Þjóðviljinn - 16.07.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 16.07.1986, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR Friðarleikarnir Góður sigur á Pólverjum ísland vann 22-21 í spennandi leik íslenska landsliðið í hand- knattleik sigraði Pólverja 22-21 í þriðja leik sínum á Friðarleikun- um í Moskvu i gær. Nokkuð óvænt þar sem fáir fastamanna úr HM-liðinu eru með í förinni en Pólverjar eru heldur ekki með sitt sterkasta lið. Leikurinn var jafn allan tím- ann, staðan 11-11 í hálfleik. ís- land komst í 22-20 undir lokin, Pólverjar svöruðu 22-21 þegar 17 sekúndur voru eftir en íslenska liðið hélt boltanum út leik- tímann. Sigurður Sveinsson skoraði 8 mörk, Geir Sveinsson 3, Valdim- ar Grímsson 3, Þorbergur Aðal- steinsson 3, Hilmar Sigurgíslason 2, Júlíus Jónasson 2 og Jakob Sig- urðsson 1. Guðmundur Hrafnkelsson átti mjög góðan leik í íslenska markinu. íslenska liðið hvílir í dag en mætir b-liði Sovétmanna á morg- un og Tékkum á föstudaginn. —VS Vopnafjörður KA á toppinn Einherji-KA 0-2 (0-0) ★ ★ ★ KA er á ný í efsta sæti 2. deildar eftir góðan sigur í opnum, fjörugum og skemmtilegum leik á Vopnafírði í gærkvöldi. Mikil barátta einkenndi leikinn, af beggja hálfu, en samt sýndu þau mjög góða kafla. Einherjar töpuðu þarna sínum fyrsta heimaleik en með sigri væru þeir nú í öðru sæti deildarinnar. Leiknum var lýst í gegn- um síma beint í félagsheimili KA á Akureyri og Þormóður Einarsson, fyrrum þjálfari Einherja, fór á kost- um í lýsingunni. Einherjar byrjuðu af geysilegum krafti, Helgi Ásgeirsson og Gísli Da- víðsson áttu skot framhjá í byrjun, en 3. deild Austri vann Val Austri vann Val frá Reyðarfirði 1-0 í nágrannaslagnum í NA-riðli 3. deildarinnar í knattspyrnu á Eskifirði í gærkvöldi. Bjarki Unnarsson skoraði sigurmark heimamanna um miðjan síðari hálfleik. Austri siglir nú lygnan sjó um miðja deild með 11 stig úr 8 leikjum en Vaiur er illa staddur, í næstneðsta sæti með 4 stig en tvö lið falla nú úr riðlinum niður í 4. deild. —VS síðan náði KA undirtökunum og réði gangi leiksins framað hléi. Árni Þór Freysteinsson átti þrumuskot í þver- slá á 8. mínútu, og hann skaut fram- hjá úr dauðafæri á 31. mín. Á milli fóru tvær aukaspyrnur á besta stað í súginn hjá KA. Á 52. mín. skallaði Tryggvi Gunn- arsson á mark Einherja en Hreggvið- ur Ágústsson sýndi ótrúlega mar- kvörslu. Á 60. mín. sneri Tryggvi í eitt af örfáum skiptum á gæslumann sinn, Ólaf Ármannsson, og skoraði fyrra markið, 0-1. Næsta korterið sótti Einherji stans- laust. Torfi Halldórsson, hinn ungi markvörður KA, stóð þá vel fyrir sínu og varði m.a.a frá Kristjáni Davíðs- syni í góðu færi. Stefán Guðmunds- son skaut í varnarmann KA þegar markið var opið rétt á eftir. En á 75. mín. náði KA sókn. Hregg- viður greip háan bolta en KA-maður stjakaði við honum þannig að hann datt útfyrir teig með boltann. Auka- spyrna dæmd á Hreggvið fyrir hendi, mjög umdeilt, og uppúr henni skoraði Hinrik I'órhallsson, 0-2. Ein- herji pressaði stíft það sem eftir var og oft var darraðardans í vítateig KA. Torfi varði mjög vel skalla frá Baldri Kjartanssyni og á 88. mín. sendi Páll Björnsson boltann framhjá Torfa en of laust og varnarmaður náði að bjarga í horn. Maður leiksins: Torfi Halldórsson, KA. —vs/Vopnafirði Frjálsar Fyrsta áttatíu metra kastið? Sigurður og Einar í sviðsljósinu í Laugardalnum í kvöld Einar Vilhjálmsson og Sigurð- ur Einarsson, bestu spjótkastarar íslendinga og tveir af þeim fremstu í heiminum í dag, verða í sviðsljósinu á frjálsíþróttamóti á vegum FRÍ á Laugardalsvellinum íkvöld. Kl. 19.15 hefstspjótkasts- keppnin sem væntanlega verður einvígi þeirra á milli og spurning- in er hvort annar hvor