Þjóðviljinn - 31.08.1986, Blaðsíða 18
Nr. 532
KROSSGÁTA
1 Z 3 (p <v 7- VL— ? 7- Z V
°) 10 // iZ é, 13 )S )D le W IS' H? 10 17
)7 12 12 TT /9 20 7- 7- )7 )2 V /5 )D F"
20 T/ 21 1<7 /9 3 U 10 21 D 17 /S (o V
n J9 23 7- b c? /2 b )S 27 V \°i
liT n 8 27 s? 7- 8 V )S ttT 17 7- *
23 25' S? 21 7- (? )<? /9 ÚP )S 23 zs 21
/fT (p it 6 s? 9 27 1$ 21 V )5~ 7- )Z 8
)S V 20 /0 2/ /9 21 27 27 (? 7 12 20
1 12 í? /9 17- 6? 0 )Z 7- /S V 0 27
28 29 )<? 17- n 12 7- 8 7 30 L. 2J
31 10 d /3 3V )S 7- (0 )2 b 1D 2)
!2 n b 10 7- V 20 / 0 2fÐ <V íc w Up 27
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
SKAK
Tveir baráttujaxlar
í undanfurandi þáttum liefurver-
ið litið til haka til nokkuria fyrri
viðureigna um heimsmeistaratit-
ilinn og nú er komið að fyrra ein.vígi
LaskersogSteinitzárið 1S94. Lask-
er var annálaður baráttumaður en
Steinitz var ekki síðri. Hann var
kominn undir sextugt þegar þetta
var og líkamsþrekið tekið að bila.
Yngri skákmennirnir, þar á meðal
Lasker. höföu lært af honum og
beittu í rauninni hans eigin vopnum
gegn honum. Aðstaða hans var því
að mörgu leyti erfið.
Einvígið var í jafnvægi í fyrstu.
þeir unnu til skiptis í fjórum fyrstu
skákunum og síðan komu tvö jafn-
tefli. Sjöunda skákin skipti hins
vegar sköpum. Lasker hóf ótíma-
bæra sókn en Steinitz hnekkti
henni og vann tvö peð. Lasker hélt
samt áfram að sprikla en það varð
aldrei verulega hættulegt. Undir
lokin lék Steinitz hins vegar illilega
af sér og tapaði. Þetta varð honum
svo mikið áfall að hann tapaði
næstu fjórum skákum þannig að
eftir elleftu skákir hafði Lasker sjö
vinninga en Steinitz tvo. Staðahans
var vonlaus því sá taldist sigurveg-
ari sem ynni tíu skákir. Tólfta
skákin varð jafntefli og er þá komið
að þeirri þrettándu sem er til um-
ræðu að þessu sinni.
Hvítt: Lasker
Svart: Steinitz
1. e4- e5
2. KI3 - Rc6
3. Bb5 - a6
4. Bxc6 - dxc6
5. d4 - exd4
6. I)xd4 - I)xd4
7. Kxd4 - c5
Byrjunin ersvokallað uppskipta-
afbrigði af Spænskum leik. Lasker
tefldi frægar skákir á þennan hátt
síðar á lífsleiðinni.
8. Re2 - Bd7
9. Rbc3 - 0-0-0
10. Bf4 - Bc6
11. 0-0- Rf6
12. f3 - Be7
Meginhugmynd hvíts með byrj-
uninni er að skipta upp á sem flest-
um mönnum og reyna að nýta sér í
endatafli að svartur hefur tvípeð á
c-línunni. Hvítur hefur þá góða
möguleika á að skapa sér írípeð á
kóngsvæng en svartur á miklu ör-
ðugra með að nýta sér peðin sín
drottningarmegin. Málið er hins
vegar ekki svona einfalt því svartur
fær gott spil fyrir mennina. Einn
möguleiki fyrir svart er að leika f7-
15. skipta á e- og f-peðinu og opna
þannig línur handa biskupunum.
Næstu leikir hvíts eru of hægfara.
Hann hefði nú átt að leika hrókum
JÓN
TORFASON
á d-línuna til að halda uppskiptun-
um áfram.
