Þjóðviljinn - 02.09.1986, Blaðsíða 15
FRETTIR
Vöruskiptajöfnudurinn
Úr jámum í hagnað
Vöruskiptajöfnuður fyrstu 7mánuði ársins hagstœður um 3232 miljónir króna.
A sama tíma í fyrra í járnum
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu
7 mánuði ársins er hagstæður
um 3232 miljónir króna, en á
sama tíma í fyrra var hann í járn-
um. Á þessum mánuðum var
verðmæti vöruútflutnings 13%
meira á föstu gengi en á sama tíma
og í fyrra og verðmæti vöruinnf-
lutnings 1% minna en á sama
tíma í fyrra. í júlímánuði einum
sér var vöruskiptajöfnuðurinn
hinsvegar hagstæðari í fyrra, 530
miljónir ef hann er reiknaður á
sama gengi og í ár, er hann var
415 milónir.
Þessar upplýsingar koma fram
í fréttatilkynningu frá Hagstofu
íslands en þar segir jafnframt að
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða sé 14% meira en á sama
tíma í fyrra og að þær séu röskir
þrír fjórðu hlutar alls útflutnings.
Verðmæti sjávarafurða hefur
hækkað verulega á þessu tímabili
og skýrir það að einhverju leyti
þesa aukningu. Útflutningur á áli
var 10% meiri en í fyrra og út-
flutningur á kísiljárni var 27%
meiri en á sama tíma í fyrra
reiknað á föstu gengi. Útflutning-
ur annarrar vöru var loks 3%
meiri en í fyrra.
Lækkun á verðmæti vöruinn-
flutnings má að miklu leyti skýra
með því að rekstrarvöruinnflutn-
ingur álverksmiðjunnar var mun
minni en í fyrra á sama tíma.
Jafnframt var verðmæti innflutn-
ings til stóriðju, innflutnings
skipa og flugvéla svo og olíuinn-
flutnings, sem kemur á skýrslur
fyrstu 7 mánuði ársins, samtals
32% minna en í fyrra, reiknað á
föstu gengi.
Þessir innflutningsliðir eru
jafnan breytilegir frá einu ári til
annars, en séu þeir frátaldir
reynist annar innflutningur
(82%) af heildinni) hafa orðið
um 10% meiri en í fyrra, reiknað
á föstu gengi. _ K.Ól.
Hafskipsmálið
Rannsóknin
aftur í gang
Pórir Oddsson
rannsóknar-
lögreglustjóri: Stefnum
að því að skila málinu af
okkur í þessum mánuði
Rannsókn Hafskipsmálsins
hefur legið niðri nú um nokkurra
vikna skeið vegna sumarleyfa. í
gær voru hinsvegar allir sem að
rannsókninni starfa komnir úr
sumarleyfum og rannsóknin því
hafin aftur.
Þórir Oddsson settur
rannsóknarlögreglustjóri sagði í
gær að stefnt væri að því að rann-
sókn málsins lyki í þessum mán-
uði og að málið yrði þá sent til
ríkissaksóknara.
- S.dór
Þingkassarnir
Arkitektar
funda
Boðað hefur verið til fundar í
Arkitektafélagi íslands í kvöld, og
er fundarcfnið „umræður um
samkeppnismál og störf dóm-
nefnda“. Fundurinn er haldinn í
kjölfar mikillar umræðu og óá-
nægju meðal arkitekta vegna
samkeppninnar um nýtt þinghús
og þeirrar dómnefndar sem um
þær tillögur dæmdi.
