Þjóðviljinn - 11.07.1986, Síða 16

Þjóðviljinn - 11.07.1986, Síða 16
DJOÐVIUINN JMIffWiriftJfftJlR* Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. Föstudagur 11. júlí 1986 153. tölublað 51. örgangur Byggðastofnun Framsókn gegn byggðastefnu Steingrímur J. Sigfússon: Prófraun á hvortmenn vildu breyta til. Niðurstaðanpunkturinn yfir i-ið í andbyggðastefnu Framsóknar Þeir stjórnarliðar og þá eink- um framsóknarmenn sem lýstu því yfir á þingi í vetur þegar þeir felldu tillögur okkar Alþýðu- bandalagsmanna um að flytja Byggðastofnun og Þróunarfé- lagið út á land, að réttara væri að láta stjórnir þessara stofnana taka þá ákvörðun, hafa nú sýnt og sannað að þeim hefur aldrei verið alvara með því tali sínu að rétt sé að flytja stofnanir út á land, sagði Steingrímur J. Sigfússon þing- maður í samtali við Þjóðviljann í gær. Steingrímur sagði það athyglis- vert að meirihluti stjórnar Byggðastofnunar notaði það sem röksemd gegn flutningi norður að starfsfólkið vildi ekki flytja þang- að. Sama stjórn hefði fellt í fyrra- haust tillögu frá Geir Gunn- arssyni um að þetta sama starfs- fólk yrði ekki ráðið nema með þeim fyrirvara að stofnunin yrði hugsanlega flutt norður. - Það starfsfólk sem er að vinna að byggðamálum og telur sér ekki fært að búa úti á landi er alls ekki fært um að vinna að byggðamál- um að mínu mati, sagði Steingrímur. Þessi tillaga í stjórn Byggð- astofnunar var prófsteinn á það hvort menn vilja breyta til. Nið- urstaðan er punkturinn yfir i-ið í andbyggðastefnu þessarar ríkis- stjórnar, þar sem Framsóknar- flokkurinn fer með forystu á öllum sviðum byggðamála," sagði Steingrfmur J. Sigfússon. -•g- Jón Gunnar Ottósson: Ég hef unnið að rannsóknum á þessari lús undanfarin 3-4 ár og gengur vel. Mynd Ari. Trjálús Hætta á öðmm faraldri Jón Gunnar Ottósson: Stofn lúsarinnar stœkkar ört. Mikilvægtað verja barrtrén Eg tel að þessi fundur hafi verið gagnlegur, þarna áttu sér stað hreinskilnar og opnar umræður um málið. Auðvitað geta stór- kaupmenn ekkert hrakið okkar tölur en þeir eru óánægðir með ýmislegt og það var niðurstaða fundarins að við förum saman í þessi mál öll, sagði Georg Ólafs- son verðlagsstjóri, en hann átti fund með stórkaupmönnum í fyrrakvöld um niðurstöður verð- könnunar Verðlagsstofnunar í Rcykjavík og í Glasgow. Georg sagði að stórkaupmenn hefðu bent á að skoða þyrfti verðsamanburð hér á landi og í fleiri löndum en í Skotlandi, og sagðist hann í sjálfu sér vera því hlynntur. Þá sagði verðlagsstjóri að bráðlega hæfist úrvinnsla á ann- arri könnun sem Verðlagsstofn- un hefur gert, svipuð þeirri sem þegar hefur verið kynnt. -S.dór í júlí í fyrra spáði ég haust-plágu , en fólk tók ekki mark á því þá. Ég hef unnið að rannsóknum á sambandi milli stofnstærðar lúsarinnar og tíðarf- ars undanfarin 3-4 ár og gengur vel. Þessar plágur hafa komið með millibilum síðan 1959. Það er mikilvægt að fólk verji trén á réttum tíma og með réttum efn- um. Þá sjaldan hætta er á ferðum til dæmis með Permasect, sem er skaðlaust fólki og fuglum en er mjög virkt á lúsina. En hvað er hœgt að gera við orminn sem herjar á brekkuvíði? „Það er víðifeti sem aðallega veldur skaða á brekkuvíði og hann er að ljúka sér af núna og kemur ekki aftur fyrr en næsta vor. Til þess að koma í veg fyrir skemmdir af hans völdum verður fólk að hafa augun opin í seinni- hluta maímánaðar og ef mikil fjöldi af lirfum er á trjánum þarf að verja þau og þá skiptir miklu að nota rétt efni sem eru skaðlaus öðrum en orminum, og nota efn- in á réttum tíma.