13. Rg3 - g6
14. Hf-el - Rd7
15. Rdl - Rb6
16. Rfl - Hd7
17. Be3 - Hh-d8
18. b3 - c4
Sjöll peðsfórn sem sundrar
drottningarvæng hvíts.
19. Bxb6 - cxb6
20. bxc4 - Bb4
#1
A I A A
iii A
±& &
§k fp m 1 m
A A & A
n
Svartur þvingar c-peðið fram til
að opna d3-reitinn handa hrókn-
um.
21. c3 - Bc5+
22. Khl - Hd3
23. Hcl - a5
24. Rd-e3 - f5
25. exf5 - gxf5
26. h3-
Peðið má ekki drepa. Ef 26. Rxf5
Hxf3 er fallegt mát eftir 27. gxf3
Bxf3. Eftir 27. Rd4 kemur Hxd4 og
eftir 27. R5-g3 kemur Hf2 og svart-
ur fær vinnandi sókn.
26. - Hg8
27. Rd5 - Bxd5
28. cxd5 - Hxd5
29. He-dl - Hxdl
30. Hxdl - f4
I endataflinu sem nú er komið
upp er biskupinn mun betri en ridd-
arinn og kemur það æ betur fram
eftir því sem á líður. Annað mikil-
vægt atriði er að svarti kóngurinn á
mun greiðari leið fram á borðið en
sá hvíti og skiptir það reyndar
sköpum í skákinni. Hér heföi hvít-
ur líklega átt að reyna 31. g4 fxg3
(fh) 32. Kg2 því þá kemst kóngur-
inn í leikinn og g-peð svarts hlyti að
falla.
31. Kh2 - He8 36. Hxel - Bxel
32. a4 - Kc7 37. Kg4 - Kc5
33. h4 - Kc6 38. Kxf4 - Kxc4
34. c4 - Bb4 39. Ke4 - ...
35. Kh3 - Hel
Hvítur lætur h-peðið til að koma
kónginum í vörnina á drottningar-
væng. Eftir 39. h5 Kd3 40. g4 b5
rennur a-peð svarts upp í borð en
biskupinn á hægt með að stöðva
peð hvíts.
39. ... - Bxh4
40. g3 - Bd8
41. Re3+ - Kb4
42. Kd3 - Kxa
43. Kc2 - Kb4
44. 14 - Kc5
45. f5 - Kd6
Svartur hefur unnið tvö peð og
hvítur er varnarlaus. Biskupinn er
firnasterkur í svona stöðum, hann
valdar svörtu peðin og heldur aftur
af peðum hvíts. Loks urðu.
46. g4-b5 51. Kb3-Be7
47. Rdl-Ke5 52. g5 - a4+
48. Rc3 - b4 53. Rxa4 - bxa4+
49. Ra4 - Kd4 54. Kxa4 - Ke5
50. Rb2 - b5 55. Kb5 - Kxf5
Hér gafst Lasker upp. Lasker
tefldi þessa byrjun aldrei framar
gegn Steinitz þótt þeir tefldu tugi
skáka eftir þetta.
Steinitz vann svo tvær skákir til
viðbótar í einvíginu en Lasker þrjár
og þar með heimsmeistaratitilinn.
En Steinitz barðist allt til loka og
„dó standandi" eins og hetjur
gerðu til forna.
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
532“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
J3 5 8 10 22 7 9 )2
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eöa lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því meö því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Hörður S. Óskarsson,
Glaðheimum 10,
Reykjavík, hlaut verð-
laun fyrir krossgátu nr.
529. Lykilorðið var
Lissabon. Hann fær
senda bókina Pedro
Paramo.
Verðlaunin fyrir kross-
gátuna þessa vikuna er
Ijóðbókin Haust í Heið-
mörk eftir Hjört Pálsson.
Útgefandi er Iðunn.
