Þjóðviljinn - 11.09.1986, Side 2
*
FRETTIR
Góðœrið
Hvar er efnahagsbatinn?
Þjóðviljinn kannar viðhorf almennings
Þessa dagana keppast ráðamenn við að skýra frá því í fjölmiðlum að
mikill efnahagsbati hafi orðið með þjóðinni og hagvöxtur og þjóðar-
tekjur mun meiri en búist var við. í spá Þjóðhagsstofnunar er gert ráð
fyrir því að viðskiptahallinn verði mun minni en áður var áætlað og að
verðbólgan fari niður fyrir 10% þegar upp verður staðið. Blaðamaður
Þjóðviljans fór því á stúfana og spurðist fyrir um þetta margumrædda
góðæri hjá almenningi, hvort fólk yrði vart við það í eigin lífi eða í
kringum sig. Svörin sem birtast hér á síðunni eru mjög á eina lund:
Enginn veit um góðærið...
- vd.
Jón Magnússon pylsusali í Austurstrætí: Fólk er hætt að treysta á aðra.
Mynd: E.ÓI.
Öiyggisleysi áberandi
Eg get ekki séð að fólk hafi það
neitt betra en á sama tíma í
fyrra, þótt bati sé í efnahagslíf-
inu, það kaupir að minnsta kosti
ekkert meira af pylsum, sagði Jón
Magnússon, 26 ára pylsusali í
Austurstræti, þegar hann var
spurður eftir góðærinu.
„Eina breytingin sem ég hef
orðið var við er að mér finnst
andlegt öryggisleysi vera meira
áberandi hjá fólki en áður vegna
skakkfalla ársins, til dæmis Haf-
skipsmálsins, og að einn stærsti
bankinn skuli vera viðriðinn það.
Þetta bakar öryggisleysi hjá fólki
og það finnur að það verður að
treysta meira á sjálft sig en aðra í
þjóðfélaginu. Sjálfur er ég ágæt-
lega launaður og lifi einn dag í
einu, eins og launin leyfa.“
Ásgeir Þorleitsson stæðisvörður í Kolaportinu: Ekkert góðæri í mínum vösum.
Mynd: E.ÓI.
Ekkert í mínum vasa
etta góðæri er ekki komið í
minn vasa, ég er jafn illa
launaður og áður einsog aðrir op-
inberir starfsmenn, sagði Ásgeir
Þorleifsson stæðisvörður í bíla-
geymslunni í Kolaportinu þegar
blaðamaður innti hann eftir því
hvort afkoma hans hefði batnað í
góðæri því sem nú ríkir í efna-
hagslífinu.
„Þetta eru happdrættisvinning-
ar sem valda þessum efnahags-
bata og það verður ekki gert út á
þá“, sagði Ásgeir. „Ég vona að
minnsta kosti að þetta skili sér í
gerð næstu kjarasamninga, ekki
veitir af.“
Jóhann I. Jóhannsson gjaldkeri í Útvegsbankanum: Laun hata ekki hækkað
miðað við vöruverð. Mynd: E.ÓI.
Einsog meðalár
etta er eins og hvert annað
meðalár og ég get ekki séð að
launin hafí hækkað neitt í sam-
ræmi við vöruverð, sagði Jóhann
I. Jóhannsson gjaldkeri í gjald-
eyrisdeild Útvegsbankans.
Aðspurður sagðist hann ekki
hafa orðið var við að ásókn í
gjaldeyri væri meiri en áður, hún
væri svipuð og venjulega. „Ég hef
ekki meiri pening á milli hand-
anna en áður, hvorki mína eigin
né annarra sem skipta við bank-
ann“, sagði Jóhann.
Alltaf jafn blönk
Fólk hefur það ekkert betra en
áður, það er helst að það sé
meiri skipting á milli hópa, sagði
Anna Friðbjörnsdóttir af-
greiðslustúlka í Garbó, þegar hún
var spurð um góðærið.
„Fólk kaupir ekki meira af dýr-
ari vörum, og það spáir ennþá
mikið í verðlagið. Á meðal þeirra
sem ég umgengst í daglegu lífi er
jafnvel kvartað undan verri af-
komu meira en venjulega. Mér
finnst að það ætti að lækka skatt-
ana ef það á að nota þessar auknu
tekjur fyrir fólkið sjálft. Ef mað-
ur reynir að bæta tekjurnar með
meiri vinnu þá er allt tekið af
manni með sköttum, og það væri
best ef það væri komið upp stað-
greiðslukerfi. Ég finn ekki fyrir
þessu góðæri, mér finnst ég alltaf
vera jafn blönk.“
Anna Friðbjörnsdóttir afgreiðslustúlka í Garbó: Fólk kvartar enn meira undan
lélegu kaupi en áður. Mynd: E.ÓI.
