Þjóðviljinn - 16.07.1986, Qupperneq 2
FRETTIR
■TORGIÐi
Miðstjórnin
Málamiðlunarályktun
Niðurstaða miðstjórnarfundarins: án þess að skipa
Guðmundifyrir vildu menn láta álitsitt á gerðum hans í Ijós
Atíu tíma fundi miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins í fyrrinótt
virðist niðurstaðan hafa verið
einskonar málamiðlun ýmissa
sjónarmiða um þau mál sem und-
anfarið hafa sett fréttaljós á Guð-
mund J. Guðmundsson.
í þá umræðu blönduðust fjöl-
mörg önnur mál sem uppi hafa
verið innan flokks og í samfé-
laginu að undanförnu: afstaða til
kjaramála, Heimsmyndarviðtal
við Össur Skarphéðinsson og við-
brögð annarra forystumanna við
því í fjölmiðlum, undirskrifta-
söfnunin um Guðmundarmálið
innan miðstjórnar, ritstjórnar-
mál á Þjóðviljanum og fleira.
í mjög einfölduðum höfu-
ðdráttum má segja að afstaða
manna hafi verið með þrennum
hætti: að málið væri ekki þess eðl-
is að flokksstofnunum kæmi það
við eða ættu að fjalla um það á
formlegan hátt, að gerðir Guð-
mundar samrýmdust ekki þing-
mennsku fyrir flokkinn og það
yrði miðstjórn að segja bæði
Guðmundi og þjóðinni með lítt
dulbúinni kröfu um afsögn, að
flokksstofnanir gætu ekki eða
ættu ekki að segja Guðmundi
fyrir um framhald þingmannsfer-
ils hans með samþykktum, en rétt
væri þó að flokkurinn léti í ljósi
almennt álit sitt. Segja má að síð-
asta skoðunin hafi orðið ofaná,
og þeir sem höfðu hinar hafi unað
við sæmilega.
Þegar líða tók á fundinn lágu
fyrir honum þrjár tillögur. Ein
þeirra var borin fram af Ólafi
Ragnari Grímssyni. Þar var vitn-
að í stefnuskrá flokksins um þá
spillingu í samfélaginu sem gæti
slæft „siðgæðisvitund og siðgæð-
isþrek alþýðu", fjallað um Haf-
skipsmálið og undir lokin „að
gefnu tilefni“ áréttað „að það
samrýmist ekki þeim kröfum sem
gerðar eru til forystumanna Al-
þýðubandalagsins, að þeir þiggi
fjárstyrki til persónulegra þarfa
frá oddvitum auðvaldsins í
landinu.“
Önnur tillagan var frá Kjartani
Ólafssyni og var þar sagt „óhæfa“
að „starfandi stjórmálamenn nýti
sér gjafafé frá ráðherrum" eða
öðrum fjársterkum mönnum „til
persónulegrar eyðslu“ og talið að
viðtaka slíkra gjafa „geti með
engu móti samrýmst þing-
mennsku fyrir Alþýðubandalag-
ið“.
Þriðja tillagan var frá
Steingrími J. Sigfússyni og Önnu
Hildi Hildibrandsdóttur, að
mestu samhljóða lokaályktun
fundarins.
Ásmundur Stefánsson lagði
fram frávísun á allar framkomnar
tillögur, og dró Ólafur Ragnar til-
Iögu sína þá til baka. Frávísunar-
tillaga Ásmundar var síðan felld
með 41 atkvæði gegn 21. Eftir
stóðu tvær tillögur, og var fyrst
borin upp síðasta málsgrein í til-
Guðmundarfundur
Skýri ekki
fra viðræðum
Svavar Gestsson: Sögðum Guðmundifrá
samþykktumfundarins. Tel ályktun
miðstjórnar ekki kröfu um afsögn
Eg tel ekki ástæðu til að skýra
frá viðræðum okkar, sagði
Svavar Gestsson formaður Al-
Guðmundur J.