eða báðir ná að kasta nýja spjótinu í fyrsta skipti yfir 80 metra. Sigurður hefur vinninginn enn sem komið er, hefur kastað 79,44 metra en Einar 79,20. Fyrir viku síðan náði Bandaríkjamaðurinn Tom Petranoff besta heimsár- angrinum með nýja spjótinu er hann kastaði því 85,38 metra. Á mótinu keppa nokkrir til viðbótar af bestu frjálsfþrótta- mönnum landsins, svo sem Oddur Sigurðsson og Aðalsteinn Bernharðsson. Pá verða meðal þátttakenda um 20 Svíar frá Smá- löndum og Skáni. Mótið tekur tvo daga, keppt í kvöld og annað kvöld. —VS Akranes ^ Naumur sigur IA Það munaði engu að botnlið Eyjamanna hirti sitt fyrsta stig á útivelli í gærkvöldi. I fjörugum og skemmtilegum leik á Akranesi í gærkvöldi hélst staðan 0-0 allt þar til þrjár mínútur voru til leiksloka að Valgeir Barðason skallaði í mark ÍBV eftir gullfallega send- ingu Hafliða Guðjónssonar. ÍA vann 1-0, loksins sigur eftir þrjá tapleiki í röð. Eyjamenn voru fyrri til að ógna. Ómar Jóhannsson átti fall- egt skot af 25 m færi á 16. mín. sem Eyjamaðurinn í marki ÍA, Birkir Kristinsson, varði vel. Á 25. mín. lék Viðar Elíasson upp allan völl óáreittur en þrumaði rétt yfir Skagamarkið. í A sótti í sig veðrið, Alexander Högnason var aleinn á vítateig á 30. mín. en skaut framhjá. Guð- björn Tryggvason var í góðu færi á 34. mín. en gerði slíkt hið sama. Hann var síðan sloppinn í gegn- um vörn ÍBV á 42. mín. en skaut ekki þegar besta færið var á og síðan varði Þorsteinn Gunnars- son frá honum. Eyjamenn hófu seinni hálfleik ÍA-ÍBV 1-0 (0-0) * * * Akranesvöllur, 15. júlí Dómari Þorvaröur Björnsson * * * 1-0 Valgeir Barðason (87.) Stjörnur |A: Alexander Högnason * * Guðbjörn Tryggvason * * Sigurður B. Jónsson * * Birkir Kristinsson * Hafliði Guðjónsson * Heimir Guðmundsson * Sigurður Lárusson * Stjörnur ÍBV: Jón Bragi Arnarson * * Ingi Sigurðsson * Þórður Hallgrimsson * Þorsteinn Gunnarsson * með látum og þau stóðu í þrjár mínútur. Þá tóku heimamenn við og sóttu nær látlaust það sem eftir var. Alexander var felldur á víta- teig eftir að hafa sloppið í gegn og þar var Þorvarður heldur fljótur að flauta því Valgeir fékk boltann í dauðafæri. Á 60. mín. reyndi Jóhann Georgsson skot á mark í A úr aukaspyrnu utanaf kanti og var glettilega nærri því að hitta í hornið nær. Ólafur Þórðarson var í dauða- færi á 68. mín. með Þorstein markvörð ÍBV víðsfjarri en skaut í blindni og beint í bakið á varnar- manni. Hörður Jóhannesson kom inná á 75. mín. og átti strax skalla sem Þorsteinn varði vel. Árni Sveinsson var í dauðafæri á 78. mín. eftir fallegan undirbún- ing Guðbjörns og Alexanders en skaut framhjá. Guðbjörn og Hörður léku í gegn en á örlagast- undu skildi Guðbjörn boltann eftir og ekkert varð úr. Valgeir Bar&ason tryggði ÍA sigur með sínu sjötta marki í 1. deild í sum- ar. Pólland Mótherjar Fram í mútumáli! GKS Katowice, mótherjar Fram í Evrópukeppni bikarhafa í haust, eru eitt sex liða sem pólska knattspyrnusambandið hefur refsað fyrir „óíþróttamannslega framkomu“. Liðin voru ásökuð um að hafa hagrætt úrslitum leikja í lok síðasta keppnistíma- bils en ekki var þó sannað að um mútur hefði verið að ræða. Refsingin er fólgin í því að fé- lögin sex mega ekki selja leik- menn sína úr landi og þau geta því orðið af umtalsverðum tekj- um. Hin félögin eru Ruch Chorz- ow, Lechia Gdansk, Baltyk Gdynja, Motor Lublin og LKS Lodz. Frétt um þetta barst frá pólsku fréttastofunni Pap en ekki var tekið fram hvort Knatt- spyrnusambandi Evrópu hefði verið tilkynnt sérstaklega um málið. Ruch Chorzow fékk viðbótarrefsingu, fær ekki að ferðast útfyrir landamæri Pól- lands í eitt ár. —VS/Reuter Á 85. mín. óð Ómar Jóhanns- son, sem hafði verið daufur í seinni