Þjóðviljinn - 02.09.1986, Page 16
utmnuiNN MtnririrtitwiiM
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Þriðjudagur 2. september 1986 197. tðlublað 51. ðrgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Fjórðungsþing Norðlendinga
Sveiri fátt til vamar
Steingrímur Hermannsson: Skólaaksturinn er smámál. Sturla Kristjánsson: Það eru svona „smámál
sem hafa hrakið fólk úr smœrri sveitarfélögum. Ályktað gegn niðurskurði til sérkennslu og skólaaksturs
Fyrirætlanir Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra um að skera niður framlög
ríkisins til sérkennslu og aksturs
skólabarna voru gagnrýndar
harðlega á fjórðungsþingi Norð-
lendinga á Siglufírði um helgina.
Fram kom í umræðum að sum
smærri og strjálbýlli sveitarfélög
verja meirihluta tekna sinna til
skólahalds og ef færa ætti enn
aukinn hlut af kostnaði við skóla-
hald á þeirra herðar yrði þeim
ofviða að framfylgja stefnu
grunnskólalaganna um jafnrétti
allra til náms.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra flutti erindi um
landsbyggðarmál og sagði meðal
annars að þetta skólaakstursmál
væri smámál. Vegna þessara um-
mæla forsætisráðherra sagði
Sturla Kristjánsson, fræðslustjóri
á Norðurlandi eystra, að það
væru „smámál“ sem þetta sem
ættu hvað helstan þátt í því að
fólksflótti hefur verið úr hinum
smærri sveitarfélögum til hinna
stærri.
Pálmi Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að
hann hefði enga trú á að það
stæði til í alvöru að draga úr fram-
lögum ríkisins til skólaaksturs,
enda hefði það ekkert verið rætt
innan stjórnarflokkanna.
Sverrir átti sér fáa verjendur á
þinginu og mælti enginn fyrirætl-
unum hans bót í umræðum. Þing-
ið samþykkti ályktanir þar sem
skorað var á ráðherrann að
tryggja nauðsynlega stuðnings-
og sérkennslu í öllum fræðsluum-
dæmum, og lýsti yfir undrun á
„nýframkomnum órökstuddum
fullyrðingum um spillingu og mis-
notkun sveitarfélaga við fram-
kvæmd skólaaksturs“.
Þá varaði þingið við „vanhugs-
uðum breytingum á skiptingu
skólakostnaðar, en telur rétt að
bíða eftir tillögum stjórnskipaðr-
ar nefndar um endurskoðun
grunnskólalaganna“.
-yk
Seljahverfi
Hrekkju-
svín í
beðunum
Kartöfluuppskera
Astu og Margrétar
stolið
Þegar við komum í skólagarð-
inn í morgun var búið að velja
það fallegasta úr beðunum og
stela því, sögðu vinkonurnar Ásta
Björg Guðmundsdóttir og Mar-
grét Vilborg Bjarnadóttir.
Við hittum þær að máli í skóla-
garðinum í Seljahverfi og voru
þær að vonum vonsviknar yfir að-
komunni í gærmorgun eins og
fleiri ungir garðyrkjumenn þar í
garðinum. Er slæmt til þess að
vita að starfsemi skólagarðanna
fái ekki frið fyrir hrekkjusvínum
og þjófum, en atvik eins og þetta
hafa verið algeng á hverju sumri.
ÁstaBjörkogMargrétVilborgvið tóm beðin. (Mynd: Sig).
SUF
Rainbowmálið
Stjómin
óþolinmóð
Svo kann að fara að ríkis-
stjórnin setji lög sem tryggi að ís-
lensk og bandarísk skipafélög hafí
jafnan rétt til flutninga fyrir her-
inn og bindi þannig enda á deilur
ríkisstjórnarinnar við Banda-
ríkjamenn um þessa eftirsóttu
flutninga, en fram til þessa hafa
Bandaríkjamenn alfarið sé um
þá.
Viðræður um þessa flutninga
hafa staðið lengi, en engin lausn
virðist vera í sjómáli. Þorsteinn
Pálsson segir að til greina komi
að setja slík lög ef ekki liggur fyrir
lausn í málinu fyrir lok þessa
mánaðar.
Þá hefur Jón Baldvin Hanni-
balsson hug á að leggja fram
frumvarp á alþingi, sem tryggi ís-
lendingum rétt til að annast flutn-
inga fyrir herinn.
Haft hefur verið eftir
Steingrími Hermannssyni forsæt-
isráðherra að „versnandi
sambúð“ íslands og Bandaríkj-
anna vegna þessa máls gæti
mögulega leitt til þess að sam-
skipti þeirra verði endurskoðuð,
þar á meðal varnarsamningur
ríkjanna. Ekki náðist í Steingrím
í gær.