BRIDGE
Góð þátttaka
Skráning í Opna Þjóðvilja-
mótið sem spilað verður
laugardaginn 20. septemberí
Gerðubergi hefur farið mjög
vel af stað. Þegar eru yfir 30
pör skráð til leiks, en búast má
við að takmarka verði heildar-
þátttöku við 36-40 pör vegna
skorts á húsnæði. Olafur Lár-
usson annast skráningu.
Spilað verður eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, tvær umferðir og
hefst spilamennska kl. 13 á
laugardeginum, síðan matarhlé
og síðari umferðin um kvöldið.
Þátttökugjald er aðeins kr. 600
pr. spilara, en góð verðlaun eru í
boði, auk silfurstiga. Keppnis-
stjóri verður Ólafur Lárusson en
Vigfús Pálsson mun annast tölvu-
vinnslu.
Aðalfundur B.R.
Aðalfundur Bridgefélags
Reykjavíkur var haldinn sl. mið-
vikudag. Fyrir utan hefðbundin
aðalfundarstörf, ber það helst til
tíðinda að samþykkt var að fé-
lagið veitti kr. 250.000 til húsa-
kaupssjóð - Guðmundarsjóðs -,
til kaupanna á Sigtúni 9, sem
Bridgesambandið og Reykjavík-
urborg hafa nýlega ráðist í.
Sigurður B. Þorsteinsson var
endurkjörinn formaður félags-
ins, en varaformaður var kjörinn
Jón Steinar Gunnlaugsson.
Fró Bridge-
sambandi
Vestfjarða
Opna Vestfjarðamótið í tví-
menning 1986 verður spilað á
Þingeyri um næstu helgi. Skrán-
ing er þegar hafin hjá Gunnari
Jóhannessyni á Þingeyri (s: 8100
vinna og 8124 heima). Mótið er
opið öllum félögum á Vestfjarða-
svæðinu. Spilaður verður Baro-
meter með þremur spilum (eða
fjórum, fer eftir þátttöku) milli
para, samtals um 90-100 spil.
Keppnisstjóri verður Ólafur Lár-
usson frá Reykjavík.
Spilamennska hefst kl. 13 á
laugardeginum og lýkur tíman-
lega á sunnudeginum. Allar nán-
ari upplýsingar veitir Gunnar
Jóhn. á Þingeyri.
Spilarar á Vestfjörðum eru
minntir á að láta þetta Stórmót í
tvímenning ekki fara framhjá sér,
því ef að líkum lætur verða þau
ekki ýkja mörg yfir veturinn
vestra. Nv. svæðismeistarar eru
þeir Arnar Geir Hinriksson og
Einar Valur Kristjánsson ísa-
firði.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Opna mótið
á Egilsstöðum
Nú er fullbókað í opna mótið í
Valaskjálf, sem haldið verður um
næstu helgi, að undanskildum 2-3
sætum fyrir pör af höfuðborgar-
svæðinu. Áríðandi er fyrir spilara
sem hug hafa á að melda sig hið
fyrsta (Hermann sími: 41507) því
allmörg pör eru á biðlista fyrir
austan.
Mótið er 36 para „barometer",
3 spil milli para. Mótið verður
sett föstudaginn 5. sept. kl. átta
og spilað föstudagskvöld og laug-
ardag. Mótinu lýkur ca. átta á
laugardag með kvöldverði og
verðlaunaafhendingu. Flogið
verður austur föstudagsmorgun
og til baka fyrir hádegi á sunnu-
dag, þ.e. gist í tvær nætur.
BSA minnir á að skráning í
Bikarkeppnina á Austurlandi er
nú í fullum gangi. Þátttökutil-
kynningum skal komið til Pálma
Kristmannssonar, Egilsstöðum
eða Kristjáns Kristjánssonar,
Reyðarfirði.
Eins og áður hefur komið fram
er um firmakeppni að ræða, auk
hins hefðbundna útsláttar.
Skráningarfrestur er til 5. sept.
en þá mun dregið í 1. umf. Þátt-
tökugjald verður kr. 6.000 á
sveit, og verður mestum hluta
varið til endurgreiðslu ferða-
kostnaðar sveita.
Áætlað er að keppni Ijúki í
byrjun október.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. ágúst 1986