Þjóðviljinn - 01.08.1986, Síða 8

Þjóðviljinn - 01.08.1986, Síða 8
Liggjum í leti eða rennum okkur niður fjöll í snjónum t.d.“. Nú eru svo margir erlendir skátar hérna á landsmótinu. Far- ið þið á landsmót annarra þjóða? „Við höfum ekki gert það enn- þá. En íslendingar eru mjög dug- legir við að koma sér á mót er- lendis. T.d. verður alheimsmót um jólin ‘88 í Ástralíu og nú þeg- ar eru 60 íslenskir skátar búnir að skrá sig. Bandalag íslenskra skáta mun standa fyrir alls konar fjáröflun til að auðvelda skátum að komast." Nú máttu sjóararnir ekki vera að þessu spjalli Iengur, voru að fara í vatnasafarí. Blaðamaður og ljósmyndari eltu. Vatnasafarí var þrautabraut, reist yfir djúpu og drullugu dýi. Krakkarnir áttu að ganga á línu yfir dýið, stökkva og grípa í kaðal og sveifla sér yfir og margt fleira skemmtilegt. SA GLÆTAN tilegast M M M Vlnnstt Helga. Barla. Gu6,ín M-k * ján, Árni, Dísa og Rut. Ljósm.. An. Guðmundur starfsmaður og skátatoringi, Einar starfsmaður. Neðri röð: HoHy. Knst- Nokkurskonar ferða- klúbbur syngja og sigla Skátafélag Sólheima lét sig ekki vanta á landsmótið í Við- ey. Á Sólheimum í Grímsnesi eru 15 skátar og mættu 14 þeirra í Viðey. Hvað finnst ykkur skemmti- legast í nýja lýðveldinu? „Það er skemmtilegast að syngja og fara í bátsferðir. Borg- ardagurinn var líka mjög skemmtilegur. Við fórum í bát til Reykjavíkur og skoðuðum ýmis- legt. T.d. fórum við í sund og í Laugardalshöllina á skemmtun. Við vorum dálítið þreytt eftir því við erum ekki vön að ganga svona mikið.“ Hvað gerið þið á skátafund- um? „Við tölum saman og syngjum. Við kunnum bara ekki nógu mikið af lögum. Svo förum við kannski í ferð í haust, því land- helgisgæslan er búin að bjóða okkur í siglingu“, sögðu skátarnir frá Sólheimum að lokum. SA. Strákarnir í Ægisbúum fóru létt með vatnasafaríið og duttu alls ekki sama hvað Ijósmyndarinn reyndi að trufla þá. Ljósm.: Ari „Það er stórskemmtilegt að vera hérna. Póstarnir eru æði. Við fáum að fara í siglingar og á seglbretti. Svo er Safarí rallí- ið meiriháttar", sögðu strák- arnir í Ægisbúum en þaö er skátafélag í vesturbænum. „í Ægisbúum eru 60 skátar alls en í okkar sveit erum við bara nokkrir strákar og við köllum okkur Sjóarana." Sjóararnir eru á aldrinum 12-18 ára. Hvað gerið þið á kvöldin hér í nýja lýðveldinu? „Það er dagskrá en hún gefur mikið svigrúm til að vera frjáls og labba um og hitta fólk. Hér eru krakkar frá 15 löndum svo það er mjög gaman að ganga um svæðið og kynnast þeim. Annars er dag- skráin líka skemmtileg. Það eru varðeldar og svo t.d. í kvöld för- um við í næturleik. Hann er þannig að það koma terroristar og ráðast á lýðveldið og svo gengur þetta út á að sigra þá og, koma öllu í röð og reglu aftur. Svona næturleikir eru mjög skemmtilegir." Af hverju gerðust þið skátar? „Við byrjuðum allir þegar við vorum litlir og félagsskapurinn er svo skemmtilegur. Það sem dreg- ur mann helst að skátahreyfing- unni eru allar útilegurnar og ferðalögin.“ Maður losnar við mömmu og pabba sögðu sjóar- arnir í gríni. Hvað ætlið þið að vera lengi í skátahreyfingunni? Við ætlum að vera töluvert áfram. Það hætta flestir svona 15- 16 ára en svo eru lxka margir sem eru áfram og taka við félaginu eða stefna að því að komast í björgunarsveitina. En Björgun- arsveít íslenskra skáta er eigin- lega efsta stigið í skátahreyfing- unni. Við fáum undirbúnings- þjálfun í skátunum. Ekki í tísku „Það er erfitt fyrir nýja menn að taka við félaginu, því skátarnir eru ekki í tísku núna. Ástæðan er kannski sú að sum félög eru bara söngur og hnútar og þá heldur fólk að þetta sé alltaf svona í skát- unum. En hjá okkur t.d. er þetta miklu meira en söngur og hnútar. Við förum mjög mikið í útilegur. Þetta er nokkurs konar ferða- klúbbur. Við lærum að klæða okkur og útbúa okkur rétt í ferða- lög. Enda ferðumst við mikið á veturna. Við lærum að meta nátt- úruna, njóta hennar og virða. Við förum oft bara 4 sarnan í skálann okkar í Bláfjöllum og höfum enga hefðbundna dag- skrá, heldur gerum það sem okk- ur langar í það og það skiptið. Vinsældalistar Þjóðviljans E D JX ! Fellahellir 1. (1) Who’s Johnny - El de Barge 2. (2) Papa Don’t Preach - Madonna 3. (-) Vienna Coming - Falco 4. (4) Þrisvar í viku -Bítlavinafélagiö 5. (-) S.O.S. Bandito - Carrara 6. (6) Jeannie - Falco 7. (7) Venus - Bananarama 8. (5) Dance with me - Alphaville. 9. (10) When Tomorrow Comes-Eurythmics 10. (8) God thank you Woman - Culture Club Grammió 1(1) Blús fyrir Rikka - Bubbi Morthens 2 (2) The Queen is dead - The Smiths 3 (5) The Seer - Big Country 4 (4) Contenders - Easterhouse 5 (3) Standing on the Beach - Cure 6 (-) Panic - The Smiths 7 (—) Revenge - Eurythmics 8 (6) So - Peter Gabriel 9 (-) Var é vargen - Imperiet 10 (-) Upside down -Jesus and Mary Chain Rás 2 1. ( 9) Útihátíð -Greifarnir 2. ( 3) Hesturinn - Skriðjöklar 3. ( 4) Götustelpan - Gunnar Óskarsson 4. ( 1) Þrisvar í viku - Bítlavinafélagið 5. ( 2) Papa don’t preach - Madonna 6. ( 7) Tengja - Skriðjöklar 7. ( 8) If you were a woman -Bonnie Tyler 8. ( 6) Hunting high - A-ha 9. (10) Heilræðisvísur Stanleys - Faraldur 10. (11) 15 ára á föstu - Bjartmar og Pétur 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.