Þjóðviljinn - 11.07.1986, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.07.1986, Síða 6
MINNING Sjúkraliðar - athugið Viö Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eru lausar 3-4 stöður sjúkraliða, nú þegar eða frá 1. sept. nk.. Fljótsdalshérað er fagurt bæði sumar og vetur, flugvöllur er við bæjardyrnar og skíðaland í Fjarð- arheiði skammt undan. Við höfum grunnskóla, menntaskóla og tónlistaskóla á staðnum, svo eitthvað sé nefnt. Er ekki tilvalið að breyta til og prófa að búa úti á landsbyggðinni? Hugsið málið og leitið nánari upplýsinga, það kostar ekkert. Hjúkrunarforstjóri, sími 97-1631. Skrifstofan, sími 97-1386. s ' N Þegar komið er af vegum með bundnu slitlagi tekur tíma að venjast breyttum aðstæðum í { { FÖRUM VARLEGA! % Bændur athugið Frestur til að skipta réttindastigum áunnum til ársloka 1983 með maka eða sambýlismanni, sbr. lög nr. 50/1984, rennur út 1. ágúst 1986 og verður ekki framlengdur frekar. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu sjóðsins og formönnum búnaðarfélaganna um land allt. Lífeyrissjóður bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg, sími 91-18882. DJÓÐVILJINN blaðið sem vitnað erí Viðgerða- og ráðgjafarþjónusta leysir öll vandamál húseigenda. Sér- hæfðir á sviði þéttinga og fl. Almenn verktaka. Greiðslukjör. Fljót og góð þjónusta. Sími 50439 eftir kl. 7 á kvöldin. Guðrún Eiríksdóttir Fœdd 8. júlí 1915 - Dáin 4. júlí 1986 Þau leiðu mistök urðu við vinnslu blaðsins í gær að hálft höfuðið var skorið af Óðni litla frá Gufunesi á Landsbyggðarsíð- unni þar sem myndin birtist. Við birtum því myndina aftur í fullri og réttri stærð en það er Þóra Þrastardóttir, ungfrú Reykjavík 1986 sem heldur svo blíðlega um Óðin litla. Myndina tók Sigurður Sig- mundsson og er henni allra náðs- amlegast stolið úr tímaritinu Eiðfaxaeins ogsagðií mynda- texta í blaðinu í gær. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur f dag kveðjum við Norðfirð- ingar hinstu kveðju Guðrúnu Eiríksdóttur, Þiljuvöllum 21, Neskaupstað. Guðrún var fædd að Apavatni í Grímsnesi 8. júlí 1915, dóttir hjónanna Eiríks Ás- mundssonar frá Apavatni og Guðbjargar Jónsdóttur frá Hólmi í Landeyjum. Lengst af sínum búskap bjuggu þau Eiríkur og Guðbjörg í Stokkseyrarhreppi, fyrst á Grjót- bakka og síðar að Helgastöðum á Stokkseyri. Þau Guðbjörg og Eiríkur eignuðust 6 börn, 4 dætur og 2 syni og var Guðrún elst þeirra systkina. Þau eru nú öll látin nema yngsta systirin Ingi- björg sem búsett er í Kópavogi. Á unglingsárum Guðrúnar var mikil fátækt á íslandi. Heimskreppan svokallaða, sem lagðist með fullum þunga á ís- lenskt athafnalíf um og upp úr 1930, gerði að engu vonir og áætl- anir flestra unglinga úr alþýðu- stétt um langskólanám og fram- tíðarstörf. Svo held ég að hafi einnig verið með Guðrúnu, því hún var gædd sérlega góðum gáf- um. Að vísu ræddi hún ekki mikið um það fremur en annað mótlæti, sem henni mætti á lífs- leiðinni, en sjálfsmenntun henn- ar og viðhorf fannst mér benda til þess að hugur hennar hafi á ung- lingsárum þráð meiri menntun, en hún átti kost á. Guðrún varð sem sagt eins og flestir unglingar þá, úr alþýðu- stétt, að fara að heiman og leita sér atvinnu. Leiðir flestra lágu þá til verstöðva landsins, á vetrar- vertíðir á Suðurlandi og norður eða austur á sumrin. Hingað réði Guðrún sig sumar- ið 1937 til Gísla Bergsveinssonar útgerðarmanns og þá réðust ör- lög hennar, því hér kynntist hún Karli L. Marteinssyni, ættuðum úr Vaðlavík í Helgustaðahreppi. Árið 1940 stofnuðu þau heimili hér í Neskaupstað og bjuggu hér allan sinn búskap. Ég geri ráð fyrir því, að það hafi verið mikil viðbrigði fyrir Guðrúnu og nokk- urt átak að koma hingað úr hinu sunnlenska víðlendi í innilokun fjarðarins með fjöllin svo nálægt, há og hrikaleg. En Guðrún varð mikill Norðfirðingur og dáði meir en flestir aðrir sem ég hefi kynnst fegurð og skjól fjallanna og frið- sæld fjarðarins. Þau Guðrún og Karl, eða Gunna og Dalli, eins og þau voru jafnan kölluð í daglegu tali, voru ákaflega samhent og áttu fallegt og friðsælt heimili. Árið 1958 réðist Guðrún til starfa við Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað og tók þá fljótlega að sér starf forstöðukonu þvotta- hússins og gegndi því starfi til árs- ins 1982, að hún varð að hætta vegna heilsubrests. Þegar Guðrún réðist til starfa við sjúkrahúsið var margt þar í mótun og þá ekki síst þvottaað- staðan, sem var vægast sagt mjög svo frumstæð og léleg. En Guð- rún tók á öllum erfiðleikum með festu og einstökum dugnaði og ósérhlífni. Hún var einstaklega raunsæ manneskja og tók hlutina og verkefnin til úrlausnar án hiks né orðagjálfurs. Hún fylgdist vel með þróun og uppbyggingu sjúkrahússins og hafði á þeim málum brennandi áhuga og það varð henni þung raun er hún varð að hætta þar störfum. Þau Guðrúnog Karl eignuðust tvö börn, Eirík og Elísabetu, sem bæði eru búsett hér á Norðfirði. Árið 1961 gerðust þau Gunna og Dalli ásamt börnum sínum ná- grannar okkar hjóna og barna okkar hér að Þiljuvöllum 21. í alla staði reyndust þau okkur traustir og góðir grannar og okk- ur og börnum okkar góðir vinir. Karl lést árið 1980. Þau hjónin voru ósérhlífnar baráttumanneskjur, sem skipuðu sér í hóp framsækinnar og rót- tækrar baráttusveitar, sem barist hefur fyrir uppbyggingu þessa bæjar og betra mannlífi og sem vissulega hefur skilað árangri. Fyrir það ber þeim heiður og þökk okkar allra. Síðan Karl lést, hefur Guðrún að mestu verið ein í íbúð sinni hér að Þiljuvöllum 21, nema hvað skyldmenni og barnabörn hafa dvalið hjá henni við og við, henni greinilega til mikillar gleði. Öll söknum við Guðrúnar mikið. Hún var hljóðlát og traust manneskja og mikill vinur vina sinna. Ég vil fyrir hönd stjórn- enda og alls starfsfólks Fjórð- ungssjúkrahússins votta henni þökk og virðingu fyrir störf henn- ar í þágu þeirrar stofnunar. Við Guðrún og börn okkar þökkum henni sambýlið og vin- áttuna og vottum börnum henn- ar, tengdafólki og barnabörnum, systur og öðrum vinum og vanda- mönnum innilega samúð. Stefán Þorleifsson. Eiðfaxi Þóra ,09 Oðinn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.