Les um það í blöðum
að er ekkert merkjanlegt góð-
æri hér, sagði Kristbjörg
Oddgeirsdóttir afgreiðslustúlka í
kjörbúð Víðis í Austurstræti.
„Fólk minnist ekkert á að vöru-
verðið hafi hækkað því það er
orðið svo vant verðbólgunni að
það hefur misst allt verðskyn.
Allar mjólkurvörur hækkuðu
til dæmis nýlega og enginn hefur
minnst á það. Fólk kaupir heldur
ekki neitt meira af dýrari vöru en
það hefur gert, það verslar það
nauðsynlegasta á hlaupum, alltaf
að flýta sér. Það eru auðvitað
fyrst og síðast launþegar sem eiga
að verða varir við góðærið, og
það eru þeir sem eiga að njóta
þessara bóta í bættum kjörum.
Þetta góðæri er bara eitthvað sem
maður les um í blöðum, en finnur
ekki fyrir í buddunni.“
Kristbjörg Oddgeirsdóttir afgreiðslustúlka í Víði: Fólk hefur misst allt verðskyn.
Mynd: E.ÓI.
Góðæri í Þjóðhagsstofnun?
Bullandi góðæri hér? Það er að
minnsta kosti ekkert tap,
sagði Steinunn Atladóttir skrif-
stofustúlka hjá Þjóðhagsstofnun
þegar hún var innt eftir góðær-
inu.
„Ég er í skóla á vetrum og vinn
hér á sumrin, og get eiginlega
ekki sagt að ég finni sjálf fyrir
afgerandi breytingum. Ég er ekki
farin að kaupa skólabækurnar
ennþá en ég býst við að þær kosti
töluvert mikið. Ég ætla að vinna
með skólanum og tek ekki náms-
lán, því ég bý heima og ég býst við
að ég neyðist til að fá einhvern
styrk frá foreldrum mínum.“
Steinunn Atladóttir skrifstofustúlka hjá Þjóðhagsstofnun: Ætla að vinna með
skólanum. Mynd: E.Ól.
Það er sama sagan hér, ekkert
góðæri hjá mér heldur...!
I
Síldin
Verður
að byggja
a oðru
en söltun
- Það eina sem ég get sagt er að
Sovétmenn hafa tilkynnt að þeir
séu ekki tilbúnir til viðræðna um
saltsfldarkaup frá íslandi fyrr en í
lok september eða fyrrihluta
október. Meðan formlegar við-
ræður eru ekki hafnar hvorki vil
ég né get tjáð mig frekar um
samningsstöðuna við Sovétrík-
in“, sagði Gunnar Flóvenz fram-
kvæmdastjóri Síldarú-
tvegsnefndar I samtaii við Þjóð-
viljann í gær.
Aðspurður sagðist Gunnar
vilja benda á að hjá öðrum síld-
veiðiþjóðum færi ekki nema brot
af sfldinni til söltunar vegna mjög
takmarkaðra markaða. „Veiðar
á miklu og vaxandi síldarmagni
hér verða því eins og annarsstað-
ar að byggjast að verulegu leyti á
annarri vinnslu en söltun. Þetta
er öllum ljóst sem til markaðs-
mála sfldar þekkja.“
Gunnar sagði að viðræður við
kaupendur saltsíldar í Svfþjóð og
Finnlandi væru komnar á lokastig
og yrði síldarsaltendum gerð
grein fyrir niðurstöðum þeirra
strax og þær lægju fyrir.
- Ig-
Leikhús
Brúður á ferð
Apinn Lilli, Amma, Krókódfll-
inn, Úlfurinn og þrjátíu aðrar
brúður úr Brúðubílnum ferðast
um Snæfellsnes nú í vikulokin.
Fyrsta sýning er á Hellissandi í
dag klukkan 15.00, á morgun er
sýnt í Ólafsvík á sama tíma, og
síðan liggur leið til Grundarfjarð-
ar og Stykkishólms. Á mánudag
er farið í Dalabúð í Búðardal.
Tónlist
Guðný
fyrir austan
í kvöld halda Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari og
Catherine Williams píanóleikari
tónieika í Neskaupstað, Egilsbúð.
Á morgun leika þær í Valhöll,
Eskifirði, á laugardag á Reyðar-
firði, síðan á Seyðisfirði og á Eg-
ilsstöðum. Á efnisskrá eru verk
eftir Mozart, Bach, Jónas Tóm-
asson, Tsjækovskí og fleiri.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNj Fimmtudagur 11. september 1986