Almennt
snakk
Guðmundur hyggur á
endurkjör
Þjóðviljinn náði í gær ekki tali
af Guðmundi J. Guðmundssyni,
en í sjónvarpsfréttum í gær sagði
hann að ályktun miðstjórnar
væri mestmegnis „almennt
snakk“ og að hann hefði ekki
fengið svar við spurningum um
hvort átt væri við sig þegar
fimmmenningarnir úr miðstjórn
AB. gengu á fund hans í gær-
morgun.
Guðmundur, sem í fyrradag
tók við fyrri stöðum sínum á þingi
og í verkalýðsforystu, sagði enn-
fremur í sjónvarpi, að hann hefði
verið farinn að hugleiða að sækja
ekki eftir endurkjöri á þing, en
nú væri „þetta þingsæti svo eftir-
sótt að ég held ég endurskoði það
að gefa ekki kost á mér.“
þýðubandalagsins eftir að fimm
félagar úr miðstjórn höfðu gengið
á fund Guðmundar J. Guð-
mundssonar að heimili hans um
ellefuleytið í gærmorgun.
„Okkur var falið að gera
Guðmundi grein fyrir gangi fund-
arins, þeim samþykktum sem þar
voru gerðar, og aðdraganda
þeirra," sagði Svavar við Þjóð-
viljann í gær. „Við gerðum hon-
um grein fyrir þessu og fórum yfir
málin, ræddum þessi mál í eina
klukkustund. Ég tel ekki ástæðu
til að skýra opinberlega frá þeim
umræðum."
Felur ályktun miðstjórnar í sér
kröfu um að Guðmundur J. Guð-
mundsson segi af sér þing-
mennsku?
„Nei, ég túlka hana ekki þann-
ig. Tillögu Kjartans Ólafssonar
sem fól í raun og veru í sér kröfu
um afsögn Guðmundar, var vísað
frá. Jafnframt gerði miðstjórnin
þessa samþykkt og lýsti því að
málinu væri þarmeð lokið af sinni
hálfu.
Ég vil geta þess að á miðstjórn-
arfundinum var jafnframt fjallað
um fjölmörg önnur mál, úrslit
sveitarstjórnarkosninga, stöðuna
í kjaramálum, ýmsar yfirlýsingar
í fjölmiðlum, hugsanlegar
haustkosningar og svo framveg-
is.“
lögu Steingríms og Önnu Hildar,
þarsem hún þótti fela í sér óbeina
frávísun á hina tillöguna sem eftir
stóð, tillögu Kjartans. Málsgrein-
in var samþykkt, 44-20, og tillaga
Kjartans þarmeð úr leik. Svavar
Gestsson bað síðan um að þriðja
málsgrein í tillögu Steingríms og
Önnu Hildar væri borin upp sér-
staklega. Svo var gert og var
málsgreinin samþykkt, 36-27. Að
lokum var tillaga Steingríms og
Önnu Hildar samþykkt, með
nokkrum minniháttar orðalags-
breytingum, með 47 atkvæðum
gegn 13. - m.
- Hvernig væri að rannsókn
færi fram á því hvort rannsókn
sé hafin á málum Alberts?
Tilboðin tekin uppúr kassanum á Hótel Sögu í gær. Mynd: Ari.
Landsvirkjunartilboð
Helmingur af áætlun
Tilboð í nýjan útbúnað til fjar-
stýringar og gæslu á raforku-
kerfi Landsvirkjunar, voru opn-
uð í gær. I útboðinu var gefinn
kostur á þrem mismunandi staðs-
etningum kerflsins. Lægstu til-
boðin í alla þrjá kostina, átti
svissneska fyrirtækið Landis &
Gyr AG og voru öll innan við
helmingur af kostnaðaráætlun.
Um uppsetningu þessa búnað-
ar hefur engin ákvörðun verið
tekin, heldur var útboðið í
könnunarskyni, m.a. til að sjá
hver verðmunur væri milli hinna
ýmsu valkosta. Þeir voru þessir:
a) stjórnkerfi með 2 stjórnstöðv-
um í Reykjavík og á Akureyri, b)
stjórnkerfi með 1 stjómstöð í
Reykjavík og c) stjórnkerfi með 1
stjórnstöð staðsettri í Reykjavík
og fjarvinnuborði á Akureyri.
