Þjóðviljinn - 16.07.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Bretland /Sovétríkin
Skuldamál Rússakeisara leyst
Bretland og Sovétríkin hafa gert tímamótasamning um lausn á deilum landanna um skuldir ogskuldabréf rússneska
keisaradœmisins enþað mál hefur lengi komið í vegfyrir eðlileg samskiptiþjóðanna
sem telja Rússa hafa skuldað sér.
Gegn þessu samþykkja Sovét-
menn að leggja niður kröfur sínar
á hendur Bretum sem námu
tveimur milljörðum punda. Pær
snerust um skemmdir sem Bretar
unnu í landinu þegar þeir
blönduðu sér í borgarastyrjöld-
ina sem geisaði eftir rússnesku
byltinguna.
Sovétmenn hafa þar til nú ætíð
neitað að viðurkenna skuldir og
skuldabréf rússneska keisara-
dæmisins. Bankamenn segja það
þetta séu mikil tíðindi og hafi
mikið að segja fyrir heimsmark-
aðinn. Nú komist rússneskir
bankar inn á verðbréfamarkaði í
Lundúnum en það hafa þeir ekki
getað hingað til vegna deilna um
skuldabréf rússneska keisara-
dæmisins. Fjárhæðin sem látin
verður breskum kröfuhöfum,
afkomendum þeirra og hand-
höfum keisaralegra skuldabréfa í
té, nemur 45 milljónum sterlings-
punda. Þá munu Bretar endur-
greiða Sovétríkjunum 2,65
milljónir sterlingspunda af
reikningi sendiráðsins en sú upp-
hæð var fryst í Lundúnum árið
1917.
Líbanon
Israelsmenn syna
styrk sinn
Israelskar herþotur rufu hljóðmúrinn yfir Beirut í
gœr, stuttu eftir árásirþeirra á búðir Palestínumanna í
fjöllunum austur afBeirut
ir Palestínuaraba í Sídon með
Beirut — Israelskar herflugvél-
ar rufu í gær hljóðmúrinn í lág-
flugi yfir Beirut, tæpum sólar-
hring eftir að ísraelsmenn
gerðu loftárás á búðir Palest-
ínumanna í fjöllunum suð-
austur af Beirut. Fjórir létust
og tólf særðust í arásinni.
Herþotur ísraelsmanna flugu
tvær og tvær saman, fram og til
baka um suðurhluta Líbanon í
dögun í gær. Síðar um daginn
flugu þær yfir Beirut á meira en
hljóðhraða. Líklegt er talið að
ísraelsmenn hafi verið að „svara
fyrir“ það að herbíll ók á jarð-
sprengju á „öryggissvæðinu" svo-
nefnda í S-Líbanon með þeim af-
leiðingum að þrír ísraelskir her-
menn særðust. Þá réðust ísrael-
skar herþyrlur á flóttamannabúð-
þeirn afleiðingum að tveir létust
og átta særðust. Árásarherferð-
irnar hafa vakið mikla reiði með-
al leiðtoga múhameðstrúar-
manna í Líbanon. Þeir saka fsra-
elsmenn um að reyna að gera að
engu 12 daga gamlar öryggisað-
gerðir Sýrlendinga í vesturhluta
Beirut.
Sýrlendingar hafa sent 500
manna öryggissveitir inn í hverfi
Múhameðstrúarmanna í Beirut
til að stöðva sveitir vopnaðra
manna sem ekki hafa leyfi til að
bera vopn. Sýrlenskir fjölmiðlar
og ýmsir líbanskir stjórnmála-
menn hafa lýst yfir þeirrri von
sinni að aðgerðir Sýrlendinga geti
orðið forboði varanlegs friðar í
Líbanon en þar hefur borgara-
styrjöld nú staðið yfir í 11 ár.
Gorbatsjof og Thatcher munu að sögn fréttaskýrenda vaxa mjög í áliti eftir að
skuldamál keisaradæmisins hafa verið leyst. Myndin er frá fundi þeirra í Bret-
landi á síðasta ári.
Átök í Beirút.
Austurríki
Wiesenthal
höfðar mál
á hendur
Kreisky
Vín — Fyrrum kanslari
Austurríkis, Bruno Kreisky,
mætti ekki í dómsal í gær
vegna meiðyrðamáls sem
Simon nasistaveiðari Wiesen-
thal hefur höfðað á hendur
honum.
Ástæðan fyrir málshöfðuninni
er sú að Kreisky mun hafa sagt
við blaðamann að hann gæti
sannað að Wiesenthal hefði unn-
ið með nasistum. Wiesenthal lifði
af fjögur ár í einangrunarbúðum
nasista Kreisky átti í apríl síð-
astliðnum viðtal við blaðamann
fréttatímaritsins Profil í Austur-
ríki og ætlaðist Kreisky ekki til að
þessi ummæli yrðu í viðtalinu.
Þau birtust samt sem áður og Wi-
esenthal höfðaði umsvifalaust
mál á hendur honum fyrir
meiðyrði. Málið hefur hins vegar
ekki komið fyrir rétt fyrr en nú
þar sem Kreisky naut til skamms
tíma þinghelgi þar sem hann sat á
austurríska þinginu.
