Þjóðviljinn - 11.09.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
SKEIÐARÁ
HEIMURINN
ÍÞRÓTTIR
Ríkisvaldið
Vill afnema verkfallsrétlinn
Stéttarfélög opinberra starfsmanna sameinast gegn hugmyndum fjármálaráðherra.
Kristján Thorlacius: Látum ekki ríkisvaldið deila og drottna
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, launamálaráð ríkis-
starfsmanna í BHM og Bandalag
kennarafélaga hafa tilkynnt fjár-
málaráðherra að þau hafi ákveð-
ið að koma sameiginlega fram í
viðræðum um samnings- og verk-
fallsrétt opinberra starfsmanna.
Þetta samstarf stéttarfélaganna
er ekki síst tilkomið vegna hug-
mynda ríkisvaldsins um stór-
fellda skerðingu á samnings- og
verkfallsrétti opinberra starfs-
manna.
Á fundi okkar með fulltrúum
ríkisins á dögunum kynntu þeir
hugmyndir um að setja í löggjöf
hvaða starfshópur opinberra
starfsmanna mættu ekki fara í
verkfall. Þar voru uppi hugmynd-
ir um að afnema með öllu verk-
fallsrétt hjá heilbrigðisstéttum,
löggæslu og ýmsum fleiri starfs-
hópum. Þetta getum við engan
veginn sætt okkur við. Grund-
vailaratriðið hjá okkur með þess-
um samningsviðræðum er að fá
aukinn rétt í samnings- og verk-
fallsmálum en ekki að afnema
þann rétt sem við höfum fyrir,
sagði Kristján Thorlacius for-
maður BSRB í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
„Við ætlum ekki að láta ríkis-
valdið deila og drottna heldur
höfum við ákveðið að standa
saman í þessari baráttu fyrir bætt-
um rétti okkar félaga. Meginat-
riðið hlýtur að vera að samræma
löggjöf um samningsrétt opin-
berra starfsmanna við það sem
gildir hjá öðrum stéttarfélögum",
sagði Kristján Thorlacius.
-Ig-
Góðcerið
Enginn
velt um
góðæríð
Almenningur kannast
ekki við góðœri
íeigin vösum
Upp á síðkastið hafa ráðamenn
og aðrir keppst við að skýra frá
því í fjölmiðlum að nú sé góðæri í
þjóðfélaginu, meira en áður hef-
ur gerst. Efnahagslífið er í blóma,
metafli á miðunum og Þjóðhags-
stofnun spáir minni viðskipta-
halla á árinu, meiri hagvexti og
minni verðbólgu.
Spurningin er því hvort al-
menningur hafi orðið var við
þennan mikla efnahagsbata og
hvort lífsafkoma hefur batnað.
Þjóðviljinn fór á stúfuna í gær og
innti fólk eftir þessu en svörin
voru öll á sömu lund, almenning-
ur kannast ekki við góðæri í eigin
vösum. „Þetta er bara eitthvað
sem maður heyrir um og les í
blöðum“, sagði einn viðmælenda
blaðsins í gær. Sjá nánar á síðu 2.
-vd.
íslenska Iandsll6i6 í knattspyrnu var nálægt slgri á Evrópumeisturum hægri, reyndi einnig að ná til boltans en Joel Bats markvörður er vfðsfjarri.
Frakka á Laugardalsvellinum. Eitt besta færið í leiknum sést á myndinni, Mynd: E.OI. Sjá íþróttir bls. 15.
Sævar Jónsson skýtur framhjá marki Frakka. Ragnar Margeirsson, lengst til
Vestfirskir kratar
Skólamál
Stefnir í stórslag
Hólmganga Karvels ogSighvats á nœsta leiti. Mikil uppstokkun
framundan: Jón Baldvin íhugar aðfarafram á Austurlandi, Árni
Gunnarsson villflytja sig til Reykjavíkur. Toppkratar vildufá
GuðmundJsemafþakkaði
Troðið í skólana
Velflestirskólar íReykjavík og á Reykjanesi
tvísetnir. Ekki gert ráðfyrir öðru
Forystumenn krata hafa rætt
sín á milli um þann möguleika að
fá Guðmund J. Guðmundsson,
þingmann Alþýðubandalagsins, í
framboð fyrir Alþýðuflokkinn í
Reykjavík. Guðmundur hefur
hins vegar tekið því víðs fjarri.
