Þjóðviljinn - 11.09.1986, Page 12
------—--w----
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Boöaö hefur verið til aöalfundar kjördæmisráös á Austurlandi á
Fáskrúðsfirði 11.-12. október. Samkvæmt reglum ráðsins skal
hvert aðildarfélag kjósa einn fulltrúa fyrir hverja 8 félagsmenn eða
brot úr þeirri tölu. Er því áríðandi að þau félög sem ekki hafa haldið
aðalfund geri það hið fyrsta til að kjósa í kjördæmisráðið.
Framkvæmdanefnd.
ÆSKULÝÐSFYIKINGIN
Hagfræðinámskeið!
Efni: Þjóðhagsreikningar og Hugtök í Hagfræði.
Leiðbeinandi: Ari Skúlason.
Fróðleiksfúsir sem hafa áhuga þurfa að taka frá í
dagbókinni sinni fimmtudagskvöldin 18. og 25. sept-
ember næstkomandi (kl. 20:00). Fjöldinn verðurtak-
markaður við 20 þátttakendur. Skráning í síma 1 75
00, hjá Æskulýðsfylkingunni.
Áhugahópur um fræðsiumiðlunarstarf.
Haustfagnaður, Haustfagnaður!
Árlegt glens, grín, fjör, og gaman að hætti ÆF-félaga verður 20. sept.
n.k. Þá verður kaffihús um daginn milli 14:00 og 18:00, þar sem ýmsir
þjóðkunnir sem óbreyttir félagar verða teknir á beinið og látnir skemmta
bæði sér og öðrum. Einstök kvöldvaka hefst svo klukkan 22:00, þar sem
skerpt verður á söngröddinni með dynjandi baráttumúsik fram á nótt.
Fjartengslahópur
Landsþing!
Kæri félagi nú fer senn að líða að landsþingi, þannig að það er ekki seinna
vænnna að fara að plotta. Þingið verður haldið 3. til 5. október í Ölfusborg-
um. Dagskrá verður auglýst síðar og ef þú ert skráður félagi í ÆF mátt þú
eiga von á pappírsbunka um bréfalúguna einhvern daginn. Ef þú vilt koma
einhverjum hugmyndum á framfæri; hvaö sem það kynni nú að vera þá,
getur þú annað hvort skrifað okkur á skrifstofuna Hverfisgötu 105, eða
hreinlega mætt á staðinn i kaffi og kjaftaö við okkur. Skrifstofan hjá ÆF
verður opin daglega fram að þingi frá 9-18.
Framkvæmdarpð ÆFAB
Alþjóðlegt friðarþing
í Kaupmannahöfn 15.-19. október 1986.
Kynningarfundur miðvikudaginn 10. septemb-
er kl. 20.30 á Hverfisgötu 105, 4. hæð. Ásdís
Þórhallsdóttir segir frá undirbúningsfundi sem
hún er nýkomin af.
Allir velkomnir.
Áhugahópur um utanlandsferðir
Ásdís Þórhallsdóttir.
Halló Hveragerði!!!
Fundaherferð Æskulýðsfylkingarinnar er að skella á. Fyrsti fundurinn verð-
ur í Verkalýðsfélagshúsinu Boðinn í Hveragerði kl. 20.00 fimmtudaginn 11.
september.
Hvað er ÆF? Hvað erum við að gera? Hvað viljum við? Þetta allt og miklu
meira fáið þið að vita ef þið komið á fundinn í kvöld og spjallið við fulltrúa
Fylkingarinnar.
Sjáumst
HÆ ÞÚ!
Landsþing, landsþing!
Viltu bylta, þarf að þreyta? Ef þú ert með hugmyndir, komdu þeim þá
endilega á framfæri við félaga þína og ræðum þær svo á landsþinginu þar
sem við hittumst öll. Pappírsbunkinn sem boðað hefur komu sína inn um
bréfalúgu ÆF-ara verður sendur út um miðja næstu viku.
Þú getur komið á framfæri lagabreytingum, tillögum, ályktunum og bara
hugrenningum þínum yfirleitt í þessum bunka. Komdu þessu bara til Ónnu
á skrifstofunni Hverfisgötu 105 eigi síðar en á þriðjudaginn 16. október, þú
aetur gert það hvort sem er símleiðis, bréfleiðis eða komuleiðis.
A skrifstofunni getur þú fengið vélritunaraðstöðu og þær upplýsingar sem
liggja fyrir. Hafðu samband.
Framkvæmdaráð ÆFAB
SKÚMUR
KALLI OG KOBBI
Mér finnst kominn tími til að við förum að fá hér nýjan pabba. Hvenær lýkur
s kjörtímabilinu hjá þér? r
i {
/V'<^ '
Éa
Mér þykir það leitt sonur, ég
er skipaður í þá stöðu
ævinlangt. /
GARPURINN
FOLDA
í BLÍÐU OG STRÍÐU
PÓST- OG
Sí M AMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
VERKAMENN
til starfa í nágrenni Reykjavíkur. Nánari upplýs-
ingar verða veittar í síma 26000.
r 2 ; T" □ ■ 8 3“ 7
LJ ii
9 10 1 □ ii ■
12 13 n 14
• L.J 18 18 m
17 [18 m 18 20
21 ; f ■ □ 22 23 í;S □
24 m 28
KROSSGÁTA
Nr. 15
Lárétt: 1 sæti 4 skrafi 8 baráttu-
skap 9 spýjan 11 fjær 12 dimma
14 sólguð 15 óhreinkar 17 flókna
19 títt 21 svardaga 22 karl-
mannsnafn 24 kyrrð 25 flakk
Lóðrétt: 1 vond 2 ans 3 nískan 4
skordýr 5 umboðssvæöi 6 eyðir 7
sjá eftir 10 ósannsöglir 13 inn 16
hrósa 17 vatnagróður 18 súld 20
málmur 23 mælir
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kver 4 seig 8 keflinu 9
eski 11 unnt 12 meiðar 14 al 15
aska 17 skinn 19 lúr 21 lið 22 illt
24 árar 25 Æsir
Lóðrétt: 1 krem 2 ekki 3 reiðan 4
slurk 5 ein 6 inna 7 gutlar 10 serk-
ir 13 asni 16 alls 17 slá 18 iða 20
úti 23 læ
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. september 1986
All Rights Reserved