Þjóðviljinn - 20.08.1986, Qupperneq 8
MENNING
Bókmenntir
Betur má
ef duga skal
Kristján Kristjánsson - „Til hans gerir maður meiri kröfur"
Kristján Kristjánsson
Dagskrá kvöldsins
Útg. Guðmundur Örn Flosason
1986
Þessi önnur ljóðabók Kristjáns
Kristjánssonar hefur að geyma 34
Ijóð og skiptist bókin í þrjá hluta.
Kristján hefur áður gefið út bók-
ina Svartlist og birt af og til ljóð
sín í tímaritum, sem lofað hafa
góðu.
Ef miðað er við bókina Svart-
list, þá leikur enginn vafi á því að
Dagskrá kvöldsins sýnir ótvíræð
framför í yrkingum og meðferð
máls. Kristján er orðinn mun
þroskaðra skáld og hefur einnig
öðlast meira vald á tungumálinu
og kann betur að byggja sín ljóð.
f>að besta í þessari bók er vel og
haglega gert.
Fyrsti hluti bókarinnar ber
yfirskriftina „Fyrr en varir...“
Þar yrkir Kristján mestan part
um stundir dagsins, kvöld og
morgna og einatt situr persóna
skáldsins, eða svokallað „ég“
ljóðs í forgrunni og setur þetta
persónulegan blæ á ljóðin. Ljóð
Kristjáns eru fremur hljóðlát;
hugleiðingar útfrá hversdags-
legum atriðum en inn á milli
bregður fyrir frumlegum þönkum
og viðhorfum. Þegar best lætur
ferskri sýn á hvunndaginn.
En í heildina tekið þá er þessi
bókarhluti, sem er um helmingur
bókarinnar, um of snauður af
spennu og virkilegum átökum við
yrkisefnin. Inn á milli örlar dá-
lítið á tilfinningu fyrir skapandi
spennu eða ótta, en hún skilar sér
ekki í textann og fyrir vikið verð-
ur hann bragðdaufari en til var
ætlast. Það spilar líka inní að
Kristján geldur nokkuð saman-
burðar við það ljóðskáld sem
.hann greinilega sækir mikil og
góð áhrif til, Gyrði Elíasson.
Kristján beitir svipuðum aðferð-
um í stfl, hrynjandi og uppsetn-
ingu og Gyrðir, en vantar þá
spennu og þann slagkraft sköp-
unar sem einkennir yrkingar
PÁLL
VALSSON
Gyrðis. Þótt Kristján kunni vel til
verka og ljóð hans séu ofar með-
alvegi í ljóðagerð íslenskra ung-
skálda, þá vantar frumlegri efni-
stök og sköpunarkraft til þess að
hann nái að skipa sér í fremstu
röð.
f öðrum hluta bókarinnar,
„...og kvöldið rann upp svart og
fagurt“ er sjónvarpið í aðalhlut-
verki. Það er sömu sögu þar um
að segja, handbragðið víða gott
en maður saknar frumleika og
dýptar. Og honum fatast veru-
lega flugið, þegar hann yrkir og
birtir heilt ljóð sem ekkert er
annað en endurtekning á hug-
mynd úr gömlu ljóði eftir Einar
Má Guðmundsson.
Laugardagur
( dag berst engin
staðfesting
á tilveru minni:
ÖLL PÓSTÞJÓNUSTA
LIGGUR NIÐRIÁ
LAUGARDÖGUM
f frægu og margívitnuðu ljóði
segir Einar Már þetta með einni
setningu og ristir mun dýpra:
„Þótt póstkassinn sé alltaf tómur
ertu örugglega til“. Kristján bætir
engu við og því verður ljóð hans
einsog tugga; sama hugmynd og
hjá Einari en bara ekki eins vel
gerð.
