Þjóðviljinn - 27.08.1986, Qupperneq 16
möbhuinn MttnrjnrvMin
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Miðvikudagur 27. ágúst 1986 192. tölublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Nesradíó
Sambandslaust í 4 tíma
Ekkertsamband við Neskaupstað ígœrmorgun. Reynir Sigurþórsson umdœmisstjóri: Mannlegmistök.
Ekki látið vita fyrr en ígœrmorgun. Enginn á vaktíNesradíói og tilkynningarskyldan óvirk.
Hannes Hafsteinforstjóri SVFÍ: Höfum varað viðþessu
að voru mannleg mistök sem
ollu því að enginn vissi af því
að sambandslaust var við Nes-
kaupstað í nótt fyrr en 7.30 í
morgun“ sagði Reynir Sigurþórs-
son umdæmisstjóri Pósts og síma
á Neskaupstað í sambandi við
blaðið í gær, en þar var síma- og
fjarskiptasambandslaust við
Reykjavík frá klukkan 4.30 í nótt
til klukkan rúmlega 9.
Það var jarðýta sem sleit í
sundur símastrenginn í Fagradal
og að sögn Reynis tilkynnti sá að-
ili í Gufunesi, sem af þessu vissi,
ekki atburðinn til réttra aðila
þannig að enginn vissi af sam-
bandsleysinu fyrr en 7.30 í gær-
morgun. Enginn var á vakt í Nes-
radíói og þar af leiðandi gátu skip
ekki tilkynnt sig fyrr en klukkan 8
þegar loftskeytamaður kom á
vakt.
„Það er rétt að enginn var á
bakvakt“ sagði Reynir, „þetta
ástand sem skapast hefur vegna
mannaflaskorts er mjög slæmt.
Fjarstýringin við Gufunes að
nóttu til er eingöngu höfð vegna
þessa neyðarástands, og ef það
væri ekki þyrftum við að loka
stöðinni. Við höfum treyst á að
geta skipt á milli norður- og suð-
urleiðar ef samband slitnar en hér
er það mannlega hliðin sem
bregst, ekki sú tæknilega."
Þetta er í annað sinn sem sam-
band slitnar við Neskaupstað síð-
an fjarstýring á loftskeytasam-
bandi hófst við Reykjavík í byrj-
un mánaðarins og sagði Örn
Sœmundsson loftskeytamaður í
Nesradíói að ef eitthvað hefði
borið útaf á hafi úti þá hefði ekki
verið hægt að ná til lands. „Menn
hafa getað meldað sig inn síðan 8
í morgun og látið vita af því að
þeir hafi ekki náð í nótt“ sagði
Örn, „þetta getur ekki gengið
svona lengur, það hefur þegar
sýnt sig.“
„Við höfum varað við þessu og
ef eitthvað alvarlegt hefði komið
fyrir hefði verið mjög erfitt að
koma boðum til fólks á Neskaup-
stað til björgunaraðgerða" sagði
Hannes Hafstein forstjóri Slysa-
varnafélags íslands og yfirmaður
Tilkynningaskyldunnar í samtali
við blaðið. „Ef það á að fjarstýra
stöðinni áfram þá verður að
tryggja að það sé öruggt!“
-vd
Vaxtamálin
Samkomulag
náðist í gær
I gær náðist samkomulag milli
lífeyrissjóðanna og fjármála-
ráðuneytisins um að grciddir
skuli 6,5% vextir af þeim
skuldabréfum sem lífeyrissjóð-
irnir kaupa af Húsnæðisstofnun á
þessu ári. Samningum um fram-
haldið er frestað fram í septemb-
er.
Lífeyrissjóðirnir geta valið um
tvenns konar skuldabréf. Annars
vegar bréf með 6,5% vöxtum all-
an lánstímann, en hins vegar bréf
með heimildarákvæði um upp-
sögn og endurskoðun á vaxta-
kjörum eftir þrjú ár og síðan á
þriggja ára fresti. Þá geta sjóðirn-
ir valið um mismunandi lánstíma,
15, 20 eða 25 ár, og einn eða tvo
gjalddaga á ári.
í ákvæðinu um vaxtaendur-
skoðun segir að náist ekki sam-
komulag innan 30 daga skuli
gilda sömu vaxtakjör og ákveðin
eru í nýjum skuldabréfum sem
lífeyrissjóðirnir kaupa af hús-
næðisstofnun á þeim tíma.
- S.dór/-gg.
„Kvennahreyfingin á Islandi hefur vakið mjög mikla athygli í Bandaríkjun-
um fyrir allsherjarkvennaverkföllin tvö á kvennaáratugi Sameinuðu þjóðanna.
Þess vegna ákváðum við að koma til íslands og kynna okkur störf kvenna-
hreyfingarinnar hér“, sögðu þessir fulltrúa NOW, National organisation for
women, sem eru hér í stuttri heimsókn. Fulltrúarnir halda hér á fánum hreyfing-
arinnar í New York fylki og Massachuttes, en kvenréttindasamtökin NOW eru
meðal stærstu kvenréttindasamtaka í Bandaríkjunum og teygja anga sína til all
flestra fylkja landsins.
