Þjóðviljinn - 01.08.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.08.1986, Blaðsíða 9
HEIMURINN Kosningar á Jamaica Sósíalistar fengu 57% atkvæða Þeirsegja að landsmenn hafi fellt sinn dóm yfirfrjálshyggju Edwards Seaga Kingston, 31. júlí. Enn hafa úr- slit hérðasstjórnarkosninga á Jamaica, sem fram fóru á þriðjudag, ekki verið tilkynnt opiberlega - en allt bendir til að hinn sósíalíski stjórnarand- stöðuflokkur Michaels Man- ley, fyrrum forsætisráðherra, PNP, hafi fengið 57% atkvæða. Þar með hefur flokkurinn unn- ið sigur í ellefu af þrettán hér- uðum og gert stöðu Edwards Seaga forsætisráðherra og Verkamannaflokksins hans (JLP) mjög ótrygga. Flokkur Manleys, PNP, hefur lýst kosningunum sem einskonar þjóðaratkvæðagreiðslu um frjáls- hyggjustefnu Seaga. Einn tals- maður þeirrar hreyfingar hefur komist svo að orði að „fólkið er hungrað og atvinnulaust og það Andstæðingarnir tveir, Manley og Seaga: „Þetta var þjóðaratkvæðagreiðsla gegn skorti og atvinnuleysi...." er helsta ástæðan fyrir því hver úrslit kosninganna urðu“. Kosningarnar á þriðjudag éru fyrsta einvígi hinna tveggja stóru flokka eyríkisins síðan 1980, en þá vann flokkur Seaga drjúgan sigur á sósíalistaflokki Manleys. Flokkur Manleys hunsaði síðan kosningar, sem efnt var til árið 1983, á þeim forsendum, að kjör- skrár, sem lagðar voru fram, væru úreltan sjóður yrði sem jákvæðastur í lánveitingum. Þessi stefna hafði í för með sér verulega gengisfell- ingu gjaldmiðils landsins, upp- sagnir mikils fjölda opinberra starfsmanna og annan niður- skurð á útgjöldum hins opinbera. En fyrr á þessu ári þótti Seaga sem nóg væri að gert, og hann fór fram á það við Alþjóða gjaldeyr- issjóðinn, að honum yrðu settir auðveldari skilmálar. Hann lagði m.a. fram fjárlög, sem gera ráð fyrir allmikilli þenslu í opin- berum umsvifum, sem Seaga kvaðst vona að leiddu til nokkurs hagvaxtar. En hann hafði ekki tryggt sér stuðning sinna erlendu lánadrottna til þess að brydda upp á slíku. Erlendar skuldir Jamaica nema nú 3,3 miljörðum dollara, og ef Seaga tekst ekki að semja um framlengingu á miklu af þeim skuldum með sæmilegum kjörum er líklegt að stuðningur við flokk hans skreppi enn saman. Kosningarnar fóru tiltölulega friðsamlega fram, þó biðu tveir menn bana í átökum þeirra vegna og nokkuð hefur borið á því, að óánægðir stuðningsmenn ríkj- andi flokks hafi efnt til óeirða og grjótkasts eftir að úrslit kosning- anna bárust út. Eftir fyrirmælum Flokkur Seaga forsætisráð- herra reyndi um fimm ára skeið að stjórna landinu eftir fyrirmæl- um IMF, Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins - í þeirri von að sá sami Sovétríkin Svíþjóð Er Carisson Og þetta líka... Moskvu - 31. júlí. Sovétmenn hafa tilkynnt að tveir kjarnaofnar t at- ómstöðinni í Tsjernobyl verði teknir aftur í notkun seint í haust. Við þá munu vinna starfshópar á tveggja vikna vöktum í senn. Það er enn til athugunar hvort hægt verður að nota þriðja ofninn. Sá fjórði er ónytur - það var slys í honum sem til þessa hefur orðið 28 manns að bana. Murcia, Spáni - Fimm menn úr Greenpeace-samtökunum voru handteknir hér í dag þegar þeir reyndu að taka úr sambandi leiðslur sem skila úrgangi frá kvikasilfursverksmiðju í sjóinn Osló- Dómsmálaráðherra Noregs, Helen Bösterud, hefur lýst því yfir, að hún ætli að hvetja til þess að Norðurlönd i sameiningu taki upp alþjóðlega baráttu gegn klámi sem byggist á misnotkun á börnum. Ráðherrann ætlar að taka málið upp á norrænum ráðherrafundi í næsta mánuði. Santa Clara, Kaliforníu - Marie Henderson, sem hefur verið „látin“ í þeim skilningi aö heili hennar er ekki lengur starfandi, hefur fætt barn, sem virðist við góða heilsu. Barnsfaðirinn hafði fengið þeirri ákvörðun hnekkt fyrir dómi, að konan yrði tekin úr sam- bandi úr kerfi, sem heidur meðvit- undarlausum líkama hennar í gangi. Sættir í landamæra- deilu? Peking - 31. júlí. Svo virðist sem Sovétmenn séu nú reiðu- búnir til að fallast á sjónarmið Kínverja að því er varðar deilur um það, hvernig draga skuli landamæri ríkjanna, þar sem ár skilja lönd í Austur-Asíu. í ræðu sinni í Vladivostok, þar