hálfleiknum, upp völlinn og inní vítateig Skagamanna. Hann þrumaði á markið, en beint í samherja sem var að reyna að forða sér! Sennilega hefur hann forðað marki og þá er eins víst að stigin þrjú hefðu farið til Eyja. í staðinn hóf ÍA sókn sem endaði með marki Valgeirs sem áður var lýst. Síðustu tvær mínúturnar pressaði ÍBV stíft, í fyrsta skipti í leiknum, og þá átti Ingi Sigurðs- son fyrirgjöf sem sveigði innað marki, boltinn stefndi í fjærhorn- ið en Birkir sveif á eftir honum og blakaði honum yfir slána. Skaga- menn vörpuðu öndinni léttar og fögnuðu sigri andartökum síðar. —SV/Akranesi Staðan 1. deild Fram................11 8 2 1 25-6 26 Valur...............11 7 2 2 18-4 23 IBK.................11 7 0 4 14-14 21 lA..................11 5 2 4 17-10 17 KR..................11 3 5 3 13-9 14 Þór.................11 4 2 5 14-20 14 FH..................11 4 1 6 17-20 13 Víðir...............11 3 2 6 7-14 11 Breiðablik..........11 3 2 6 8-20 11 IBV.................11 1 2 8 9-25 5 2. deild KA.................10 6 4 0 28-6 22 Selfoss............10 6 3 1 18-6 21 Víkingur...........10 6 1 3 28-10 19 Völsungur..........10 5 2 3 16-9 17 Einherji...........10 5 2 3 13-15 17 (Bl................10 3 5 2 19-14 14 UMFN...............10 3 2 5 15-21 11 KS.................10 2 3 5 14-16 9 Þróttur R..........10 2 2 6 16-22 8 Skallagrímur.......10 0 0 10 4-52 0 HM/ Körfubolti Kanar áfram Bandaríkjamenn náðu að tryg&ja sér sæti í 4-liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar I körfuknattleik á Spáni með því að sigra Júgóslava 69-60 í gær- kvöldi. Sovétríkin eru eina ósig- raða lið mótsins, vann Brasilíu 110-101 í fjörugum leik í gær- kvöldi. Þessar fjórar þjóðir leika nú til úrslita um heimsmeistarat- itilinn. Sovétmenn fengu 10 stig í A- riðli, Brasilía 9, Spánn 8, fsrael 7, Kúba 6 og Grikkland 5 stig. Bandaríkin og Júgóslavía fengu 9 stig í B-riðli, Italía 8, Kanada 7, Argentína 7 og Kína 5 stig. —VS/Reuter Kvennaknattspyrna Svanhvít með 13 mörk Miðnœturleikur í Mosfellssveit. Þrenna Stellu gegn Þór Svanhvít Sveinsdóttir skoraði 3 mörk þegar Afturelding vann Stokkseyri 8-2 í A-riðli 2. deildar á fimmtudagskvöldið. Hún er nú langmarkahæst í deildinni með 13 mörk í 7 leikjum. Leikurinn hófst ekki fyrr en kl. 22.30 þar sem Stokkseyringar héldu að hann ætti að fara frarn 19. júlí, en tvær dagsetningar eru á honum í mótabók KSÍ. Anna Sigurveig Magnúsdóttir skoraði 2 mörk, Aðalheiður Matthíasdótt- ir 2 og Arna K. Hilmarsdóttir 1 fyrir Aftureldingu en Ingunn Al- exandersdóttir og Þórey Gylfa- dóttir svöruðu fyrir Stokkseyri. Stokkseyri og Skallagrímur gerðu síðan 0-0 jafntefli á sunnu- daginn. Staðan í A-riðli er þessi: Afturelding..........7 5 1 1 37-7 16 KA...................5 5 0 0 22-0 15 Grindavík............5 3 11 9-3 10 Skallagrímur.........5 2 1 2 2-12 7 Stokkseyri...........5 1 2 2 7-15 5 IR...................6 1 0 5 3-25 3 Grundarfjörður.......7 0 1 6 4-22 1 ÍBÍ vann Þór frá Þorlákshöfn 5-0 á ísafirði á laugardaginn. Skíðakonan Stella Hjaltadóttir skoraði 3 marka ÍBÍ, Steina Ól- afsdóttir og Jóna Lind Karlsdótt- ir eitt hvor. Staðan í B-riðli er þessi: Stjarnan..............5 5 0 0 24-3 15 Fram..................5 4 0 1 18-5 12 ÍBÍ...................5 2 1 2 13-5 7 ÞórÞ..................5 2 0 3 13-23 6 Selfoss...............6 1 1 4 9-26 4 FH....................4 0 0 4 3-18 0 Markahæstar í 2. deild: Svanhvít Sveinsdóttir, Aftureldingu....13 Hrund Grétarsdóttir, Stjörnunni..........9 Anna S. Magnúsdóttir, Aftureldingu.......7 Iðunn Jónsdóttir, Stjörnunni.............6 Stella Hjaltadóttir, iBl.................6 —VS Miðvikudagur 16. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.