Sjá bls. 14.
s
Arnessýsla
HöimuTegir
vegir
Geysileg óánægja í Biskupstungum með
ástand vega
jóðvegir í uppsveitum Árnes-
sýslu hafa verið með eindæm-
um vondir í sumar, einkum í
Biskupstungum, og er nú svo
komið að heimamenn eru farnir
að ræða þann möguleika að loka
þeim í mótmælaskyni. Geysileg
óánægja ríkir á svæðinu með
ástand veganna.
„Þessum vegum hefur verið
allt of lítið sinnt í sumar og það er
orðið mjög brýnt að fá ofaníburð
í þá. Fólk kvartar mjög undan
þessu ástandi“, sagði Már Sig-
urðsson í Haukadal í samtali við
blaðið í gær. Fleiri viðmælendur
blaðsins á svæðinu tóku í sama
streng og sögðu ástandið hörmu-
legt. „Þessir vegir eru varla meira
en jeppafærir", sagði einn við-
mælenda blaðsins.
„Auðvitað er þetta ófremdará-
stand og eðlilegt að fólk kvarti
undan þessu“, sagði Steingrímur
Ingvarsson umdæmisverkfræð-
ingur vegagerðarinnar á Selfossi í
gær. Aðspurður um hvað gert
yrði til þess að bæta ástand veg-
anna, sagði hann ekki von á
neinu stórátaki, en unnið yrði að
því hægt og bítandi að bæta úr
þessu. „Umferð um þessa malar-
vegi er mikil og þeir hafa farið illa
á því, en það er rétt að viðhald
hefur ekki verið nægjanlega
mikið. Vitaskuld þarf að koma
bundið slitlag á þessa vegi og það
hefur verið gert talsvert í því, t.d.
í Grímsnesinu", sagði Steingrím-
ur. - gg-
Suðurland
Kippimir urðu tíu
Upptök jarðskjálftanna á mörkum Holtahrepps og
Landmannasveitar. Harðastiskjálftinn mœldist3,9stigáRichter
r
Amæla jarðskjálftadeildar
Veðurstofunnar mældust 6
kippir en þeir munu alls hafa ver-
ið 10 á Suðurlandi frá því kl. 1 til
6.30 í fyrrinótt. Þeir hörðustu
voru 3,2 til 3,9 stig á Richter.
Upptök skjálftanna voru á mörk-
um Holtahrepps og Landssveitar,
sagði Barði Þorkelsson á jarð-
skjálftadeild Veðurstofu íslands í
gær.
Barði sagði að þessi hrina væri
ekki sambærileg við þá sem kom
1978 en þá mældust tugir skjálfta
á svæðinu.
Svo einkennilega vildi til að
þessi hrina kom uppá dag 90
árum eftir að jarðskjálftarnir
miklu urðu á Suðurlandi, en það
eru einhverjir mestu jarðskjálftar
sem komið hafa hér á landi og
tjón varð mikið.
Víða á Suðurlandi hrökk fólk
uppúr svefni í fyrrinótt þegar
hörðustu kippirnir komu og á
Hellu duttu hlutir niður úr hill-
um. „Ég held að fólk hér um slóð-
ir sé orðið svo vant þessu að það
kippir sér ekki mikið upp við
þetta. t það minnsta urðum við
ekki varir við neinn ótta og engir
leituðu til okkar", sagði Sveinn
ísleifsson lögregluvarðstjóri á
Hvolsvelli í gær.
Sveinn sagði að þegar mest
gekk á 1978 hefði ótta orðið vart
hjá fólki, ekki kannski síst fyrir
það að fjölmiðlar gerðu mikið úr
málinu.
„Hitt er annað að þótt fólk hafi
tekið þessu með ró hér um slóðir
þá er það sér meðvitað um að
mikil tíðindi geta gerst hér, menn
gleyma þessu aldrei alveg“, sagði
Sveinn. - S.dór.
Borgarráð
Gata fyrir vínbændur
Akreinfrá Reykjanesbraut að Sprengisandi, gegn
mati Umferðarnefndar
Á borgarráðsfundi í gær sam-
þykkti meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins, auk Bjarna P. Magnús-
sonar fulltrúa Alþýðuflokksins
og annars fulltrúa minnihlutans í
borgarráði, tillögu þess efnis að
opnuð verði akrein frá Reykja-
nesbraut að veitingastaðnum
Sprengisandi.
Sigurjón Pétursson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í borgarráði
greiddi atkvæði gegn tillögunni
og segir í bókun sem hann lét gera
að aðgerðin sé í andstöðu við mat
Umferðarnefndar og helstu um-
ferðarsérsfræðinga borgarinnar
og þjóni þeim tilgangi einum að
styrkja fjárhag eigenda veitinga-
hússins.
-K.Ól.