Þess má geta að fyrir nokkrum
dögum neitaði formaður AÍ því
ið til stæði að boða fund í fé-
aginu um þessi mál. _ m
Emerlía Samúelsdóttir var fyrsti vinningshafinní Hlaðvarpahappdrættinu, „Lukkupottinum" - en í
því er dregið þegar hverjir þúsund miðar hafa selst. Fyrstu þúsund miðarnir seldust á viku. Emilía vann árgerð 1987 af
Nissan Sunny Coupé, og næst er í boði „Wagon“-gerð af sama bíl. Það er Styrktarsjóður Vesturgötu 3 sem stendur fyrir
happdrættinu, og renna 40% ágóðans í styrktarsjóð fyrir listamenn en 60% í viðhald og rekstur Kvennahússins. Á
myndinni eru Súsanna Svavarsdóttir og Guðrún Jónsdóttir að afhenda Emiliu vinninginn. (MyndrKGA)
Herstöðvaandstœðingar
Freigáta í til-
efni friðarárs
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmœla her-
skipaheimsókn en fagnaþvíað andstaða al-
mennings hefur áhrif á hernaðartilburði
Bandaríkjahers
Við heimsókn bandarísku
freigátunnar USS Doyle í fyrri
viku komu herstöðvaandstæðing-
ar saman til mótmælastöðu við
Sundahöfn og dreifðu þar dreifi-
bréfi. Herstöðvaandstæðingar
hugðust daginn eftir þiggja boð
hernaðaryfirvalda til almennings
um skoðunarferð í skipið, en þá
brá svo við að freigátan lagði frá
landi og hefur ekki sést síðan.
Starfsmaður svokallaðrar varn-
armálarskrifstofu í utanríkis-
ráðuneytinu gat engar skýringar
gefið á brottför skipsins sama dag
ög teyma átti íslendinga um borð,
en líkum var leitt að því meðal
verkamanna á Sundahöfn að for-
ingjar sjóliða hefðu óttast heim-
sókn herstöðvaandstæðinga um
borð.
Dreifibréf samtakanna við her-
skipsheimsóknina hljóðaði svo:
Bandaríska freigátan USS-
Doyle kemur hér við á leið á her-
æfingar Nató á Norður-
Atlantshafi. Heræfingar þessar,
sem nefnast Northern Wedding,
eru liður í þeirri stefnu Banda-
ríkjahers og Nató, að færa hina
hugsuðu víglínu á Norður-
Atlantshafi norðar og stórauka
vígbúnað sinn á norðurslóðum.
Sovétríkin hafa svarað með meiri
hernaðaruppbyggingu á Kóla-
skaga þannig að vígbúnaðark-
apphlaupið heldur áfram sem
aldrei fyrr.
Þessi stefna sem valdið hefur
spennu milli stórveldanna og
aukið ófriðarhættuna á síðustu
árum birtist hér á landi í mikilli
uppbyggingu hernaðarmann-
virkja. Iþvísambandiernægilegt
að minna á ratsjárstöðvarnar og
olíuhöfnina í Helguvík. Herskip-
aheimsókn tengir íslendinga við
heræfingarnar þó þeir séu þar
ekki beinir þátttakendur. Hún
sýnir að aðildin að Nató gerir
okkur samábyrg í auknum hern-
aðarumsvifum á höfunum um-
hverfis landið.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
beint þeim tilmælum til aðildar-
landa sinna að þau noti friðarárið
1986 til kynningar á friðar- og af-
vopnunarmálum. Hér á landi
hefur lítið sem ekkert verið gert
af opinberri hálfu til þess að
minnast friðarársins. Þar á móti
kemur þó, að almenningi gefst nú
kostur á að fara um borð í USS
Doyle og skoða þar fallbyssur og
stýriflaugar.
Samtök herstöðvaandstæðinga
mótmæla eindregið þessari svo-
kölluðu vináttuheimsókn og
benda á hversu óviðeigandi hún-
er á friðarári. Heimsóknin og
tímasetning hennar undirstrikar
enn á ný nauðsyn þess að fslend-
ingar endurskoði stefnu sína í ör-
yggis og varnarmálum.
Island úr Nató - herinn burt.
:
g emnig i
Garðabæ
Hafðu samband
við okkur
DJOÐVIUINN
Síðumúlt 6
LAUS HVERFI
NÚ ÞEGAR
Tjarnargata.
Bjarkargata.
Faxaskjól.
Sörlaskjól.
Blaðburður er
besta trimmið
og borgar sig!
Þriðjudagur 2. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19