Þeim er ætlað að hafa yfirsýn yfir
allt landið, en það gerir engin
stjórnstöð í dag.
Sex tilboð bárust, og var hið
lægsta í a-hluta 158,6 milljónir,
frá Landis & Gyr.
var
Kostnaðaráætlun
389.866.440 kr.
Kostnaðaráætlunin var gerð af
ráðgjafa Landsvirkjunar, Swed-
Power, en tekið skal fram að hún
miðaðist við verðið þá er verkinu
er lokið. Ýmiskonar ákvæði í til-
boðunum um greiðslufyrirkomu-
lag munu vafalítið draga úr þess-
um mun og jafnvel breyta röð til-
boða. Enn er því allt á huldu um
það hvert tilboðanna er í raun
hagstæðast og sömuleiðis hvaða
leið er vænlegust. Hhjv.
Alþýðubandalagið
Ályktun miðstjómar
Ályktun miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins frá fundinum í
fyrrinótt:
Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins minnir á að höfuðhlutverk
flokksins er að beita sér gegn
auðhyggjunni og afleiðingum
hennar hvar sem þær birtast, ekki
síst þeirri spillingu sem afhjúpast
nú í Hafskipsmálinu og málum
fleiri stórfyrirtækja.
Hafskipsmálið hefur varpað
skýru ljósi á eðli auðvaldsþjóð-
félagsins og afleiðingar þeirrar
efnahagsstefnu sem er kjarni
frjálshyggjunnar.
Það hefur einnig leitt í ljós þær
hættur sem geta fylgt því að trún-
aðarmenn launafólks og sósíal-
ískrar hreyfingar tengist
hagsmunaböndum við forráða-
menn auðfyrirtækja og áhrifa-
mikla einstaklinga í forystusveit
íhaldsaflanna.
Miðstjórnin telur brýnt að allar
stofnanir og trúnaðarmenn Al-
þýðubandalagsins helgi sig bar-
áttunni gegn þeirri efnahagslegu
og stjórnmálalegu spillingu sem
Hafskipsmálið hefur afhjúpað.
Hvað varðar mál Guðmundar
J. Guðmundssonar ályktar mið-
stjórnin að fela formanni flokks-
ins, formanni þingflokksins og
formanni framkvæmdastjórnar
auk tveggja miðstjórnarmanna
sem fundurinn tilnefnir að ganga
á fund Guðmundar og greina
honum frá þeim umræðum sem
farið hafa fram um mál hans á
fundi miðstjórnar og einnig eftir
atvikum þeim umræðum sem
urðu af sama tilefni á sameigin-
legum fundi framkvæmdastjórn-
ar og þingflokks sl. miðvikudag.
Að öðru leyti sér miðstjórn ekki
ástæðu til að álykta frekar í máli
þessu.
Miðstjórnarfundurinn
Opinskáar umræður
Kristín Á. Ólafsdóttir: Ánægð með að
miðstjórn ályktaði. Hreinskilnar og
opinskáar umrœður af hinu góða
Eg cr ánægð með að þessi mið-
stjórnarfundur var haldinn og
að miðstjórn skuli hafa ályktað
um þetta mál, sagði Kristín Á.
Ólafsdóttir við Þjóðviljann í gær.
Kristín er sem varaformaður Al-
þýðubandalagsins formaður
miðstjórnar flokksins.
„Fólk var almennt opinskátt
um skoðanir sínar og það tel ég af
hinu góða, og miðstjórn hefur nú
lýst skoðun sinni í þessu ákveðna
máli og skipað sendinefnd til að
bera þau boð til Guðmundar J.
Guðmundssonar. “
Hvaða áhrifhefur þessi fundur
haft á stöðu flokksins?
„Ég tel að hreinskilnar um-
ræður styrki alltaf þá sem eiga í
samskiptum sín á milli, innan pól-
itískra flokka eða annarra félags-
legra fyrirbæra. Að því leytinu tel
ég að fundurinn hafi verið hollur
fyrir flokkinn." - m.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. júlí 1986