Bruno Weis dómari við borg-
arréttinn í Vín sagði í gær að
hvorki Kreisky né Wiesenthal
hefðu mætt fyrir rétt í gær og mál-
inu yrði frestað til hausts. „Dr.
Kreisky er á heilsuhæli og herra
Wiesenthal er erlendis“, sagði
dómarinn.
Lundúnum — Sovétmenn og
Bretar hafa gert samning sín í
milli um skuldir sem þjóðirnar
hafa krafist af hvorri annarri
frá því á fyrri hluta þessarar
aldar. Samningurinn er talinn
marka tímamót í samskiptum
þjóðanna.
Samningurinn þýðir að sovésk-
ar eignir sem Bretar yfirtóku
vegna þess að Sovétmenn hafa
neitað að greiða skuldir frá
keisaratímabilinu, verða nú „af-
frystar" og þeim útdeilt meðal
þeirra sem hafa undir höndum
keisaraleg skuldabréf og þeirra
Noregur/Fiskeldi
Lokuð svæði í
norskunt fjörðum
Osló — Norska umhverfis-
málaráðuneytið hefur hvatt til
til þessa að komið verði á lok-
uðum svæðum gagnvart fisk-
eldisstöðvum í norskum fjörð-
um, við ósa góðra silungs-
veiðiáa.
Ráðuneytið hefur óskað eftir
því við norska náttúruverndar-
ráðið að það sjái um að undirbúa
tímatöflu fyrir slíkar lokanir.
Ástæðan fyrir þessum fyrirhu-
guðu lokunum er sú að hætta er
talin á að sýking breiðist út frá
fiskeldisstöðvunum í silung sem
gengur upp í árnar. Einnig óttast
Norðmenn hættuna af því sem
nefnt er „erfðafræðileg meng-
un“. Hún getur átt sér stað þegar
villtur silungur úr ánum blandast
silungum úr eldisstöðvunum
þannig að genasamsetning
breytist.
Þetta mál er nú mikið rætt í
Noregi og umhverfismálaráðu-
neytið hefur tilkynnt að þetta mál
skuli hafa forgang svo tilvist hins
villta silungs verði tryggð.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /.ril1rn
hjörleifsson'R E U 1 E R
Soweto
Ibúum hótað brottflutningi
íbúum sem neitað hafa að borga leigu ímótmœlaskyni viðstefnu stjórnvalda eða segjast ekki
þoraþað af ótta við hefndaraðgerðir róttceklinga, hefur nú verið dlkynnt að þeir verðifluttir af
heimilum sínum borgiþeir ekki húsaleiguskuldir sínarfyrir daginn ídag
Frá Soweto. íbúum var tilkynnt í gær að þeir yrðu fluttir á brott úr hverfinu með
valdi ef þeir borguðu ekki húsaleiguskuldir sínar.
Jóhannesarborg — Stjórn Sow-
eto hverfisins í útjaöri Jóhann-
esarborgar hótar nú að láta
flytja þúsundir íbúa hverfisins
nauðuga á brott ef þeir borga
ekki húsaleigu.
fbúar fóru að hvatningu and-
stæðinga kynþáttaaðskilnaðar-
stefnunnar í S-Áfríku og neituðu
að borga húsaleigu. Svartir
fréttamenn á svæðinu sögðu í gær
að einnig hefðu margir íbúar í
Soweto neitað að borga skuldir
sínar af ótta við hefndir róttækl-
inga.
Fjölmargir hópar sem berjast
gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn-
unni skipulögðu þetta „leigu-
borgunarverkfall“ í síðasta mán-
uði og kröfðust þess þá að her-
sveitir færu úr Soweto og bæjar-
ráðið segði að sér. Svartir íbúar
Soweto líta á bæjarráðið sem full-
trúa stjórnvalda. íbúar þeir sem
hafa ekki borgað eru svo margir
að bæjarráðið segist ekki hafa
fengið nema 76.000 dollara fyrir
júní miðað við þá 190.000 dollara
sem sem venjulega koma inn.
Bæjarráðið reyndi að fá íbúa til
að borga í pósti, sagði að þannig
myndu róttæklingar ekki vita
hverjir borguðu leigu. íbúar
sögðu hins vegar að róttækli-
ngarnir myndu komast að því
með því að þvinga starfsmenn
ráðsins til að segja frá hverjir
hefðu borgað. Þetta endaði með
því að bæjarráðið tilkynnti að ef
íbúar borguðu ekki skuldir sínar í
dag, yrðu þeir fluttir á brott með
valdi.
Bæjarráðin hafa verið mjög
óvinsæl, mjög lítil kosningaþátt-
taka var þegar þau voru kosin.
Hópar sem berjast gegn kyn-
þáttaaðskilnað arstefnunni hafa
mjög beint spjótum sínum gegn
þeim allt frá því 1984. Borgaraleg
óhlýðni hefur valdið því að sum
bæjarráð í landinu hafa orðið nær
því óvirk. Þá hafa sumir bæjar-
ráðsfulltrúar verið myrtir á
grimmilegan hátt af herskáum
unglingum og sumir fulltrúanna
hafa sagt af sér störfum sínum af
ótta við árásir. Víða lifa þeir í
sérstökum búðum sem sveitir
hermanna verja.
Miðvikudagur 16. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13