Þjóðviljinn - 31.08.1986, Síða 20
■
■ I V-Þýskaland
J Margt
jBi ^ t i á samviskunni
Aési T œplega fimmtugum Þjóðverja var snúið við á landamærum Þýska- 1 lands og Tékkóslóvakíu. Hann kom akandi drukkinn á dráttarvél og ætlaði að flýja austur fyrir. Landamæraverðirnir náðu honum og snéru honum við og tók lögreglan við honum er hann kom aftur til Þýskalands. Við húsleit fundust ólögleg vopn. Hann hefur verið ákærður fyrir ölvunarakstur, að keyra próflaus, að hafa gleymt að skrásetja dráttar- vélina, fara ólöglega yfir landamœrin, hafa ífórum sínum vopn án leyfis og einnig er hann grunaður u/n veiðiþjófnað.
H—T k-ilPy iHHI
Dylan
í kvikmynd
Bob Dylan hefur fallist á að
leika í kvikmynd, en 13 ár eru
síðan hann lék í myndinni Pat
Garret and Billy the Kid. Á næsta
ári verður hafist handa við töku
myndarinnar, sem nefnist Hearts
of Fire, en þar mun Dylan leika
rokkstjörnu. Hann mun einnig
semja fjögur lög fyrir kvikmynd-
ina.
Það er liðin tíð að Castro geti slappað af með því að kveikja sér í stórsígar.
Kúba
Castro stenst
freistingarnar
Nú hefur Fidel Castro, forseti Kúbu, haldið tóbaksbindindi sitt í heilt
ár. Einsog lesendur Þjóðviljans rekurminni til voru Havannavindl-
ar eitt af einkennismerkjum Castros.
26. ágúst kom hann fram í beinni útsendingu í sjónvarpinu frá
opnunarathöfn á barnasjúkrahúsi. íútsendingunnilýstihannþvíyfir að
hann hefði ekki snert vindla í nákvœmlega eitt ár og hefði aldrei liðið
betur en nú. „Nei, ég saktia vindlanna ekkert. “
Castro segist hafa hœtt að reykja til að vera þjóð sinni gott fordœmi,
en Kúbanir eru meðal mestu reykingaþjóða í heimi.
Alheimurinn
20 biljón ára
gömul merki
Breskir stjarnfrœðingar segjast hafa fundið radíómerki sem koma að
líkindum frá stjörnu, sem er fjarlœgari jörðu en áður var vitað urn
stjörnur. Hafa merkin verið um 20 biljónir ára á leið sinni til jarðar.
Vísindamennirnir álíta að hér sé um dulstirni að rœða sem hafi
myndast um biljón árum eftir að alheimurinn varð til. Erþessi uppgötv-
un talin bœta heilmiklu við þekkingu manna á hvenær alheimurinn
skapaðist.
Indland
Heimsmet
f véiritun
Alltaf er verið að setja heimsmet. Nú hefur 44ra ára gamull Indverji
sett heimsmet í vélritun. Hann hamaðist á lyklaborðinu í fimm
sólarhringa samfellt.
Shambhoo Anbhawane vélritaði stanslaust í 123 klukkutíma og sló
þar með gamla metið sem var 120 tímar og 15 mínútur, en það setti
blindur skrifstofumaður í Englandi Mike Howell árið 1969.
Indverjinn notaði vítamíntöflur og verkjatöflur á meðan á pikkinu
stóð. Fyrstu tímana vélritaði hann um 60 orð á mínútu en undir lokin
voru orðin ekki nema um 15 á mínútu. Meðaltalið var24 orð á mínútu.
A klukkutíma fresti fékk hann fimm mínútna hvíld.
England
Döðlutré
til Arabíu
r
Iframhaldi af skógrœktarumrœðu Þjóðviljans er rétt að benda á nýja
útflutningsgrein hjá Bretum. Þeir hafa nú gert samning við Arabarík-
in um að selja þeim döðlutré. Hafa þegar verið send um þúsund tréfrá
Englandi til írans og fyrir liggja pantanirfrá Kúwait, Saudi-Arabíu og
Sameinuðu Arabaríkjunum. Er búist við heilmiklum hagnaði af þess-
um útflutningi á næstu árum eða um 150 miljónum dollara.
TILKYNNING
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Vegna yfirstandandi deilu Tannlæknafélags íslands og Tryggingastofhunar
ríkisins um gjaldskrá tannlækna skal þeim aðilum, sem rétt eiga til endur-
greiðslu á tannkostnaði frá sjúkrasamlagi eða tryggingastofhun skv. lögum um
almannatryggingar bent á eftirfarandi:
Þar til samningar hafa tekist milli Tannlæknafél ags íslands og
Tryggingastofnunar ríkisins urn gjaldskrá fyrir tannlæknaþjón-
ustu eru skilyrði fyrir endurgreiðslu skv. 44. gr. almannatrygg-
inga þessi:
1) að reikningur sé skv. gjaldskrá heilbrigðisráðherra frá 8.
ágúst sl.
2) að reikningur sé sundurliðaður á eyðublöðum Trygginga-
stofnunar ríkisins, smbr. mynd.
Til að tryggja sér endurgreiðslu skal sjúklingum tannlækna ein-
dregið bent á að ganga úr skugga um að tannlæknir gefi út
reikning sinn á þennan hátt.
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. ágúst 1986