Þjóðviljinn - 11.09.1986, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Kennaraskortur
Kennumm vísað frá
Aslaug Brynjólfsdóttirfrœðslustjóri: Hólabrekkuskóli hefur
ekki auglýst eftir kennurum og ekki lýst vanda sínum við
skólaskrifstofuna, því var kennurum vísaðfrá
Skólastjóri í Hólabrekkuskóla
hefur fullt umboð til að aug-
lýsa eftir kennurum en það hefur
ekki verið gert. Það hafa ekki
komið neinar tillögur frá skóla-
stjóra um úrbætur á kennara-
skortinum. Því bað ég mennta-
málaráðuneytið um að auglýsa
eftir kennurum til að kenna í
grunnskólum“, sagði Aslaug
Brynjólfsdóttir fræðslustjóri, í
samtali við Þjóðviljann, vegna
þeirra ummæla skólastjóra Hóla-
brekkuskóla að nú sé komið að
fræðsluyfírvöldum að leysa mál-
ið.
„Skólastjóri hefur ekki lýst
vanda sínum við skólaskrifstof-
una. Skólafulltrúi kom fram í út-
varpi nýlega og sagði að enga
kennara vantaði. Þegar ég spurð-
ist fyrir hjá skólaskrifstofunni var
mér sagt að það vantaði ekki
kennara. Ég þekki fólk með full
kennararéttindi sem hringdi á
skólaskrifstofuna og því var sagt
að það væri enga vinnu að fá, það
vantaði ekki kennara. Nú er
þetta fólk farið annað, því skóla-
stjórar utan af landi hafa sjálfir
auglýst eftir kennurum."
Aslaug sagði ennfremur að til
hennar hefði hringt kennari með
réttindi sem sótti um fullt starf í
Hólabrekkuskóla en var vfsað frá
á þeim forsendum að það vantaði
aðeins í þrjár hálfar stöður.
„Þetta hefði þurft að skipuleggja
betur“, sagði Áslaug.
Að mati Áslaugar ættu skóla-
Einvígið
Meistarinn
frestar
Heimsmeistarinn Kasparoff
frestaði í gær 15. einvígisskákinni
við Karpoff í viðureign þeirra
sem nú hefur flust til Leníngrad.
Staðan í einvíginu er 8-6, Kasp-
aroff í vil, eftir sigur hans í 14.
skákinni.
Frestunarákvörðun Kaspa-
roffs kom einvígisskýrendum
nokkuð á óvart því búist var við
að hann mundi nýta sér sálfræði-
legan meðbyr til að koma and-
stæðingnum á kné hið fyrsta.
Hvor skákmeistari um sig hefur
rétt til að fresta þremur skákum
og hefur hvor um sig nú frestað
tvisvar. Fimmtánda skákin verð-
ur ef að líkum lætur tefld á morg-
un og hefur Karpoff hvítt.
-m/reuter
stjórar sjálfir að bera ábyrgð á
þessum málum og spyrja fræðslu-
ráð Reykjavíkur hvort þeir ættu
að ráða réttindalausa kennara til
skamms tíma. „Síðan kemur til
Við höfum í hyggju að
heimsækja 120-160 fyrirtæki
um allt land á næstu tveimur
mánuðum til þess að kynna þjón-
ustu okkar beint fyrir fólkinu“
sagði Páll Kr. Pálsson forstöðu-
maður Iðntæknistofnunar ís-
lands í samtali við blaðið í gær.
„Við munum halda fundi á 12-
16 stöðum og sá fyrsti verður á
Akranesi á fimmtudag. Þessi
ákvörðun var tekin í kjölfar þess
að stofnunin verður að afla meiri
sértekna en áður, þar sem fram-
lag ríkissjóðs fer alltaf minnkandi
og með þessu hyggjumst við auka
kasta Menntamálaráðuneytisins
og síðan mín.“
Ekki náðist til Sigurjóns Fjel-
sted skólastjóra Hólabrekku-
skóla í gær. -Sa.
verkefni okkar og ná betra sam-
bandi við fyrirtækin. Þá ætlum
við að kynna Verkefnahandbók
Iðntæknistofnunar sem kom út
nýlega en í henni er að finna upp-
lýsingar um verkefni starfsmanna
næstu 6 mánuði. Alls taka þátt í
þessari kynningu 15-20 starfs-
menn og þeir skipta með sér
landshlutunum. Vikuna 22.-28.
september munum við til dæmis
verða á öllum þéttbýlisstöðum á
milli Hvammstanga og Húsavík-
ur. Og stefnan er að ljúka ferð-
inni í lok nóvember“ sagði Páll
Kr. Pálsson að síðustu. -vd.
Páll Kr. Pálsson forstöðumaður Iðntæknistofnunar: Við ætlum að heimsækja
120-160 fyrirtæki um allt land og kynna þjónustu okkar. Mynd Sig. Mar.