“ -vd Isumar hefur orðið vart við mikinn skaða á grenitrjám af völdum lúsar sem herjaði á þau í fyrrahaust og í vetur. Lúsin er útbreidd um allt Suðurland og austur á Seyðisfjörð. Að sögn Jóns Gunnars Ottóssonar, sem starfar að rannsóknum á þessari lús á Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá, hrundi stofn- inn síðast í janúar en fer ört stækkandi og er mikil hætta á ný- Glasgow-könnunin jum faraldri. „Þessi lús er mjög háð tíðarfar- ainu og er á kreiki allt árið. Eftir hlýjan vetur er stofninn yfirleitt stór og þá er mikil hætta á faraldri líkt og núna sagði Jón Gunnar. Hrekja ekki okkar tölur Verðlagsstjórifundarmeðstórkaupmönnum. Georg Ólafsson: Gagnlegurfundur. Von á annarri könnun bráðlega Byggðastofnun Yfirlýsingu forstjórans mótmælt Geir Gunnarsson: Ekki skoðun stofnunarinnar sem sett erfram í þessari tilkynningu. Bókuð mótmæli ístjórn stofnunarinnar „Ég lét bóka mótmæli við þess- ari fréttatilkynningu sem send var út í nafni Byggðastofnunar eftir fundinn. Þetta er engin ályktun stofnunarinnar og við sem greiddum því atkvæði að Byggðastofnun yrði flutt til Akur- eyrar stóðum alls ekki að þessari bókun. Stofnunin hefur ekki þessa skoðun sem fram kemur í frétta- tilkynningunni,“ sagði Geir Gunnarsson alþingismaður og stjórnarmaður í Byggðastofnun í samtali við Þjóðviljann í gær. Umrædd fréttatilkynning sem send var til fjölmiðla í gær í nafni stofnunarinnar var útbúin af for- stjóra hennar Guðmundi Malmquist og tók hann á fundi stjórnarinnar í gær á sig alla ábyrgð á þessari tilkynningu. I áðurnefndri fréttatilkynningu forstjórans segir m.a. að ein helsta ástæðan fyrir því að ófært sé að flytja stofnunina sé sú staðr- eynd að núverandi starfsmenn hennar muni ekki flytjast búferl- um með stofnuninni. I fyrrahaust þegar Geir Gunnarsson lagði fyrst fram tillögu um að gerð yrði könnun á mögulegum flutningi Byggðastofnunar til Akureyrar lagði hann einnig til, að starfsfólk yrði ekki ráðið til stofnunarinnar nema með þeim fyrirvara að hún yrði hugsanlega flutt til Akur- eyrar. Sú tillaga var þá felld af meirihluta stjórnarinnar. -4g. Fellahellir Hjólaskautar streyma inn Fréttir Þjóðviljans bera árang- ur. Nýlega sagði blaðið frá því að félagsmiðstöðin Fellahellir í Breiðholti hefur tekið í notkun glæsilega hjólaskautahöll og var fólk beðið um að selja eða gefa félagsmiðstöðinni hjólaskauta sem enginn notaði. Það stóð ekki á fólki, hjólaskautar hafa streymt til Fellahellis síðan og meira að segja kom maður einn frá Akra- nesi í bæinn með hjólaskautana sína og sagðist vilja styrkja gott málefni. SA.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.