Þjóðviljinn - 27.08.1986, Page 2
FRÉTTIR
Sigurður G. Tómasson og Pétur Steinn Guðmundsson í startholunum. Sigurð ur tekur á móti Davíð Oddssyni í sínum fyrsta þaetti á Bylgjunni.
Fjölmiðlun
Nýtt útvaip ;á morgun
Bylgjan hefur útsendingar. Davíð hjá Sigurði G. í fyrsta þœttinum
Utvarpsstöð íslenska útvarps- sjónarmaður morgunþáttar hefur íbúum höfuðborgarsvæðisins, Bylgjunni, en einnig verða á dag-
félagsins, Bylgjan, hefur út- leikinn í fyrramálið að loknu enn sem komið er. Þó munu út- skrá skemtiþættir, framhalds-
sendingar í fyrramálið og verður ávarpi stjórnarformanns. Fyrsti sendingar líklega nást á Akra- leikrit, viðtalsþættir og margt
sent út á FM 98,9 frá klukkan sjö gestur útvarpsstöðvarinnar verð- nesi, suður til Keflavíkur og fleira.
að morgni til miðnættis samfellt. ur Davíð nokkur Oddsson, enda austur á Selfoss. -gg
Sigurður G. Tómasson um- er þessi stöð fyrst og fremst ætluð Tónlist verður mjög áberandi í
Fiskmarkaður í nánd - ha, hvar
þá?
Maraþon
Enska skilyrði
Þeirsem tóku þáttí
Reykjavíkurmara -
þoni ’86 um síðustu
helgi, fengu í hendur
staðfestingareyðublöð
áensku
„Þetta var slys sem átti ekki að
gerast og hefði ekki þurft að ger-
ast“, sagði Matthías Kjartansson
þjá ferðaskrifstofunni Úrvali um
þá ráðstöfun að láta prenta stað-
festingareyðublöð við þátttöku í
Reykjavíkurmaraþoni ’86 á
ensku.
í öðru blaði var um helgina haft
eftir ónefndum aðila hjá Úrvali
að hentugra hefði verið að hafa
eyðublöðin á einu tungumáli og
hefðu þau verið höfð á ensku til
að spara prentunarkostnað.
Kjartan sagðist ekki vilja tjá sig
um þetta mál frekar. Hann vissi
ekki hver svaraði á þennan hátt,
fyrir hönd ferðaskrifstofunnar
væri þessu máli lokið og kæmi
slíkt slys ekki fyrir aftur.
IH
INNRITUN í PRÓFADEILDIR
Aðfaranám:
Jafngilt námi í 7. og 8. bekk grunnskóla (1. og 2.
bekk gagnfræðaskóla). Ætlað þeim sem ekki
hafa lokið ofangreindum eða vilja rifja upp og
hafa fengið E og F á grunnskólaprófi.
Fornám:
Jafngilt grunnskólaprófi og foráfanga á fram-
haldsskólastigi ætlað fullorðnum sem ekki hafa
lokið gagnfræðaprófi og unglingum sem ekki
hafa náð tilskildum árangri á grunnskólaprófi
(fengið eink. D).
Forskóli sjúkraliða
eða Heilsugæslubraut
undirbúningur fyrir Sjúkraliðaskóla íslands.
Viðskiptabraut
/ hagnýt verslunar- og skrifstofustörf
Framhaldsskólastig.
Nám í prófadeild er allt frá 1 önn í 4 annir, hver
önn er 13 vikur og er kennt 4 kvöld í viku.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Lauga-
lækjarskóla.
Kennslugjald fer eftir fjölda námsgreina sem
nemandi stundar. Hver mánuður greiðist fyrir-
fram.
Kennsla hefst 15. september.
INNRITUN FER FRAM í MIÐBÆJARSKÓLAN-
UM, Fríkirkjuvegi 1, 28.8. og 1.9. kl. 17.20.
Sími 14106 og 12992.
