Þjóðviljinn - 31.08.1986, Qupperneq 5
Hálf ringlaður
en himinlifandi
írski þingmaðurinn Mervyn Taylor var hér á landi í síðustu viku
ásamt nokkrum starfsfélögum sínum og mökum þeirra. Þeir voru
dregnir um landið þvert og endilangt, og segir Taylor að svo til allt
hafi komið sérfeikilega á óvart
„Þettaerbúin að veraumfram
allt skemmtileg en einnig nyt-
samleg heimsókn," sagði
Mervyn Taylor við blaðamann
Þjóðviljans um upplifun sína
af sex daga heimsókn sinni til
landsins.
Taylor hér á landi í síðustu viku
ásamt írskum starfsbræðrum sín-
um af írska þinginu í boði Alþing-
is. Þingmennirnir fóru víða um
landið, Akureyri, Eyjafjörð, Mý-
vatn, Vestmannaeyjar og svo
auðvitað Gullfoss - Geysis hring-
inn ásamt heimsókn til forsetans.
Blaðamanni tókst að króa Taylor
af á síðasta degi heimsóknarinn-
ar, stuttu fyrir brottför. Taylor er
þingmaður fyrir Verkamanna-
flokkinn á írlandi (Labour
Party), einn núverandi stjórnarf-
lokkanna. Hann sagðist vera
hálfringlaður eftir öll ferðalögin
en fyrst og fremst himinlifandi.
„Ég verð að viðurkenna að ég
vissi heldur lítið um landið en það
kom mér samt feykilega á óvart.
Þið búið við geysi mikla ónýtta
möguleika, varðandi orkuna, t.d.
svo ekki sé nú minnst á náttúru-
fegurðina. Þar hafið þið geysi
mikla möguleika. Þar að auki má
gera að því skóna að þjóðirnar
geti aukið samskipti sín á milli
hvað þetta varðar, ferðamanna-
bransann. Á írlandi er einnig
mikil náttúrufegurð og mér skilst
að fslendingar sæki þegar mikið
til írlands. Svo er það líka verslun
sem má koma á milli landanna og
sú hugmynd hefur einnig komið
upp í viðræðum okkar við íslend-
inga undanfarna daga. Þetta voru
auðvitað aðeins óformlegar við-
ræður, skipti á hugmyndum en
mér sýnist á öllu að framhald
verði á þeim.“
Við snúum talinu að írlandi og
írskum málefnum. Á undanförn-
um árum hefur athygli fólks
einna helst beinst að N-lrlandi og
deilum kaþólskra og mótmæl-
enda þar. Á síðasta ári kom írska
lýðveldið hins vegar meira inn í
gang mála í norður-hlutanum en
verið hafði oft áður. Stjórn írska
lýðveldisins gerði þá samning við
bresku stjórnina um málefni N-
írlands, „Ensk-írska samning-
inn“ svonefnda. Sá samningur
veitti írska lýðveldinu rétt til að-
ildar að stjórnun N-írlands í for-
mi ráðgjafar og ráðlegginga.
Mótmælendur urðu æfir vegna
þessa samnings og hafa haft í
frammi ýmis mótmæli. „Þeir
töluðum.a. um að eftirlit á landa-
mærunum væri slakt," segir Tayl-
or. „Slíkar fullyrðingar eru hins
vegar staðhæfulausar. Hópur
mótmælenda ætlaði fyrir stuttu
að sýna þetta í verki og gerði áh-
laup yfir landamærin. Þá kom
hins vegar í ljós að lögregluyfir-
völd voru vel viðbúin, komu strax
á staðinn og héldu hópnum niðri.
Það eru hinir svonefndu unionist-
ar meðal mótmælenda sem hafa
haft uppi mestan hávaða um
bölvun þessa samkomulags. Þar
hefur presturinn Ian Paisley verið
áberandi. Hann hefur nú orðið
undir fyrir aðstoðarmanni sínum,
Robinson, sem er ekki síður
öfgasinnaður í afstöðu sinni til
kaþólskra, hvort sem þeir eru
sunnan landamæranna eða
norðan.
Ég leyfi mér hins vegar að vera
bjartsýnn fyrir hönd kaþólskra á
N-írlandi. Fyrir mér er það mikil-
vægast í Ensk-írska samningnum
að hann sýnir n-írskum kaþólikk-
um fram á að það er enn mögu-
leiki á að fara samningaleiðina og
að kaþólikkar í írska lýðveldinu
hugsa mikið til bræðra sinna í
norðri. Sjáðu til, Ensk-írski
samningurinn á eftir að sanna
sig,“ segir Taylor að lokum.
-IH
Mervyn Taylor, „írar og Islendingar gætu átt með sér mun meiri samskipti.“
Mynd. K.G.A.
Hraustleg rýmingarsala
í tilefni flutninga höfum við tekið rækilega til á bygginga-
vörulagernum. í nýju húsakynnunum á Stórhöfða bjóðum
við um þessar mundir alls konar afganga og efnisbúta,
flísar, hreinlætistæki, teppi, teppamottur o.m.fl. með
30—50% afslætti. Þú gerir ósvikin reyfarakaup á þessari
rýmingarsölu!
BYGGINGAVÖRUR
Stórhöfða, Sími 671100