I samþykkt frá þingflokki BJ er
lagst gegn því að setja íslensk ein-
okunarlög gegn bandarískum
einokunarlögum. - gg
Okurmálið
Ríkis-
saksóknari
áfrýjaði
Ríkissaksóknari áfrýjaði í gær
fyrsta dómnum sem felldur var í
okurmálinu í Reykjavík. Munu
önnur málaferii í okurmálinu
bíða þar til hæstiréttur hefur
kveðið upp dóm sinn.
Dómur var kveðinn upp fyrir
hálfum mánuði og var sak-
borningur dæmdur í 1.400 þús-
und króna sekt, en þar af var ein
miljón skilorðisbundin. Þá var
hinn dæmdi sýknaður af fjórum
ákæruliðum vegna trassaskapar
Seðlabankans, en hann hafði
ekki tilkynnt hámarksvexti hluta
af þeim tfma sem hinn dæmdi
hafði brotið af sér. Sparaði þann-
ig Seðlabankinn hinum dæmda
um 400 þúsund krónur.
Ríkissaksóknari gaf í gær út
áfrýjunarstefnu og birti hana.
- Sáf
Maddömusvipurinn óbreyttur
Flokkshollari vindar áSUF-þingi en búist var við.
Gissur Pétursson: markmiðið aðfjölgaþingsœtunum.
Tímaritstjórinn í Reykjanesframboð
ing ungra Framsóknarmanna
í Hrafnagilsskóla í Eyjafírði
varð ekki eins sögulegt og yfirlýs-
ingar fyrir þingið bentu til.
Undirbúnum ályktunardrögum
um samstarf við Alþýðuflokk og
fleira byltingarkennt var ýtt til
hliðar og í þeirra stað samþykkt
hefðbundin ályktun, og stór orð
um að skipta út þingliðinu á
kostnað hinna eldri varð að
klausu um að flokkurinn þyrfti að
endurnýja þinglið sitt „að hluta“.
Nýkjörinn formaður, Gissur
Pétursson, sagði við Þjóðviljann í
gær að meginniðurstaða þingsins
væri að til að afla flokknum fylgis
þyrfti að breyta starfsaðferðum
hans. Ekki hefði verið rætt um að
skipta um þingflokk, heldur væri
markmiðið fyrst og fremst að
koma ungu fólki á þing með því
að fjölga þingsætum flokksins.
„Starf nýrrar stjórnar verður nú
að hvetja ungt fólk til að gefa kost
á sér í prófkjör og hjálpa því að
berjast, ekki bara innan flokks-
ins, einnig útávið.“ Þá minntist
Gissur sérstaklega á skorinorða
ályktun um umhverfismál, -
„Framsóknarflokkurinn er harð-
ur umhverfisverndarflokkur".
Allursá vindursem varíykkur
fyrir þingið Gissur, - er hannfar-
inn úr ykkur aftur?
Nei, en hann blæs í aðra átt,
meira útávið en inn í flokkinn.
Þegar munu nokkrir ungra
Framsóknarmanna ráðnir í próf-
kjörsframboði. Finnur Ingólfs-
son ætlar frarn í Reykjavík, og
Guðni Ágústsson ffrá Brúnastöð-
um) á Suðurlandi. í því kjördæmi
er einnig rætt um Unni Stefáns-
dóttur, og talið er líklegt að Níels
Árni Lund ritstjóri Tímans ætli
sér fyrsta sætið á Reykjanesi. Þá
ber nafn Valgerðar Sverrisdóttur
á Lómatjörn á góma þegar hugað
er að eftirmanni Ingvars Gísla-
sonar á Norðurlandi eystra.
Þórður Ingvi Guðmundsson
var formaður þeirrar nefndar
sem lagði fram ályktunardrögin
sem lögð voru til hliðar. Hann
sagði Þjóðviljanum að þrátt fyrir
örlög ályktunardraganna teldi
hann tóninn á þinginu í þá átt.
Hann taldi að þetta þing hefði
fært SUF til vinstri, - „það hefur
ekki farið mikið fyrir vinstrihyg-
gju í stjórnartíð Finns Ingólfs-
sonar, núverandi samsetning
stjórnarinnar sýnist mér boða
vissar breytingar. Kannski er
þetta þing ákveðinn vendipun-
ktur um að hugleiða samstarf til
vinstri". _ m
Léttvín
Útsala hjá
Höskuldi
í dag hefst útsala á ýmsum létt-
vínstegundum í öllum útsölum
ÁTVR, - neina á Akureyri. Þetta
eru birgðir af vínum sem ekki
hafa hreyfst mikið, og ætlar
Höskuldur ÁTVR-stjóri og hans,
menn að slá af prísnum meðan
birgðirnar endast.