Iðntœknistofnun
Kynningarherferð
um landið
Páll Kr. Pálssonforstöðumaður: Heimsœkjum 150
fyrirtœki um allt land
MJÓLKINA HEIM
ÞIÐ, SEM HALDIÐ STÓR HEIMILI OG SINNIÐ DAG-
LEGUM HEILBRIGÐISÞÖRFUM UNGRA SEM ALDINNA,
ÆTTUÐ EKKI LENGUR AÐ ÞURFA AÐ ROGAST HEIM AF
MARKAÐI MEÐ PLASTPOKA ÞUNGAÐA MJÓLK OG
ÖÐRUM MJÓLKURAFURÐUM.
KAUPMAÐUR, SEM HÓF VERSLUN 1960 ÆTLAR AÐ
SELJA YKKUR MJÓLKURVÖRUR OG SENDA HEIM.
SENDIR VERÐA12 EÐA FLEIRILÍTRAR EFTIR ÞÖRFUM,
ANNAÐ HVORT Á TILTEKNUM DÖGUM VIKUNNAR EÐA
DAGLEGA.
AFGREITT VERÐUR BEINT FRÁ MJÓLKURSTÖÐ SAM-
KVÆMT SAMKOMULAGI SVO ÞEIR, SEM NJÓTA 3-4
LÍTRA Á DAG ÆTTU ALLTAF AÐ HAFA FERSKA NÝ-
MJÓLK(SKÁPNUM.
AÐ LOKNUM UNDIRBÚNINGIOG GERÐ SAMNINGA VIÐ
VIÐSKIPTAVINI MUN DREIFING HEFJAST. ÁRÍÐANDI
ER, AÐ ÞEIR, SEM ÁHUGA HAFA Á VIÐSKIPTUM GEFI
ÞAÐ TIL KYNNA STRAX. EKKERT VERÐUR HÆGT AÐ
GERA í MÁLINU NEMA UNDIRTEKTIR SÉU GÓÐAR.
SÖLUVERÐ VERÐUR HIÐ SAMA OG (VERSLUNUM AL-
MENNT.
SENDIÐ PÖNTUN
VINSAMLEGA LÁTIÐ VITA UM VIÐSKIPTIN,
SVO AÐ GERA MEGI SAMNING Á EFTIRFAR-
ANDI FORSENDUM YÐAR:
□ ÉG MUN TAKA VIÐ ÖLLUM SENDINGUM, SEM
SAMIÐ ER UM, ENDA VERÐA ÞÆR BORNAR
AÐ DYRUM ÍBÚÐAR MINNAR. MUN ÉG ÞÓ
HEIMILA AÐ ÞÆR VERÐI SKILDAR EFTIR Á
TILTEKNUM STAÐ ( HÚSI M(NU SÉ ENGINN
HEIMA.
□ ÉG GET AFTURKALLAÐ AFGREIÐSLU HVAÐA
DAG SEM ER MEÐ TILKYNNINGU UM SÍMA,
DAGINN FYRIR AFGREIÐSLUDAG.
□ ÉG MUN HEIMILA GREIÐSLU VEGNA VIÐ-
SKIPTANNA AF HÁLFU GREIÐSLUKORTA-
FIRMA EÐA GERA ANNAÐ SAMKOMULAG VIÐ
SEUANDA UM GREIÐSLUR.
ÆTLAÐ ER AÐ MARGIR MUNI VILJA FÁ SENDINGU
EINU SINNI EÐA TVISVAR í VIKU, HLÝTUR ( ÞEIM MÁL-
UM FYRST SINN AÐ FARA EFTIR AÐSTÆÐUM OG
SVÆÐUM, HVAÐA DAG VIKUNNAR AFGREITT VERÐUR
OG Á HVAÐA T(MA DAGS. MEST VERÐUR VÆNTAN-
LEGA AFGREITT SNEMMA DAGS OG ÞÁ EINNIG SÍÐLA,
Þ.E. MILLI 16-20.
SÖLUSVÆÐIÐ ER ÞÉTTBÝLIÐ Á HÖFUÐBORGAR-
SVÆÐINU ÖLLU, Þ.E. REYKJAVÍK, KÓPAVOGUR,
GARÐABÆR OG HAFNARFJÖRÐUR; EF TIL VILL
SUÐURNES SÍÐAR.
LÁTIÐ VITAAFYKKUR, NOTIÐTILÞESSÚRKLIPPU HÉR
AÐ NEÐAN.
MJÓLKURPÓSTURINN
Pósthólf 8743,128 Reykjavík
Sími 22575.
Klippiðfrá.............................
Sendandi_______________________________
Nafn___________________________________
Heimili
Sími _
□ Ég hef hug á viðskiptum
Mjólkurpósturinn
Pósthólf 8743
128 Reykjavík
[rýming ARSALAl
AFSLÁTTUR
KREOITKORT
E1 EURO
I KREDIT
I EUROCARD
Teppa/and Dúkaland
GRENSÁSVEG113, REYKJAVlK, SlMAR 83577 OG 83430
Fimmtudagur 11. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3