Þjóðviljinn - 01.08.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.08.1986, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Hvalamálið Höfum ekki bratið samninginn Halldór Ásgrímsson telurl6% rýrnun og31,4% bein og innyfli til innanlandsþarfa. Segir ekkert meira um þau blaðaummæli sín að veiðarnar hefjist aftur 20. ágúst Við höfum ekki brotið alþjóða- samþykktir um hvalveiðar, sagði Halldór Ásgrímsson við Þjóðviljann í gær. Hann heldur utan til Bandaríkjanna í næstu viku til viðræðna við viðskipta- ráðherrann þar vestra, sagði - í DV í gær að hvalveiðarnar hæfust aftur 20. ágúst, og vildi ekkert um það segja frekar við Þjóðviljann. - Ég hef ekkert meira um það að segja, sagði Halldór um DV- ummæli sín, og endurtók þau orð þegar hann var spurður hvort úr- slit viðræðnanna vestra mundu hafa áhrif á ákvörðun hans um haustveiðar. í ljós hefur komið að ráðuneyt- ið telur bein og spik til þéirra hvalafurða sem neytt er innan- lands, og er þannig reiknað út að íslendingar neyti meirihluta hval- afurðanna hér heima. Skýrsla frá Hval hf. var kynnt Bandaríkja- mönnum 17. júlí, og segir þar að 53% hvalsins sé innanlands- neysla, 47% flutt út. Þessi skýrsla hefur verið kölluð beinaskýrsla. Halldór kvaðst ekki kannast við neina beinaskýrslu. Hitt væri annað, sagði ráðherrann, að áður en ýfingarnar hófust hafi verið búið að vigta sex hvali, hvern í 33 pörtum, og væri sú vigt hluti rannsókna. Vigtinni hafi verið skipt í þrjá flokka. I einum flokknum sé annars- flokkskjöt og spik sem flutt er til Japan, og hafi þessi flokkur num- ið 27,3% hvalþyngdarinnar. í næsta flokki séu bestu hvalkjöts- bitarnir og rengi, samtals 25,3%, og sé innanlandsneyslan um 20% af þessum flokki. í þriðja flokkn- um sem ekkert er fluttur út séu haus, bein og flest innyfli, sam- tals 31,4% hvalþyngdar. Þau 16 prósent sem eftir standa sé vökvatap og rýrnun. í alþjóðasamþykktum sé veiddur hvalur skilgreindur sem hvalur kominn að skipshlið, og sé því minnihluti hvalafurða fluttur út. Halldór var spurður hvernig hann þýddi „local consumption" í hvalveiðisamþykktinni frá Malmö. Halldór sagðist leggja orðin „should primarily be utiliz- ed for local consumption" þannig að hvalinn ætti fyrst og fremst að nota til innanlandsþarfa. Hann tók þó fram að í stofnsamningi Hvalveiðiráðsins frá 1946 stæði að það væri skylda að nýta afurð- irnar, og þetta hefði þá verið sett inn að kröfu umhverfisverndar- manna. Þessi skylda hvfldi á okk- ur samkvæmt samningum. - Þannig að þú telur að íslend- ingar hafi ekki brotið í bága við stofnsamninginn og síðustu sam- þykktir? Nei. Ég tel að við höfum ekki gert það, sagði Halldór. Samkvæmt upplýsingum Hall- dórs um vigt hvalanna sex eru flutt út 47,5% hvalþungans við skipshlið; 27,3% annarsflokks- kjöt og spik og 20,2% gott kjöt. Til innanlandsþarfa, „local cons- umption", fara 52,5%; 5,1% gott kjöt, 31,4% hausar, bein og inn- yfli og 16% rýrnun. -m Verslunarmannahelgin Upplýsingamiðstöð starfrækt Börní beltumfá glaðningfrá lögreglunni Fyrir og um verslunarmanna- helgi mun Umferðarráð og lögreglan um allt land veita þeim börnum