Þriðji hluti bókarinnar er jafn-
framt sá besti og það er einungis
hér sem bregður fyrir einhverjum
tilþrifum; sem Kristján sýnir
hvað í honum býr. Kaflinn ber
yfirskriftina „Úr leikhúsi sárs-
aukans“ og það með rentu. Hér
er að finna vísi að þeirri spennu
og átökum sem svo sárlega var
saknað úr hinum bókarhlutun-
um. Ort er um mörk draums og
veruleika og ekki síst sársaukann
þar sem Kristján gerir nokkrar
atrennur að sömu hugmynd. Lík-
lega er Ijóó númer átta, hið besta
þess bálks og jafnframt besta ljóð
bókarinnar:
Þessi bók Kristjáns Kristjáns-
sonar vottar um að hann getur ort
góð ljóð, en þó nokkuð vantar á
til þess að hægt sé að segja bókina
sæta tíðindum í ljóðagerð. Til
þess skortir hann nægilegt frum-
kvæði; að slíta sig frá áhrifavöld-
um og hleypa sköpunarkrafti sín-
um á skeið. Láta lesandann finna
fyrir einhverri ólgu og að ort sé af
þörf. Það skal að lokum ítrekað
að bókin er yfir meðallagi á ís-
lenskum ljóðabókamarkaði, en
til manna eins og Kristjáns gerir
maður meiri kröfur.
Átta
sjáðu fingur minn brenna í gulum
loga kertisins sjáðu ég horfi á
hann brenna í rauðgulum loganum en
það berast engin boð það berast
engin boð um að gera eitthvað ég
horfi ég horfi á hann brenna það
er allt og sumt
(ég er allt sem
sársaukinn er ekki ég er allt
sem gerist ekki ég er biðin ég
er tíminn ég er skilaboðin sem
berast ekki ég er allt sem sárs-
aukinn er ekki ég er allt og sumt)
Gunnar Dal - Færir borginni afmæliskveðjur.
Reykjavík
Gunnar yrkir borgarljóð
Ný ljóðabók Gunnars Dal
Víkurútgáfan hefursentfrá sér
nýja Ijóðabók eftir Gunnar Dal og
heitir hún Borgarljóð. Þar eru tutt-
ugu Ijóðum ReykjavíkeftirGunn-
arog kennir margra grasa. Svo
dæmi sé af titlum tekið þá heita
Ijóðin nöfnum eins og Morgunn í
Reykjavík, Flugleiðir, Við Ellið-
Norðanvindur nœðir.
Nístir hann grös og blóm.
Haustið ígarð ergengið
og gatan er auð og tóm.
aárnar, Utangarðsmenn og
NiðurLaugaveg.
Gunnar Dal hefur sent frá sér
fjölmargar bækur bæði ljóða og
heimspekiiegs eðlis. Við birtum
hér sem sýnishorn eitt borgar-
kvæða Gunnars, sem nefnist
Fjúk.
En eitt í veðri og vindum
hér velkist Morgunblað.
Og kranabíll þar kemur
og keyriryfir það!
Ólíkt okkur hinum,
upp það rís á ný.
Óg haustsins hvössu vindar
til himins lyfta því.
-pv
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. ágúst 1986
Djass
Þýskur saxófónleikari
í heimsókn
Spilar í Djúpinu í kvöld og annað kvöld
Michael Sievert
„ Þetta er dálítið öðruvísi músik en
við eigum að venjast hér á ís-
landi. Hún er frjálsari í formi og
óbundnari. En viðmunum íbland
leika venjulegan djass. Ég lofa
því tónleikum þar sem bæði
verða ýmsar reglur brotnar og
samhliða leikinn djass sem fólk
þekkir," sagði Tómas R. Einars-
son bassaleikari ísamtali ígær
um þýska saxófónleikarann Mic-
haelSievertsem hérerstaddur
og mun leika í Djúpinu í kvöld og
annað kvöld klukkan tíu.
Michael Sievert er einn þeirra
fjölmörgu þjóðverja sem hrifust
af bandaríska frjálsdjassinum. Á
síðustu 10 árum hefur hann leikið
víða um lönd auk þess sem hann
nam við Creative Music Foundat-
ion í New York í Þrjú ár. Hann
hefur hljóðritað með fjölmörgum
þekktum djassmönnum af yngri
kynslóðinni, s.s. Ahmadu Jarr,
Andrew Cyrille, Edvard Vesala,
Harry Miller og Heinz Becker.
Michael Sievert hefur einnig
fengist við tónsmíðar og beitt þar
á stundum óvenjulegum
brögðum eins og í verkinu Menn
og vélar sem skrifað er fyrir sax-
ófón, t rommur ,tölvuogdansara.
Þeir íslendingar sem leika með
Michael Sievert eru allir að góðu
kunnir: Pétur Grétarsson og
Tómas R. Einarsson hafa starfað
með fjölmörgum djasshljóm-
sveitum og í öðrum geirum tónl- vel þekktur frá hljómsveitinni
istarinnar og Friðrik Karlsson er Mezzoforte.