Þjóðviljinn - 20.08.1986, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 20.08.1986, Qupperneq 14
á sunnudag Námskeið hefst í kvöld Eins og undanfarin ár mun Hið íslenska náttúrufræðifélag halda námskeið í greiningu sveppa. Að- aláherslan verður lögð á greiningu sveppa til matar, en einnig verða kynntir sveppir sem ber að varast. Námskeiðið verður haldið í kvöld í húsi Líffræðist- ofnunar að Grensásvegi 12 (3. hæð). í tengslum við námskeiðið verður farin sveppatínsluferð í Skorradal sunnudaginn 24. ág- úst. Lagt verður af stað frá Um- ferðarmiðstöðinni kl. 10 árdegis. Leiðbeinandi verður Eiríkur Jensson. Nýjung ísúr hreinum ávaxtasafa Kominn er á markað hcr á, - landi ís, sem framleiddur er úr 97% hreinum ávaxtasafa, án allrar dýrafítu og aukaefna og engum sykri er bætt í hann. Hér er um að ræða bandaríska upp- finningu, sem nefnist Vitari-ís. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir mjólkurvörum og geta ekki borð- að mjólkurís, þeir sem berjast við aukakfló og sykursjúkir geta borðað þennan nýja ís. Hér eru nú komnar á markaðinn tvær bragðtegundir, eplabragð og jarðaberjabragð en alls eru bragðtegundirnar 12. NRON/ASÍ/BSRB Hagkaup með besta verðið Neytendafélag Reykjavíkur og aðildarfélög ASI og BSRB gerðu nýverið verðkönnun á ýmsum al- gengum neysluvörum. Var könnunin gerð 13. ágúst sl. og náði til 9 verslana í míðbæ Reykjavíkur. Verslunin Hagkaup var í flestum tilfellum með lægsta verð eða í 13 af 19. Mikill verðmunur kom á milli verslana á grænmeti. Mesti mun- ur var á íslensku hvítkáli en það var ódýrast 59 kr. kílóið en dýrast 114 kr. kg. Rokk í heimsókn Crime & The City Solution með tónleika íRoxzý annað kvöld íslenskir rokkunnendur eiga von á óvæntri stórgjöf þann 21. ágúst en þá mun ástralski kvint- ettinn Crime & The City Solution halda hljómleika í veitingastaðn- um Roxzý. Crime & The City Sol- ution kom fram á sjónarsviðið í upphafí síðasta árs en forsaga sveitarinnar nær þó allt aftur til ársins 1976 og einnar virtustu rokksveitar sem andfætlingar okkar hafa alið: Birthday Party. Birthday Party gáfu út plötur sínar á fyrri hluta þessa áratugar og tónlist þeirra, sem á köflum var undir áhrifum frá Iggy Pop, Captain Beefheart og Pere Ubu, hafði til að bera áræði og frum- leika, sem orðið hefur fyrirmynd seinni tíma hljómsveita. Birthday Party lögðu upp laupa árið 1984 en tveir fyrrum meðlimir stofnuðu síðar hljóm- sveitina Crime & The City Soluti- on. Þetta voru Mick Harvey, gítar- og hljómborðsleikari og Roland S. Howard en hann þykir í hópi bestu gítarleikara heims. Roland fékk Harry bróður sinn til að leika á bassa og Simon Bonney var ráðin söngpípa en sumir sgja að hann hafi haft veru- leg áhrif á hinn sérstæða söngvara Birthday Party: Nick Cave, þegar þeir voru að stíga sín fyrstu skref á tónlistarsviðinu í Melbourne um miðjan áratuginn. Vorið 1985 sendu Crime & The City Solution frá sér fyrstu smá- skífuna The Dangling Man og vakti hún þegar athygli manna í Bretlandi á hljómsveitinni. Hljómleikaferðir um Bretland og Evrópu fylgdu í kjölfarið og síðan bættist sveitinni góður liðsauki með fyrrum trymbli ensku hljóm- sveitarinnar Swell Maps: Epic Soundtracks. Þannig skipuð gaf Crime & The City Solution svo út mini-lp plötuna Just South of He- aven í september síðastliðnum og fékk hún mjög lofsamlegar um- sagnir í bresku popppressunni auk þess sem poppgagnrýnandi New York Times valdi hana sjö- undu bestu mini-lp plötu ársins Verslun