir
Viðar að leikbannsdómurinn hafi
komið sér í opna skjöldu, hann
hafi ekki haft hugmynd um að
hann hafi lent á dómaraskýrslu
Kjartans Ólafssonar um leik Þórs
og FH, fyrir móðgandi ummæli í
hans garð.
—VS
þakka guði að Maradona skuli
vera Argentínumaður. Hann hef-
ur allt til að bera til að vera besti
knattspyrnumaður heims, hæfí-
leika, aga og ákveðni,“ sagði Car-
los Bilardo, þjálfari Argentínu.
„Við töpuðum fyrir besta leik-
manni í heimi. Með Maradona
innanborðs er Argentína sigur-
stranglegri aðilinn í úrslita-
leiknum. Við værum komnir í úr-
slit ef Maradona væri belgískur,“
sagði Guy Thys, þjálfari Belga.
Maradona sjálfur vill sem
minnst úr sjálfum sér gera. „Það
eru liðsheildin og liðsandinn sem
hafa komið okkur svona iangt.
Pele var snjall en hann hafði
snjalla samherja og það hef ég ^
líka. Athyglin sem ég fæ gefur
öðrum í liðinu meira rými, og
öfugt. Ég hefði aldrei skorað
seinna markið gegn Englandi ef
Burruchaga hefði ekki fylgt mér
alla leið og dregið líka að sér
varnarmenn. Ég var búinn að
segja að ég hefði meiri trú á
Vestur-Þjóðverjum en Frökkum
og hafði rétt fyrir mér. En við
munum sigra ef það er vilji guðs,“
sagði snillingurinn eftir leikinn í
fyrrakvöld. Hann var sendur. í
lyfjapróf strax að leik loknum og
mætti því seint til að ræða við
blaðamenn.
—VS
Mikið
í húfi
Fyrri hluta 1. deildarinnar á ís-
landsmótinu í knattspyrnu lýkur
um helgina, nánar tiltekið á
mánudagskvöldið. Þá leika Fram
og KR á Laugardalsvellinum en
hinir fjórir leikirnir fara fram í
kvöld og á morgun.
í kvöld eru tveir þýðingarmikl-
ir fallbaráttuleikir, fjögur neðstu
liðin eiga innbyrðis leiki. ÍBV og
Víðir leika í Eyjum og Breiðablik
mætir FH í Kópavogi.
í Keflavík freista heimamenn
þess í kvöld að vinna sinn sjötta
leik í röð. Hann hefst kl. 20 eins
og hinir tveir. Á morgun mætast
síðan stórveldin Valur og ÍA að
Hlíðarenda kl. 14 en þau eru jöfn
með 14 stig.
Janus Guðlaugsson landsliðs-
maður verður orðinn löglegur
með Fram á mánudagskvöldið og
reikna má með að hann leiki með
í þessum mikilvæga leik. ____VS
Föstudagur 27. Júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Verður beljakinn Briegel settur til
höfuðs Maradona á sunnudaginn?