Þjóðviljinn - 01.08.1986, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Ragnar Ólafsson GR lékágætlega í dag og er enn þremur höggum á undan Fjórar góðar. Karen Sævarsdóttir í 5. sæti, Guðfinna Sigurþórsdóttir móðir Karenar, Jóhanna Ingólfsdóttir 3. sæti og
næsta manni. Mynd: E.ÓI. Steinunn Sæmundsdóttir í 1. sæti.
Fatlaðir
Tveir Islendingar
á Heimsleikana
Heimsleikar fatlaðra íþrótta-
manna verða haldnir í Gautaborg
3.-17. ágúst. ísland sendir tvo
keppendur, þá Hauk Gunnars-
son, sem kcppir í frjálsum íþrótt-
um og Jónas Oskarsson, sem
keppir í sundi, en þeir hafa báðir
staðið sig mjög vel að undan-
förnu.
Alls munu um eitt þúsund
keppendur frá 38 þjóðum taka
þátt í þessum Heimsleikum, en
þeir eru þeir fyrstu sem haldnir
eru. Keppt verður í sundi, frjáls-
um íþróttum og bogfimi.
Þjálfarar og fararstjórar verða
þau Erlingur Jóhannsson og
Anna K. Vilhjálmsdóttir.
Haukur keppir í 100, 200 og
400 metra hlaupum og eru mestar
vonir bundnar við 400 metrana.
Jónas keppir í 100 metra
bringusundi, 100 metra skrið-
sundi, 100 metra baksundi og 200
metra fjórsundi. Baksundið hef-
ur verið sérgrein Jónasar og ætti
hann, ef allt gengur vel, að geta
náð langt þar.
Þeir Jónas og Haukur hafa
staðið sig mjög vel að undan-
förnu, Haukur kom með tvenn
bronsverðlaun heim af síðustu
Ólympíuleikum og Jónas ein silf-
urverðlaun.
-Ibe.
Brosandi á leið á heimsmótið, f.v. Haukur Gunnarsson, Erlingur Jóhannsson þjálfari og Jónas Óskarsson. Ljósmynd:
Ari.
Golflandsmótið
Ragnar enn efstur eftir 36 holur
Steinunn efst íkvennaflokki. Ögmundur og Sigríður unnu Í2. flokki og Högni Í3. flokki
Eftir 36 holur í meistaraflokki
er Ragnar Olafsson efstur í karla-
flokki með 149 högg og Steinunn
Sæmundsdóttir er efst í kvenna-
flokki með 170 högg.
Ragnar er sá eini í hópi 6 efstu
sem ekki bætti sig. Hann fór
brautina á 75 höggum. Úlfar
Jónsson náði besta árangri í gær,
fór brautina á 74 höggum og bætti
sig um fjögur högg.
Staðan í meistaraflokki eftir
annan dag:
1. Ragnar Ólafsson GR 149
2. Úlfar Jónsson GK 152
2. Magnús Jónsson GS 152
4. Sigurður Pétursson GR 154
5. Sveinn Sigurbergsson GK 156
5. Jón H. Guðlaugsson NK 156
Steinunn Sæmundsdóttir
komst í efsta sætið í meistara-
flokki kvenna, en hún bætti sig
um 8 högg og Ásgerður Sverris-
dóttir komst úr 4. sætinu í 2. sæt-
ið, en hún bætti sig um 10 högg.
Staðan í meistaraflokki kvenna
eftir annan dag:
1. Steinunn Sæmundsd. GR 170
2. Ásgerður Sverrisd. GR 172
2. Jóhanna Ingólfsd. GR 172
4. Ragnhildur Sig.d. GR 175
5. Karen Sævarsd. GS 180
Staðan í fyrsta flokki karla:
1. Jóhann R. Kjerbo GR 159
2. Þorbjörn Geirharðss. GS 161
3. Gunnlaugur Jóhannss.
GK 162
4. Guðmundur Bragas. GG 163
Staðan í fyrsta flokki kvenna
eftir annan dag:
1. Alda Sigurðard. GK 168
2. Ágústa Guðmundsd. GR 189
3. Aðalheiður Jörgensen
GR 192
4. Guðrún Eiríksd. GR 197
Úrslit í
2. og 3. flokki
í gær var seinasti dagurinn í 2.
flokki karla og kvenna, og 3.
flokki karla. Hörkukeppni var í
2. flokki karla og þurfti tvo bráð-
bana til að skera úr um röð efstu
manna. Ögmundur Ögmundsson
sigraði Lúðvík Gunnarsson og
Bernharður Bogason sigraði
Tómas Baldvinsson.
Lokastaðan í öðrum flokki:
1. Ögmundur Ögmundss.
GS 334
2. Lúðvík Gunnarss. GS 334
3. Bernharð Bogas. GE 336
4. Tómas Baldvinss. GG 336
5. Jón P. Skarphéðinss. GS 338
Lokastaðan í öðrum flokki
kvenna:
1. Sigríður B. Ólafsd. GH 389
2. Björk Ingvarsd. GK 397
3. Kristine Eide NK 400
4. Gerða Halldórsd. GS 401
5. Guðbjörg Sigurðard. GK 415
Lokastaðan í þriðja flokki
karla:
1. Högni Gunnlaugss. GS 342
2. Rúnar Valgeirss. GS 350
3. Jóhannes Jónss. GR 352
4. Guðmundur Guðmundss.
GR 353
5. Hjörtur Kristjánss. GS 354
Mótið hefur gengið mjög vel
það sem af er, og er öll skipulagn-
ing með ágætum. Flokkar með
hærri forgjöf hafa runnið mjög
hratt í gegn og þess má til gamans
geta að í 3. flokki karla voru
slegin alls 23.276 högg.
- Ibe.
Föstudagur 1. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15