Valhúsgögn keyptu verslunina Bláskóga Verslunin Valhúsgögn í Ármúla 4. Nýlega keyptu Valhúsgögn hf. lager og fírmanafn þrotabús hús- gagnaverslunarinnar Bláskóga. Valhúsgögn hf. hafa rekið hús- gagnaverslun í Reykjavík í 26 ár eða frá árinu 1960. Lengst af hef- ur verslunin verið að Armúla 4, en nú standa yfir flutningar og mun fyrirtækið framvegis verða að Ármúla 8, þar sem Bláskógar voru til húsa. Aðaleigendur Valhúsgagna hf. eru Haraldur Sigurgeirsson og Sverrir Sigþórsson. Fyrirlestur Alþjóða- flug til umræðu Föstudaginn 22. ágúst kl. 17.00 heldur Edward Hudson, fram- kvæmdastjóri ECAC (European Civil Aviation Conference, Paris) fyrirlestur á vegum flugmála- stjórnar íslands í ráðstefnusal Hótels Loftleiða. Fyrirlesturinn, sem haldinn verður á ensku, fjallar um nýj- ustu viðhorf í loftflutningum, ekki síst leiguflugi, svo og um fargjaldamál o.fl., en á þeim er að vænta breytinga í Evrópu á næstu árum. Að fyrirlestrinum loknum verður nokkrum tíma varið til fyrirspurna og umræðna og er líklegt að marga fýsi að leita skýringa á einu og öðru um þessi mál. í flugmálastjórn hafa um nokk- urt skeið verið uppi áform um að efna til slíks fundar enda eru breytingar örar á reglum um bæði áætlunar- og leiguflug. Um þess- ar mundir er minnst margfalds af- mælis íslenskra flugmála og er þessi fyrirlestur líður í dagskrá sem efnt er til í tilefni af því. WL vý. -rtL VFRIVÆSIA VERDG-ESIA VERDCÆaA \ otuu-gutnm N.iin .i t>uð Gunr. íuosdúc Natn .i huð Haakaup Laucav. 59 Natn a huð HverfisK'cnu. h/eríisc. 50 Natn .i þuð Kiötx.Perurs Laucav. 2 Njtn .i huð Klötraar Laucav. 34 Njtn j huiV SlCCUDÚÓ Bercs.srr.46 Nain j huð SS Hafr.arst. 3 Nain j huíl Vicir Natn a huð Þir.gnolt Grur.darsr. 2 ?lisrr.. næsca oc iægsca yx. ver-s ( uco l'utls '4o f í 4 •. »( i-'.i. ♦ 152,56 152,5C. 156,00 122.60 127,90 149,50 25,40 20,C ( hccnos hnneir !vis 60,7 -* 72,9C 72,90 73,00 62.40 65,90 73,40 12,70 20,9 Monn: ipaenctti 25". <: 36, ■ * TT7T5 TU7TT7 27,50 41,60 9,00 25,1 Bueles l?5 e 37,7C *■ 101,30 97,40 99,5C 99,00 9C.50 . 95,00 98,60 13,30 15,2 Marvland coomcs kcx >4. »r 30,6< -¥ 35,50 34,80 22,00 4,90 16,0 Maarud íloeur l(X* c 56,50 66,90 55,00 56,60 52,30 Jf. 63,00 55,00 13,60 25,5 Smiorvi 300 e 32.00 74,70 * 81,60 79,50 87,40 82.00 74,80 78,20 85,00 12,70 17,0 Ora maiskom r dos 7C.50 56,30 7ö,óö 70,60 71,00 ól, 50 61,40 48,00 23,00 47,9 KJ maiskom ‘/:dos 52,30 * 65,60 57,10 13,3 25,4 Sólblómi 400 e 69.50 67,90 -¥■ 78,00 71,50 STTóö 7IR5Í3 71,50 72,y5 73,65 15.10 22.5 Kakómjólk V* l 17,70 16,50 + 17,70 17,70 17,70 17,70 17,70 17,70 17,70 1,20 7,3 Rió kaffi 99,60 94,90 99,60 94,60 *. 114,50 99,00 95,00 95,45 98,00 19,90 21,0 GevaJía rauður pakki 250 e 98,00 94,60 wm 95,70 V' 113,50 98,50 9.3,80 97,00 19,80 21,1 Melroseste 20ensjur 51,80 43,90 * 50,40 50,70 50,05 52,00 45,90 47,60 8,10 18,5 Blómkál ísl l fl l ke 120,00 105.00 120,00 98,00 120,00 104,00 78,00 jf. 94,00 42,00 53,8 Tómatar l . fl. I ke 115,00 98,00 *. 110,00 126,00 150,00 123,30 106,00 98,00 Jf. 119,00 52,00 53,1 Aeurkur l fl l kc 150,00 119,00 150,00 126,00 14C,00 134,00 •96,00 -¥■ 129,00 138,00 54,00 56,3 Gulrofur l.fl. Ike 105,00 85,0C *. 99,00 9í3,öö 105,00 93,80 96,00 98,00 20,00 23,5 Hvitkál ísl. I fl. I ke o,00 59,00 * 114,00 98,00 114,00 101,90 99,00 107,00 55,00 93,2 ÓHEIMILT er ad Inna .samanlagt veri) á 'ofangreimlum vöruicgiituiiim t cmstökum verslunum. 11. VERÐKÖNNUN i NRON 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.