Þjóðviljinn - 31.08.1986, Qupperneq 2
FLOSI
•V
af stystu leiðinni
Á löngum ferli mínum sem rithöfundur, skáld
og (e.t.v. ööru fremur) dálkahöfundur, hef ég
löngum (bæöi í Ijóöum og lausu máli) gert mér
(líkt og Víkverji Morgunblaösins) far um að
drepa niður þar sem æðasláttur þjóölífsins er
örastur, kanna hvað efst er á baugi hverju sinni,
vera virkur í þjóðmálaumræðu líðandi stundar,
hlusta á meðborgara mína bæði beint og af
bandi og (e.t.v. öðru fremur) gaumgæfa dag-
blöðin sem endurspegla gleði og sorg þjóðar-
innar, lukku og lánleysi.
Á hverjum morgni opnast fyrir manni óravídd-
ir nýrra sanninda í dagblöðunum, hulunni er
bókstaflega svipt af leyndardómum sem hafa
blundað í undirmeðvitundinni, en blasa svo
skyndilega við manni á þrykki í allri sinni dýrð.
Það er hlutverk okkar, sem höfum gengið
listagyðjunni á hönd og færum hugsun í letur að
varpa nýju Ijósi á gamla fleti og vekja þjóðina til
meðvitundar um einstaka þætti samtíðarinnar.
En umfram allt ber okkur að halda vökunni.
Þetta geri ég með því að lesa Víkverja á hverjum
morgni og tilefni framangreindra hugleiðinga er
upphaf fróðlegrar greinar, sem þar birtist á mið-
vikudaginn var:
Víkverji skrifar:
Margir þeir sem leið eiga frá höfuðborgarsvæð-
inu í Borgarfjarðardali aka gjarnan um Dragháls
og Hestháls til þess að stytta sér leið. Þótt vegur-
inn yfir þessa hálsa sé sjaldnast góður, en hefur
að vísu batnað mikið seinni árin, sparast töluverð-
ur tími við það að aka þennan veg í stað þess að
fara fyrir Hafnarfjall.
Og ég hugsa sem svo:
- Þá veit maður það.
Síðan leiði ég hugann að því, hvort hér hafi
ekki verið lagður grunnur að nýrri ritsmíð eftir
sjálfan mig, byggður á athugun Víkverja, drög
að Vikuskammti með hugleiðingum um það
hvort sé betri krókur eða kelda, með viðeigandi
biblíutilvitnunum einsog tildæmis úr síðara al-
menna bréfi Péturs postula, öðrum kapítula 15.
versi þar sem segir:
- Þeir hafa yfirgefið réttan veg og ratað í villu,
þar sem þeir hafa fylgt vegi Bíleams sonar Béors,
sem elskaði ranglætislaun, en hann varð að sæta
ávítun fyrir glæp sinn. Mállaus eykurinn talaði
manna-máli og aftraði fásinnu spámannsins.
En við nánari umhugsun kemst ég að þeirri
niðurstöðu að Víkverji hafi gert efninu tæmandi
skil og ef til vill sé réttara að helga þennan
Vikuskammt því sem er enn ofar á baugi og
heyrir þó undir samgöngumál, semsagt stór-
máli málanna, hvort, hvenær, hvernig og hvers-
vegna börn dreifbýlinga eigi að ganga í skóla og
fara þangað gangandi eða í strætó á kostnað
almennings í landinu.
Þetta er semsagt mesta stórmálið í dag.
Harðvítugar deilur hafa spunnist um skólaakst-
ur í dreifbýlinu í fjölmiðlum og á málþingum og
sjálf ríkisstjórnin riðar til falls en Sjálfstæðis-
flokkurinn er við það að klofna, þar sem Morg-
unblaðsarmurinn vill gefa sveitamönnum í
strætó fyrir krakkana, en Sverrir heldur því víst
fram að dreifbýlingar ættu að geta komið
krökkunum sínum sjálfir í skólann og ef til vill
með því að fara að borga tekjuskatt einsog aðrir
landsmenn.
Ég hef að undanförnu verið að undirbúa hnit-
miðaða grein um þetta stórmál, hef viðað að
mér efni, safnað gögnum, rætt við málsmetandi
menn og reynt að mynda mér skoðun á málinu
með því að fara að hafa vit á því.
í dag hafa nefnilega allir skoðun á öllu, af því
allir hafa svo mikið vit á öllu, og auðvitað er ég
einn í hópnum.
Þá er frá því að segja að ég reyki stundum
vindla, nánar tiltekið London Docks, sem hvergi
fást í heiminum nema á íslandi. Nú spyr víst
einhver: Hvað kemur það málinu við?, en þá er
því til að svara að ég skrifa jafnan athugasemdir
og gullkorn innaná vindlapakkann og tek hann
svo fram þegar komið er að því að ég þurfi að
fara að setja saman Vikuskammt handa ís-
lensku þjóðinni, moða semsagt úr því sem skrá-
sett hefur verið í vindlapakkann yfir vikuna.
Nema þegar ég ætla að grípa til þessarar
minnar minnisbókar, finn ég vindlapakkann
hvergi. Og ég kalla blíðlega til konu minnar:
- Hvurn djöfulinn hefur þú nú gert við tóma
vindlapakkann, sem lá hérna á borðinu hjá
mér?