En talið er að öruggt sæti losni á
listanum í Reykjavík, þar sem
Jón Baldvin íhugar sterklega að
bjóða sig fram á Austfjörðum,
þar sem kratar hafa ekki haft
mann inni síðan 1959.
Miklar sviptingar eru því fram-
undan í framboðsmálum krata,
og innan Alþýðuflokksins telja
menn að eftir yfirlýsingar Jóns
Baldvins Hannibalssonar um
framboð á Austfjörðum geti for-
maðurinn ekki horfið frá því án
þess að teljast ómerkingur. Það
vilji hann alls ekki og því sé hon-
um nauðugur einn kostur að
standa við yfirlýsingarnar. En
breytingar á kosningalögum gera
líkur á kosningu hans þaðan
óvissari en samkvæmt gömlu lög-
unum.
Á Vestfjörðum stefnir í mikla
hólmgöngu á milli Sighvats
Björgvinssonar, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, og Karvels Pálma-
sonar, sitjandi þingmanns. Sig-
hvatur hefur samkvæmt heimild-
um Þjóðviijans útbúið öfluga
kosningavél í héraði, en Karvel
hefur hins vegar misst mikilvæga
stuðningsmenn. Til að koma í veg
fyrir stórslag milli þeirra hafa Jón
Baldvin og helsti pólitíski ráð-
gjafi hans, Ámundi Ámundason,
áformað að bjóða Sighvati efsta
sætið í Norðurlandi vestra.
Frekari uppstokkun er á döf-
inni, - þannig íhugar Árni Gunn-
arsson nú að flytja sig úr Norður-
landi eystra og fara í prófkjörið í
Reykjavík, þar sem Jón og Ám-
undi vilja styðja hann til þriðja
sætisins.
-ÖS
Sjá opnu.
að eru allir skólar í Reykjavík
tvísetnir að þremur undan-
skildum sem eru eingöngu með
7.-9. bekk en lyá þeim er skóla-
dagurinn of langur til þess að
hægt sé að tvísctja skólana, sagði
Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslu-
stjóri í Reykjavík f samtali við
blaðið í gær.
„Ókostir þessa fyrirkomulags
eru mjög margir og má sem dæmi
nefna að börn í sömu fjölskyldu
verða oft að fara í skólann á mis-
munandi tímum og auk þess hafa
kennarar engan sameiginlegan
tíma til fundahalda né til að sinna
nauðsynlegum verkefnum.
Allt samstarf er því erfiðara
þegar troðið er svona í skólana.
Slysahætta eykst einnig mjög
þegar börn eru að fara í skóla á
ótrúlegustu tímum og það væri
nær að veita því fé sem fer í afleið-
ingar þessa í fyrirbyggjandi að-
ferðir. Þá má nefna að mikið er
lagt upp úr námsumhverfi barna í
dag sem þarf auðvitað að vera
mismunandi fyrir mismunandi
aldurshópa. Þegar 8. bekkur not-
ar sömu stofu fyrir hádegi og 8
ára börn nota á öðrum tímum
skapar það erfiðleika og fyrir-
höfn fyrir alla aðila."
í fyrra var ákveðið að Folda-
skóli yrði einsetinn skóli en vegna
íbúaaukningar í hverfinu hefur
börnum þar nú fjölgað úr 160 í
260 og því er skólinn nú tvísetinn
einsog aðrir skólar. Sörnu sögu er
að segja á Reykjanesi, að sögn
Margrétar Guðjónsdóttur skrif-
stofustjóra Fræðsluskrifstofunn-
ar þar eru allir skólar, nema þeir
sem eingöngu sinna eldri bekkj-
ardeildum, tvísetnir. „Það er
ekki gert ráð fyrir öðru í bygging-
arnormum menntamálaráðu-
neytisins en að stofur fyrir börn á
aldrinum 6-9 ára séu tvísetnar"
sagði Margrét. -vd.