sem Gorbatsjof bauðst meðal annars til þess að fækka í sovésku setuliði í Mongólíu, viðhafði hann ummæli sem kunna að tákna veigamikla endurskoðun á afstöðu Sovétmanna í þessu máli. Hann sagði að „landamærin mætti draga eftir helstu siglinga- leiðinni", um fljótin. Sovétríkin hafa áður haldið því fram, að landamærin ætti að miða við árbakka Amúrfljóts Kína- megin, og þar með gerðu þau til- kall til eyja á Amúrfljóti og Úss- úrífljóti miðju sem Kínverjar töldu sig eiga. Urðu út af þessum deilum veruleg átök og jafnvel blóðsúthellingar á dögum menn- ingarbyltingarinnar svonefndu í Kína. Nú virðist sem Gorbatsjof hafi horfið frá þessari afstöðu í við- leitni sinni til að bæta sambúðina við Kína. ERLENDAR FRÉTTIR BERGMANN /REUTER Breska stjórnin Thatcher heigull? Svíar deila um Suður-Afríku-stefnu Frá Birni Guðbrandi Jónssyni í Svíþjóð. Sænska ríkisstjórnin virðist nú eiga erfitt með að verja afstöðu sína til viðskiptabanns á Suð- ur-Afríku. Hér einsog víða um heim er spurningin um algjört viðskiptabann að verða mikið hitamál. Munurinn er hinsvegar sá að almenningur útum heim bjóst ef til vill við annarskonar afstöðu sænsku ríkisstjórnarinn- ar en til að mynda hinnar bresku og bandarísku. Ingvar Carlsson forsætisráð- herra lýsti því yfir um daginn að sænska stjórnin teldi óráðlegt að ganga til liðs við Norðmenn og Dani um að lýsa yfir algeru við- skiptabanni á Suður-Afríku. Þessi yfirlýsing hefur í sænskum fjölmiðlum þótt lítilsigld og lítt í samræmi við hefðbundna sænska utanríkisstefnu, og er Carlsson nú harðlega gagnrýndur af fólki Moskvu - 31. júlí. Verð á áfengi verður hækkað á morgun i Sovétríkjunum um 20-25% og er þetta liður í hinni miklu her- ferð gegn áfengisbölinu sem farin hefur verið í landinu und- anfarna mánuði. Glúsjkof, yfirmaður Verð- Ingvar Carlsson forsætisráð- herra: Hvað hefði Olof Palme gert? innan og utan flokks síns, og meðal annars hefur Desmond Tutu, biskup í Suður-Afríku, lýst vonbriðgum sínum. Sovétríkin lagsnefndar ríkisins, komst svo að orði í dag, að baráttunni fyrir algáðu þjóðfélagi yrði haldið áfram með því að draga úr áfengisframleiðslu, hækka verð á vodka og vínum og fækka útsölu- stöðum. Aftonbladet, sem er hallt undir krata, hefur á miðvikudag eftir Tutu á forsíðu að Ingvar Carlsson sé heigull, og eftir Winnie Mand- ela er haft að hin nýlátni forsætis- ráðherra Svíþjóðar, Olof Palme, hefði aldrei látið hafa eftir sér neitt í líkingu við yfirlýsingar Carlssons. Ahrifamenn innan Jafnaðarmannaflokksins leggja einnig hart að forsætisráðherran- um að breyta um stefnu og benda á að forsætisráðherra jafnaðar- manna í Svíþjóð sé að lenda í þeirri skömm að vera á sama báti og erkiafturhaldið í kringum Re- agan og Thatcher. Helstu blöð jafnaðarmanna, svo sem Afton- bladet og Arbetet, gera harða hríð að Carlsson, og víst er að karlinn verður að taka sig á, ef sænsk utanríkisstefna á ekki undir hans forystu að blikna svo að hún verði marklaus í framtíð- inni. Flaska af vodka hefur nú um hríð kostað sjö rúblur, en algengt mánaðarkaup er 180-200 rúblur. A móti þessum verðhækkun- um kemur að lækkað verður verð á barnafötum, skófatnaði, úrum, mótorhjólum og loðskinnum. er enn andvíg refsi- aðgerðum London - 31. júlí. Á ríkis- stjórnarfundi í dag samþykktu ráðherrar breksa íhaldsflokks- ins „einum rómi“ að styðja Margaret Thatcher í þeirri af- stöðu, að ekki skuli reyna að þvinga Suður-Afríkustjórn til að láta af kynþáttakúgun með efnahagsleguna refsiaðgerð- um. Þykir þetta súrt í brotið fyrir Howe utanríkisráðherra sem fékk hina snautlegustu meðferð hj á Botha forseta á dögunum. Og herma fréttir að verulegur á- ^ffeiningur sé uppi milli Thatcher forsætisráðherra og utanríkis- ráðherrans um það, hvert fram- hald skuli vera á máli þessu. Howe hefur látið í ljós þá skoðun, að nú sé ekkert annað framundan en samstillt átak Evr- ópuríkja um að beita minnihluta- stjórn hvítra manna refsiaðgerð- um. Bornar hafa verið til baka fregnir tim að Howe ætli að segja af sér vegna þessa ágreinings. Vodkað hækkar um fjórðung Föstudagur 1. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.