- Ætli það hafi bara einhverjum fundist tíma-
bært að þrífa undan þér ruslið og óreiðuna,
svarar hún um hæl.
Ég gæti þess vandlega að halda sálarrónni
og segi með nokkrum þunga:
- Á þennan vindlapakka var skráð allt það
sem mér hefur dottið í hug þessa vikuna.
- Nú, þá gerir víst ekki mikið til þó hann hafi
lent í öskutunnunni, svarar hún.
Við þetta þarf ég að búa.
Svo ég fer útí öskutunnu og hef æðislega leit
að hinum andlega fjársjóði í sorpinu og viti
menn. Ég finn pakkann. Og ég hugsa til Árna
Magnússonar og skinnhandritanna þegar ég
opna pakkann og dreg út innra pappahulstrið.
Með erfiðismunum get ég ráðið í það sem á
pakkann er skráð:
„Þegar gríski heimspekingurinn Diogenes
kom að tré sem tvær konur höfðu hengt sig í,
varð honum á orði:
- Ó! hvílík gæfa væri það ef öll tré bæru svo
ríkulegan ávöxt.“
Annað stóð ekki á pakkanum.
Og ég hugsaði sem svo:
- Það er áreiðanlega rétt sem Víkverji segir.
Það er styttra að fara um Dragháls og Hestháls
helduren fyrir Hafnarfjall.
Pétur Pótursson.
Pétursmálið
Pétursmáliö er nýjasta kæru-
málið í knattspyrnunni og í
framhaldi af því og öðrum
áþekkum síðustu ár verða
vafalítið margir lögfræðingar
kjörnir í stjórnir knattspyrnu-
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN
deildanna víðsvegar um land
fyrir næsta keppnistímabil.
Pétur Pétursson er í aðalhlut-
verki Pétursmálsins og mætti
fyrr í vikunni á sameiginlegum
blaðamannafundi Fram og ÍA
fyrir bikarúrslitaleikinn sem
fram fer í dag. Þar barst talið
að Pétursmálinu, sem von
var, og þá spurði Pétur Fram-
ara skyndilega: „Verð ég
kærður ef við vinnum?".
Spurningin gerði mikla lukku
en var ekki svarað... ■
Davíð gengur
á vatninu
Fyrir skömmu áttu þeir Páll
Pétursson og Steingrímur J.
Sigfússon alþingismenn leið
meðfram Tjörninni í Reykja-
vík. Sáu þeir þá hvar borgar-
starfsmenn voru við einhverj-
ar mælingar út í Tjörninni.
Veltu þeir Páll og Steingrímur
því fyrir sér, hvað þeir gætui
verið að mæla. Allt í einu þótt-
ist Steingrímur hafa fundið
lausnina: „Þeir eru að mæla
fyrir styttu af Davíð, sem sýnir
hann ganga á vatninu." ■
Nú ertu kátur...
Enn eru íslendingar óhræddir
við að yrkja á kóngafólk. Þeg-
ar Andrew Bretaprins
kvæntist um daginn Söru
Ferguson orti norðlenskur
bóndi, Andrés að nafni, þess-
ar heillavísur til kóngssonar-
ins í London:
Fögur og björt er framtíðin
fögnuður ríkir og það er von.
Nú ertu kátur nafni minn
nú ertu kominn á Ferguson.
Er rennur á nótt í ríki þínu
hjá rauðhœrðu Söru þú háttar
vel.
Fyrr má nú gera að gamni sínu
en gifta sig svona dráttarvél. ■
Framsóknar-
börn
Ungir Framsóknarmenn láta
mikið þessa dagana. Þeir
heimta að þingflokkurinn
verði yngdur upp en vilja þó
ekki sparka mönnum. Þeir eru
svo sem ekki þeir fyrstu sem
tala um að yngja fólk upp og í
tilefni þessa alls varð þessi
vísa til á ritstjórn Þjóðviljans:
Látið mig vita stund og stað
stekk ég þangað huga glöðum,
er Framsóknarbörnin fara að
fitla við Pál á Höllustöðum. ■
Ingólfur og Elín
Sannfróðir menn segja að
Ingólfur Margeirsson ritstjóri
HP sé nú að Ijúka við bók sem
út á að koma um jól. Bókin
mun vera ævisaaa Elínar
Þórarinsdóttur Arnasonar
prests Þórarinssonar sem um
var rituð ein af merkari ævi-
sögum íslenskum, skráð af
Þórbergi Þórðarsyni. Elín mun
hafa frá mörgu merku að
segja. Meðal annars bjó hún
við kraftamanninn Úrsus á
tímabili, þann sem um árið
jafnhattaði Mömmugöggu að
áeggjan Þórbergs. ■
Skák!
hvað er það?
í því mikla skáklandi íslandi,
hefur verið fylgst mjög vel
með heimsmeistaraeinvíginu
í skák, en fyrrihluta þess lauk í
London sl. miðvikudag. Blöð-
in hafa gert einvíginu mjög
góð skil, útvarpið hefur staðið
sig ágætlega en sjónvarpið
varla sagt frá því. Það er
fullkomið virðingaleysi við
glápendur hvernig sjónvarpið
hefur komið fram. Og þeim
mun klaufalegra er þetta allt