viðurkenningu sem sitja í bflbeltum eða barnabflstólum. Þetta er lítill glaðningur, kort með ferðaleikjum og hollráðum, rissblokk og Tópaspakki, en á loki þeirra er ábending til fólks í bflum: „Spennum beltin - sjálfra okkar vegna“. Umferðarráð og lögreglan mun starfrækja upplýsingamið- stöð um helgina og verður þar safnað upplýsingum um hina ýmsu þætti umferðarinnar og annað sem ætla má að geti orðið ferðafólki að gagni. í síma 27666 verður reynt að miðla upplýsing- um eftir því sem tök eru á. Frá föstudegi til mánudags verður út- varpað frá upplýsingamiðstöð- inni á báðum rásum útvarps og fólk sem hefur útvarp í bflum sín- um er hvatt til þess að hlusta á þessa pistla því þar verður komið á framfæri ýmsum fróðleik til vegfarenda. I gær voru tæplega 4000 bflar hraðamældir í tengslum við átak gegn hrað- og ölvunarakstri og voru 83 kærðir vegna þessa. 261 bflstjóri var áminntur vegna hraðaksturs og segja aðilar hjá Umferðarráði að þessar tölur bendi til þess að framför hafi orð- ið í þessum málum. -vd. Lækjargata 4 HÍB hlutskaipara Agreiningur um húshœð við Lœkjargötuna Aborgarráðsfundi í gær lögðu Sjálfstæðismenn í meirihluta fram tillögu um að Hinu íslenska bókmenntafélagi, Lögbergi hf. og Eignamiðluninni hf. yrði gefið fyrirheit um lóðina Lækjargötu 4. Málinu var frestað til næsta fundar. Bókmenntafélagið í bland við tvö fyrirtæki Sverris Kristins- sonar átti meðal annars við Ár- mannsfell að etja um lóðina, og virðist nú orðin samstaða í borg- arráði um að setja félagið þar nið- ur. Málinu var frestað að beiðni Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur. Guðrún Ágústsdóttir sagði Þjóðviljanum í gær að hún styddi HÍB og samstarfsmenn þess í Lækjargötulóðarmálum, - hins vegar þæfðist málið við það að í samþykktu deiliskipulagi væri gert ráð fyrir færri húshæðum en menn væru að hugsa um nú, í samræmi við ósamþykktar til- lögur um miðbæjarskipulag. Telja verður að húshæðarmál séu þess valdandi að í tillögu meirihlutans er talað um að gefa fyrirheit, en ekki að úthluta lóð- inni, þar sem við úthlutun hefði orðið að ákvarða húshæð eftir gildandi skipulagi. -m Akureyri Eyfirskir ekki til Grænlands Tilboði í skólabygginguna hafnað. Pótti ofhátt Tilboði eyfirskra verktaka í smíði skólahúss í Julieneháb í Grænlandi hefur verið hafnað og er talið næsta ólíklegt að eyfirskir verktakar fái verkefni í Græn- landi að þessu sinni en þeir buðu einnig í smíði sútunarverksmiðju í sama bæ. Eyfirskir verktakar áttu lægsta tilboðið í skólabygginguna en þar sem það var engu að síður þó nokkru hærra en kostnaðaráætl- un var ákveðið að hafna öllum tilboðum. -yk/Akureyri Þriggja vikna ferð yfir Atlantsála Þennan kappa, Henryk Wolski, hittum við fyrir í gær niðri á höfn. Hann er skipstjóri á þýsku skútunni New Born og er hann ásamt þremur öðrum áhafnarmeðlimum nýkominn úr 3ja vikna ferð yfir Atlantsála. Ferðin er liður í þjálfun skipverjanna, sem stunda nám við siglingaskóla í Cuxhaven undir stjóm Wolski. Kapparnir halda austur um haf eftir nokkra daga. Ljósm. Ari. Föstudagur 1. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.