Jarðskjálftinn
Almannavamir í viðbragðsstöðu
Stjórnstöð Almannavarna var opnuð ífyrrinótt vegna jarðskjálftanna
Hjá Almennavörnum ríkisins er
til fullkomin áætlun um að-
gerðir ef mikla og alvarlega jarð-
skjálfta gerir á Suðurlandi. í
jarðskjálftahrinunni í fyrrinótt
var talin ástæða til þess að vakt-
maður opnaði stjórnstöð, væri
svona í startholunum ef til tíðinda
drægi, sagði Guðjón Petersen
I' nýlegri skýrslu þar sem m.a. er
ijallað um húsnæðisþörf og
framkvæmdir Háskólans, kemur
fram að starfsemi skólans dreifist
nú á 50 km2 svæði og er þá Akur-
eyri og heilbrigðisstofnunum
annars staðar á landinu sleppt.
Háskólinn notar um 30.000 m2
húsrýmis og eru þar af 24.000m2
eigið húsnæði. Húsin eru dreifð
víða um bæinn, eigið húsnæði er
á 17 stöðum og leiguhúsnæði á 12
stöðum.
Breskt staðalrými, sem ekki
þykir með stórveldissniði, einsog
það er orðað í skýrslunni, fyrir
starfsemi af því tagi sem fram fer í
Háskólanum er áætlað 12 m2 á
hvern stúdent, en er 7,2 m2 í Há-
skóla íslands. Þá segir í skýrsl-
unni: „Jafnvel þó tekið sé tillit til
hinnar miklu lausamennsku í
framkvæmdastjóri Almanna-
varna í gær.
Guðjón sagði að ef miklir jarð-
skjálftar yrðu færi í gang svokall-
að könnunarkerfi, sem er heilt
net af talstöðvum, sem vaktað er
afíbúumásvæðinu. Þessarstöðv-
ar eru óháðar því hvort rafmagn
fer af eða ekki, þær hafa sérstak-
stundakennslu og þess að ekki er
kennt til doktorsprófs er húsnæði
Háskólans of lítið, oft óhentugt
og dreift alltof víða um bæinn.
Þetta spillir kennslu og námi og
er til trafala fyrir stjórnun, rann-
sóknir og nýsköpun."
Nefndin gerir því grein fyrir
nýbyggingaráformum Háskólans
á næstu árum og eru það átta
byggingar sem saman lagt eru
10700 m2.
Áætlun nefndarinnar nær yfir
tímabilið 1986-1987 og tekið er
fram að þessar áætlanir séu ekki
tæmandi upptalning. Fjárhags-
legt bolmagn leyfir ekki meira en
þær byggingar sem hafin er
hönnun; Náttúrufræðahús,
Norðurkjarni byggingar 7 á
Landspítalalóð og þriðji áfangi
húss fyrir Lyfjafræði lyfsala. -vd
ar rafhlöður. Þá er gert ráð fyrir
því að senda flugvélar yfir svæðið
og talstöðvarbfla af stað með
björgunarsveitum, þangað sem
þörfin er talin brýnust.
Guðjón sagði að Almanna-
varnir hefðu ekki gert annað að
þessu sinni en að opna stjórn-
stöðina og vera á verði. -S.dór
Ríkisskuldabréf
VSI fagnar
Vilja draga úr
ríkisskuldum
Á fundi sínum í gær samþykkti
framkvæmdastjórn VSÍ ályktun
þar sem fagnað er „því skrefi í átt
til almennrar vaxtalækkunar sem
felst í ákvörðun fjármálaráðu-
neytisins um lækkun vaxta á rík-
isskuldabréfum“.
í ályktuninni er talið óhjá-
kvæmilegt að hliðstæðir vextir
bankastofnana lækki, svo og vex-
tir á skuldabréfamarkaði. Sér-
staklega er bent á lán banka til
atvinnurekstrar, þar sem ávöxt-
unarkrafa banka hafi keyrt um
þverbak.
VSÍ-stjórnin telur „æskilegt að
raunvextir fari lækkandi, en fors-
enda þess er sú að jafnvægi ríki á
lánamarkaði. Til þess að svo
megi verða er nauðsynlegt að
dregið verði úr skuldasöfnum rík-
issjóðs, þannig að fjárlög og
stefna í peningamálum fái sam-
rýmst yfirlýstum markmiðum um
lækkandi raunvexti og hjaðnandi
verðbólgu.“
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. ágúst 1986
Háskólinn
Húsnæði of lítið
Nefnd menntamálaráðherra: Spillir kennslu
og námi og er til trafala fyrir stjórnun,
rannsóknir og nýsköpun