Þjóðviljinn - 31.08.1986, Side 19
Um síðustu helgi fór fram í
Árbæjarskóla námskeið fyrir
leiðbeinendur í íþróttum
aldraðra, en það er haldið á
vegum Félags áhugamanna
umíþróttiraldraðra. Er
Ijósmyndara blaðsins bar að
voru aldraðir frá Kópavogi
undirjStjórn Eiísabetar
Hanriesdóttur að sýna leikfimi
af mestu leikni. Guðrún
Nielsenerformaðurfélagsins
og gaf hún okkur góðfúslega
upplýsingar um það og
námskeiðið.
„Félag áhugamanna um íþrótt-
ir aldraðra var stofnað í fyrra,
aðal hvatamenn að stofnun þess
voru íþróttakennarar sem sóttu
námskeið um þetta efni á Norð-
urlöndum. Markmið með stofn-
un félagsins voru m.a. vinna að
vellíðan aldraðra með því að
stuðla að iðkun íþrótta og sunds
og styðja í starfi að þvf að fram-
kvæmdar verði rannsóknir um
heilsufræðilegt gildi íþrótta fyrir
aldraða. Þetta námskeið er hið
fyrsta á vegum félagsins og það
sóttu 43 starfsmenn hjúkrunar-
og dvalarstaða, sjúkraþjálfarar,
félagsráðgjafar og íþróttakennar-
ar af landinu öllu. Námskeiðið
var í formi fyrirlestra og kennslu
og leiðbeinendur voru íþrótta-
...Og hægri fót upp.
Einn og tveir og hopp-a...
Fimlegur fótaburður og mætti hver sem er vera stoltur af...
íþróttir aldraóra
Léttar
sveiflur
og lipur
spor...
Komið við í Árbæjar-
skólaánámskeiði
fyrirleiðbeinendur
íþróttafyriraldraða
kennarar, sundkennarar, sjúkra-
þjálfarar, félagsráðgjafi og lækn-
ir. Reykjavíkurborg styrkti nám-
skeiðið með hentugum og vist-
legum húsakynnum og einnig
veitti heilbrigðismálaráðuneytið
styrk til þess. Þátttakendur létu í
ljós mjög mikla ánægju með
námskeiðið, en auk beinnar
fræðslu fengu þeir að kynnast
notkun hjálpartækja, sjónsnælda
o.fl. sem varðar íþróttaiðkun
aldraðra.“
- Hvernig stöndum við í dag
hvað snertir aðstöðu fyrir íþrótta-
iðkun aldraðra?
„Við stöndum illa, vægast sagt.
Þau hús sem nú eru í byggingu
fyrir aldraða gera ráð fyrir 45 fer-
metra aðstöðu til íþrótta og segir
það sig sjálft að slík skonsa dugar
skammt. Við reynum að fá að
nýta leikfimisali skóla og stofn-
ana og nú eru flest námskeið fyrir
aldraða á vegum Félagsmála-
stofnunar. Við reynum að sinna
þessu eins og hægt er en það vant-
ar fyrst og fremst starfsfólk og
aðstöðu. Við höfum t.d. verið
með námskeið í íþróttaheimilum,
í Neskirkju, Ársölum í Árbæjar-
hverfi og í Hallgrímskirkju og
stefnan er sú að halda námskeið
fyrir aldraða í öllum hverfum
borgarinnar, þar sem allir ald-
raðir sem vilja mega koma. Þetta
er þáttur sem ekkert hefur verið
sinnt, en við ætlum að vinna ötul-
lega að því að þarna verði
breyting á á næstu árum,“ sagði
Guðrún Nielsen að lokum.
HeimiliÖlBó
Það getur verið gaman að sleppa stundum
fram af sér beislinu. Hoppa og skoppa, kasta
bolta í mark, dorgafyrirvinning í
veiðipottinum eða fara í hlutaveltuna.
Allt þetta og miklu meira í SKEMMTILANDI.
Eitthvað fyrir alla. Sjáumst á sýningunni.
Laugardalshöll